Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2001, Blaðsíða 34
34
LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 2001
Helgarblað
DV
Ég er ekkert
Kaffibarsævintýri
Erpur Eyvindarson er ættaður úr
Skjaldabjarnarvík á Hornströndum.
Hann býr við Framnesveginn og
það stendur bara Erpur á dyrabjöll-
unni. Erpur býr þó langtífrá einn
því í honum sjáifum búa i það
minnsta tvær aðrar landsþekktar
persónur, sjónvarpsstjarnan
Johnny National og rapparinn
Blazroca úr XXX Rottweiler hund-
um. Það er svo sem þekkt að lista-
menn eigi sér alteregó en kannski
sjaldgæfara að þau séu tvö eða jafn-
vel fleiri eins og í tilviki Erps.
Kannski er þetta af því hann er ætt-
aður að vestan, kannski ekki.
Enginn stílisti
Erpur var svo sem ekki óþekktur
fyrir. Hann hafði frá því hann var
lítill gert stuttmyndir, ort ljóð og
teiknað. Hann vann með félögum
sínum myndbandasamkeppni fé-
lagsmiðstöðva meö Emilíönu Torr-
ini í einu af aðalhlutverkunum,
sýndi stuttmynd á Stöð 2, flutti ljóð
á seinustu afmælisdagskrá Halldórs
Laxness meðan hann var á lífi og
teiknað myndir í Gisp! (þar sem
hann vann teiknimyndasamkeppni
14 ára gamall) og Blekblaðiö. „Það
bjó mig enginn til,“ segir Erpur.
„Það var enginn stílisti eða umboðs-
maður sem uppgötvaði mig. Þetta
var ekkert Kaffibarsævintýri þar
sem einhver kom til mín og sagði:
„Hei, ég ætlaði að gera þig að
stjörnu!““
Boöiö daglega á barinn
„Ég átti einu sinni gaur sem hét
Johnny Volvo,“ segir Erpur og bæt-
ir einni figúrunni við persónuleika-
safn sitt. „Ég notaöi hann reyndar
aðeins einu sinni og það var í þætti
á rás 2. Hann var mjög fyndinn og
raunar ein af ástæðum þess að við
urðum að hætta með þennan þátt.
Hann þótti of grófur.“
Johnny National er hins vegar
sprelllifandi og hefur verið í eitt og
hálft ár. „Sindri Kjartansson hafði
samband við mig með hugmyndina
að þættinum og vantaði hrokafullan
stórborgarkarakter. Sindri tók
ásamt Áma og Hrönn Sveinsbörn-
um þátt i mótun karaktersins en ég
bjó hann til sjálfur. Hann hefur þró-
ast mikiö milli sería en hann var í
raun í mótun alla fyrri seríuna;
hann datt stundum úr karaketer en
nú er hann fullmótaður." Erpur seg-
ir að það hafi verið gengiö mjög á
eftir honum með að taka verkefnið
aö sér, „mér var daglega boðið á
barinn. Ég ákvaö loks að slá til;
hugsaði með mér að þetta væri bara
einn mánuður og svo gæti ég haldið
áfram með Rottweiler sem er aðal-
málið. En eftir þetta fór allt á fullt.
Ég hef verið á árshátíðum í vetur
hjá fyrirtækjum eins og deCODE,
Hagkaupum og Hreyfingu. Það er
mikiö sem tengist Johnny
National."
gæti gert svona. Þeir eru margir úti
sem vita hvemig á að vera flippaður
og wild án þess að fara yfir strikið,"
segir Erpur og bendir á ungu mennina
sem em reiðir yfir engu og það í
bundnu máli. „Þeir tóku stílinn frá
Rage Against the Machine en slepptu
innihaldinu. Þetta em menn sem era
reiðir yfir að missa af strætó."
DV-MYND BRINK
Erpur Eyvindarson
„Ég átti einu sinni gaur sem hét Johnny Volvo, “ segir Erpur og bætir einni fígúrunni viö persónuleikasafn sitt. „Ég not-
aöi hann reyndar aöeins einu sinni og þaö var í þætti á rás 2. Hann var mjög fyndinn og raunar ein af ástæðum þess
aö viö uröum að hætta meö þennan þátt. Hann þótti of grófur."
Blaz er snilljngur
„Johnny Naz er bara grín,“ segir
Erpur. „Hann er steríótýpa af því sem
mér finnst fyndið. Hann er með plat-
ínutennur, hrokafullur og heldur hann
viti mun meira en raunin er.“
Blazroca er önnur aðalrödd XXX
Rottweiler hunda. Hann varð til árið
1996. „Ég er búinn að rappa frá því ég
var gelgja. Einhvern tíma hét ég
Kingsize en Blaz er lokastigið i þessari
þróun. Blaz er snillingur," segir Erpur,
„hann er óritskoðaður Erpur. Það er
Erpur sem fer í fjölskylduboðin fyrir
Blaz.“ Og Erpur viðurkennir að það sé
gott að hafa karaktera til að fela sig á
bak við. „Fyrir mér er þetta listsköpun
og það er gott að hafa þetta frelsi."
XXX Rottweiler hundar em ungir og
reiðir rímnasmiðir. ímynd sveitarinn-
ar er skýr og hörð en Erpur þvertekur
fyrir að hún sé hönnuð af stílistum.
„Það er ekki til á Islandi sá stílisti sem
Blazroca
„Biaz er snillingur, “ segir Erpur,
„hann er óritskoöaöur Erpur. Þaö
er Erpur sem fer í fjölskylduboöin
fyrir Blaz. “
Sturiungaöld
„Við fómm alltaf yfir strikið. Sumir
ætla yfir strikið en era kæfðir í fæð-
ingu og á tímabili óttuðumst við að
platan fengist ekki útgefin," segir Erp-
ur. „En þetta fer svolitið eftir því
hvemig maður fer yfir strikið. Það er
hægt að vera hundleiðinlegur hálfviti
sem hefur ekki húmor fyrir sjálfum
sér og fólk nennir ekki að hlusta á svo-
leiðis menn. Við höfum hins vegar
húmor fyrir sjálfum okkur."
í textum XXX Rottweiler kemur oft-
ar en einu sinni og oftar en tvisvar
fram áhugi þeirra á mökun við mæður
og feður óvina sinna. „Þetta er hluti af
rappinu," segir Erpur. „En ég hef alveg
átt við mömmur, sko, hef testað það.
Og það er alveg stemning."
Karius, Baktus og Einar Ágúst
Eins og frægt var þá stóð til að
Johnny National
„Johnny Naz er bara grín, “ segir Erp-
ur. „Hann er steríótýpa af því sem
mér finnst fyndiö. Hann er meö plat-
ínutennur, hrokafullur og heldur
hann viti mun meira en raunin er. “
hundarnir yrðu ritskoðaðir og svartar
klessur yrðu yfir hluta af textum
þeirra. Þeir sluppu hins vegar að
mestu við þá meðferð. Myndband
þeirra við lagið Sönn islensk sakamál
hefur verið bannað í sjónvarpi en hægt
er að nálgast það á vefnum. „Fólk var
viðkvæmt fyrir tilvisunum í mynd-
bandinu," segir Erpur. „Við tökum þó
ekki afstöðu með neinum og berum
virðingu fyrir þeim sem kann að líða
illa. En atburðir eiga sér stað og ég
held að það hjálpi ekki að tala ekki um
þá. Á síðustu árum hefur ríkt hálfgerð
Sturlungaöld héma; það hefur verið fá-
ránlega mikið af morðum. Það er ekki
hægt annað en tala um það sem er í
kringum mann.
XXX Rottweiler hundar fara inn í
hlutverk ógæfumannanna. Það er
þekkt í listsköpun. Karius og Baktus
em vondu karlamir en samt aðalsögu-
hetjumar. Þeir enda einir á fleka úti á
sjó. Lagið okkar endar ekki þannig
enda endar veruleikinn ekki á þann
hátt. í raunveruleikanum myndu Kar-
íus og Baktus ekki enda á fleka; þeir
hefðu það fint með spons frá Vifiifelli
og útlit sem minnir einna helst á Ein-
ar Ágúst í Eurovision."
Geöveikur fyrir
Erpur hefur varla litið til himins frá
því hann tók Johnny National upp á
arma sína. Hann vill komast til út-
landa i sól og afslöppun. „Ég er svo
hvítur að ég er nær gegnsær. í næsta
sumarfríi verður slappað vel af, farið
til Kúbu og Karíbahafsins." Aðspurður
um hvort hann sé ekki hræddur um að
persónumar renni saman við Erp og
hann verði geðveikur segir Erpur: „Ég
er náttúrlega geðveikur fyrir. En það
borgar sig held ég að taka pásu. Ég
vinn ekki frá átta til fimm heldur er ég
alltaf í vinnunni."
r>V«>NUD»Gll»W-Mgi
, Feigðarfór
iu«—-vaswfc-j;
lúlvaroc.Efnu.k.míbíVm
CudwuiiHur J-
Jamie Oliver á myndbandi P P
ÍSHERRANN
Leiðangur Vilhjálms Stefánssonar
■■■■■■■■■■
Árið 1913 stóð Vilhjálmur Stefánsson
landkönnuður fyrir metnaðarfullum
leiðangri norður í íshaf, 17. júní það ár
lagði skipið Karluk upp frá Kanada. Sex
vikum síðar var heimsskautsveturinn
skollinn á, skipið teppt í ís og
leiðangursstjórinn á bak og burt.
Með því að nýta sér dagbækur skipbrots-
mannanna hefur Jennifer Niven tekist að
endurskapa atburðarás þessa afdrifaríka
leiðangurs og örvæntingarfullar tilraunir
skipbrotsmanna til að komast heim úr
auðnum norðursins. Þeir sem komust lífs
af urðu aldrei samir. Þessi kynngimagnaða
mannraunasaga lætur engan ósnortinn.