Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.2002, Blaðsíða 25
37
MIÐVDtUDAGUR 15. MAÍ 2002
DV
Tilvera
Þingeyskar unnu dægurlagakeppni Kvenfélags Sauðárkróks:
Sjúkraliði og versl-
unarstjóri sömdu
vinningslagið
Tvær blómarósir austan úr
Þingeyjarsýslu komu, sáu og sigr-
uðu í dægurlagakeppni Kvenfé-
lags Sauðárkróks þetta árið. Þær
Hrönn Sigurðardóttir og Svava
Hrund Friðriksdóttur sungu lagið
og sömdu ásamt Einari Mána,
bróður Svövu, en vinningslagið,
hugljúft og fallegt lag, heitir í nótt.
Gamli útvarpsmaðurinn Jónas
Jónasson samdi lagið í öðru sæt-
inu, Hver er þin fegurð, við texta
Baldurs Jónassonar, og það var
Berglind Björk, dóttir Jónasar,
sem söng. Erla Gígja Þorvaldsdótt-
ir á Sauðárkróki átti svo lagið í
þriðja sætinu, Draumar, sem
Regína Ósk söng.
Besti flutningurinn
Regna Ósk söngkona fékk verðlaun fyrir besta flutninginn
ásamt höfundi lagsins sem varð í þríðja sætinu, Erlu
Gígju Þorvaldsdóttur á Sauðárkróki.
Sigruöu
Höfundar vinningstagsins, þær Hrönn og Svava Hrund,
fiytja sigurlagið, I nótt, með miklum tilþrifum.
DV-MYNDIR ÞðRHAlLUR ÁSMUNDSSON
Hollywood-stemning
Stemningin á Króknum var líkust því sem gerist í kvikmyndaborginni. Hér eru
verðlaun afhent.
Þær stöllur Hrönn og Svava
Hrund voru í sjöunda himni þegar
úrslitin voru ljós og sögðu að sig-
urinn hefði komið þeim mjög á
óvart þótt þær hefðu haft fuUa trú
á sinu lagi. Þær sögðust gera tals-
vert að þvi að semja lög, ásamt
Einari Mána, og ættu fuUt af lög-
um.
„Þetta er vonandi bara fyrsta
skrefið í því að koma okkar efni í
útgáfu og á framfæri. Við fengum
þarna fría stúdíótíma í verðlaun
sem við munum nýta i það. Það
var mjög gaman að taka þátt í
keppninni og okkur fannst mörg
laganna góð en vorum ekki sam-
mála pabba með önnur,“ sagði
Hrönn, sem er verslunarstjóri á
Akureyri, en Svava Hrund er
sjúkraliði á Fjórðungssjúkrahús-
inu á Akureyri.
-ÞÁ
Snilldartaktar
Það er erfiðara en það sýnist að hitta í körfuna.
Körfuboltaskóli Péturs og Ágústs:
Mikilvægi
samspils í
sókn og vörn
Hinn hávaxni Pétur Guð-
mundsson körfuboltamaður
(218 cm) og Ágúst Björgvins-
son, unglingalandsliðsþjálfari
í körfubolta, verða með körfú-
boltaskóla á þremur stöðum á
landsbyggðinni næstu dag-
ana. Pétur er eini islending-
urinn sem hefur spilað í
NBA-deildinni svo hann hef-
ur miklu að miðla hinum
ungu og upprennandi.
Þeir félagar ætla að hefja
leikinn í Neskaupstað á fóstu-
dag og leiðbeina 10-15 ára
krökkum á svæðinu og verða
svo á Egilsstöðum daginn eft-
ir með tvö námskeið, fyrir og
eftir hádegi. Fyrra námskeið-
ið er ætlað krökkum 8-11 ára
og eftir hádegi komast 12-16
ára krakkamir að. Mánudag-
inn 20. maí verða þeir kump-
ánar komnir suður á land,
nánar tiltekið að Hvolsvelli
og námskeiðið þar er ætlað
10-15 ára.
Lögð verður áhersla á
helstu undirstöðuatriði körfu-
boltans, svo sem sendingar,
skot og knattrak. Farið verð-
ur yflr helstu atriði samspils
og mikilvægi þess bæði í vöm
og sókn. Verðlaun verða veitt
fyrir ýmsar aldursskiptar
þrautir og að lokum fá allir
boli merkta skólanum. Þeir
sem vUja skrá sig fyrirfram
er bent á að hringja í eftirtal-
in símanúmer: í Neskaupstað
477-1181 fyrir hádegi, á EgUs-
stöðum 471-2205 eða 897-2205
og á HvolsveUi í síma 487-
8607. -Gun.
7T
>
f-
í—
FRAMUNDAK
Mlð. 22. MAÍ ' ''
KK Tjarnarb. úiafsfirð. !
MÓLIKÚL Vídalín v. Ingólfstorq
F!M. 23.MAI
KK VíðPollÍnn Akureyri
BUFF Vídalín v. Ingólfstorg |
fö$7. 24. MAl
MIEMES Vídalín v. Ingólfstorg
NYDÖNSK Kaffi Reykjavík ,
SIXTIES Players Kópavogi
LAIIG. 25. MAt
í SVÖRTUM FÖTUM
Sjallanum Akureyri t
STUEMENN Höllinni Vestmannaey.
MIENES Vídalín v. Ingólfstorg
NÝDÖNSK Kaffi Reykjavík
SIXJIES_ ^ Players Kópavogi /