Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2001, Síða 54
58
LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 2001
Helgarblað
DV
_ Hvaða jól eru nú þetta?
- hvernig á að gera jólin áhugaverðari og markvissari
Hátíö holdsins.
Ein hugmyndin aö ööruvísi jólum eru jól kynlífs og nektar. Þá er engin í
jólaföt, bara úr þeim.
Þeir eru án efa til í hópi lesenda
sem finnst eins og þeir nái aldrei
að halda jól sem eru persónuleg og
sniðin að þeirra þörfum og hug-
myndafræði. Fólk hefur lýst hugar-
ástandi sínu eins og það væri fast í
neti siða og hefða sem einkenna
jólahaldið og umkringja hverja
hreyfingu manna yfir hátlðamar.
Rjúpumar, hamborgarhryggurinn,
'' skötuveislan, gjafimar, skórinn,
jólahlaðborðið, jólaboðin og jóla-
baksturinn. Allt er þetta kirfílega
skorðað með jarðföstum hnullung-
um óbifanlegra hefða og fær eng-
inn hnikað.
Séu menn þann veg hugsandi að
þá fýsi að leita útgöngu úr þessum
hamrakvíum hefðarinnar þá era til
þess ýmsar leiðir og skal þess nú
freistað að benda á nokkrar útgáf-
ur af svokölluðum þemajólum.
Þemajól era hátíðahöld þar sem há-
tíðahaldendur velja sér eitt þema
eða meginefni og freista þess að
láta það setja sem víðtækastan og
skýrastan svip á allt jólahaldið.
Þetta er því í senn skemmtileg til-
breyting og virkar hvetjandi á
sköpunargáfu og hugmyndaflug
þátttakenda. Lítum á nokkur
dæmi.
Jólin fiskanna
Það væri áhugaverö tilbreyting
að graðga ekki i sig feitu og reyktu
svína- eða lambakjöti gervallar há-
tíðimar eins og venjulega heldur
halda fiskijól. Allir réttir á mat-
seðli jólanna yrðu ættaðir úr djúp-
um sjávar, skata á Þorlák, rækjur
og lúða á aðfangadag og harðfiskur
i stað jólakonfekts. Það era allar
jólaskreytingar í fisklíki, það
hanga gylltir humrar á jólatrénu
og húsráðendur klæðast fatnaði úr
roði eða selskinni. Smákökur era
skomar út í líki fisks eða sjávar-
dýra og jólagjafimar era ævisögur
skipstjóra, kompás eða sjóvettling-
ar. Jólabókin er Ævisaga þorsksins
eftir Mark Kurlansky.
Skál fyrir jólunum
Það mætti hugsa sér að hafa
áfengi um hönd við sem flest tæki-
færi um hátíðamar. Brennivíns-
staup með skötunni er sjálfsagt,
bjór og snafs yfir léttum morgun-
verði á aðfangadag og síðan kalt
hvítvín í hádeginu. Yfir matar-
stússi seinnipartinn er svo sérrí-
glas eða bjór þangað til fordrykkur-
inn kemur. Síðan er hvítvin með
forréttinum, rauðvín með aðalrétt-
inum, sérrí með eftirréttinum sem
er reyndar rótáfengur, koníak með
kaffi og konfekti á eftir og svo að
sjálfsögðu sterkur „nightcap“ fyrir
svefninn. Þessi jól eru án efa
nýlunda fyrir einhverja en rútína
fyrir aðra. Jólabókin er Gúmmí-
endur synda ekki eftir Súsönnu
Svavarsdóttur.
Steinaldarjól
Það væri okkur nútímamönnum
holl lexía að prófa að halda jól sem
væra algerlega laus við nútíma-
þægindi. Þá myndum við án efa
kunna betur að meta þær allsnægt-
ir sem við höfum en teljum svo
sjálfsagðar.
Þessu marki má ná með því að
taka rafmagnið af íbúðinni og not-
ast eingöngu við kertaljós og olíu-
lampa. Skrúfa skal fyrir hitaveit-
una og klæða af sér kuldann með
þykkum vaðmálsfatnaði eða návist
við stór húsdýr. Elda skal allan
mat á hlóðum en matseðillinn er
reyndar að stóram hluta saltaður
eða súrsaöur og etinn kaldur. Eng-
ar smákökur, ekkert konfekt, engar
gjafír nema kerti og/eða spil og að
sjálfsögöu engin afþreying önnur
en guðsorðalestur við lítið ljós og
hugsanlega má spila olsen eða
lomber við aðra heimilismeðlimi.
Jólabókin er Nýja testamenti Odds
Gottskálkssonar.
Kynlíf og nekt
Það mætti hugsa sér að gera jól-
in að hátíð holdsins lystisemda. Á
slíkum jólum þarf að kynda vel þvi
jólafötin eru adams- og evuklæði.
Heimilismenn striplast semsagt frá
klukkan sex á aðfangadag og eta
eingöngu lostavekjandi rétti eins
ostrur, egg og sleikja súkkulaði
hvert af öðra og það er drukkið
koníak og kampavín úr ýmsum
ónefndum líkamsholrúmum.Þeir
veltast í ástarbríma undir jóla-
trénu og hvar sem er yfir allar há-
tíðimar.
Jólagjafimar taka enn fremur
mið af þessu og era flestar úr versl-
unum sem selja hjálpairtæki ásta-
lífsins, titrarar, handjám, grímur,
svipur, erótísk undirfot og allt sem
hugur og hold gimist kemur upp
úr pökkunum. Skreytingar eru all-
ar af berrössuðum englum, nöktum
jólasveinum eða ýmsum táknum í
anda þessara jóla. Jólabókin er
Saga Augans eftir George Bataille.
íþrótta- og þjáHunarjól
Þegar margir frídagar era yfir jól
og áramót er hægt að gera hátíðim-
ar að samfelldum þjálfunarbúðum.
Þátttakendur fara ekki í sparifótin
að þessu sinni heldur eru á jogging-
gaUa, íþróttafatnaði eða baðslopp
allan tímann. Tímanum er skipt
jafnt á milli kaldra steypibaða, upp-
hitunaræfinga og þjálfunar. Það
mætti hugsa sér léttar heimaæfmg-
ar með lóðum fyrir hádegi, lang-
hlaup úti eftir hádegið, teygjuæf-
ingar og hvíld seinnipartinn og
nudd undir kvöldið.
Allar jólagjafir eru tengdar þjálf-
un og næringarfræði og jólamatur-
inn er fýrst og fremst kolvetnarík-
ur og uppbyggjandi. Með matnum
era aðeins drukknir orkudrykkir
og músli borðað milli mála. Lesefni
hátíðanna er næringarfræði og
ævisaga Jón Páls Sigmarssonar.
Fortíðarjól
Þaö er áreiöanlega afar gaman aö
halda jól aö fornum siö. Þauö veröa
aö vera án rafmagns, án hita og án
allrar afþreyingar nema spila.
Trúarofstækisjól
Jólin eru fæðingarhátíð Jesú-
bamsins og í góðri bók stendur að
konur skuli fæða böm með þján-
ingum og þess má gjaman minnast
með áköfu jólahaldi. Það mætti
hugsa sér jól sem einkenndust af
strangri trúariðkun allar hátíðim-
ar. Bænir era þuldar látlaust með-
an einhver er á fótum og kerti og
reykelsi brenna stöðugt allar hátíð-
imar. Það er í anda slíkra jóla að
hafa ekki jólamat heldur fasta í
þrjá sólarhringa og nærast ein-
göngu á vatni. Til að minnast Mar-
íu og Jóseps mætti hugsa sér að
sofa illa klæddur í útihúsi á jóla-
nóttina. Sjálfshýðingar eru valkost-
ur en sennilega væri það betur við
hæfi á páskum. Jólabókin er Opin-
beranarbókin.
Stjórnleysingjajól
Jól stjómleysingjans hljóta að
einkennast af því að segja hefðum
og venjum stríð á hendur. Stjóm-
leysingar fara ekki í sparifötin og
spila Rottweilerhundana og Sex
Pistols á hæsta styrk eftir klukkan
sex á aðfangadag. Þeir borða þegar
þeim sýnist það sem þeim sýnist og
æpa: niöur með Jesúbamið, ef þeir
sjá fólk á leið í messu.
Allir stjórnleysingjar vita að
eign er þjófnaður og þess vegna
stela allir hver annars jólagjöfum
og opna þær og grýta svo Molotov
kokkteil í jólatréð svo það stendur
í björtu báli. Jólabókin er The An-
archist’s Cookbook sem inniheldur
uppskriftir að kjamorkusprengjum
og leiðbeiningar um spíttfram-
leiðslu.
Það sem hér hefur verið nefnt
era auðvitað aðeins hugmyndir að
nýstárlegu en um leið skipulegu
jólahaldi. Það getur síðan hver og
einn látið sér detta í hug frumlegri
útgáfur en þær sem hér eru nefnd-
ar. Gangi ykkur vel og góða
skemmtun.
PÁÁ
Hvaða grefils hátíðlr eru þetta?
Ef fólki finnst þaö vera fast í neti heföa og venja í tengslum viö jólahald þá er kannski kominn tími til aö breyta.
Frábærar jólagjafir, Wokpönnur fullar af austurlensku góðgæti og gjafakörfur með sælkeravörum í ýmsum stærðum.