Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.2002, Síða 32
jJi
iSdJj'Jd lAHíJ'J h J-JJjjJdJ
J JJjJjJjJjbljJllíJ
FRJÁLST, ÓHÁÐ DAGBLAÐ
Allianz (m) t
- Loforð er loforð
ÞRIÐJUDAGUR 28. MAI 2002
Sími: 533 5040 / www.allianz.is
Leiðtogar NATO:
Sögulegur fundur
Davíð Oddsson forsætisráðherra
sat í morgun sögulegan fund 19 þjóð-
arleiðtoga Atlantshafsbandalagsins og
forseta Rússlands í Róm, þar sem
stofnað var nýtt samstarfsráð NATO
og Rússlands. Sem kunnugt er náðist
samkomulag um stofnun ráðsins á ut-
anríkisráðherrafundi NATO í Reykja-
vík fyrr í þessum mánuði.
Samstarfsráðið mun hittast einu
sinni í mánuði og stofnun þess gefur
Rússum kost á að hafa áhrif á ákvarð-
anir bandalagsins. NATO opnaði í
gær skrifstofu í Moskvu í fyrsta sinn
i aðdraganda leiðtogafundarins í dag.
Með Davíð á fundinum í Róm var
Halldór Ásgrímsson utanríkisráð-
herra. Haildór fer í nótt til ísraels þar
sem hann hittir Arafat leiðtoga Palest-
ínumanna, Sharon forsætisráðherra
ísraels og Peres utanrikisráðherra
landsins. -ÓTG
Biðlaun bæjarstjóra:
Engar samræmd-
ar reglur í gangi
Engar samræmdar reglur eru til
um hvort bæjarstjórar eiga rétt á
biðlaunum þegar þeir láta af störf-
um. Að sögn Þórðar Skúlasonar,
framkvæmdastjóra Sambands ís-
lenskra sveitaifélaga, er það hverju
sveitarfélagi í sjálfsvald sett hvem-
ig samninga það gerir við viðkom-
andi bæjarstjóra. Samkvæmt upp-
lýsingum DV eru þó sex mánuðir
ekki óalgengur tími í þeim tilvikum
►þar sem samið er um biðlaun.
Að minnsta kosti átta bæjarstjór-
ar láta af störfum nú eftir kosning-
ar en ekki er ljóst hversu margir
þeirra fá biðlaun eftir að þeir láta af
störfum. Sjá einnig bls. 4 -HI
Hálendisvegir:
Allt lokað enn
Allir helstu vegir landsins eru
greiðfærir en hálendisvegir almennt
enn lokaðir vegna aurbleytu. Hjá
Vegagerð ríkisins fengust þær upplýs-
ingar að ekki væri líklegt að hálendis-
vegir yrðu opnaðir fyrr en venjulega
þrátt fyrir lítil snjóalög sunnan fjalla
í vetur.
Þó er líklegt að fyrstu leiðir sem
verða færar séu Kaldidalur, Kjalvegur
og leiðin í Landmannalaugar að norð-
an frá Sigöldu. Líklegt má telja að
þessar leiðir verði orðnar færar um
miðjan júní sem er á svipuðum tíma
og í meðalári. PÁÁ
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEEUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
T hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
FEKK HANN
MAGNAFSLÁTT?
DV-MYND HARI
Sígaunasveitin komin
Sígaunasveitin Taraf de Háidouks, sem er ein fremsta sígaunasveit sögunnar, kom til landsins í gær og mun hún
halda þrenna tónleika á Broadway; í kvöld, á morgun og fimmtudag. Þessi hljómsveit, sem hér er fyrir utan
tónleikastaöinn, ergríðarlega vinsæl og fékk m.a. verötaun hjá BBC sem besta hljömsveitin í flokki evrópskrar heims-
tónlistar. Nokkur sæti eru enn laus á tónieikana í kvöid en uppselt er á hina tvenna tónleikana.
Hilmar Hilmarsson, framkvæmdastjóri Aviace AG í Sviss:
Kaupir 112
einkaþotur
- keppir við Business Class sæti stóru félaganna
vélum verði fyllilega sambærilegt
við það að ferðast á Business Class
farrými stóru flugfélaganna.
Hilmar Hilmarsson, sem m.a.
hefur rekið Kvótamiðlunina og
Flugskólann Loft og núverandi
framkvæmdastjóri flugfélagsins
Aviace AG í Sviss, hefur gert sam-
ing mn kaup á 112 sex farþega
einkaþotum af Eclipse 500 gerð fyr-
ir um 10 milljarða króna.
Þotumar eru smíðaðar hjá Eclip-
se Aviation Corporation í Banda-
ríkjunum og eru af nýrri gerð sem
þykja mjög hagkvæmar í rekstri.
Þær geta lent á nánast hvaða flug-
völlum sem er og þykir það henta
sérlega vel mönnum sem þurfa að
ferðast mikið vegna viðskipta sem
eiga þess þá kost að losna við mikl-
ar tafir á stóru flugvöllunum vegna
hertra öryggisreglna. Flugþol vél-
anna er 2.965 km og flughraði er
658 km á klukkustund. Verða þess-
, ar vélar liður í uppbyggingu Avi-
ace á sérstökum flugklúbbum sem
verið er að stofna um alla Evrópu.
Nýju einkaþotur Aviace AG
Vélarnar eru afgeröinnii Eciipse og
eru smíöaöar hjá Aviation Cor-
poration í Bandaríkjunum..
Þar er boðið upp á fimm möguleika
í aðild allt eftir því hvað menn
fljúga mikið og borga menn þá mis-
munandi fastagjöld.
Kjartan Jónsson hjá Aviace á Is-
landi segir að ferðalög með þessum
Meirihlutaviðræður B- og D-lista í Kópavogi:
Vil engu spá um niðurstöðurnar
- segir Gunnar I. Birgisson
„Við ákváðum að halda áfram þess-
ari vinnu en það er ekkert nánar af
því aö frétta," sagði Gunnar I. Birgis-
son, oddviti D-listans í Kópavogi, i
samtali við DV í morgun. Hann sagð-
ist ekki geta spáð fyrir um niðurstöð-
umar en sjálfstæðismenn funduðu
með framsóknarmönnum i gærkvöld
og hyggjast ræða meira við þá í dag.
Sjálfstæðismenn hafa einnig rætt
óformlega við samfylkingarmenn um
myndun meirihluta.
Framsóknarflokkurinn er sigurveg-
ari kosninganna i Kópavogi og hætti
við sig einum manni en bæði Sjálf-
stæðisflokkur og Samfylking töpuðu
Gunnar
Birgisson.
Sigurður
Geirdal.
fylgi. B- og D-listi hafa starfað saman
undanfarið.
Oddviti Framsóknarflokksins, Sig-
urður Geirdal, hefur látið hafa eftir
Heimsmet hjá
Alexander
Alexander Kárason, betur þekktur
sem Lexi, setti heimsmet í akstri á t
vélsleða á vatni um helgina. Ferðinf
var reyndar farin á sjó og þá án hjálp-
artækja eins og flotholta o.þ.h. Farið,
var af sandinum rétt innan við Leiru- i
brúna og ekið undir brúna sem leið lá'
út fjörðinn. Alls ók Lexi þvi er stað-
fest er 12,1 km á frekar úfnum sjð og f
komst að eigin sögn í hann krappan'
nokkrum sinnum. „Þegar ég var að
snúa við rétt innan við Krossa-1
nestanga fór sleðinn einu sinni þvers-1
um hjá mér og ég varð að slá af niður
í um 40 km hraða sem eru mörkin á t
að sleðinn fljóti.“ Heimsmet Lexa j
verður sýnt í sjónvarpsþættinum
„Believe it or not“ og munu þeir sjá.
um að staðfesta metið fyrir heims-f
metabók Guinness. „Ég á sjálfur eftir'
að bæta metið,“ segir Lexi og telur að
við betri aðstæður sé hægt að geraj
mun betur. -NG *
Flugleiðir:
Batnandi afkoma
Afkoma reksturs Flugleiða og dótt-
urfélaga þess batnaði um 745 miiljón-
ir króna á fyrsta ársfjórðungi 2002 frá'
sama tímabili í fyrra. Fyrstu þrjá
mánuði þessa árs var tap af reglulegri j
starfsemi félagsins fyrir skatta 1.553
milljónir króna, en var 2.298 milljónir
króna á sama tímabOi í fyrra.
Ekki náðist í talsmenn Flugleiða >
áður en blaðið fór i prentun i morgun.
-JSSí
Árásin í miðborginni:
Enn í lífshættu
„Menn geta valið um fimm pakka
við aðOd að flugklúbbi Aviace. Eft-
ir því sem menn fljúga meira, þá
verður þetta ódýrara. Þá er miðað
við að menn séu að fljúga minnst
50 klukkutíma á ári. Með því að
nota flugvelli nær áfangastað eru
menn líka að spara sér tíma. Þetta
ætti því að henta vel hér á íslandi
þar sem menn geta flogið frá
ReykjavíkurflugveOi. Þaö er alveg
ljóst að þetta verður á verðum sem
ætti að henta vel íslenskum fyrir-
tækjum.
Kjartan segir að verið sé aö
stofna flugklúbba í flestum löndum
Evrópu. Slíkt hafi ekki verið áður
gert í þessu mæli þó flugklúbbar
hafi verið starfræktir áður innan
stórra fyrirtækja.
-HKr.
Ungi maðurinn, sem varð fyrir’
fólskulegri líkamsárás í Hafnar-
stræti aðfaranótt sunnudags, er enn j
í lífshættu. Að sögn vakthafandi
læknis á gjörgæsludeOd Landspítal-
ans í Fossvogi hlaut maðurinn al-j
varlega höfuðáverka þegar hannf
var sleginn niður. Hann er tengdur
við öndunarvél og haldið sofandi.
Tveir menn hafa verið úrskurðað-1
ir í gæsluvarðhald vegna árásarinn-
ar. -vig,
Óbreytt ástand
Líðan mannsins, sem varð fyrir ’
alvarlegum brunaáverkum eftir
eldsvoða í risíbúð við Laugaveg, er |
óbreytt. Hann liggur enn á gjör-
gæslu og er tengdur við öndunarvél.
Hann er í lífshættu. -vig,
sér að helmingslíkur séu á að áfram
verði unnið með sjálfstæðismönnum.
DV náði ekki tali af honum en heim-
Odir blaðsins herma að ekki sé sjálf-
gefið að Sigurður verði áfram bæjar-
stjóri í meirihlutasamstarfi D-lista og
B-lista.
Flosi Eiriksson, oddviti Samfylk-
ingarinnar, sagðist i morgun ekki líta
svo á að samfylkingarmenn væru úr
leik hvað varðaði meirihluta í Kópa-
vogi. Hann staðfesti að hann hefði átt
fund með Gunnari I. Birgissyni en þar
hefði aðeins veriö um spjaO að ræða.
Hann liti svo á að aOt væri opið enn.
-BÞ
Sérfræðingar
i fluguveiöi
Sportvörugerðin hf..
Skipholt S. s. 562 H3«3.