Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2002, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2002, Blaðsíða 26
42 MÁNUDAGUR 11. FEBRÚAR 2002 I>V Islendingaþættir Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson 85 ára__________________________ Georg Ámundason, Gautlandi 17, Reykjavík. Mary Immaculata Daltún, Austurströnd 10, Seltjarnarnesi. 80 ára_________________________ Ragnar Hermannsson, Baughóli 46, Húsavík. Óskar K.A. Valtýsson, Hafnarbraut 8, Dalvík. Ólafur Ágúst Ólafsson, Kársnesbraut 107, Kópavogi. Þórey Guðmundsdóttir, Ránarstíg 4, Sauðárkróki. 75 ára_________________________ Sigrún Halla Eiríksdóttir, Engjahlíð 1, Hafnarfirði. Rannveig Filippusdóttir, Hlíöarvegi 32, Njarðvík. Ester Jónsdóttir, Vallarbraut 3, Akranesi. Soffía Magnúsdóttir, Blikabraut 5, Keflavík. 70 ára_________________________ Sigrún Guðjónsdóttir, Greniteigi 9, Keflavík. Dagbjört Snæbjörnsdóttlr, Drekavogi 10, Reykjavík. Aðalheiður Stefánsdóttir, Hríseyjargötu 21a, Akureyri. 60 ára_________________________ Steinar Berg Björnsson, Lynghaga 17, Reykjavík. Rósa Skarphéðinsdóttir, Hulduhlíð 24, Mosfellsbæ. 50 ára_________________________ Guðni Haukur Sigurðsson, Gilsbakka 11, Neskaupstað. Kristján Sigurður Bjarnason, Neðstaleiti 9, Reykjavík. Yngvi Þór Loftsson, Skólagerði 5, Kópavogi. Ingibjörg Guðnadóttir, Laugalind 3, Kópavogi. Hafsteinn Ólafsson, Ægisgötu 40, Vogum. Jón Ingi Baldvinsson, Austurgötu 5, Vogum. 40 ára_________________________ Sverrir Jóhannsson, Garöbraut 54, Garði. Guðmundur Ásgrímsson, Suðurgötu 100, Hafnarfirði. Kristrún 0. Þorsteinsdóttir, Hábæ la, Hellu. Anna Jóna Geirsdóttir, Kjaransstöðum, Akranesi. Arnfinnur Antonsson, Álfaborgum 17, Reykjavík. Sigursveinn Agnarsson, Rfuseli 12, Reykjavík. Helgi Árnason, Vegatungu, Árnessýslu. Guðmundur H. Viglundsson, Hringbraut 57, Hafnarfiröi. íris Rós Þrastardóttir, Lyngmóa 11, Njarövík. Unnar Ragnarsson, Hólmgarði 2b, Keflavík. Gunnlaugur Júlíusson, Leirutanga 27, Mosfellsbæ. Anna Svava Sverrisdóttir, Ásvallagötu 21, Reykjavík. Sævar Guðmundsson, Nönnufelli 1, Reykjavík. Þórunn Ansnes Bjarnadóttir, Háabergi 27, Hafnafirði. Geir Magnússon forstjóri Olíufélagsins Geir Magnússon forstjóri, Baugatanga 8, Reykjavík, er sex- tugur í dag. Starfsferill Geir fæddist í Reykjavík og ólst þar upp. Hann lauk prófi frá Sam- vinnuskólanum 1961. Geir starfaði hjá Pjármáladeild SÍS 1961-84 og var framkvæmda- stjóri Fjármáladeildar 1976-84. Hann var bankastjóri Samvinnu- banka íslands hf. 1984-91 og hefur verið forstjóri Olíufélagsins frá 2.7. 1991. Geir hefur átt sæti i fjölda stjóma fyrirtækja og félagasam- taka. Hann er nú formaður stjórn- ar Samskipa hf. og á sæti i stjórn- um Vátryggingafélags íslands hf., Líftryggingafélags íslands hf. og Samvinnulífeyrissjósðins. Fjölskylda Geir kvæntist 19.10. 1963 Krist- ínu Björnsdóttur, f. 25.10. 1943, húsmóður. Hún er dóttir Bjöms Markússonar, byggingameistara í Kópavogi, sem er látinn og Sigríð- ar Þórðardóttur. Börn Geirs og Kristínar eru Erla Geirsdóttir, f. 23.4. 1964, verslunarmaður, gift Gunnari Gunnarssyni framkvæmdastjóra og eiga þau þrjú börn. Geir Gunn- arsson, f. 9.1. 1984, Gunnar Gunn- arsson, f. 22.9. 1993, og Kristínu Evu Gunnarsdóttur, f. 1.1. 1997. Kristinn Þór Geirsson, f. 27.7. 1966, framkvæmdastjóri, kvæntur Thelmu Víglundsdóttur hár- greiðslumeistara. Þau eiga tvær dætur, Brynju Kris'tinsdóttur, f. 28.7. 1996, og Kristjönu Birtu Kristinsdóttur, f. 7.4.1998; Gunn- steinn Geirsson, f. 2.10. 1980, nemi við Háskóla í Reykjavík. Systkini Geirs eru Helgi Magn- ússon, f. 1.11. 1943, tannlæknir, kvæntur Guðlaugu Guðjónsdóttur húsmóður og eiga þau fjögur böm; Sigrún Magnúsdóttir, gift Jóhann- esi Halldórssyni húsasmiði og eiga þau fjögur börn. Foreldrar Geirs eru Magnús Sigurvin Magnússon, f. 11.3. 1918, verslunarmaður í Kópavogi, og Kristín Þóra Gunnsteinsdóttir, f. 13.8. 1919, húsmóðir. Ætt Faðir Magnúsar var Magnús, b. í Hvammsvík í Kjós, bróðir Sigur- geirs, föður Egils hrl. Magnús var sonur Þórðar, b. í Hvammsvík í Kjós, bróður Jóns, langafa Birgis Ásgeirssonar, prests á Mosfelli. Þórður var sonur Guðmundar, b. á Valdastöðum í Kjós, Jónssonar. Móðir Guðmundar var Jarþrúður Þórarinsdóttir, b. í Laxárnesi, Jónssonar, b. á Fremra-Hálsi í Kjós, Ámasonar, ættföður Fremra-Hálsættarinnar. Móðir Magnúsar Þórðarsonar var Þor- björg Jónsdóttir, í Skorhaga í Kjós, Grímssonar, bróöur Krist- geirs, afa Ólafs Ragnars Gríms- sonar forseta. Móðir Magnúsar Magnússonar var Sigrún, systir Jóns, afa Bjöms búnaðarhag- fræðings og Ólafs Walters, skrifstofu- stjóra í dóms- málaráðu- neytinu, Stef- ánssona. Bróðir Sig- rúnar var Björn, faðir Árna læknis í Reykjavík. Sigrún var dóttir Árna, b. í Móum á Kjalamesi, Björnssonar. Móðir Árna var Guðrún, systir Stein- unnar, móður Þóris Bergs- sonar rithöf- undar. Bróðir Guðrúnar var Þorsteinn, langafi Karítasar, móð- ur Jóhönnu Sigurðardóttur al- þingismanns. Guðrún var dóttir Þorsteins, b. í Úthlíð í Biskups- tungum, Þorsteinssonar, b. á Hvoli i Mýrdal, hálfbróður Bjarna Thorsteinssonar amtmanns. Þor- steinn var sonur Þorsteins, b. í Kerlingadal, Steingrímssonar, bróður Jóns „eldprests". Móðir Þorsteins í Úthlíð var Þórunn Þor- steinsdóttir, b. á Vatnsskarðshól- um í Mýrdal, Eyjólfssonar, föður Erlends Einarssonar, fyrrv. for- stjóra SÍS. Móðir Sigrúnar var Sigríður, b. á Bakka í Landeyjum, Oddsonar, b. í Þykkvabæ, Jóns- sonar, b. á Kirkjubæjarklaustri, Magnússonar. Móðir Sigríðar var Sigríður Jónsdóttir, b. á Kana- stööum í Landeyjum, Ámasonar, bróður Ólafs, langafa Einars afa Einars Ágústssonar ráðherra. Kristin Þóra er dóttir Gunn- steins, verkamanns í Vestmanna- eyjum og síðar í Reykjavík, og Gróu Þorleifsdóttur húsmóður. Geir verður að heiman á afmæl- isdaginn. Attatíu og fimm ára Höskuldur leikari og leikstjóri Höskuldur Skagfjörð, fyrrv. leik- ari og leikstjóri, Norðurbrún 1A, Reykjavík, verður áttatíu og fimm ára i dag. Starfsferill Höskuldur fæddist í Hofsgerði á Höfðaströnd í Skagafirði og ólst upp við öll almenn sveitastörf á Bæ i Hofshreppi í Skagafirði hjá fóstur- foreldrum sínum, Jóni Konráðs- syni, bónda þar, og k.h., Jófríði Björnsdóttur húsfreyju. Höskuldur fór sextán ára að Korpúlfsstööum í Mosfellssveit þar sem hann var útimaöur og fjósamaður í eitt og hálft ár. Þá stundaði hann nám í Reykholti tvo vetur og lauk þaðan gagnfræða- prófi. Höskuldur fór í Borgarnes til starfa hjá Kaupfélagi Borgfirðinga þar sem hann vann fjögur ár undir stjórn Þórðar Pálmasonar sem reyndist Höskuldi vel. Höskuldur fór síðan til Reykja- víkur þar sem hann stundaði nám við Leiklistarskóla Lárasar Pálsson- ar i tvo vetur. Jafnframt því starfaði hann starfaði innanbúðar hjá KRON einn vetur. Hann fór siðan til Kaupmannahafnar þar sem hann Skagfjörð stundaði leikhúsnám i einkatímum hjá Thorkel Rose einn vetur. Eftir að Höskuldur kom heim 1952 var hann leikari hjá Þjóðleik- húsinu á B-samningi i fjóra vetur, en það var þá nýtekið til starfa, og síðan einn vetur hjá Leikfélagi Reykjavíkur. Höskuldur var siðan vítt og breitt um landið á vegum Bandalags ís- lenskra leikfélaga sem leikstjóri fyr- ir staðbundna leikhópa. Hann leik- stýrði leikritinu Karlinn í kassan- um í Bolungarvík, setti upp fimm leikverk á Höfn í Homafirði, fimm i Vestmannaeyjum, á ísafirði, setti upp tvö leikverk í Neskaupstað, Pat- reksflrði og Akranesi og víöar en alls setti hann upp fjörutíu og átta leikverk á þessum ferðum sinum. Höskuldur fór Sigfúsi Halldórs- syni og Sofflu Karlsdóttur víða um landið með kabarettinn Litlu flug- una sem gerði mikla lukku á þeim tíma. Þá fór hann með kabarett- hópnum Litla fjarkanum víða um landið ásamt Skúla Halldórssyni, pí- anóleikara og tónskáldi, Sigurði Ólafssyni söngvara og Hjálmari Gíslasyni gamanvísnasöngvara. Höskuldur var auk þess í hluta- starfi hjá Ríkisútvarpinu um árabil með upplestur og eigin þáttagerð, m.a. ásamt Guðrúnu Þór leikkonu. Þá hefur Höskuldur leikið í þremur kvikmyndum. Höskuldur fór á námskeið í frí- stundamálun hjá Erlu Sigurðardótt- ur 1998, hefur málað að kappi síðan og haldið eina einkasýningu í Ráð- húsi Reykjavíkur. Hann hefur kynnst mörgu góðu fólki um dagana sem hann sendir sínar bestu kveðj- ur. Fjölskylda Höskuldur fæddist þríburi en hann er nú einn á lífi þeirra bræðra. Þríburabræður hans voru Hjalti, f. 11.2.1917, d. 1919; Guðvarð- ur, f. 11.2. 1917, d. 18.5.1994, bakara- meistari á Sauðárkróki og síðar í Reykjavík. Önnur systkini Höskuld- ar: Bjarni Anton, f. 23.1. 1901, fórst með Öldunni 14.12. 1935, bóndi í Hólakoti á Reykjaströnd og sjómað- ur á Sauðárkróki, kvæntur Helgu Pétursdóttur frá Gauksstöðum; Sveinbjörn Maron, f. 24.9. 1902, lengst af bílstjóri á Sauðárkróki; Sigmundur, f. 26.6. 1905, búsettur í Reykjavík; Sveinn, f. 5.10. 1906, dó tæplega tvítugur; Guðjón, f. 3.11. 1908, bakarameistari og bæjarfull- trúi á Sauðárkróki, var kvæntur Ólínu Björnsdóttur; Elísabet Jó- hanns, f. 2.10. 1913, húsmóðir á Ak- ureyri, giftist Einari Guðmundssyni vélagæslumanni; Pálmi Anton, f. 17.10. 1921, búsettur á Sauðárkróki, kvæntist Guðrúnu Snorradóttur. Foreldrar Höskuldar voru Sigurð- ur Sveinsson, f. 16.8. 1871, d. 16.2. 1953, bóndi á Mannskaðahóli og Hólakoti á Höfðaströnd og trésmið- ur á Sauðárkróki, og k.h., Guðbjörg Sigmundsdóttir, f. 14.4. 1879, d. 27.7. 1968, húsfreyja. Ætt Sigurður var sonur Sveins Þórð- arsonar, b. í Þrastarstaðagerði, og k.h., Sigurlaugar Sæmundsdóttur. Guðbjörg var dóttir Sigmundar Símonarsonar, b. á Bjamastöðum í Unadal, og k.h., Rósu Stefánsdóttur. Höskuldur verður að heiman. Merkír íslendingar Jón Trausti var skáldanafn Guðmundar Magnússonar sem fæddist á Rifi á Sléttu 12. febrúar 1873, sonur Magnúsar Magnús- sonar, bónda á Hrauntanga, og k.h., Guðbjargar Guðmundsdóttur húsfreyju. Jón var fimm ára er hann missti föð- ur sinn, lenti á sveit og ólst upp við mikla fátækt á mestu harðindaárum 19. aldar. Hann naut engrar skóla- göngu, stundaði ungur almenn störf til lands og sjávar en læröi prentverk í Prentsmiðju Austra á Seyðisfirði er hann var kominn undir tvítugt, og menntaðist vel af sjálfdáðum með ferða- lögum og lestri, einkum um söguleg efni. Hann fór m.a. til Kaupmannahafnar og ferð- aðist um Mið-Evrópu með styrk frá Alþingi. Jón Trausti Jón stundaði prentiðn á Akureyri og hjá ísafold og Gutenberg í Reykjavík 1904-1914 er hann hætti endanlega prentstörfum. Jón byrjaði ungur að yrkja en var fá- lega tekið. Hann tók sér þá skáldanafn og fékk þá verðugt lof, jafnvel frá þeim sem áður löstuðu verk hans. Veiga- mesta og þekktasta verk Jóns er sveitaskáldsagan Halla og heiöarbýliö sem kom út í nokkrum ritum 1908-1911. Bækurnar urðu fádæma vin- sælar en lýsingar hans á persónum, umhverfi og mannlífi sveitanna þóttu mjög lifandi og raunsannar. Síðari sögur hans, s.s. Sögur frá Skaftáreldi og Anna frá Stóruborg eru sagnfræðilegar skáldsög- ur. Hann lést úr spönsku veikinni 1918. Ósk Ásgrímsdóttir, Garðvangi, Garði, verður jarðsungin frá Útskálakirkju mánud. 11.2. kl. 14.00. Mlnningarathöfn um Einar Jónsson frá Tannstaðabakka, Stóragerði 10, Reykjavík, verður í Grensáskirkju mánud. 11.2. kl. 15.00. Jarðarförin fer fram frá Staðarkirkju í Hrútafirði þriöjud. 12.2. kl. 14.00. Jóhanne Marie Gíslason, Ásgarði 135, Reykjavík, verður jarðsungin frá Bústaðakirkju mánud. 11.2. kl. 13.30. Magnús Blöndal Bjarnason læknir, Lindasmára 45, Kópavogi, verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju mánud. 11.2. kl. 15.00. Ingibjörg Guöjónsdóttir, áður til heimlis á Laugarnesvegi 72, Reykjavík, verður jarösungin frá Áskirkju mánud. 11.2. kl. 15.00.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.