Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.2002, Síða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.2002, Síða 29
ÞRIÐJUDAGUR 28. MAÍ 2002 29 n>v Sportw Sauöfjárbændurnir úr Dala- sýslu voru samkvæmir sjálfum sér og grilluöu lambakjöt frá Ferskum af- uröum I hádeginu. Ólafur Kristjánsson, aöstoöarmaö- ur Bjarka Reynissonar, sá um grilliö og notaöi Vice griptöngina tii aö snúa kjöt- inu á grillinu. Aðstoöarmenn Gunnars Gunnarssonar leggja lokahönd á stillingu Trúösins fyrir keppnina. DV-myndir JAK Harkan ovenjumikil miðað við fyrstu keppni sumarsins - Gunnar Gunnarsson sigraði í götujeppaflokknum Keppnisharkan í fyrstu umferð torfærunnar i Jósepsdal um liðna helgi vakti mikla athygli því oft hefur fyrsta keppnin verið fremur róleg. Mótin í fyrra voru mjög jöfn og þá réðust úrslitin á örfáum stig- um og jafhvel stigabrotum. Þeir keppendur sem stefna að meist- aratitlum drógu því ekkert af sér enda gerðu þeir sér grein fyrir að þessi keppni væri jafn mikilvæg og sú síðasta. Gunnar Gunnarsson sigraði í götujeppciflokknum eftir harða keppni við Ragnar Róbertsson. Gunnari gekk vel í fyrstu brautun- um og náði þá nokkurri forystu sem Ragnar gerði harða hrið að er leið á keppnina. „Ragnar var að vinna á allan tímann og græddi á bilununum hjá mér,“ sagði Gunnar. „I 5. braut varð nitrobomba i Trúðnum og eft- ir það var hann hundleiðinlegur. í 6. brautinni losnaði reimin fyrir bensíndæluna af og það steindó á jeppanum. Svo varð ég nitrolaus í seinni tímabrautinni. Það fór að- eins meira nitro en maður bjóst við og kúturinn tæmdist. Þrátt fyrir þessar bilanir og góðar tilraunir hjá Ragnari tókst honum ekki að ná mér,“ bætti Gunnar við en hann var mjög ánægður með hvemig nýja skiptingin og converterinn í Trúðnum virkaði. „Þetta voru svolítið erfiðar þrautir í dag, en margir sýndu góð- an akstur. Ég held t.d. að Gísli hljóti að vera með segulstál undir Arctic Trucks Toyotunni. Þetta er ótrúlegt hvernig hann hangir á hjólunum, billinn. Hann er bara snillingur, það er ekkert annað orð yfir það. En flottasta atriðið var þegar Gunnar Ásgeirsson fór hérna í áttundu þrautina, það var glæsi- legt. Ég fer ekkert ofan af því,“ sagði Gunnar um aðra keppendur. Guðmundur Pálsson stóð sig mjög vel í þessarri keppni og kom nokkuð á óvart hversu árangur hans var mikill en Guðmundur náði öðru sætinu í keppninni. Þá sýndi Gunnar Ásgeirsson mikla hörku í akstrinum en hann var í forystunni þar til Öminn bilaði í lok tímabrautarinnar. „Það þýðir ekkert annað en fara að taka á þessu," sagði Gunnar eft- ir keppnina. „Ég byrjaði rólega í dag en svo kom þetta. Þetta var svona prufukeppni með nýju vél- ina, til að sjá hvernig hún reynist með nitroi. Vélin lofar bara góðu og við gefumst ekkert upp. Ég var i forystu þegar ég braut liðhúsið í tímabrautinni. Ef það hefði ekki gerst hefði ég hreinlega unnið keppnina. Það er alveg á hreinu. Þriðja sætið er bara gott í dag mið- að við að vera að prófa bílinn og vélina. Liðhúsið var ekki alveg í lagi í síðustu brautinni en það var ekki um annað að ræða en láta vaða í hana til að ná þriöja sæt- inu,“ sagði Gunnar sem hlaut óspart lof áhorfenda fyrir keppis- hörkuna. -JAK Torfærupunktar Búió er að breyta stigagjöfinni fyrir endahliðiö í Torfærunni. Nú fá öku- mennimir 350 stig fyrir að ljúka hverri braut í stað 300 stiga áður. Þetta verður til þess að þeir leggja enn harðar að sér við að klára brautirnar. / ár veróur dregið um rásröð jeppanna í hverri keppni og er þetta breyting frá því sem áður var en þá réð staða hvers keppanda á síðasta ári rásröðinni. Gunnar Ásgeirsson leggur mikinn metnað í að Öminn líti vel út og sé snyrtilegur. Þess vegna er hann með tvær yfirbyggingar á bílinn með sér á hverja keppni. Haraldur Pétursson prófaði Mussoinn í fyrsta sinn að morgni keppnisdagsins eftir miklar breytingar á jeppanum. Fjöðrunarkerfi Mussoins hjá Haraldi Péturssyni var breytt með nýju stífu- kerfi en auk þess var 80% af krami bíls- ins breytt. Má því segja að Haraldur hafi verið á nýjum bíf. Daníel G. Ingimundarsyni tókst að ljúka byggingu Green Thunder 2 nótt- ina fyrir keppnina og fór einungis stutt- an prufutúr áður en keppnin hófst. Siguróur Þór Jónsson sagði að nýja vélin í Toshiba-tröllinu væri mun aflmeiri og innspýtingin gerði hana sneggri en gömiu vélina. Ragnar Róbertsson sagðist hlakka tfl að geta farið að sofa eins og maður en hann hefði ekki hitt frúna siðan um brúðkaupshelgina vegna anna við að gera Pizza 67 WiHysinn kláran. Árni Jens Einarsson fékk Langbest Bombuna lánaða hjá Ólafi, litla bróður sínum. Þetta var önnur torfærukeppnin sem Árni tekur þátt í en hann keppti í Vik í Mýrdal 1991. Árni Jens og Ólafur Einarssyni voru með varavélina hans Gunnars Ásgeirssonar í Bombunni vegna þess að þeim hafði ekki tekist að setja saman 509 cid vélina sem á að fara í Bombuna. Startarinn í Mussonum hjá Haraldi Péturssyni bflaði þegar keppnin var að byrja og var á mörkunum að Haraldi tækist að mæta á réttum tíma í fyrstu braut. Ragnar Róbertsson ók fyrstur í fyrstu braut og þar tókst honum að velta Pizza 67 Willysnum, Það logaói glatt í vélarsal Green Thunder 2 í fyrstu brautinni þegar olía lak niður á pústflækjumar. Björn Ingi Jóhannsson sýndi snilldar- tUþrif þegar hann bjargaði Fríðu Grace frá veltu með glæsUegum akstri. Gunnar Ásgeirsson stiUti fjöðrun Arn- arins fyrir 4. brautina en í henni var mikiU hliöarhaUi. Hafði hann meiri þrýsting í ioftpúðunum öðrum megin svo að halli jeppans var ekki eins mik- ill. Reyndist þetta vel. Gunnar braut liðhúsið hægra megin aö framan í fyrri helmingi tímabrautarinnr og missti af seinni hluta brautarinnar. r Noröurá í Borgarfirði: Laxar sjást á fleiri stöðum „Það var um 25 manna hópur sem fór með ánum tveimur, Norðurá og Gljúfurá i Borgarfirði," sagði Ari Þórðarson, í fræðslunefnd Stangaveiðifélags Reykjavíkur, í samtali við DV-Sport en um helgina bauð félagið upp á skoðunarferð i Borgarfjörðinn til að fræðast um ámar, fá sér góðan göngutúr og sjá hvort laxinn sæist. „Við Gljúfurá tók Stefán Hallur Jónsson á móti okkur og sýndi okkur veiðihúsið og síðan þrjá hylji I kringum það. Ekið var með ánni upp að efra gljúfrinu og síðan skoðaðir nokkrir hyljir neðst í ánni við þjóöveginn. í Norðurá leiddu og leiðbeindu Halldór Þórðarson og Sigurður Héðinn hópunum tveimur sem fóru með ánni. Annar fór frá Kríuhólma niður á Fossvað en hinn frá Laxfossi að Hvararhylsbroti. Vænn lax sást á Stokkhylsbrotinu. Það voru léttar veitingar í veiðihúsinu og kaffi eftir gönguferð en Jón G. Baldvinsson, formaður ámefndarinnar, tók á móti okkur," sagði Ari enn fremur. Lax hefur sést á allavega tveimur stöðum í Norðurá, við Skerið og á Stokkhylsbrotinu. Norðurá var aðeins gruggug’ svo erfitt var að sjá í hana. Frábærar viðtökur hjá Agn.is „Við fengið frábærar viðtökur við vefiium okkar, Agn.is, mest hafa verið um 10.000 flettingar á dag, svo við þurfum ekki að kvarta neitt. Veiðimenn eru að komast í girinn þessa dagana, enda stutt í að laxveiðin hefjist," sagði Leifur Þorvaldsson, einn af þeim sem standa að vefnum Agn.is sem Guðni Ágústsson ráðherra opnaði fyrir nokkrum dögum. -G.Bender Sigurður Héöinn útskýrir leyndardóma Noröurár í Borgarfiröi fyrir áhugasömum veiöimönnum um helgina. iC m

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.