Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2002, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2002, Blaðsíða 4
4 MÁNUDAGUR 11. FEBRÚAR 2002 Fréttir Hörð barátta í uppsiglingu í R-lista-prófkjöri Samfylkingar: Stöðug endurnýjun listans nauðsynleg segir Stefán Jón Hafstein og skorar Helga Hjörvar á hólm. Fagna framboðinu, segir Helgi „Ég vil vera í forystusveitinni,“ segir Stefán Jón Hafstein, fjöl- miðlamaður og formaður fram- kvæmdastjórnar Samfylkingarinn- ar. Hann kunngerði á laugardag þátttöku sina í prófkjöri vegna vals flokksins á frambjóðendum á Reykjavíkurlistann. Kveðst Stefán ..óska eindregið eftir fyrsta sæt- inu“ eins og hann komst að orði í samtali við DV. I raun skorar Stef- án Helga Hjörvar, forseta borgar- stjórnar, á hólm en hann hefur á kjörtímabilinu verið leiðtogi Sam- fylkingarinnar í borgarstjóm. Stef- án segir framboð sitt þó allt eins beinast gegn þeim Hrannari B. Amarssyni og Steinunni Valdisi Óskardóttur sem bæði hafa óskað eftir fyrsta sætinu fyrir hönd flokks sins í borgarpólitíkinni. Stefán segir engan málefnalegan ágreining milli sin, og annarra frambjóðenda, en hins vegar sé endumýjunar þörf. „Þaö má llta á Samkeppnisstofnun: Ógagnið sjaldan augljósara „Leggja á Samkeppnisstofnun niður enda eru völd embættismanna hennar óhófleg og styðjast ekki við efhahagsleg rök. Jafnframt eru vinnubrögð stofn- unarinnar, eins og dæmin sanna, óvönduð og tilvilj- anakennd." Þetta segir Sam- band ungra sjálf- stæðismanna sem á stjómarfundi sín- um fyrir helgina samþykkti tillögu þessa efnis. „Sam- keppnisstofnun hefur itrekað kom- ið í veg fyrir eðli- lega hagræðingu. Slíkar aögerðir vinna gegn hag- vexti og rýra þar með lífskjör," segir í ályktun SUS. „Rétta leiðin til er ekki sú að veita stofnun á þessu sviði auknar valdheim- ildir heldur á ríkisvaldið að tryggja að engar hindranir séu að aðgangi frum- kvöðla á einstökum mörkuðum. Virk samkeppni er best tryggð með þvi að hafa gildar reglur í viðskiptum þannig að samkeppni sé auðveld og gerlegt að stofha ný fyrirtæki. Þar nefni ég þátt ríkisins sem er umsvifamikið á fjöl- miðlamarkaði, hefur einokun í áfengis- sölu og hamlar gegn innflutningi land- búnaðarvara með tollum," segir Ingvi Hrafn Óskarsson, formaður SUS. Einar Skúlason er formaður Sam- bands ungra framsóknarmanna og hann er á algjörlega öndverðri skoðun við for- ystu ungliðasamtaka hins stjómar- flokksins í þessu máli. „Ég vil frekar efla Samkeppnisstofnun til þess að hamla gegn þeim fákeppnistilburðum sem nú verður víða vart við í þjóðfélag- inu. Það vil ég sjá gert með tií dæmis auknum fjárframlögum til stofhunar- innar og þar með fleiri starfsmönnum hennar," segir Einar. Hann segist enn fremur telja að Samkeppnisstofnun, fremur en hitt, stuðli að öflugri sam- keppni í þjóðfélaginu en hún sé öllum til hagsbóta rétt eins og stefhuskrá til að mynda Sjálfstæðisflokksins kveði á um. -sbs þetta mál frá tveimur áttum. í dag hefur Reykjavikurlist- inn forystuhlut- verkið í borg- inni og sterka stöðu í könnun- um og því má spyrja hvers vegna eigi að breyta. Á hinn bóginn er nauðsynlegt að vera skrefi á undan þróuninni og stöðug endurnýjun er nauðsynleg. Lengi má bæta góðan lista og þar er ég tilbúinn að leggja mitt af mörkum," segir Stefán. Að öðru leyti segir hann um þátttakendur í prófkjörinu nú að þar fari í flest- um tilvikum þekktir einstaklingar og kjósendur eigi gott val. Úrslitin verði góð hvernig sem leikar ann- ars fari. Helgi Hjörvar, forseti borgar- „Hér var mikill fjöldi fólks á skíö- um um helgina og meirihlutinn fólk að sunnan," sagði Guðmundur Karl Jónsson, forstöðumaður Skíðastaða í Hlíðarfjalli við Akureyri, i samtali við DV. Nýja stólalyftan i fjallinu var vígð á laugardag aö viðstöddu fjölmenni. Henni var gefið nafnið Fjarkinn, enda komast fjórir með í hverjum stól hennar upp í landsins bestu skíðabrekkur. Það var bæjar- stjórinn á Akureyri, Kristján Þór stjómar, segir að þegar menn eins og Stefán Jón gefi kost á sér í prófkjöri liggi í hlutarins eðli að þeir líti svo á að endur- nýjunar sé þörf. „En ég hlýt að fagna framboði Stefáns, sem og annarra í þessu prófkjöri, því það er um að gera að hafa það spenn- andi og eftirtektarvert. Það styrkir okkur öll og þar með listann. Að öðru leyti sýnist mér að talsverð end- umýjun verði á Reykjavíkurlistan- um í þessum kosningum. Sigrún Magnúsdóttir hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér, Vinstri grænir koma inn með nýjan borgarfulltrúa og við höfum síðan tekið sjöunda sætið frá fyrir nýjan frambjóðanda. Það er því endumýjun í að minnsta kosti þrem- Júlíusson, sem klippti á borða og tók þar með lyftuna formlega í notk- un. Honum til halds og trausts við það verk voru skíðafrömuðimir Óð- inn Ámason og Hermann Sigtryggs- son. Þá var Björn Bjarnason menntamálaráðherra á staðnum og lýsti hann yfir ánægju sinni með þessa stærstu skíðalyftu landsins. Sagði ráðherra uppbygginguna í Hlíð- arfjalli merki um þann stórhug sem ríkti á mörgum sviðum á Akureyri. ur af átta borgarfulltrúasætum. Flokksmennimir verða að öðru leyti að skera úr um hvort þeir vilja ganga enn lengra í endumýjun en þegar er ljóst að verður,“ segir Helgi. AIls gefa átta einstaklingar kost á sér í prófkjörið. Þau eru í staf- rófsröð, auk þeirra Stefáns Jóns og Helga Hjörvars, Hrannar Bjöm Arnarsson, Sigrún Elsa Smára- dóttir, Stefán Jóhann Stefánsson, Steinunn Valdís Óskarsdóttir, Pét- ur Jónsson og Tryggvi Þórhalls- son. Kjörfundur hefst næstkom- andi miðvikudag og lýkur á sunnudag. Kosiö verður í í Austur- stræti 14, 4. hæð, virku dagana frá 16.00 til 19.00, en laugardag og sunnudag kl. 10.00-17.00. Auk þess fá allir félagar í Samfylkingunni í Reykjavík kjörseðil í pósti. Próf- kjörið er opið öllum sem undirrita stuðningsyfirlýsingu við flokkinn. -sbs „Nú er nægur snjór í fjallinu en við þiggjum alveg meira. Snjóspáin er góð alveg fram á fimmtudag," segir Guðmundur Karl sem telur að um fjórtán hundruð manns hafi komið í Hlíðarfjall um helgina. Hann kveðst jafnframt eiga von á mikiiii aðsókn í fjallið á næstunni, ekki síst frá skíðamönnum syðra sem nú era allar bjargir bannaðar vegna snjóleysis. -sbs Hálka og sól trufluðu: 38 umferðar- óhöppí Reykjavík Hálka, helgarstress og sól lágt á lofti eru helstu orsakir umferðar- óhappa helgarinnar, að sögn lög- reglunnar í Reykjavík, en alls urðu 38 umferðaróhöpp í höfuð- borginni yfir helgina og þurfti nokkrum sinnum að kalla eftir að- stoð tækjabíls slökkviliðsins. Eng- in alvarleg slys urðu á fólki í þess- um óhöppum en margir af þessum bílum eru mjög illa famir. í Hafn- arfirði urðu flmmtán árekstrar um helgina og þar af einn fjögurra bíla árekstur á Vífilsstaöavegi. Tvær bílveltur urðu á Norðurlandi á laugardag og má að sögn lög- reglu kenna um djúpum hjólförum sem erfitt er að halda sér í. í Hörg- árdal valt bíll með fjórum ung- mennum innanborðs á toppinn en engan sakaði og sömu sögu er að segja um tvo farþega bíls sem valt á Árskógsströnd. í Mjóafirði varð bílvelta vegna hálku á laugardags- kvöld. Þrennt var í bílnum en eng- an sakaði. Rétt fyrir utan Borgar- nes varð bílvelta á sunnudag. Þar hafði bíll með hestakerru verið lagt út i kant en ökumaður bíls sem á móti kom flpaðist við akst- urinn og fór út af. Engin slys urðu á fólki. Á föstudagskvöld var keyrt aftan á kyrrstæðan bíl við Galtar- læk og þurfti að flytja tvo á sjúkra- húsið á Akranesi. Á Ennishálsi var vitlaust veður á föstudags- kvöld og þurfti lögreglan á Hólma- vík að aðstoða tvo bíla sem lentu þar í vandræðum. -snæ Fjörugir þorrafagnaðir: Fjórar líkams- árásir á einni nóttu Óvenju mikill erill var hjá lög- reglunni á ísafirði þessa helgi enda víða gleðskapur í gangi vegna þorrans. Aðfaranótt sunnu- dags þurfti lögreglan að hafa af- skipti af fjórum líkamsárásum og það í þremur mismunandi bæjar- félögum. Á Flateyri var maður sleginn í andlit og kom hann sér sjálfur undir læknishendur, í fé- lagsheimilinu í Hnífsdal var annar kýldur kaldur og svo þurftu karl- maður og kona að leita á sjúkra- hús eftir slagsmál í heimahúsi á Suðureyri. Maðurinn sem hafði verið laminn með glasi í andlitið þurfti að láta sauma 10 spor í and- litið. Að sögn lögreglunnar leiö sem betur fer góður tími á milli árásanna, enda dágóður spotti að keyra á milli þessara þriggja staða. Engin árásanna hefur verið kærð. -snæ Gengi deCODE á niöurleið - komið í 7,5 dollara Gengi hlutabréfa í deCODE hefur verið á stöðugri niðurleiö frá því í upphafi janúarmánaðar er það reis hæst í 10,5 dollara á hlut. Þaö sem af er febrúar hefur fallið verið hratt, eða úr 9 dollurum og niður fyrir 7,5 dollara á hlut um tíma á fimmtudag. Opnunargengi á föstudag var 7,6 doUarar og fór það um tima aUt niö- ur í 7,15 doUara á hlut í viðskiptum yfir daginn. Lokagengið var síðan 7,5 doUarar í viðskiptum með 115.100 hluti. -HKr. DVWYND: ÓMAR K. Nýja stólalyftan í Hlíöarfjalli, Fjarkinn, var vigö á laugardaginn Hér eru fyrstu gestirnir. Talið frá vinstri: Óöinn Árnason, Björn Bjarnason, Kristján Þór Júlíusson og Hermann Sigtryggsson. Nýja skíðalyftan í Hlíðarfjalli í notkun: Straumur að sunnan í snjóinn ffyrir norðan - nægur snjór en viljum meira, segir forstöðumaðurinn Ingvi Hrafn Óskarsson. Einar Skúlason. Helgi Hjörvar. Stefán Jón Hafstein.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.