Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.2002, Síða 14
14
Útlönd
MIÐVIKUDAGUR 15. MAÍ 2002
DV
Robert S. Mueller
Forstjóri FBI vill stofna nýja sveit til
aö berjast viö hryöjuverkamenn.
FBI vill ofursveit
til höfuðs hryðju-
verkamönnum
Robert S. Mueller, forstjóri
bandarísku alríkislögreglunnar
FBI, hefur áhuga á að komið verði á
laggimar „ofursveit" með aðsetur í
Washington sem myndi stjóma
rannsókn á öllum helstu hryðju-
verkamálum sem upp kynnu að
koma. Er þetta liður í endurskipu-
lagningu FBI í kjölfar hryðjuverka-
árásanna á Bandaríkin 11. septem-
ber í fyrra og Hanssen-njósna-
hneykslisins, að því er fram kemur
í Washington Post í dag.
Með þessum breytingum er dreg-
ið úr vægi skrifstofu FBI á Manhatt-
an þar sem hryðjuverkamál voru
aðallega rannsökuð fram til 11. sept-
ember.
Bandaríkjaþing þarf að sam-
þykkja tillögur Muellers. Embættis-
menn sögðu að hann gerði sér von-
ir um að leggja formlegar tiUögur
fyrir þingið i næsta mánuði.
Carter hvetur til
umbóta á Kúbu
Jimmy Carter, fyrrum forseti
Bandaríkjanna, brá út af venju
gesta Fidels Castros i gær og hvatti
stjórnvöld á Kúbu tU að leyfa al-
menningi að greiða atkvæði um um-
bætur á stjómkerfi landsins þar
sem kommúnistaflokkurinn ræður
öllu. Carter lagði þetta tU í ræðu
sem hann Uutti í Havana, að sjálf-
um Castro viðstöddum.
Carter hvatti einnig Bandaríkja-
þing tU að aflétta viðskiptabanninu
á Kúbu, sem var sett á fyrir fjörutíu
árum, tU að hægt verði að koma á
eðlilegum samskiptum mUli land-
anna.
Fyrrum Bandarikjaforseti las upp
ræðu sína á spænsku og var henni
sjónvarpað í kúbverska ríkissjón-
varpinu. Kúbverskur almenningur
fylgdist með henni af athygli, svo og
fjölmargir kúbverskir útlagar á
Flórída.
UPPBOÐ
Uppboð munu byrja á skrifstofu
embættisins að Stiiiholti
16-18, Akranesi, sem hér segir
á eftirfarandi eignum:
Jaðarsbraut 35, hluti 0201, Akranesi,
þingl. eig. Guðni Jónsson og Ingveldur
M. Sveinsdóttir, gerðarbeiðendur
fbúðalánasjóður og sýslumaðurinn á
Akranesi, þriðjudaginn 21. maí 2002,
kl. 14.00.___________________
Laugarbraut 21, hluti 0201, Akranesi,
þingl. eig. Guðjón Már Jónsson, gerð-
arbeiðandi Búnaðarbanki íslands hf.,
þriðjudaginn 21. maí 2002, kl. 14.00.
Merkigerði 6, hluti 0101, Akranesi,
þingl. eig. Guðmundur Smári Guð-
mundsson, gerðarbeiðendur Agnar
Bergmann Birgisson og íbúðalánasjóð-
ur, þriðjudaginn 21. maí 2002, kl.
14.00._______________________
Vitateigur 1, hluti 0001, Akranesi,
þingl. eig. Ásta Kristjana Guðjóns-
dóttir og Jóhann Sigurður Gestsson,
gerðarbeiðandi íbúðalánasjóður,
þriðjudaginn 21. maí 2002, kl. 14.00.
SÝSLUMAÐURINN Á AKRANESI
Samkomulag um stofnun samstarfsráðs Rússa og NATO:
Útför kalda stríðs-
ins hefur farið fram
Tímamótasamkomulag um stofnun
samstarfsráðs Rússa og Atlantshafs-
bandalagsins, NATO, náðist á fúndi
utanríkisráðherra NATO með full-
trúum Rússa sem fram fór í Háskóla-
bíói í gær. Samkomulagið, sem gert er
aðeins sólarhring eftir að Bush
Bandaríkjaforseti tilkynnti að sam-
komulag hefði náðst milli Bandaríkj-
manna og Rússa um fækkun lang-
drægra kjamaodda, gerir þó ekki ráð
fyrir að Rússar gerist fullgildir aðilar
að NATO, heldur fái þeir fulla aðUd
að umræðu og ákvarðanatöku innan
bandalagsins. Ráðgert er að undirrita
samkomulagið formlega í Róm þann
28. maí nk. en í kjölfarið mun sam-
starfsráðið koma saman tU sins fyrsta
fundar og síðan funda mánaðarlega.
Ighor Ivanov, utanríkisráðherra
Rússlands, fór fyrir rússnesku samn-
inganefndinni á fundinum í gær og
sagði hann á blaðamannafundi eftir
fundinn að þetta væri aðeins fyrsta
skrefið í frekara samstarfi Rússa og
NATO. „Þetta er mikUvægt skref sem
tekið er af því við erum skyldugir tU
að vinna saman gegn hinni nýju ógn
við heimsbyggðina. Ég lít frekar á
stækkunina sem timburmenn fortíð-
arinnar og tel að hún muni ekki endi-
lega auka á öryggið," sagði Ivanov.
Fram kom í máli hans að Rússar
eru ekkert yfir sig hrifnir af stækkun
NATO en niu fyrrum Varsjárbanda-
lagsrUd, sem eru Albanía, Búlgaría,
Rúmenía, Makedónía, Eistland, Lett-
land, Litháen, Slóvenia og Slóvakía,
hafa þegar sótt um inngöngu en Pól-
land, Tékkland og Ungverjaland eru
þegar gengin tU liðs við bandalagið.
Jack Straw, utanríkisráðherra
Bretlands, kom skemmtUega að orði
eftir fundinn og sagði að útför kalda
stríðsins hefði farið fram. „Þetta er
búið spU, því er lokið og Rússar eru
loksins komnir út úr kuldanum sem
vinir og bandamenn i NATO,“ sagði
Straw.
Lord Robertson, aðalframkvæmda-
stjóri NATO, sagði að samkomulagið
væri sögulegt og jafnvel róttækt. „I
fjóra áratugi höfum við horft haturs-
augum á hatursmúrinn sem aðskUdi
okkur. Nú er því lokið og við getum
farið að horfa fram á við með aukið og
varanlegt öryggi í huga,“ sagði Ro-
bertson.
Samkomulagið gerir ekki beint ráð
fyrir hemaðarlegri samvinnu heldur
er áhersla lögð á öryggismál og sér-
staklega aukna samvinnu i barátt-
unni gegn hryðjuverkum. Þá er gert
ráð fyrir aukinni samvhmu í barátt-
unni gegn frekari útbreiðslu gjöreyð-
ingarvopna, aUmennu vopnaefth'liti,
friðargæslu, björgun úr sjávarháska
og hjálparstarfsemi við þjóðir í neyð.
í gærkvöldi héldu fundahöld áfram
um samstarf NATO og ESB og kom
þar fram vUji fuUtrúa Frakka og
Þjóðverja um aukna hemaðarlega
uppbyggingu ESB-landanna í ljósi
aukinnar hryðjuverkaógnar.
DV-MYND ÞÖK
Ráðamenn NATO ræða málin á fundinum í Háskólabíó í gær
Jack Straw, utanríkisráöherra Bretlands, ræðir málin viö Lord Robertsson, aöalframkvæmdastjóra Atiants-
hafsbandalagsins, á meöan Colin Powett, utanríkisráöherra Bandaríkjanna, fýlgist meö Ijósmyndara DV.
Svartur dagur í sögu Palestínumanna:
Minnast brottrekstursins frá
landi sínu við stofnun ísraels
Palestínska þjóðin minnist í dag
svartasta dagsins í sögu sinni, þeg-
ar sjö hundruð þúsund menn flosn-
uðu upp frá heimUum sínum vegna
bardaga út af stofnun Israelsríkis
árið 1948. Boðaðar hafa verið fjölda-
göngur á Vesturbakkanum og Gaza
og „hörmunganna miklu“, eins og
atburðurinn kallast, verður minnst
með þriggja mínútna þögn.
Yasser Arafat, forseti Palestinu-
manna, ávarpaði þjóð sína í morgun
frá RamaUah þar sem höfuðstöðvar
heimastjórnarinnar eru.
SífeUt háværari kröfur eru um að
palestínska heimastjómin taki tU í
eigin ranni og hrindi af stað umbót-
um í stjómkerfmu. Búist var við að
Arafat myndi fjaha um þær kröfur,
sem bæði koma frá palestínskum al-
menningi og ísraelskum ráðamönn-
um.
REUTERS-MYND
Yasser Arafat
Forseti Palestínumanna ávarpaöi
þjóö sína á degi „hörmunganna
miklu“ í Ramallah í morgun.
Ariel Sharon, forsætisráðherra
ísraels, sakaði heimastjóm Arafats í
gær um að vera „spiUt hryðjuverka-
stjóm", eins og hann orðaði það.
Hann sagði að umbætur þyrftu að
koma tU áður en hægt væri að
koma friðarviðræðum aftur af stað.
Bandarísk stjórnvöld hafa einnig
hvatt tU umbóta.
Arafat staðfesti í gær lög sem
kveða á um sjálfstætt dómskerfi
Palestínumanna og þykir það benda
tU að umbótavinnan sé hafin.
Palestínskur embættismaður sagði
hins vegar að hann drægi í efa að
Arafat myndi taka það í mál að
skipa forsætisráðherra tU að deUa
með honum hluta ábyrgðarinnar.
„Það var einu sinni rætt um það
en þeir hafa ekki haldið því áfram,“
sagði Ziad Abu Zayyad, ráðherra
málefna Jerúsalem.
mmm
Clinton til Austur-Tímors
BUl Clinton, fyrr-
um Bandaríkjafor-
seti, verður formað-
ur bandarísku sendi-
nefndarinnar þegar
Xanana Gusmao
sver embættiseið
sem fyrsti forseti
Austur-Timors um
helgina. Það var sjálfur Bush forseti
sem bað forvera sinn að taka þetta
starf að sér.
Skjálfti á Taívan
Jörð skalf harkalega á Taívan í
morgun en ekki er vitað tU að fólk
hafi meiðst né að skemmdir hafi
orðið á mannvirkjum. Skjálftinn
mældist 6,2 stig á Richter.
Slakað á klónni
Sameinuðu þjóðimar hafa slakað
á refsiaðgerðum sínum gegn írak tU
að auðvelda útflutning á öðrum vör-
um en hergögnum tU landsins.
Neita spillingarásökunum
Ráðamenn í ihaldsflokki Ed-
munds Stoibers, kanslaraefnis
þýskra hægrimanna, vísa á bug
ásökunum um að þeir hafi þegið
ólöglegar fégjafir frá útlægum
vopnabraskara.
Prestur skotinn
Kaþólskur prestur, sem viður-
kenndi að hafa haft kynmök við
unglingspUt, særðist í skotárás í
Baltimore. Skotmaðurinn var annað
meint fórnarlamb prestsins.
sigri
AUt bendir tU að
Bertie Ahem, for-
sætisráðherra ír-
lands, fari með sig-
ur af hólmi í þing-
kosningunum sem
fara fram í dag, ef
marka má skoðana-
kannanir. Ef aUt
gengur eftir mun Ahern hafa meiri-
hluta þings að baki sér og hefur irsk
ríkisstjóm ekki haft það í 25 ár.
Vopnin fundin
Bandarískar hersveitir sem leita
dyrum og dyngjum að vígamönnum
al-Qaeda og talibana í Afganistan
fundu vopnageymslu í Bamiyan-
héraði í gærkvöld.
Óður hundur látinn laus
Ahern spað
Alræmdasti
skæruliði sam-
bandssinna á Norð-
ur-írlandi, Johnny
Adair, sem gengur
undir viðumefninu
óður hundur, var
látinn laus úr fang-
elsi í morgun. Óttast margir að það
kunni að magna enn frekar spenn-
una milli kaþólikka og mótmælenda.
Vilja skjóta lausn
Japönsk stjómvöld hvöttu i morg-
un til að skjót lausn yrði fundin á
deilum við Kínverja um norður-
kóreska flóttamenn sem hafa leitað
hælis í japanskri ræðismannsskrif-
stofu í Kína.
Rannsókn miðar áfram
Franskir sérfræðingar sem rann-
saka sjálfsmorðssprengingu í
Pakistan sem varð ellefu Frökkum
að bana um daginn telja sér hafa
orðið nokkuð ágengt í leit sinni að
þeim sem bera ábyrgð á tilræðinu.