Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2002, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2002, Blaðsíða 27
43 MÁNUDAGUR 11. FEBRÚAR 2002______________________________________ JDV Tilvera Jennifer Aniston 33 ára Vinkonan góðkunna, Jennifer Aniston, er 33 ára í dag. Aniston ólst upp í leikaraumhverfi og lék sitt fyrsta hlut- verk ellefu ára gömul. Hún náði þó ekki almennilega fótfestu sem leikkona fyrr en í Friends-þáttun- um sem byrjað var að senda út árið 1994. Óhætt mun vera að fullyrða að Rachel sé fjöldskylduvinkona á ótelj- andi heimilum um heim alian. Undan- farin misseri hefur Jennifer verið í fjölmiðlum vegna sambands hennar við hinn geysifagra Brad Pitt en sem kunnugt er gengu þau í hjónaband og eru eitt heitasta parið í Hollywood. I i viuurarmí iz </ i láta sér líða Gildir fyrir þriöjudaginn 12. febrúar Vatnsberinn (20. ian.-18. febr,): . Þú hefur mikið að gera um þessar mund- ir og nýtur þess út 1 fingurgóma. Þú munt uþþskera árangur erfiðis þins. Happatölur þínar eru 5, 17 og 29. Flskarnlr(19. febr-20. mars): Þú veltir þér einum of Imikið upp úr vandamál- irni þínum eða einhvers þér nákomins. Ef þér tekst áð hvíla þig einhvem hluta dagsins gengur allt miklu betur. Hrúturlnn (21. mars-19. aprill: . Þú ert í fremur erfiðu Jskapi í dag og ættir því að forðast að tala mikið við fólk sem ekkTþekkir þig og þín fýluköst vel. Nautið (20. aoríl-20. maíl: Tilhneiging þín til að gagnrýna fólk auðveld- ar þér ekki að eignast vini eða að halda þeim seinfyrir em. Sýndu þolinmæði hvað sem á dynur. Tvíburarnir (71. maí-21. iúnTU Notaðu hvert tækifæri ►til þess að komast upp úr heföbundnu fari. Lifið er til þess að láta sér líða vel en ekki bara strita og strita. Krabbinn (22. iúni-22. iúlí): Þú ert mjög samvinnu- i þýður um þessar ' mundir og ættir að forðast að samþykkja i er. Ekki láta ómerkilegt mál spilla annars ágætum degi. Llónlð (23. iúli- 22. áaúst): Þú ert eitthvað óviss varðandi einhverja hug- mynd sem þú þarft að taka afstöðu til. Leitaðu ráða hjá fólki sem þú treystir, það auðveldar þér að taka ákvöröun. IVIevian (23. aeúst-22. seot.l: /V<y Einhver hætta virðist á að félagar þínir ^^V^ifclendi upp á kant og þú ^ f gætir dregist inn í deilur. Gættu þess vel að segja ekkert sem þú gætir séð eftir. Vogin (23. sept.-23. okt.): J Eitthvað sem þú gerir á að þér finnst hefð- Vf bundinn hátt leiðir til r f þess að þú kemst í sambönd sem þig óraði ekki fyrir. Gríptu gæsina á meðan hún gefst. Sporðdrekinn (24. okt.-2i. nóv.l: í Nú er rétti timinn til að \ hrinda nýjum hugmynd- \ \ VJum i framkvæmd og lita * opnum huga á aðstæð- ur. Þú ert i góðu jafnvægi og líður í alla staði vel um þessar mundir. Bogmaðurinn (22. nOv-21. des.l: LMál þín taka skyndi- rlegum stakkaskiptum og staða þín á vinnu- markaðnum batnar til mikilla muna. Viðræður sem þú tekur þátt i reynast gagnlegar. Stelngeltln (22. des.-19. ian.): Það verður ekki auðvelt að fylgja fyrir fram ákveðnum áætlunum og raunar ættir þú ekki að reyna það að svo stöddu. Nemendur í Hólabrekkuskóla Þessi glæsilegi hópur nemenda úr Hólabrekkuskóla var í heimsókn á DV fyrir skömmu í tengslum viö verkefni um dagblöö sem þau hafa veriö aö vinna. Krakkarnir voru áhugasamir og spuröu skemmtilegra spurninga um DV og störf blaöamanna. Andrea Rós Siguröardóttir, Andri Valtýr Bjarnason, Arnar Davíö Arngrímsson, Erla Guöjónsdóttir, Fannar Þór Arnarsson, Garöar Þór Þorkelsson, Gísli Grétar Agnarsson, Guöni Þór Þrándarson, Gunnhildur Þorkelsdóttir, Hanna Rún Ingólfsdóttir, Helen Dögg Snorradóttir, Hildur Ósk Ragnarsdóttir, Hlynur Sigurösson, Hulda Vilhjálmsdóttir, Jón Kristófer Martinson, Karen Pétursdóttir, Katarzyna Szelag, Lea Dögg Helgudóttir, Róbert Vilhjálmsson, Smári Freyr Guömundsson, Svanhildur Hjaltadóttir, Tinna Bjarndís Bergþórsdóttir, Valentin Bukavim og Valgeröur Birgisdóttir. Umsjónarkennari er Berglind Arndal Ásmundsdóttir. Þegar sólin gægist yfir Ólafsvíkurenni baka kvenfélagskonur: Tvö þúsund pönnsur Það var ekki vandamálið hjá konunum í Kvenfélagi Ólafsvíkur að vakna eldsnemma tú að hefja bakstur á hinum árlegu sólar- pönnukökum. Þessi frægi bakstur kvenfélagskvenna í Ólafsvík er í tilefni af því að þá gægist blessuð sólin yfir Ólafsvikurennið og ofan á Snoppuna þegar vel viðrar og sá dagur rann upp 1. febrúar. Með þessum pönnukökubakstri gefa Kvenfélagskonur bæði félögum og einstaklingum í Snæfellsbæ kost á að kaupa gott meðlæti með kaffinu og viðtökur bæjarbúa voru með eindæmum. Að sögn Ámýjar Bára Friðriks- dóttur, formanns pönnukökunefhd- ar Kvenfélagsins, voru bakaðar um 2.000 pönnukökur og þær seldust allar upp en áður var búið að taka niður pantanir. Pönnsurnar voru með sykri en einnig með sultu og rjóma og voru þær keyrðar til kaupenda þeim aö kostnaðarlausu. Vill formaðurinn færa kaupendum kærar þakkir fyrir hönd Kvenfé- lagsins. Sama verð var á pönnukökunum og í fyrra, þannig að Kvenfélags- konur í Ólafsvík taka virkan þátt í átaki ASÍ um að halda verðlagi og verðbólgu niðri og hvetja aðra til þess sama. Á sl ári voru bakaðar 1.400 pönnukökur þannig að aukn- ingin milli ára er um 30%. Þetta er góð búbót fyrir styrktarsjóð Kven- félags Ólafsvíkur en allur ágóðinn fer til líknarmála í bæjarfélaginu. Kvenfélagskonum er einkum um- hugað um Heilsugæslustöðina í Ólafsvík og Ólafsvíkurkirkju. Nú- verandi formaður er Steiney Ólafs- dóttir og með henni eru í stjórn Nanna Þórðardóttir og Gerður Þórðardóttir. -PSJ DV-MYND PÉTUR S. JÖHANNSSON Bökuðu snemma í gær Kvenfélagskonur í Ólafsvík aö sykra, rúlla og sulta pönnukökurnar áöur en þær fóru til kaupenda eldsnemma í gærmorgun. F.v.: Steiney, Jenný, Jóhanna, Árný Bára, formaöur pönnukökunefndar, Kristín og Björg. Gwyneth Paltrow á fjalirnar í London Hollywood-stjarnan Gwyneth Paltrow er á leiðinni á fjalirnar á West End í London þar sem hún mun fara með eitt aðalhlutverkið í leikritinu Proof sem frumsýnt verður á sviði í Donmar Warehou- se í maí nk. Þrátt fyrir frægðina mun Pal- trow ekki fá neina stjörnuaf- greiðslu á West End og verður kynnt í leikskrá í stafrófsröð eins og aðrir leikarar. Sama er að segja um launin, en þó hún sé meðal hæst launuðu leikkvenna í Hollywood mun hún aðeins fá greitt eins og aðrir leikarar á West End sem að sögn aðstand- enda verksins er um 2000 pund á því sex vikna tímabili sem áætlað er að verkefnið taki. Það er enginn annar en John Madden sem leikstýrir Proof en Paltrow lék undir hans stjóm í myndinni Shakespeare in Love. Það er orðið algengt að Hollywood-stjömur séu fengnar til að skreyta hlutverkaskrár á West End og má þar neina Nicole Kid- man, sem fór með hlutverk í leik- ritinu The Blue Room á sama sviði í fyrra, og þær Daryl Hannah og Kathleen Tumer sem einnig hafa komið þar við nýlega. r Allt í sóma hjá Söruh Jessicu Hjónakomin Sarah Jessica Parker úr Beðmálum í borginni og Matthew Broderick segja ekk- ert hæft í orðrómi um að allt sé nú ekki eins og það ætti að vera í hjónabandi þeirra. Matthew gerði bara grín að öllu saman um daginn þegar hann var spurður um vandræðin, í gamni að sjálfsögðu, á fjáröflunarsam- komu fyrir alnæmissjúklinga. Athygli vakti að Sarah Jessica var ekki með bónda sínum á sam- komunni. Blaðafulltrúi hennar benti þá á að Matti mætti nú ekki með frúnni á allar samkomur sem sækir starfa sinna vegna. HARTOPPAR FráQggRG og HERKULES Margir verðflokkar Rakarastofs Klapparstíg Smáauglýsingar 550 5000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.