Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2002, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2002, Blaðsíða 10
10 MÁNUDAGUR 11. FEBRÚAR 2002 Landið DV Nýjung á íslandi reynd í Hveragerði: Jarðskjálftaþolin Auður Aöalbjarnardóttir íþróttamaöur DaMkurbyggðar 2001 Auður íþrótta- maður Dal- víkurbyggðar Auður Aðalbjamardóttir var kjör- in íþróttamaður Dalvíkurbyggðar 2001. Auður keppir í frjálsum íþrótt- um og setti íslandsmet í kúluvarpi og varð íslandsmeistari í þeirri grein bæði utan- og innanhúss. Þá á hún besta afrekiö í spjótkasti í sínum ald- ursflokki, 21-22 ára, og annað besta afrek ársins I sleggjukasti. Aðrir sem tilnefningu hlutu voru hestamaðurinn Stefán Friðgeirsson, körfuknattleiksmaðurinn Pétur Skarphéðinsson, knattspymumaður- inn Hermann Albertsson, kylfíngur- inn Dóra Kristinsdóttir, sundkonan Þorgerður Sveinbjarnardóttir, blak- leikmaðurinn Sveinbjörg Helgadótt- ir, skíðamaðurinn Björgvin Björg- vinsson og frjálsíþrótta- og knatt- spymumaðurinn Sveinn Elías Jóns- son. -HIÁ DV-MYND NJORÐUR HELGASON Ánægöur fiskimaöur Vatdemar Halldórsson meö tvo væna þorska úr vel heppnuöum róöri. Vænn þorskur „Ég er að koma með þessa af lín- unni sem ég legg norðan við Skag- ann, það veiddist vel i dag, rúm þrjú tonn,“ sagði Valdemar Hali- dórsson, trillukall í Sandgerði, í vikunni. Hann sagðist vera ánægð- ur með veiðina. „Þrátt fyrir brælu í dag er aflinn ágætur og hefur ver- ið undanfama daga, um fjögur tonn í gær og fyrradag af vænum þorski,“ sagði Valdemar. -NH íbúðarhús reist í nýju hverfi vestast í Hveragerði er verið að slá upp fyrir tveimur óvenjulegu húsum. Um er að ræða jarðskjálftaþolin stálgrindarhús eða stálhús sem eru flutt inn frá Banda- ríkjunum. Þetta munu vera fyrstu einbýlishúsin hérlendis sem reist eru á þennan hátt. Kristján Lárusson og Kristján Einarsson fluttu inn efnið í húsin og vinna báðir að byggingu hús- anna í Hveragerði. Það er fyrirtæki þeirra, íshlutir ehf, sem stendur að baki verkefninu, en hugmyndin er að markaðssetja þessa gerð húsa hérlendis innan skamms. Kristján Lárusson sagði í samtali við DV að stálgrindarhús sem þessi hentuðu mjög vel íslenskum að- stæðum. Húsin er sérhönnuð með tilliti til jarðskjálftaþols og vind- þols. Húsin þola jaröskjálfta allt að 8 stig á Richterskvarða og vindhraða um 50 metra á sekúndu. Sveigjan- leiki er þannig mikill í stálgrind- inni og allt efni mjög hitaþolið og brennur ekki. Að utan líkjast húsin helst timburhúsum. „Við byrjuðum á okkar húsum í nóvember og vorum þá óheppnir með veður, annars væru húsin löngu risin. Þegar platan hefur ver- ið steypt og sökklar komnir er leik- ur einn að gera húsið rúmlega fok- helt á tveimur til þremur vikum miðað við þokkalegt veðurfar. Einn af helstu kostum húsanna er að þau eru algjörlega viðhaldsfrí að utan í a.m.k. 40 ár. Með þessu byggingar- formi hefur maður auk þess frjálsar hendur hvað varðar innveggi og herbergjaskipan." Kristján bætti því við að kostnaöur við byggingu húsanna væri svipaður og við hefð- bundin timburhús. -EH DV-MYND EVA HREINSDÓTTIR Húsbyggjendur Guöjón Óskar Kristjánsson, Kristján Einarsson, Kristján Lárusson og Lárus Kristjánsson viö annaö stálhúsanna sem eru aö rísa í Hverageröi. MBF kaupir Mjólkursamlag KHB: Mjólkurrisi Hellisheiðanna á milli Samkomulag hefur náðst milli Mjólkurbús Flóamanna á Selfossi og Kaupfélags Héraðsbúa á Egilsstöð- um um kaup MBF á Mjólkursam- lagi KHB. Kaupin eru gerö með fyr- SKIPULAGS- OG BYGGINGARSVIÐ BORGARTÚN 3-105 REYKJAVlK • SlMI 563 2340 • MYNDSENDIR 562 3219 Fundur vegna skípulagmála að Suðurhlíð38 Skipulags- og byggingarsvið Reykjavíkurborgar boðar til fundar um skipulagsmál að Suðurhlíð 38, mánudaginn 11. febrúar nk kl. 18.00. Fundurinn er öllum opinn og verður haldinn í Öskjuhlíðarskóla. Skipulags- og byggingársvið Reykjavíkurborgar. irvara um samþykki stjórna og fulltrúaráða félaganna. Með kaupum á mjólkursamlaginu á Egilsstöðum stækkar félagssvæði MBF land- fræðilega til muna og nær þá frá Hellisheiði syðri að Hellisheiði eystri. Eftir kaupin verður árleg mjólkurfram- leiðsla hjá MBF 43,5 milljónir lítra, eða um 42% af heildarmjólkur- magni alls landsins. Á Egilsstöðum verður áfram rekin mjólkur- vinnslustöð og fyrst í stað í lítið breyttri mynd. Mjólkurframleiðend- ur fyrir austan gerast með samkomulaginu félagsmenn í MBF, með sömu réttindum og nú- verandi félagsmenn. MBF tekur við Mjólkurbú Róamanna á Selfossi ■ viöskiptasvæöiö nær senn Hellisheiöanna á milli. samrunann yfir ráðningarsamninga allra starfsmanna sem vinna við mjólkurvinnslustöðina á Egilsstöð- um. Gert er ráð fyrir að MBF taki við rekstrinum á Egilsstöðum 1. mars. -NH Pioneer OYAMAHA SHARR DVD spilarar Heimabíó-magnarar DTS, THX og Dolby Digital CD-skrifarar Mini-Disk spilarar Dæmi: DVD soilari DV-636 44.900 -69t909- DVD spilari DV-530 29.900 -43.900 Heimabíómaqnari VSX-839 79.900 409t90& Mini-Disk MJD-707 29.900 39.900 Geislaskifari PDR-509 34.900 47.900

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.