Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2002, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2002, Blaðsíða 32
'ar Hotgason hf. FRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 MÁNUDAGUR 11. FEBRÚAR 2002 Skemmdarvargar á ferð um Hvolsvöll: Kveikt í fimm bílum og fjórir skemmdir - óhugur í fólki yfir atburðunum „Viö vorum sjö sem sváfum í húsinu i nótt. Við urðum einskis vör íýrr en í morgun þegar ég kom út og sá hvemig bíilinn var útleikinn," sagði Gunnar Kr. Ólafs- son, íbúi að Norður- garði 9 á Hvolsvelli, við DV í gær. Bíll Gunnars var einn af fimm bíliun sem kveikt var í á Hvolsvelli aðfaranótt sunnudagsins. Auk þess voru þrir bflar skemmd- ir og lofti hleypt úr öll- um dekkjum á einum. Þá var eldur kveiktur í sófa í sólstofú við íbúð- arhús á Hvolsvelli sem náðist að slökkva áður en hann breiddist út. Gunnar segir að óhugur sé í honum og ijölskyldunni eftir atburði nætui’- innar. „Það grípur skelfmg um sig Flugumf eröarst j órar: Miðlunartillaga Þórir Einarsson rikissáttasemjari mun í eftirmiðdaginn í dag leggja fram miðlunartillögu í kjaradeflu flugumferð- arstjóra við ríkið. Enn ber talsvert á milli deiluaðila og því fer sáttasemjari þessa leið við með- ferð málsins. Búast má við að gangur málsins verði sá að tillögu sáttasemj- ara fenginni haldi flugumferðarstjór- ar kynningarfund um efni hennar og í kjölfarið verði greidd um hana atkvæði af félagsmönnum. Fjármálaráðherra einn fer með atkvæði hins samningsað- ila, það er rikisins. Samningafundur stóð yflr ailan dag- inn í gær og fram á kvöld, en ekkert þokaðist í átt að samkomulagi. „Ég ætla ekkert að kommentera á að sáttasemjari ætli að fara þessa leið í málinu," sagði Loftur Jóhannsson, formaður Félags ís- lenskra flugumferðarstjóra, i samtali við DV i gærkvöld.______-sbs Veöur vikunnar: Hlýnandi veður Veður fer hlýnandi þegar kemur fram á miðvikudag og snýst þá í vax- andi suðaustanátt með slyddu eða rigningu suðvestan til. Þá er búist við heldur kaldara veðri og vestlægum áttum á fimmtudag. Á fóstudag er gert ráð fyrir rigningu og fremur mildu veðri með éljum vestan til, en á laugardag kólnar á ný. A vaktinni Gils Jóhannsson og Sigur- geir Ingólfsson voru aö ransaka skemmdarverkin á Hvolsvelli í gær. Þórir Einarsson. meðal fólks hér á staðn- um þegar svona lagað gerist. Þetta er ekki bara á einum stað í bænum heldur mörgum stöðum. Við vorum sjö sofandi hér i húsinu. Billinn stóð inn undir þakskegginu, en sem betur fer náði eld- urinn sér ekki út úr bíln- um því þá heföi hann átt greiða leið í húsið sjálft, timburhús og þakskeggið allt úr timbri. Það er ekki hægt að hugsa til enda hvað hefði getað gerst ef eldurinn hefði náð i húsið. Við vorum flestöll sofandi hér rétt hinum megin við vegg- inn þar sem bíllinn stóð,“ sagði Gunnar. Fólk sem DV hitti á Hvolsvelli var líkt og Gunnar slegið yflr tiðindum næturinnar. Lögreglan á Hvolsvelli var að vinna að rannsókn málsins í gærkvöld. Gils Jóhannsson varðstjóri sagði að enn væri ekkert komið fram sem varpaði ljósi á atburðina. „Við höfúm þegar yfirheyrt nokkra en það hefur enn ekki fært okkur upplýsingar sem varpa ljósi á málið. Þetta er stór- mál og hér líður fólki mjög illa yfir þessu öllu saman,“ sagði Gils Jóhanns- son, varðstjóri á Hvolsvelli. -NH DV-MYND EINAR J XXX Rottweilerhundar komu, sáu og sigruðu íslensku tónlistarverölaunin voru veitt viö hátíöiega athöfn í Borgarleikhúsinu í gærkvöld. Óhætt er aö segia aö rapp- hljómsveitin XXX Rottweilerhundar hafi verið sigurvegari kvöldsins en hún var tilnefnd til alls fimm verðlauna og hreppti þrenn; sem bjartasta vonin, tónlistarflytjandi ársins og fyrir hljómplötu ársins. Forseti bæjarstjórnar Kópavogs ósáttur við niðurstöðu prófkjörs Sjálfstæðisflokksins: íhugar óháð framboð - og segir niðurröðun tilviljanakennda er hann féll úr öðru í sjötta sætið „Fjöldi manns hefur haft sam- band við mig, gerði það fyrir próf- kjörið og aftur á sunnudagsnóttina, og spurt mig hvort ég vilji leiða óháð framboð í Kópavogi, lista með fólki úr öllum flokkum," sagði Bragi Michaelsson, forseti bæjarstjórnar í Kópavogi. Hann náði aðeins 6. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi um helgina en sjálfstæðis- menn eiga fimm bæjarfulltrúa. Bragi neitar því að kjósendur hafi þama verið að hafna sér. Hér hafi að- eins munað örfáum atkvæðum. Hann segir úrslitin tilviljanakennd, aðeins hafi munað 19 atkvæðum hvort hann yrði í 5. eða 6. sæti, aðeins 40 atkvæð- um á 4. eða 6. sæti og 101 atkvæði á 3. og 6. atkvæði. Hann telur því mun- inn milli fólks vart marktækan. Bragi segir að hann hafi verið inntur eftir því áður en prófkjörið byrjaði hvort hann væri tilleiðanlegur að fara út úr próf- kjörsslagnum og vera með á óháð- um lista og leiða hann. „Ég hef enga ákvörðun tekið en mun íhuga það. Ég veit ekki hvort ég tek 6. sætið ef það býðst eða hvað ég geri.“ • Gunnar I. Birgisson vann góðan sigur sem foringi sjáifstæðismanna í Kópavogi. „Ég hafði ekki mikla til- burði í frammi með áróður fyrir sjálfan mig en sat á friðarstóli og gerði mest lítið. Ég er því afar ánægður með minn hlut í þessu og það traust sem kjósendur sýndu mér. Að mér sóttu tveir endur sætið. urðu þarna færslur frambjóð- í fyrsta Úrslitin þau að urðu til- - meðal Bragi Michaelsson. Gunnarl. annars féll Bragi Birgisson. Michaelsson nið- ur í 6. sæti list- ans, en hann hefur unnið lengi og dyggilega fyrir flokkinn. Ég tel að þetta verði afar sigurstranglegur listi," sagði Gunnar I. Birgisson, al- þingismaður og bæjarfulltrúi í Kópa- vogi, í gær. Enginn þátttakenda hlaut bindandi kosningu, yfir helming at- kvæða, en um 2.700 greiddu atkvæði sem er um 400 fleiri en 1998. Gunnar I. Birgisson hlaut 1.278 at- kvæði í fyrsta sætið. Ármann Kr. Ólafsson, bæjarfúlltrúi og aðstoðar- maður sjávarútvegsráðherra, varð annar með 1.057 atkvæði. Hann var áður í fimmta sæti. Gunnsteinn Sig- urðsson, skólastjóri i Lindaskóla, varð þriðji með 1.001 atkvæði í þrjú efstu sætin. Sigurrós Þorgrímsdóttir stjóm- sýslufræðingur varð fjórða með 1.127 atkvæði. Fimmta varð Halla Haildórs- dóttir, hjúkrunarfræðingur og ljós- móðir, fékk 1.275 atkvæði og hafnaði í 5. sæti listans - en Bragi Michaelsson, bæjarfulltrúi og byggingaeftirlitsmað- ur hjá Framkvæmdasýslu ríkisins, sem var í öðm sæti listans við síðustu kosningar varð nú í sjötta sæti próf- kjörsins í dag með 1.416 atkvæði í sex fyrstu sætin. Bragi hefur starfað í bæj- arstjóm í næstum 25 ár. -JBP Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra: Fagnar hugmyndum Frakka - um kosningar í Palestínu „Allar nýjar hugmyndir sem stuðlað geta að friði fyrir bótni Miðjarðarhafs eru af hinu góða,“ segir Halldór Ás- grímsson utanríkisráðherra. Honum líst vel á tillögu Hubert Vedrine, utan- ríkisráðherra Frakka, sem á óformleg- um fundi utanrikisráðherra rikja Evr- ópusambandsins um helgina lagði til að viðræður um frið í þessum heimshluta hæfust með stofnun sjálfstæðs ríkis Palestínumanna. Það fengi þegar í stað aðild að Sameinuðu þjóðunum og viður- kenningu af ísrael. Þá er gert ráð fyrir að gengið verði til kosninga á palest- ínsku sjálfstjómarsvæðunum. Einmitt það segir Halldór Ásgrímsson vera mjög athyglisverða tiUögu. Það var Josep Pique, utanrikisráð- herra Spánar, sem stýrði fundi utan- ríkisráðherranna i dag. Eftir honum hefúr verið haft í fréttaskeytum að hugmyndimar yrðu þróaðar áfram í viðræðum ráðherranna og á fúndi þeirra sem verður í Barcelona í mars. „Hugmyndir um stofnun sjálfstæðs rík- is Palestínumanna em í sjálfu sér ekki nýjar, það hefúr alltaf verið stefnt að því að friðarferlinu fyrir botni Miðjarðar- hafs lyki með þeim hætti,“ segir Hall- dór. Utanrikisráðherra segir að nú um stundir ríki mikið vonleysi meðal Palestínumanna, enda ætli hemaður Israelsmanna gegn þeim engan enda að taka. Nauðsynlegt sé því að leita alira leiða sem stuðlað geti að friði. „Þetta er búið að ganga svona alveg síðan hin nýja ríkisstjórn í ísrael tók við völdum. Elcki var ástandið gott fyrir en hefur mikið versnað síðan.“ -sbs , Halldór Ásgrimsson. _ A A_A fl -. A .. ft — fl - A_A . A . iGitarinnl •sjf Stórhöfða 27s •w' & s. 552 2125. 3L jl Rafmagns gítar, * H magnarT m/effekt ¥ ><■01 og snúra 33.900krx' irk&ki&ckitc&rk brother P-touch 9200PC Prentaðu merkimiða beint úr tölvunni Samhæft Windows 95, 98 og NT4.0 360 dpi prentun 1 til 27 mm letur Strikamerki Bafport Nýbýlavegi 14 Sími 554 4443 Veffang: www.if.is/rafport

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.