Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2002, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2002, Qupperneq 2
2 LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 2002 DV Fréttir Leikfélag íslands gjaldþrota tveimur árum eftir sameiningu: Ógreiddir vörslu- skattar og eignasala - um 170 milljóna króna skuldir en litlar eignir Leikfélag íslands ehf. hefur geng- ið sína götu á enda og er gjaldþrota aöeins tveimur árum eftir að sam- eining félagsins við Flugfélagið Loft ehf. og Hljóðsetningu ehf. varð. Sameiningunni var á sínum tíma fyrir tveimur árum ætlað að gera fé- lagið að stórveldi á sviði leiklistar og kvikmyndagerðar og tengdra greina. Samkvæmt heimildum DV eru skuldir félagsins taldar vera um 170 milljónir króna. Það var Lífeyris- sjóður verslunarmanna sem óskaði eftir gjaldþrotaskiptunum en félagið skuldar alls um 10 milljónir í ið- gjöld vegna starfsmanna. Af þeim gjöldum eru 4 milljónir framlög launþega og flokkast undir vörslu- gjöld. Þá skuldar félagið um 10 millj- ónir króna í staðgreiðslugjöld skatta en þar er um að ræða vörslu- gjöld. Saknæmt er að halda eftir vörslugjöldum og slíkt varðar sekt og til vara fangelsi ef ekki er borg- að. Talið er að lítið fáist upp í þær kröfur þar sem eignirnar eru litlar. Þær eru helst fólgnar i tækjum og húsmunum í Iðnó og Loftkastalan- um. Dýrt hljóðver sem fylgdi Hljóð- setningu ehf. inn í Leikfélag íslands var selt síðastliðið haust til félags sem er að hluta í eigu aðila sem tengdjast Leikfélagi íslands. Sá Draumurinn búinn Forráöamenn Leikfélags íslands ætluöu sér aö gera stóra hluti í leiklistarlífi borgarinnar. Nú er félagiö gjaldþrota og starfsemin lömuð. Meginstarfsemi félagsins var í lönó og Loftkastalanum. hluti starfseminnar var umsvifa- mikill í hljóðsetningu á kvikmynd- um og sjónvarpsefni og framleiddi mikið af bamaefni fyrir sjónvarp. DV hefur heimildir fyrir því að til skoðunar sé að rifta þeim gjörningi. Leikfélag íslands var með starf- semi í Loftkastalanum og Iðnó. Hús- næði Loftkastalans er í eigu sér- staks félags sem er að hluta i eigu sömu einstaklinga og eiga Leikfélag íslands en Reykjavíkurborg á Iðnó- húsið. Leigutaki er sjálfstætt félag, Iðnó ehf., sem er að hluta í eigu sömu aðila og Leikfélag íslands. Vandræði Leikfélagsins, sem á sínum tíma var líkt við risa í leik- húslífinu, eru rakin til þess að hlutafé sem forsvarsmennimir töldu sig hafa loforð fyrir skilaði sér ekki inn í félagið. Þá hafa eigendur félagsins gagnrýnt mjög styrkveit- Hallur Helgason. ingar ríkisins til stóru leikhúsanna en LÍ var rekið fyrir sjálfsaflafé. Upphaflega voru það söngleikimir Stone free og Hár- ið sem komu fót- unum undir þá sem stofnuðu Leikfélagið og Flugfélagið Loft. Meðal stjórnarmanna í Leikfélagi íslands era Baltasar Kormákur leik- stjóri, Hallur Helgason, starfandi stjórnarformaður, og Magnús Geir Þórðarson leikstjóri. Fram kemur í Lögbirtingablaðinu að með úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur frá 30. apríl síðastliðn- um var félagiö lýst gjaldþrota og frestur til að lýsa kröfum gefmn til 21. ágúst. Páll Amór Pálsson hefur verið settur skiptastjóri. -rt Magnús Geir Þórðarson. Baltasar Kormákur. Frjals fjölmiðlun: Orðin gjaldþrota Frjáls fjölmiðlun hf. hefur verið tekin til gjaldþrotaskipta. Það er gert að kröfu Sameinaða lífeyris- sjóðsins annars vegar og hins vegar Sparisjóðs Hafnarfjarðar. Saman- lagt eru fjárkröfur þessara sjóða á hendur félaginu 24,5 milljónir króna. Að því er fram kom í fréttum RÚV i gærkvöld hafði áður verið gert árangurslaust fjárnám hjá fyr- irtækinu og ljóst þótt enn fremur að það gæti ekki staðið undir skuld- bindingum sínum. Til skamms tíma hafði Frjáls fjöl- miðlun með að gera umsvifamikinn rekstur á sviði fjölmiðlunar og vann að rekstri blaða - sem og fyrirtækja í skyldum rekstri. Var Frjáls fjöl- miðlun m.a. aðaleigandi Frétta- blaðsins en er ekki lengur í hópi hluthafa samkvæmt upplýsingum úr hlutaskrá Fréttablaðsins. Stærsti einstaki eigandinn er C-L Consulting S.A., með 27,5% hlut, en ekki hefur fengist staðfest hver á það fyrirtæki. -sbs Bensínverð hækkaði á miðnætti: Meira en búast mátti við - segir framkvaemdastjóri FIB „Það mátti auðvitaö gera ráð fyr- ir verðhækkunum á bensini, en óneitanlega er þetta meira við reiknuðum með. Við vomm að gæla viö að þetta yrði ekki meira en 3,50 kr.,“ sagöi Runólfur Ólafsson, fram- kvæmdastjóri Félags ísl. bifreiðaeig- enda, í samtali við DV í gærkvöld. Olíufélögin þrjú hækka verð á bensíni í dag um 4,80 kr. á lítra. Lítraverð á 95 oktana bensini með fullri þjónustu verður eftir hækkun 96,00 kr. og 98 oktana bensíni 100,70 kr. Esso segir í tilkynningu aö þörf fyrir verðhækkun á bensíni hafi verið orðin veruleg. Styrking ís- lensku krónunnar gagnvart dollara hafi hins vegar dregið nokkuð úr hækkvmarþörf. „Við reiknum ekki með frekari verðhækkunum á bensíni. Söguleg reynsla segir okkur hins vegar að stundum hækkar verð nokkuð fram eftir sumri. Þá er eftirspum á innlendum markaði meiri en framboð," segir Runólfur. Hækkunina segir hann enn fremur til þess fallna að rugga bátnum viðvíkjandi stöðugleika i ís- lensku efnahagslífi. -sbs DV-MYND E.ÓL Blómarós slær á létta strengl Þessi dama lék á fiöluna sína fyrir sýningargesti á sýningunni „Sumariö og Garöurinn“ hófst í íþróttamiöstööinni aö Varmá í Mosfellsbæ í gær. Þáttur til sáttar Fullvíst má telja að veiðigjaldið, sem nýlega var lagt á, sé sá þáttur sem færir þjóðina nær enda- punktinum í því langa ferli að flnna viðunandi niður- stöðu til að binda enda á deilur um fiskveiðistjórnun- arkerfið. Þetta segir Ámi M. Mathiesen á heimasíðu sjávarút- vegsráðuneytis. Hótel opnað á Selfossi Nýbygging Hótel Selfoss og end- urbætt eldra hús verður opnaö í dag. Eignarhaldsfélagið Brú stendur að framkvæmdum, þar sem eru 79 herbergi í nýbyggingu og 21 her- bergi í eldra húsi. Hótel Selfoss er eitt 5 hótela Kaupfélags Ámesinga og verður rekið undir merkjum Icelandair hotels. Sátt á Landspítala Sátt hefur náðst i deilu lækna- nema og Landspítala. Deilan leystist með því móti að spítalinn ætlar að efla handleiðslu og formlega kennslu læknanema í sumarstarfi þannig að læknadeild viðurkennir þetta sem hluta af kennslu og stytt- ir heildamámstíma. RÚV greindi frá. Hlynntir sameiningu Afgerandi meirihluti íbúa á norð- ursvæði Austurlands er hlynntur sameiningu sveitarfélaga, en 40% andvíg. Mest fylgi við sameiningu er á Bakkafirði en andstaðan er mest á Fljótsdal. Stýrihópur um norðursvæðisverkefnið segir niður- stöðuna jákvæða. kosningar Húmanistaflokk- urinn, undir for- ystu Metúsalems Þórissonar, vill að Sýslumaðurinn 1 Reykjavík ógildi niðurstöðu borgar- stjórnarkosninga og boðað verði til nýrra kosninga. Hann segir að jafn- ræðis í umfjöllun um framboð í íjöl- miðlum hafi ekki verið gætt. For- dæma eigi fiölmiðla fyrir háttalagiö. Ók á lögreglumann Lögreglan í Reykjavík handtók mann, sem var á stolnu ökutæki, rétt fyrir klukkan 15 í gær. Mannin- um var veitt eftirför um Þingholtin uns hann kom að gatnamótum Ing- ólfsstrætis og Bankastrætis. Þar reyndi hann við krappa beygju á mikilli ferð en keyrði þá upp á kant- steinn og lenti á lögreglumanni sem var við reglubundið eftirlit um mið- bæinn á reiðhjóli. Ökumaðurinn reyndi að forða sér á hlaupum en lögregla hljóp hann uppi og gisti hann fangageymslur lögreglunnar í nótt. Maðurinn er grunaður um að hafa stolið fleiri ökutækjum. Vilja ógilda Upp með stigana Úrskurðað var í héraðsdómi í gær að Rekstrarfélag Kringlunncu* skuli setja aftur upp tvo rúllustiga milli 1. og 2. hæðar i verslunarmiðstöðinni. Skv. dómnum á rekstrarfélagið að setja stigana upp aftrn- innan 30 daga. Stöð 2 greindi frá. -sbs/áb
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.