Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2001, Blaðsíða 22
34
%
Islendingaþættir
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 2001
DV
Ingibjörg Gísladóttir,
Eyjaseli 6, Stokkseyri.
85 ára____________________________
Ingibjörg Pálsdóttir,
Faxabraut 5f, Keflavík.
Sigríöur K. Pálsdóttir,
Jöklafold 12, Reykjavík.
80 ára____________________________
Guöfinna Fox,
Miðbraut 19, Seltjarnarnesi.
Guömundur Jónsson,
Mávahlíð 32, Reykjavík.
Margrét Sighvatsdóttir,
Goðatúni 8, Garðabæ.
Sigrún Guöbjörnsdóttir,
Sörlaskjóli 60, Reykjavík.
75 ára____________________________
Freyja Norödahl,
Reykjaborg, Mosfellsbæ.
Jón A. Þórarinsson,
Lækjasmára 8, Kópavogi.
Oddur Helgason,
Hraunbæ 150, Reykjavík.
70 ára____________________________
Arnþór Magnússon,
Brekkugötu 7, Reyðarfirði.
Ármann Guömundsson,
Brávöllum 12, Egilsstöðum.
60 ára____________________________
Gísli Jóhannsson,
Kirkjubraut 28, Höfn í Hornafirði.
Siguröur Kristjánsson,
Austurgötu 3, Stykkishólmi.
50 ára____________________________
Ásgeir Þórhallsson,
Kringlumýri 23, Akureyri.
Bragi Pálmason,
Kambaseli 51, Reykjavík.
Ferdinand Bergsteinsson,
Heiðarvegi 16, Reyðarfirði.
Jón Einar Clausen,
Hólagötu 2, Sandgerði.
Jón Valdimar Ingvason,
Engjaseli 83, Reykjavlk.
Sigfríöur Þórisdóttir,
Skógarlundi 15, Garðabæ.
Sigrún Jóhanna Þórisdóttir,
Vitastíg 17, Bolungarvík.
Þorgeir Magnússon,
Sviöholtsvör 3, Bessastaöahreppi.
Þuríöur Sigrún Þorbjörnsdóttir,
Hraunteigi 28, Reykjavík.
40 ára____________________________
Ásgeir Valur Snorrason,
Stóragerði 16, Reykjavík.
Bylgja Jóhannsdóttir,
Fellsmúla 12, Reykjavík.
Elin Vilborg Þorsteinsdóttir,
Laufengi 16, Reykjavík.
Fjalar Ríkharösson,
Reynigrund 1, Akranesi.
Hafrún Friöriksdóttir,
Kjalarlandi 6, Reykjavík.
Hulda Hafsteinsdóttir,
Háhlíð 8, Akureyri.
Kristín Edda Ottesen,
Austurtúni 8, Bessastaðahreppi.
Páll Gunnarsson,
Frostafold 6, Reykjavik.
Ragnar Hermannsson,
Hrísrima 34, Reykjavík.
Guðfinna Dagmar Hannesdóttir
veflistakona í Hveragerði
Guðfinna Dagmar Hannesdóttir
veflistakona, Bláskógum 13 í Hvera-
gerði, er níutíu og fimm ára í dag.
Hún verður að heiman.
Starfsferill
Guðfinna fæddist þann 28. 12.
1906 að Hólum i Stokkseyrarhreppi
og ólst þar upp. Hún fór ung að
heiman og var í vistum í Reykjavík
en fór í húsmæðraskólann á Staðar-
felli í Dölum haustið 1933. Þar
kynntist hún veflistinni og var það
upphafið að 50 ára starfi hennar við
vefnað sem hefur borið hróður
hennar víða þyí hún er veflistakona
af guðs náð. í Reykjavik rak hún
vefstofu í 10 ár.
Guðfinna var matráðskona í Skál-
holti árin 1948-1950 og síðar upp úr
1960. Hún flutti austur í Hveragerði
árið 1950 og bjó lengst af í Bláskóg-
um 4. Þrisvar fékk hún verðlaun
fyrir góða ræktun og fegurð garðs-
ins við heimili sitt.
Guðfinna stundaði ýmis störf í
Hveragerði. Hún vann í Grænu mat-
stofunni hjá Sigurjóni Péturssyni.
Um skeið kenndi hún við skóla Ár-
nýjar Filipþusdóttur. Þá vann hún í
um 20 ár hjá Gísla Sigurbjörnssyni
í Ási við ýmis störf. Hún starfaði
einnig við Náttúrulækningafélag Is-
lands og við Ullarþvottastöðina um
tíma. Nú á efri árum hefur Guð-
finna snúið sér að ritstörfum og hef-
ur m.a. aðstoðaö Þjóðminjasafn ís-
lands við öflun upplýsinga um þjóð-
legan fróðleik.
Fjölskylda
Guðfinna á einn bróður á lífi. Það
er Dagur, f. 21.10. 1910, búsettur í
Reykjavík. Systkini sem nú eru lát-
in voru: Magnús, f. 28.7. 1890, bóndi
í Hólum í Stokkseyrarhreppi; Sig-
urður, f. 19.6. 1894, bóndi í Hólum;
Guðlaug, f. 6.9. 1896, dó ung kona;
Þórdís Ágústa, f. 31.8. 1901, húsmóð-
ir i Reykjavík; Jóna, f. 14.9.1905, bú-
sett í Hólum; auk þess sem þrír
bræður létust í bernsku.
Foreldrar Guðfinnu voru Hannes
Magnússon, f. 19.10. 1858, d. 21.12.
1937, b. í Hólum í Stokkseyrar-
hreppi, og kona hans, Þórdís Gríms-
dóttir, f. 9.4. 1866, d. 8.10. 1923, hús-
freyja.
Ætt
Hannes var sonur Magnúsar, b. á
Baugsstöðum, bróður Bjarna, afa
Jóns sagnfræðings og Bjarna pró-
fessors Guðnasona. Magnús var
sonur Hannesar, formanns á Baugs-
stöðum, Árnasonar, hreppstjóra á
Selalæk, Ormssonar, prests á Reyð-
arvatni, Snorrasonar, prests á Mos-
felli í Grimsnesi, Jónssonar, prests
þar, Snorrasonar, smiðs á Hærings-
stöðum í Flóa. Móðir Magnúsar var
Elín Jónsdóttir yngra, hreppstjóra á
Stokkseyri, Ingimundarsonar, b. í
Hólum, Bergssonar, ættfóður Berg-
sættarinnar, Sturlaugssonar. Móðir
Elínar var Guðrún Einarsdóttir,
prests á Ólafsvöllum, Jónssonar,
prests á Hálsi i Hamarsfirði, Gissur-
arsonar.
Móðir Hannesar var Guðlaug
Jónsdóttir, b. á Vestri-Loftsstöðum,
Jónssonar, og Sigriðar elstu Jóns-
dóttur, hreppstjóra í Móhúsum,
Þórðarsonar, og Guðlaugar Jóns-
dóttur, b. í Grjótlæk, bróður Ingi-
mundar í Hólum.
Þórdis var dóttir Gríms, b. í Gljá-
koti, Jónssonar, b. í Traðarkoti,
Grímssonar, b. í Traðarkoti, Jóns-
sonar, bróður Guölaugar í Móhús-
um.
Móðir Þórdísar var Guðfinna Sig-
urðardóttir, b. í Gljákoti, Sigurðs-
sonar, smiðs í Efri-Gegnishólum,
Gíslasonar, b. á Álfhólum, Sigurðs-
sonar, b. i Alfhólshjáleigu, Þorkels-
sonar.
Attræö
mmm
Svava Hansdóttir
húsmóðir og verkakona á Suðureyri
Svava Hansdóttir, húsmóðir og
verkakona á Suðureyri við Súganda-
fjörð, er áttræö í dag. Hún tekur á
móti vinum og ættingjum í Bjarna-
borg, húsi verkalýðsfélagsins, milli
kl. 17 og 20.
Starfsferill
Svava er fædd á Meiribakka í
Skálavík þann 28. 12. 1921. Þar var
hún til sjö ára aldurs en flutti þá til
Bolungarvíkur og gekk þar í skóla.
Sem ung kona fór hún í vist í Húna-
vatnssýslu, síðar til Reykjavikur og
víðar.
Svava bjó í Bolungarvík í nokkur
ár í upphafi síns búskapar en mest-
alla sína búskapartíð hefur hún átt
heimili á Suðureyri Ásamt húsmóð-
urstörfum hefur hún unnið við fisk-
vinnslu og í þvottahúsi var hún síð-
ustu starfsár sín. Nú dvelur hún á
heimili dóttur sinnar, Valgerðar, og
tengdasonar, Grétars, að Hjallabyggð
1 en á enn sitt annað heimili að
Hjallavegi 2.
Fjölskylda
Svava giftist lífsfórunaut sínum,
Hallbirni Guðmundssyni sjómanni,
þann 6.12.1941. Hann var fæddur 16.
6. 1916 og lést 3. 7. 1991. Þau hjón
eignuðust Qögur böm. Þau eru: Val-
geir, f. 24. 6. 1942, sjómaður, maki:
Þóra Þórðardóttir kennari. Þau eru
búsett á Suðureyri og eiga átta böm;
Gísli, f. 18. 7. 1943, sjómaður, maki:
Málfríður Skúladóttir. Þau búa á
Akranesi og eignuðust fjögur börn
en eitt þeirra dó ungt; Róbert, f. 14. 6.
1945, vélstjóri, maki: Ósk Bára
Bjarnadóttir. Þau búa í Hafnarfirði
og eiga þrjú böm; Valgerður f. 3. 9.
1947, verkakona, maki: Kristján
Grétar Schmidt verkstjóri. Þau eru
búsett á Suðureyri og eiga tvö börn.
Systir Svövu, samfeðra, er Svan-
hildur Jónsdóttir og systir hennar
sammæðra er Anna Þorleifsdóttir.
Fóstur- og uppeldissystkini eru: Ólaf-
ur Gíslason, Ágústina Gísladóttir,
Tómas Gíslason, Anna Svandís
Gísladóttir, Anton Lindal og Jónas
Tómasson.
Foreldrar Svövu voru Jón Einars-
son sjómaður og Ingibjörg Magnús-
dóttir verkakona. Fósturforeldrar
Svövu voru Hallbera Jónasdóttir og
Gísli Jósepsson sem bjuggu á
Kroppsstöðum í Skálavík.
Sjotug
E—W
Marteinn Ein-
ar Viktorsson
Marteinn Einar Vikt-
orsson verkstjóri,
Kambaseli 1, 101
Reykjavík, verður
fimmtugur á gamlárs-
dag. Eiginkona hans er
Sigríður Gestsdóttir
tanntæknir. 1 tilefni afmælisins
taka þau á móti ættingjum, vinum
og samstarfsfólki í Ölstofunni Jóa
Risa, Jafnaseli 6, á milli klukkan 20
og 22 í kvöld, 28. desember.
mmmmm
Guðrún
i Jónasdóttir
Guðrún Jónasdóttir,
Furugerði 1, Reykjavík
varð áttræð á jóladag.
Hún tekur á móti gest-
um í dag, 28. desember,
eftir klukkan 16 í aðal-
stöðvum KFUM og K
T við Holtaveg, númer 28.
Inga Birgitta Spur
Safnstjóri Listasafns Sigurjóns
Inga Birgitta Spur, safnstjóri að
Laugarnestanga 70 í Reykjavík, er
sjötug í dag.
Hún tekur á móti gestum í Nor-
ræna húsinu laugardaginn 29. des-
ember milli klukkan 17 og 19.
Starfsferill
Inga Birgitta fæddist 28.12. 1931 í
Husby præstegárd á Fjóni í Dan-
mörku og ólst þar upp. Hún lauk
Præliminæreksamen í Óðinsvéum
1949 og stundaði nám i höggmynda-
list og teiknun við Frederiksberg
Teknisk Skole 1950-52 hjá Luckow-
Nielsen. Einnig nam hún högg-
myndalist við Listaháskólann í
Kaupmannahöfn 1952-1954 hjá E. Ut-
zon-Frank og Johns. C. Bjerg.
Birgitta tók stúdentspróf frá öld-
ungadeild MH 1977, BA-próf í
dönsku og íslensku frá Háskóla Is-
lands 1980 og próf í uppeldis- og
kennslufræði 1981. Hún nam lista-
sögu við Háskóla íslands 1984-85 og
við Kaupmannahafnarháskóla
1985-86.
Birgitta vann við heimilisstjórn og
barnauppeldi í tvo áratugi, var
dönskukennari við Tækniskóla Is-
lands 1980-81 og við Menntaskólann
við Sund 1981-85.
Hún beitti sér fyrir stofnun Lista-
safns Sigurjóns ÓÍafssonar síðla árs
1984 og hefur veitt safninu forstöðu
frá upphafi. Hún hefur ritstýrt á
annan tug rita á vegum safnsins, nú
síðast ritinu Sigurjón Ólafsson, ævi
og list I-II sem kom út 1998-1999 og
hlaut tilnefningu til íslensku bók-
menntaverðlaunanna árið 1999.
Birgitta sat í stjórn Félags dönsku-
kennara á íslandi 1982-1985, starfaði
í vinnuhópi á vegum Norrænu ráð-
herranefndarinnar og samdi, ásamt
öðrum, tillögur um dönskukennslu á
íslandi í ritinu: Nordiske sprak i
gymnas- og yrkesutdanningen. Nor-
disk Ministerrad 1986. Einnig hafði
hún yfirumsjón með gerð mynd-
bands um andlitsmyndir Sigurjóns
Ólafssonar: Þessir koflóttu steinar.
Hún vann handrit ásamt öðrum að
þessari mynd sem hlaut silfurverð-
laun í flokki fræðslumynda í alþjóð-
legri samkeppni í Chicago 1994.
Birgitta hefur verið íslenskur ríkis-
borgari frá árinu 1980. Hún var
sæmd riddarakrossi hinnar íslensku
fálkaorðu 1989.
Fjölskylda
Birgitta giftist 05.01.1956 Sigurjóni
Ólafssyni myndhöggvara. f. 21.
10.1908, d. 20. 12. 1982
Foreldrar hans voru Guðrún
Gísladóttir og Ólafur Árnason
Börn þeirra eru: Ólafur Spur Sig-
urjónsson sellóleikari, f. 17.04. 53 í
Kaupmannahöfn. Sambýliskona:
Hulda Björg Hákonardóttir sjúkra-
þjálfari, þau slitu samvistum. Dóttir
þeirra er Silja Björk Huldudóttir.
Maki: Rie Munk Spur deildarstjóri.
Dóttir: Camilla Munk Spur;
Hlíf Sigurjónsdóttir fiðluleikari, f.
17.09. 54. Hennar maður er Geirfinn-
ur Jónsson jarðeðlisfræðingur. Börn
þeirra eru Jón og Böðvar Ingi;
Freyr Sigurjónsson, flautuleikari í
Bilbao. f. 19.09. 57. Hans kona var
Margarita Reizabal píanóleikari.
Þau slitu samvistum. Börn þeirra
eru Sigurjón og Inga.
Dagur Sigurjónsson, þroskaþjálfi í
Kaupmannahöfn, f.12.01. 59.
Systir Birgittu er Thora Johanne
Spur, hjúkrunarfræðingur í Kaup-
mannahöfn, f. 17.08. 34.
Foreldrar Birgittur voru Erik
Spur sóknarprestur, f. 1890, d. 1971,
og Ásta Munck, f. 1906, d. 1970. Þau
bjuggu í Danmörku.
Smáauglýsingar
DV
550 5000