Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2002, Blaðsíða 24
24
H&lgctrblað 30V LAUGARDAGUR I. JÚNÍ 2002
Gazellur róa
Eina lesbíska róðrarsveitin stefnir á siqur á sjómannadaq. Sveitin
hefur keppt átta sinnum á ellefu árum oq aðeins einu sinni tapað.
ÞAÐ ER GÖMUL HEFÐ FYRIR ÞVÍ að keppa í róðri á
sjómannadaginn. Öldum saman voru það nánast ein-
vörðungu karlar sem sóttu sjó og lengi vel voru það að-
eins karlar sem kepptu í róðri og þessi erfiða íþrótt tal-
in karlmannsverk.
Þessi vígi hafa fallið eins og önnur og undanfama ára-
tugi hafa kvennasveitir orðið mun algengari en áður og
konur sýnt að þær láta ekki eftir liggja skutinn þótt
rösklega sé róið í framrúminu. Ein róðrarsveit kvenna í
Reykjavík ber það sérstæða nafn Gazellumar og á sér
rúmlega 10 ára sögu.
Sveitin var stofnuð af Arnbjörgu ísleifsdóttur eða
Boggu, eins og hún er oftast kölluð, sem er alin upp við
róðrarkeppni á Suðurnesjum og ákvað árið 1991 að hóa
saman nokkrum vinkonum sínum.
Þetta reyndist vera harðsnúin sveit því þrjú ár í röð
Gazellurnar hafa verið til í 11 ár en átta sinnum
keppt og aðeins tapað einu sinni. DV-mynd KK
sigruðu Gazellurnar með yfirburðum. Keppt er um far-
andhikar sem sveitir vinna yfirleitt til eignar eftir þrjú
ár en það gilti ekki um Gazellurnar þvi að þær fengu
ekki bikarinn.
Það er freistandi að álykta sem svo að þetta hafi ver-
ið birtingarform ákveðinna fordóma en Gazellurnar eru
allar samkynhneigðar.
„Okkur fannst þetta fyrst og fremst fyndið,“ segir Arn-
björg í samtali við DV.
„Sveitin var ekki stofnuð sérstaklega sem lesbísk
róðrarsveit. Það kom eiginlega frekar í ljós eftir á. í dag
er það hins vegar inntökuskilyrði."
Talsverð umskipti hafa orðið í róðrarsveitinni gegn-
um árin og ýmist hefur hún sigrað eða tapað en Arn-
björg hefur alltaf verið þjálfari og stýrimaöur. í fyrra
voru Gazellurnar eina kvennasveitin og keppti því viö
karlasveit.
laugardag og sunnudag 1. og 2. júní kl. 11 -17 að Ánanaustum 1
^ ^ Æ. 385
470 SPORT
TERHI plastbátar, margar stærdir.
Mest seldu plastbátar á íslandi.
QUICKSILVER
gúmmibátar.
Stærðir frá
3 metrum.
UTANBORDSMOTORAR
tvigengis- og fjórgengisvélar
2,5 - 240 hö
VELASALAN
Ánanaustum 1, Reykjavík. Simi 580-5300. Fax 580-5301.
Netfang: velasalan@velasalan.is Veffang: http://www.velasalan.is
„Við rerum á móti sveit Færeyinga
og lentum í erfiðleikum og töpuðum.
Þeir sýndu okkur á eftir að það
blæddi úr lófum þeirra því að þeir
vildu ógjaman tapa fyrir konum."
í ár em fleiri kvennasveitir og bú-
ist við harðsnúinni keppni, m.a. frá
sveit lögreglukvenna sem stýrt er af
fyrrum meðlimi Gazellanna.
Arnbjörg segir að þessar fjórar
mínútur sem róðurinn varir séu afar
erfiðar en vanir stýrimenn kunna
ýmis brögð sem þeir vilja þó alls ekki
láta uppi.
Arnbjörg er jafnframt einn
stofnanda KMK sem er skammstöfun
fyrir Konur með konum og starfar
laustengt við Samtökin ‘78. Hún segir
að KMK sé fyrst og fremst skemmtifé-
lag sem standi fyrir knattspymutím-
um, blakkeppni, gönguferðum og
línuskautaiðkan. En er starfsemin
markviss þáttur í að gera samkyn-
hneigðar konur sýnilegri og draga
þannig úr fordómum samfélagsins?
„Þetta er meira svona hefðbundið
félag. Ég er vön að kynna mig með
nafni en ekki kynhneigð. Sjálf hef ég
aldrei orðið fyrir fordómum af neinu
tagi og held að samfélagið sé umburð-
arlyndara gagnvart konum en körl-
um að þessu leyti. Almennt finnst
mér frjálslyndi gagnvart samkyn-
hneigð hafa aukist." -PÁÁ
Umsóknarfrestur er til 5. júní. iA/ww.ru.is
' ÍL
BAUGUR
SS isLtNSK Íslandssími
|!QM IRI DAGRF.ININC 'W
QPIN KERFIHF EIMSKIP
ÍSLANDSBANKI
Stuðningur Bandamanna Háskólans í
Reykjavík hefur gert tölvunarfræðideild HR
kleift að efla kennslu og stórauka rannsóknir
í tölvunarfræði.
FJARNAM ITÖLVUNARFRÆÐI
Með fjarnámi Háskólans í Reykjavík geta einstaklingar um allt land stundað háskólanám
í tölvunarfræði. Nemendur sækja sér hljóðfyrirlestra á netið og eru í sambandi við
fjarkennara sem sér um verkefnavinnu og umræðuþræði.
Þú færð allar nánari upplýsingar á www.ru.is og í síma 510 6200. HÁSKÓLINN í REYKJAVÍK
REYKJAVIK UNIVERSITY