Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.2002, Síða 10
10
ÞRIÐJUDAGUR 28. MAÍ 2002
Norðurland DV
Feneyjar norðursins á Akureyri:
Stórbrotnar hugmyndir
um nýjan miðbæ
- mikill áhugi á málinu meðal heimamanna
Zeppelin-arkitektar hafa lagt
fram stórhuga hugmyndir um upp-
byggingu miðbæjarins við höfnina
á Akureyri. Orri Árnason arkitekt
segir að þarna séu á ferðinni hug-
myndir sem mjög raunhæft sé að
framkvæma. Voru þær kynntar
fyrir norðan á dögunum og vöktu
mikla athygli.
Orri segir að hugmyndin hafi
kviknað í framhaldi af vangavelt-
um Jóns Pálmasonar um staðsetn-
ingu menningarhúss. Taldi hann
æskilegast að byggja það á uppfyll-
ingu í beinu framhaldi af Listagil-
inu á Akureyri. I framhaldi þróað-
ist síðan hugmynd um uppbygg-
ingu miðbæjarins sem yrði í nán-
um tengslum við Pollinn.
í þessum hugmyndum er út-
gangspunkturinn nýtt menningar-
hús sem byggt yrði á uppfyllingu
út i Pollinn og yrði hægt að leggja
smærri skipum að bryggjunni sem
húsið stæði á.
Gert er ráð fyrir byggingu undir
bílahús, verslun og skrifstofur.
Telja tillöguhöfundar að þetta geti
orðið sem vítamínsprauta fyrir
miðbæ Akureyrar. Áuk þess er
gert ráð fyrir að byggt verði yfir
einhverjar götur í miðbænum.
í krikanum innst í höfninni
kæmi íbúðaturn (súlan) með 40
íbúðum á svipuðum stað og hið
fræga aflaskip Súlan hafði hafnar-
aðstöðu.
Þá er gert ráð fyrir ráðhúsi,
umferðarmiðstöð og hóteli sem
staðsett yrðu á núverandi fyllingu
við Strandgötuna. Á milli þeirra
yrði hægt að gera glæsilegt torg.
Fjöldi annarra bygginga yrði
síðan reistur ýmist á bryggjum
eða á ströndinni. Þar gera
höfundar m.a. ráð fyrir íbúðum og
byggingum undir ýmiss konar fjöl-
þætta starfsemi og yrðu bílastæði
undir húsunum.
Miðbær Akureyrar í breyttri mynd að næturlagi
Ef hugmyndir Zeppelin-manna ná fram aö ganga myndi ásýnd miöbæjarsvæO-
isins á Akureyri breytast veruiega.
Stórhuga hugmyndir
Zeppeiin-arkitektar hafa kynnt hugmyndir
um mikla uppbyggingu viO Pollinn á Akur-
eyri. Hafa þær vakiö veröskuldaöa athygli
nyröra. Þar er hugaö aö nýtingu hafnar-
svæöisins undir fjölþætta íbúöar-, menn-
ingar- og veitingastarfsemi líkt og tíökast
i borgum viöa um Evrópu.
Segir Orri að íslenskir aðalverk-
takar hafi sýnt málinu mikinn
áhuga og hafi það nú í skoðun.
Hefur fulltrúi verktakafyrirtækis-
ins m.a. farið norður á kynningar-
fund um þessar hugmyndir með
bæjarstjóra -HKr.
Forráðamenn KA
Steingrímur Birgisson og Vignir Þor-
móösson ásamt Helga Jóhannssyni
frá Akva og Karli Steinari Óskarssyni
frá Norölenska.
Símadeildin í knattspymu:
Mikill
aðstööumunur
- segir þjálfari KA
Þorvaldur Örlygsson, knattspymu-
þjálfari meistaraflokks KA, segir mik-
inn aðstöðumun vera milli liðanna í
Símadeildinni, landsbyggðinni í óhag.
Þetta kom fram á „hópeflisfundi" fé-
lagsins nýlega þar sem styrktaraðilar
KA í sumar voru kynntir og skrifað
undir samninga. Þorvaldur sagði að
hans menn hefðu nánast eytt öllum
helgum eftir áramót sunnan heiða við
æfmgar og leiki en hann sagðist telja
bjart fram undan, m.a. vegna knatt-
spyrnuhúss sem reiknað er með að
verði tekið í notkun á Akureyri í vetur.
Forráðamenn félagsins skrifuðu við
þetta tækifæri undir tvo nýja sam-
starfssamninga, við Norðlenska og
Akva. Á nýjum búningum félagsins
verða auglýsingar þessara fyrirtækja
mjög áberandi en Goði framan á peysu
og Frissi fríski aftan á stuttbuxum.
Mörg önnur fyrirtæki styðja knatt-
spymudeildina þetta viðburðaríka
sumar, m.a. Bílaleiga Akureyrar, Coke,
Harpa/Sjöfri og Landsbankinn. -BÞ
Hraun í Öxnadal:
Engin tilboö enn
Engin tilboö hafa enn borist í
Hraun í Öxnadal, æskuslóðir Jónasar
Hallgrímssonar þjóðskálds. Sveitarfé-
lagið Hörgárbyggð treystir sér ekki til
að kaupa jörðina og ríkið hefur ekki
sýnt málinu áhuga. Hópur manna,
með landeigendur í fylkingarbrjósti,
vill að þama veröi komið upp safni og
menningarsetri og lýsa landeigendur
furðu á áhugaleysi hins opinbera.
Búið er að rita Héraðsnefnd Eyja-
fjarðar bréf þar sem henni er boðin
jörðin. Eins og fram hefur komið í DV
er söluverðið 12-17 millljónir króna
og eru vaxandi líkur á að óðal Jónas-
ar endi i höndum einkaaðila. -BÞ
Auglýsingadeild
550 5720
Miðvikudaginn 5. júní næstkomandi fylgir DV
blaðaukinn Hús og garðar - glæsilegur blaðauki
um húsið, garðinn, viðhald þeirra og umhirðu.
Auglýsendur, athugið að síðasti skiladagur
auglýsinga er föstudagurinn 31. maí næstkomandi.
Aldarafmæli
Siguröur Sigurgeirsson, svæöisstjóri Landsbankans á Akureyri. í tilefni 100
ára afmætis bankans geta viöskiptavinir kynnt sér fýrstu fartöivu bankans og
fornar rit- og reiknivéiar meöal annars.
Landsbankinn á Akureyri 100 ára:
Afmælisviðburðir
og sögusýning
Þann 22. mai sl. var opnuð sögusýn-
ing í afgreiðslusal Landsbankans að
Strandgötu 31 á Akureyri og stendur
hún til 1. september nk. Sýningin er
fyrsti liður í afmælisdagskrá bankans
í tilefni þess að 18. júní nk. eru 100 ár
liðin frá því að starfsemi hófst hjá
Landsbankanum á Akureyri. Mynd-
listarsýningar munu fara fram ásamt
fleiri viðburðum á afmælisárinu.
Landsbankaútibúið er elsta pen-
ingastofnunin á Akureyri. I blöðum
frá opnun útibúsins sagði: „Óhætt
mun að fullyrða að stofnun útibúsins
er kærkomin íbúum Akureyrar og ná-
grennis og er það von manna að með
hinni nýju peningastofnun á staðnum
muni takast að greiða úr peninga-
vandræðum á Akureyri."
Að sögn Sigurðar Sigurgeirssonar
svæðisstjóra starfa um 50 manns í
Landsbankanum á Akureyri. Ágæt-
lega hefur gengið að ná í ný verkefhi
undanfarið, að sögn Sigurðar, m.a. við
símaþjónustu á landsvísu. Um 70%
símtala sem berast sérstöku símaþjón-
ustuveri bankans á Akureyri eru frá
höfúðborgarsvæðinu. -BÞ