Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2002, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2002, Blaðsíða 6
6 MÁNUDAGUR 11. FEBRÚAR 2002 Fréttir Óánægja með nýja byggðaáætlun: Hefði viljað róttæka áætlun - sem næði til Vestfjarða, segir bæjarstjórinn í Bolungarvík „Ég hefði viljað sjá Vestfjörðum og Austurlandi gert hærra undir höföi í hinni nýju byggðaáætlun. Eigi að síður geri ég mér það alveg Ijóst að Akureyri er kjörinn staður til þess að mynda mótvægi við höf- uðborgarsvæðið," segir Ólafur Kristjánsson, bæjarstjóri í Bolung- arvík, í samtali við DV. Ljóst er að óánægju gætir meðal sveitarstjórn- armanna víða um land með þá byggðaáætlun sem Valgerður Sverr- isdóttir kynnti fyrir helgina. Þar er megináhersla lögð á uppbyggingu á Akureyri, meðal annars með sér- stakri Eyjafjarðaráætlun. „Að mínum dómi er löngu tíma- bært að gerð verði róttæk byggðaá- ætlun sem nær til Vestfjarða," segir Ólafur. Vísar hann til þeirrar íbúa- þróunar sem verið hefur vestra á Bolungarvík. síðustu áratugum, en samkvæmt tölum Hagstofunnar voru Vestfirð- ingar ekki nema 8.012 talsins 1. des- ember sl. Segir bæjarstjórinn að fólksfækkun vestra sé ískyggileg og hana verði að stöðva. „Að fenginni þessari byggðaáætl- un núna munum við ræða við þing- menn okkar og leita upplýsinga um hver geti verið næstu skref til öfl- ugrar sóknar hér á Vestfjörðum," segir Ólafur. Hann segir að í því sambandi séu atvinnumál vitaskuld alltaf númer eitt en því næst komi samgöngumálin. Sé mikilsvert að vinna að þeim samgöngubótum sem stytt geti leiðina milli ísafjarðar og Reykjavíkur þannig að þar á milli verði ekki um fjögurra stunda akst- ur. -sbs Landsbyggðarafsláttur námslána meðal tillagna í nýrri byggðaáætlun: Hluti af heildstæðum aðgerðum - segir formaður Stúdentaráðs HÍ Tilllögur í nýrri byggðaáætlun um að háskólafólk sem fer til búsetu og starfa á þeim svæðum þar sem fólk með þess menntun vantar til starfa fái tímabundinn afslátt af endurgreiðslu námslána eru ekki fráleitar. Þetta er mat Þorvarðar Tjörva Ólafssonar, formanns Stúd- entaráðs Háskóla íslands. Hann seg- ir þó mikilvægt að þetta sé aðeins hluti af heildstæðum aðgerðum til að létta greiðslubyrði námslána. „Það er mjög mikilvægt að greiðslubyrði lánanna verði léttari,“ segir Þorvarður Tjörvi. Hann segir BHM og samtök námsmanna vera að fara af stað með verkefni, sem miði að því að fá stjóm- völd til þess að endurskoöa hvernig staðið sé að endur- greiðslum. „Byrðin er alltof þung. Það er of mikið fyrir ungt fólk að þurfa að greiða lánin til baka á tíu til tólf árum, á sama tima og það er að koma upp fjölskyldu og greiða af húsnæðislánum sem eru til allt að Þoryarður Tjörvl Ólafsson. fjörutíu ára. í dag þarf ungt fólk að greiða sem samsvar- ar einum mánaðarlaunum á ári af lánum sínum hjá LÍN.“ Formaður Stúdentaráðs segist fagna hverri fram- kominni tillögu sem létt geti greiðslubyrði náms- lána. Hugmyndir um sér- stakan landsbyggðarafslátt geti verið hluti af heild- stæðum aðgerðum og í þeim þurfi ekki að felast nein mismunun. Þetta þurfi þó allt að skoðast i samhengi. Hann minnir í þessu sambandi á að Stúdentaráð í samvinnu við sveitar- félög og Byggðastofnun hafi boðið þeim námsmönnum sem vilji fara til starfa úti á landi eða vinna að rannsóknarverkefnum þar myndar- lega tíu styrki, hvern hálfa milljón króna að upphæð. Þannig sé lands- byggðarhvatning til námsmanna nokkuð sem þegar sé komið fram, þó með öðrum hætti sé í hinni nýju byggðaáætlun. -sbs Samfylkingin: Gott prófkjör eflir barátt- una össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingar, segir gleðilegt hversu margir öflugir frambjóðendur gefi kost á sér í prófkjöri flokksins um skip- an Reykjavíkurlist- ans. „Það er ánægjulegt hversu mikil eftirspum er eftir því að starfa innan listans og taka þannig þátt í andóflnu gegn ofúr- tökum Sjáifstæðis- flokksins í þjóðlíf- inu. Gott prófkjör getur ekki annað en eflt baráttuna og styrkt bæði Samfylk- inguna og listann í heild sinni. Það hlýt- ur að fara hrollur um Sjáifstæðisflokk- inn þessa dagana," segir formaðurinn. „Meðal þátttakenda í prófkjörinu eru þrautreyndir borgarfulltrúar og þát- ttaka Stefáns Jóns Hafsteins, sem er pólitískur þungavigtarmaður, getur hleypt óvæntu fjöri í keppnina. Einnig blanda sér í leikinn aðrir fulitrúar sem enginn skyldi vanmeta. Það er ánægju- legt að sjá þar unga og efnilega konu eins og Sigrúnu Elsu Smáradóttur sem efalítið er ffamtíðarkona i stjómmálum Samfylkingarinnar. Ekki má gleyma þrautreyndum jöxlum eins og Pétri Jónssyni," segir össur. -sbs MYND STÖÐ 2. Ánægöur meö árangurinn Þorvaldur í þættinum í gærkvöld. Össur Skarphéöinsson. Fast peir sottur sjoinn Skipverjarnir á Aski, þeir Óskar Jónasson, Ari Sveinsson og Þorsteinn S. Krístjánsson, voru önnum kafnir viö aö landa 900 kílöum af fiski þegar biaöamenn DV bar aö garöi. Uppistaöan í aflanum var þorskur en um 70 kíló voru þar af lúöu. Aflinn fékkst í net undir Krýsuvíkurbjargi. Viltu vinna milljón? Reyni eflaust aftur að ári - segir Þorvaldur Þorvaldsson trésmíðameistari Þorvaldur Þorvaldsson, trésmíða- meistari úr Breiðholtinu, kom í gær- kvöld öðru sinni i þátt Þorsteins J. Vilhjálmssonar, Viltu vinna miiljón? Hann sótti sér aftur góða búbót. í fyrra komst hann í 650 þúsund krón- ur. Að þessu sinni strandaði Þorvald- ur á spumingu um hver hefði ort vís- una „Mínar eru sorgimar þungar sem blý“ áður en hann var tekinn af lífi. Rétt svar var Þórður Andrésson. Þorvaldur fór heim með 400 þúsund krónur að þessu sinni og var ánægð- ur með yfir milljón króna verðlaun á einu ári. „Þetta voru of þungar spumingar fyrir mig,“ viðurkenndi Þorvaldur í gærkvöld. „En mér finnst skemmti- legt og spennandi að taka þátt i þessu. Ég reyni eflaust næsta ár,“ sagði hann. Þorvaldur komst í þenn- an þátt vegna forfalla annars kepp- anda. „Ég les ekkert svo mjög mikið, ég hef alltaf verið frekar hæglæs, þarf að hafa fyrir því. En ég fylgist vel með og er fljótur að staðsetja hlutina í einhverju hugsanakerfi," sagði Þorvaldur eftir þáttinn í gærkvöld. Hann er Akumes- ingur að uppruna. -JBP ssffae REYKJAVIK AKUREYRI Sólariag í kvöld 17.49 17.52 Sólarupprás á morgun 09.33 09.36 Síðdeglsflób 18.30 22.27 Árdegisflóó á morgun 06.48 12.21 ffMPMHMIMHtt (23 V V í spá Veðurstofunnar er gert ráð fyrir að hvass vindur fyrir norðan og austan hafl gengið niður. Þá er reiknað með bjartviðri en stöku éljum norðaustanlands. Frost á að vera 0 til 10 stig, kaldast inn til landsins. i.íss 03 qb 03 Fremur hæg breytileg átt og víða léttskýjað, frost 0 til 5 stig við ströndina en talsvert kaldara í innsveitum. Miðvikudagur <r S Fimmtudagur <r'_ '-s Föstudagur & S m Hiti 0° Hiti 0“ Hiti 0° tii 0° til 0° tíl 0° Vindur: Vindun Vindur: 8-13 ■"/* 6-151"V* 5-15 n'/5 Vaxandi Vestlæg átt Suövestanátt suóaustanátt og él sunnan- og vífia mefi slyddu og vestan- rignlng, eða rlgnlngu lands en fremur milt á vestan- léttlr tll , en él sunnan- verfiu land- austanlands. og vestan tll Inu en Hltl verfiur og kólnandl þykknar upp nálægt veður á austanlands. frostmarkl. laugardag. £M. m/s Logn 0-0,2 Andvarl 0,3-1,5 Kul 1,6-3,3 Gola 3,4-5,4 Stlnnlngsgola 5,5-7,9 Kaldi 8,0-10,7 Stinningskaldi 10,8-13,8 Allhvasst 13,9-17,1 Hvassviöri 17,2-20,7 Stormur 20,8-24,4 Rok 24,5-28,4 Ofsavefiur 28,5-32,6 Fárviöri >= 32,7 Veðriö kf. 6 AKUREYRI skýjaö -4 BERGSSTAÐIR léttskýjað -5 BOLUNGARVÍK snjóél -3 EGILSSTAÐIR úrkoma -2 KIRKJUBÆJARKL. KEFLAVÍK léttskýjaö -3 RAUFARHÖFN snjóél -2 REYKJAVÍK léttskýjaö -3 STÓRHÖFÐI léttskýjaö 1 BERGEN skúrir 5 HELSINKI rigning 3 KAUPMANNAHOFN skýiaö 7 ÓSLÓ skýjaö 6 STOKKHÓLMUR 5 ÞÓRSHÖFN skýjaö 2 ÞRÁNDHEIMUR úrkoma 4 ALGARVE léttskýjaö 17 AMSTERDAM skýjaö 8 BARCELONA mistur 15 BERLÍN skúrir 7 CHICAGO alskýjaö 5 DUBLIN • rigning 10 HALIFAX heiöskírt -12 FRANKFURT úrkoma 8 HAMBORG skúrir 7 JAN MAYEN skýjaö -3 LONDON skýjaö 10 LÚXEMBORG skúrir 5 MALLORCA léttskýjaö 16 MONTREAL heiöskírt -12 NARSSARSSUAQ léttskýjaö -9 NEWYORK alskýjaö 6 ORLANDO hálfskýjaö 19 PARÍS skúrir 10 VÍN skýjaö 9 WASHINGTON þokumóöa 4 WINNIPEG heiöskírt -15

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.