Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2002, Page 5
MÁNUDAGUR 18. FEBRÚAR 2002_
I>V Fréttir
Pólskum íslendingi á Eskifirði bannað að gangast í bankaábyrgðir:
Þjóðerni ræður ekki í lánveitingum
- segir bankastjóri Landsbankans
„Ég vísa því alfarið á bug að mis-
munvm gagnvart viðskiptavinum á
grundvelli þjóðemis eigi sér stað hjá
okkur,“ segir Halldór J. Kristjánsson,
bankastjóri Landsbanka islands hf., í
samtali við DV. Eins og blaðið greindi
frá um helgina fékk Aleksandra Jan-
ina Wojtowicz á Eskifírði afsvar hjá
útibússtjóra Landsbankans á staðnum
um að mega vera í ábyrgðum fyrir 20
þúsund króna yfirdráttarheimild á
ávísanareikningi systur sinnar.
„Ástæðan sem mér var gefin var sú að
ég væri ekki alvöru íslendingur,"
sagði Aleksandra við DV.
Bankastjóri Landsbankans segir
hins vegar að samkvæmt sínum upp-
lýsingum hafi slík orðaskipti aldrei
átt sér stað. Auk þess hafi starfsfólk
Landsbankans á Eskifirði sýnt
Aleksöndru og hennar fjölskyldu
sanngirni í þeim viðskiptum sem þau
hafi átt við bankann. Að öðm leyti
kveðst hann ekki geta tjáð sig um
þetta einstaka mál vegna laga um
bankaleynd.
Um útlánareglur Landsbankans
segir Haildór J. Kristjánsson að þar sé
tekið tillit til viðskiptastöðu lántak-
enda, trygginga, ábyrgða og viðskipta-
sögu viðkomandi. „Fullyrðingar um
þjóðemismismunun í þessu sambandi
eru algjörlega rangar. Við erum með
hundruð erlendra viðskiptavina um
allt land og margir þeirra eru meðal
okkar bestu viðskiptavina. Við erum
með erlenda ríkisborgara í starfsliði
okkar, höfum gert okkur sérstakt far
um að þjónusta erlenda ferðamenn
sem hingað koma og starfrækjum
einnig viðskiptaþjónustu við erlenda
fjárfesta. Þessar staðreyndir tala sínu
máli,“ segir Halldór.
-sbs
DV-MYND NJÖRÐUR HELGASON
í veðurblíðu
Þær voru aö leik í veöurblíöunni! Þykkvabænum heimasæturnar í Hábæ I og II, Sólrún og Hjördís. Alltaf er nóg aö
gera ! sveitinni viö leik og störf. Þaö er líka erfitt aö sitja á sér í svona veöurblíöu á miðjum þorra, því velja mörg börn
þann kost helstan að fara út í leik, meöan gefst tími frá námi og verkum.
ORYGGI
ÞÆGtNÐI
UMHVERFI
TOUÍ30RG
GÚMMÍ-
mottur
dreglar
dúkar
Fjölbreytní
I efnisvali
og formum
oulsen
SKEIFAN 2, 108 REYKJAVIK
siml 530 5900, fax 530 5910
http:llwww.poulsen.ls
Smáauglýsingar
visir.is
eiga einn
• Nýr Polo er stærri en fyrirrennari hans og býr yfir fádæma
skemmtilegum aksturseiginleikum, lipurð og afli. Þessi glæsilega
hannaði bíll býöst með frábærum vélarútfærslum, nýrri bein-
skiptingu, langtímaolíubúnaöi og svo mætti lengi telja. Komdu
og reynsluaktu þessum einstaka bíl sem allir ættu að eiga.
Volkswagen Polo var sæmdur hinum eftirsóttu
verðlaunum Gullna stýriö af þýska tímaritinu
Bild am Sonntag. Það gerist ekki betra.
Volkswagen
Laugavegur 170-174 • Sími 590 5000 • Heimasíða www.hekla.is • Netfang hekla@hekla.is
www.vw