Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2001, Qupperneq 62
66
LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 2001
n
m
Frauöplastlistar
í miklu úrvali
METRO
Skeiían 7 • Sími 52S 0800
Opið alla daga til kl. 19
Helgarblað
DV
550 5000
visir.is
550 5727
Þverholt 11,
105 Reykjavík
Sumt fólk er alltaf á ferðalagi. Það
grær enginn mosi á því fremur
en veltandi steini. Það er sagt að
eyjarskeggjar heimsins hafi sýnu
meiri áhuga á ferðalögum en megin-
landsbúar og ef við komumst ekki
sjálfir tO útlanda þá erum við viljug að
hlusta á þá sem reisa utan og koma
aftur og segja okkur sögur af undar-
legu fólki og framandi stöðum.
Þótt ferðabækur hafi ef tO vill glat-
að einhverju af upphaflegu gildi sínu,
sem sennilega er að stækka heiminn í
vitund okkar, þá rísum við enn upp
við dogg þegar einhver úr hópnum
snýr aftur til mörlandsins með skrýtn-
ar sögur í mal sínum.
Sigfús á rútunni
Sigfús Bjartmarsson rithöfundur er
einn þessara eyjarskeggja sem hafa
ferðast um heiminn og horft á hann og
viljað segja okkur frá. Sigfús hefur ný-
lega gefið út bókina Sólskinsrútan er
sein í kvöld - ferðabók þar sem Sigfús
segir okkur sögur úr ferðum sínum til
Suður-Ameríku á árunum 1978 til 1999.
Þar ber margt til og sumt með ólíkind-
um en bókinni hefur verið tekið með
kostum og kynjum og fá gagnrýnend-
ur vart vatni haldið yfir snilld Sigfús-
ar og hafa tilnefnt bókina til hinna ís-
lensku bókmenntaverðlauna.
Samt fer vonandi ekki eins fyrir
Sigfúsi og Ameríkufaranum sem Stef-
án Jónsson segir frá í einni bóka
sinna. Sá var staddur á samkomu á
Borgarfirði eystra á fyrri hluta aldar-
innar að segja Ameríkusögur og
kvaðst hafa komiö þar sem voru 100
mjólkandi kýr í fjósi.
- Þú lýgur þessu, kaliaði þá einn
gárunginn í þorpinu.
Ameríkufaranum fataðist nokkuð
frásögnin og sagði:
- Þetta voru náttúrlega ekki allt
mjólkandi kýr því sumt voru hænsni.
Hús á ferðalagi
Þótt Sigfús sýnist rólegur og rótfast-
ur þar sem hann situr í sínum sófa við
Bergstaðastræti þá er það tálsýn því
Sigfús er svo mikill feröamaður að
húsið sem hann býr í hefur verið flutt
úr stað en það stóð víst upphaflega við
Hverflsgötu og skagaði út í götuna og
var því flutt.
Húsiö stendur beint á móti Hótel
Holti við Bergstaðastræti, sem er fín-
asta hótel landsins sem stendur þarna
stappfullt af málverkum og kristal, og
á leiðinni upp tröppumar er ég að
hugsa um hvort breiddin á götunni sé
bilið milli fátæktar og rikidæmis en
hika viö að dæma .Sigfiis til fátæktar
með þeim samanburði.
Skáldið tekur blaðamanni vel og
hefur skreytt.hibýíi sin í tilefni að-
steðjandi jóla. Við fórum aö tala um
ferðalög sem sumir segja að séu hugar-
ástand en aðrir líta á sem verkefnið aö
komast frá A til B. Þeir munu vera
margir sem telja að ferðalög séu alfar-
ið skemmtun og stórkostlegar upplif-
Aðalstræti 9, niðri
Sími 551 0256
SOLIN I BÆNUM
Jólatilboð - 3.900 kr.
Frábær morguntilboð, 2.900 kr.
Starfsmenn í miðbænum fá 20% afslátt.
Námsmenn fá 20% afslátt.
DV-MYND: GVA
Sigfús Bjartmarsson rithöfundur hefur skrifað nokkurs konar ferðabók
„Ég ímyndaði mér aö úti í heimi, þar sem engin gjörgæsia er i samféiaginu, ekkert öryggisnet, heldur raunveruleg
söguefni og töfraraunsæi, væri aö finna raunveruiegra líf en það sem lifaö var hér. Mér fannst augljóst aö fátækt fólk
væri miklu áhugaveröara og manntífíö litríkara en hjá okkur. “
Minnið lýgur
ekki stórkostlega
- Sigfús Bjartmarsson undir stýri á Sólskinsrútunni
anir en margir vanir ferðalangar vita
að í það heila tekið eru ferðalög tíma-
frek og lýjandi iðja.-Sigfús segir að
timinn líði á annan hátt á ferðalagi
því oftlega upplifi ferðalangurinn svo
margt á skömmum tíma að honum
finnst þegar heim kemur að óratími
hafl liðið þótt dagatalið segi annað.
Minniö lagar og skáldar
En er allt satt sem stendur í bókinni
um Sólskinsrútuna?
„Þetta lýtur sömu lögmálum og aðr-
ar minningar. Þama er blandað sam-
an sögum úr þremur ferðalögum og í
raun lýst ferðalagi eða hring sem
aldrei var farinn í heild sinni,“ segir
Sigfús.
„Minnið lagar og skáldar. Þaö lýgur
ekki stórkostlega en það hefur mótað
minningarnar. Þegar allt sem maður
vildi sagt hafa er runnið saman þá er
þetta orðinn analýtískur skáldskapur
um eitthvað sem gerðist."
Þannig heldur Sigfús því fram aö í
Sólskinsrútunni blandist hvað við
Sfsr«M Mdatoéð
— evoutá
Sígrænt eðaltré í hæsta gaeðaflokki frá
skátunum prýðír nú þúsundir íslenskra heimila.
t*. Eldtraust
t*- Þarf ekki að vökva
t*- íslenskar leiðbeiningar
í*- Traustur söluaðili
;■* Skynsamleg flárfesting
í* 10 ára ábyrgð
f* 12 stazrðir, 90 - 500 cm
t* Stálfótur fylgir
» Ekkert barr að ryksuga
t* Truflar ekki stofublómin
SemiáraÍEiidf I. te® P®b@Enteimis
Bandalag íslenskra skóta
annað, minningar, blaðamennska og
sögulegur skáldskapur
„Þetta er formúla sem sumir myndu
án efa segja að væri mjög póst-
módern,“ segir hann og er óræður á
svipinn, en það er einmitt mjög póst-
módern því helsti styrkur hugmyndar-
innar um að vera póstmódern hefur
mér sýnst vera sá að hver og einn not-
ar það eins og hugur hans og hjarta
býður.
„Tilgangurinn er sá að endurgera
með öllum tUtækum meðulum reynslu
mína.“
Sigfús, Þórbergur
og Hallgrímur
í yfirstandandi jólabókaflóði hafa
orðið nokkrar orðræður um skáldskap
og sannleika og það hvenær rithöfund-
ar segja satt og hvenær þeir skrökva
þótt öUum ætti í raun að vera ljóst að
skáld eru oftast að skrökva. Þannig
sagði HaUgrímur Helgason að Þór-
bergur Þórðarson hefði ekki verið rit-
höfundur heldur sérkennilegur penni
og fannst mörgum hátt reitt tU höggs.
En eru þessi vinnubrögð Sigfúsar ekki
lík þeim sem Þórbergur notaði þegar
hann var að skrifa um hluti sem gerð-
ust og menn sem lifðu en enginn vissi
nákvæmlega hvað var satt.
„Ég notaði reyndar Þórberg sem
dæmi þegar ég var að rökstyðja að
bókin ætti heima í flokki skáldverka."
Aö hverju varstu að leita?
Sigfús er af rómuðu skáldakyni frá
Sandi i Aðaldal og hefur þeim dal
stundum brugðið fyrir í skáldskap
hans og þar nyrðra er hann alinn upp
að hluta og segir að spænska með
norðlenskum hreim hljómi, að sögn
heimamanna, betur en úr munni ann-
arra íslendinga. Svona ná Þingeyingar
aUtaf forskoti á okkur hina og lítið við
því að segja. Sigfús hafði fátt ferðast
þegar hann yfirgaf skerið 1978 og lagð-
ist í langt ferðalag tU Mexíkós. Ef það
er rétt að öU ferðalög séu leit að ein-
hverju, aö hverju var Sigfús þá að
leita?
„Búist maður við að finna það sama
og heima er engin ástæða tU að fara.
Ég heUlaðist sem barn af öðrum lönd-
um af lestri ferðabóka, indíánaróman-
tikur og sögnum af menningu Maya og
Azteka. Svo fannst mér aUt vera oröið
svo leiðinlegt hér á Vesturlöndum,
sérstaklega í Skandinavíu. Þessi vel-
ferðarþjóðfélög virkuðu á mann eins
og ein stór gjörgæsludeild. Þar voru
menn að skrifa eitthvað svo fábrotnar
sögur - um fáfengUega verkamenn og
húsmæöur í Breiðholti og svoleiðis,
um heimatUbúin vandamál.
Ég ímyndaði mér að úti í heimi, þar
sem engin gjörgæsla er í samfélaginu,
ekkert öryggisnet heldur raunveruleg
söguefni og töfraraunsæi, væri að
finna raunverulegra lif en það sem lif-
að var hér.
Mér fannst augljóst að fátækt fólk
væri miklu áhugaverðara og mannlíf-
ið litrikara en hjá okkur. AUt sem er á
faUanda fæti og er víkjandi, eins og ég
taldi víst að væri í þriðja heiminum,
heiUaði mig.“
Sigfús viðurkennir að höfundar
eins og Naipaul, Borges, Marquez og
fleiri hafi einnig togað hann tU Suður-
Ameríku. Hann tók spænsku sem val í
tvo vetur og steig síðan á flugfjöl og
hvarf tU suðlægra landa og ekki laust
við að íslendingur, lítt vanur, yrði fyr-
ir menningarsjokki við komuna tU
Mexíkóborgar sem er stærsta borg
heimsins, menguð og fátæk.
Er sælt aö vera fátækur?