Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2002, Qupperneq 16
16
Helgarblað
LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 2002
DV
Saga Tolstoys um Önnu Kareninu hefur verló kvikmynduö ótal sinnum en kannski hefur Greta
Garbo túlkaö hana áhrifamest í kvikmynd sem gerö var áriö 1935. Fredric March lék Vronsky
greifa. Anna átti sér fyrirmynd í ógæfusamri kunningjakonu Tolstoy-hjónanna.
Fólk sem varð að
skáldsagnapersónum
Skáldsagnahöfundar sækja sér víöa efniviö. Stundum
segir vinur þeim sögu af örlögum kunningja sinna eöa
höfundar setja vini og kunningja í bækur sínar og gera
dauðlegar mannverur þannig ódauölegar. Hér eru nokkur
dæmi.
Leo Tolstoy og Sonja kona hans höfðu ekkert sér-
stakt dálæti á nágranna sinum, Bibikov, en því
vænna þótti þeim um ástkonu hans, Önnu Stepa-
novu. Anna hafði flutt inn á heimili Bibikovs eftir
lát eiginkonu hans og sá þar um þroskaheftan son
hans. Bibikov var Önnu hvað eftir annað ótrúr en
hún var blinduð af ást á honum. Ekki leið á löngu
þar til Bibikov flutti þýska ástkonu sína inn á heim-
ilið undir því yfirskini að sonur hans þyrfti meiri
gæslu en Anna gæti sinnt. Anna tók þessu mjög
þunglega og það fór ekki fram hjá Tolstoy-hjónunum
að hún leið miklar sálarkvalir.
Dag einn sagði Bibikov Önnu að hann ætlaði að
kvænast hinni þýsku ástkonu sinni. Skömmu
seinna sagði Anna Bibikov að hún ætlaði að heim-
sækja móður sína. Hún sást á jámbrautarstöðinni
þar sem hún gekk fram og til baka i þungum þönk-
um. Þegar maður vék sér að henni og spurði hana
hvort hún væri að biða eftir lest svaraði Anna ekki
en hraðaöi sér að enda járnbrautarstöðvarinnar.
Þegar lest kom að signdi Anna sig og henti sér fyr-
ir lestina. Tolstoy var viðstaddur líkskoðunina og sá
sundurkraminn líkama Önnu. Ekki löngu síðar kom
Tolstoy til konu sinnar og sagði að hann væri byrj-
Ljóð vikunnar
Þáttur
- eftir Guömund Böövarsson
Ég hef horft á laufið lifna,
IJósið vaka um nœtur. -
ég hef séð þig brosa, brosa.
barn við vorsins fœfur.
Og mér fannst sem œsku mlnnl
eitthvað vœngl iéði.
Var það gleðl.
var það feimin gleði?
Ég hef horft á haustlð koma,
hvítar mjalllr skína.
ég hef séð þig sltja og gráta
sólskinshlátra þína.
En þó fannst mér eitthvað þlðna
undan þínum tárum, -
sorg frá árum -
sorg frá liðnum árum?
Vetur og sumar veröld gerðu
vondu og góðu tama.
Ég hef séð þig stara, stara.
standa um allt á sama. -
Og mér fannst sem einhver velti
á mig þungum steini.
Bið ég í leyni.
bið fyrir þér í leyni.
aður á skáldsögu um fjölskyldulíf og ein aðalpersón-
an væri byggð á hinni ógæfusömu Önnu Stepa-
novnu. Hann ætlaði að kalla hana Önnu Kareninu.
Sjóðliði, bófaforingi og þræll
Alexander Selkirk var sjóliði sem árið 1704 kvart-
aði hástöfum yflr aðbúnaði á skipi sínu með þeim
árangri að félagar hans skildu hann eftir á lítilli
eyju i Kyrrahafi. Þar dvaldi hann fjögur ár áður en
honum var bjargað og fluttur aftur til Englands.
Daniel Dafoe frétti af honum og kann aö hafa hitt
hann, og sendi árið 1719 frá sér bók, byggða á
reynslu Selkirks. Sagan er ein vinsælasta skáldsaga
allra tíma, Róbinson Krúsó.
William Brodie var húsgagnasmiður, meðlimur í
borgarráði Edinborgar og virtur kaupsýslumaður.
Um nætur var hann hins vegar foringi bófaflokks.
Að lokum komst upp um Brodie og hann var dæmd-
ur til hengingar. Síðasta ósk Brodies var að vinir
hans fengju að fjarlægja lík hans frá aftökustað
strax eftir hengingu. Ástæðan fyrir þessari ósk var
sú að Brodie hugöist ganga til aftöku með stálól um
hálsinn sem átti að koma i veg fyrir að reipið
hengdi hann. Hann hafði mútað böölinum að hafa
reipið stutt og þannig yrði failið lágt. Ráðagjörð
hans mistókst. Yfirvöld tóku eftir því að reipið var
of stutt og skipuðu böðlinum að lengja það. Fallið
var því hátt og hálsóiin kom að engu gagni. Barn-
fóstra Roberts Louis Stevensons sagði honum frá ör-
Bækur
ýmsum
Bragl Ólafsson rithöfundur segir frá eftirlætisbókum sín-
um
„Fyrir utan þá höfunda sem ég les reglulega,
eða öllu heldur óreglulega, til dæmis Anton
Tsékov, Franz Kafka, Mikhail Búlgakov og
Harold Pinter, þá nefni ég þessar bækur: The Or-
deal of Gilbert Pinfold eftir Evelyn Waugh (ein
skemmtilegasta bók sem til er um ímyndunar-
veiki og andlegt líf miðaldra rithöfundar), A Con-
federacy of Dunces eftir John Kennedy Toole
(yndisleg bók um eina af alsmörtustu skáldsagna-
hetjum Bandaríkjanna), I Served the King of Eng-
land eftir BohumU Hrabal (ein fjörugasta bókin
innan austur-evrópsku melankólíunnar), The
Unconsoled (Óhuggandi) eftir Kazuo Ishiguro (að
mínu mati skemmtUegasti rithöfundur Breta og
hans besta bók), The Third Policeman eftir Flann
O’Brien (bók sem eykur útsýni manns á sama
hátt og tU dæmis Meistarinn og Margaríta),
Leaves of Grass eftir Walt Whitman (Ameríka
eins og hún leggur sig, stór og mikU fegurö), Bók
óróleikans eftir Femando Pessoa (nokkurs konar
biblía), og að lokum nóveUan Seize the Day eftir
Saul BeUow. Svo verð ég nú eiginlega að hafa
Myndina af Dorian Gray eftir Oscar WUde með í
þessari upptalningu, frábær bók á aUan hátt. En
sú bók sem hefur veriö í mestu uppáhaldi núna
síðastu mánuðina er Celebration eftir Harold
lögum Brodies og í bamaherbergi hans var skápur
sem sagt var að Brodie hefði smíðað. Stevenson sá
dramatískan efnisþráð i tvöfóldu lífemi Brodies og
skrifaði söguna frægu, Dr. JekyU og herra Hyde.
Josiah Henson fæddist í ánauð á bóndabæ í Mary-
land. Þegar hann komst að því að selja átti hann tU
Suðurríkjanna flúði hann tU Kanada ásamt konu
sinni og stórum bamahópi. Henson ferðaðist þríveg-
is tU Englands, náði þar tali af ýmsum áhrifamönn-
um, meðal annars Viktoríu drottningu, og átti við
þá viðræður um nauðsyn þess að veita blökkumönn-
um frelsi. Harriet Beecher Stowe hitti Henson í
Boston og tók við hann viðtal. Hún notaði hann síð-
an sem fyrirmynd að Tómasi frænda í metsölubók
sinni Kofi Tómasar frænda.
Fleiri skrautlegar fyrirmyndir
Marie CecUia Rogers var tvítug, gullfaUeg af-
greiðslustúlka i tóbaksbúð í New York þangað sem
Edgar AUan Poe vandi komur sinar. Hún var myrt
og líki hennar kastað í Hudsonána. Aldrei hafðist
uppi á morðingja hennar. Poe hyggði sögu sína, Ráð-
gátuna um Marie Roget, á hinu óupplýsta morömáli.
Marie Duplessis vann fyrir sér sem afgreiðslu-
stúlka í fatabúðum áður en hún varð vændiskona í
París. Hún öðlaðist skjótan ffarna í starfsgrein sinni
og varð fylgikona veUauðugra yfirstéttarmanna.
Hún bar ætíð hvít kamUíublóm. Þegar hún lést af
berklum aðeins 23 ára gömul minntist Alexandre
Dumas yngri hennar í skáldsögunni KamUíufrúnni.
Verdi færði söguna síðar í óperubúning í La travi-
ata.
Dr. Joseph BeU, skurðlæknir og kennari, gat, eft-
ir að hafa horft andartak á ókunnuga, sagt tU um líf
þeirra og venjur. Þessi hæflleiki vakti aðdáun eins
nemanda hans, Arthurs Conan Doyles sem sagði síð-
ar: „Ég notaði og endurbætti aðferðir hans þegar ég
var að skapa leynUögreglumann sem bjó yfir sterkri
rökhugsun og beitti henni við lausn sakamála." BeU
varð í höndum Doyles að Sherlock Holmes.
Chester GiUette vann í fataverksmiðju sem auð-
ugur frændi hans átti. Hann var elskhugi ungrar
stúlku, Grace Brown, sem vann á sama stað og trúði
því að hann myndi giftast sér. Meðan á sambandi
þeirra stóð átti GUlette i ástarsamband við stúlkur
sem voru mun hærra settar í þjóðfélagsstiganum en
hann sjálfur og hin fátæka vinkona hans. Árið 1906
komst GUlette að því að Grace ætti von á bami
þeirra og óttaðist mjög að hann yrði þvingaður tU að
kvænast henni. Gillette fór með Grace í bátsferð,
barði hana í höfuðið með tennisspaða og fleygði
henni útbyrðis. Hún drukknaði. GUlette var ákærð-
ur fyrir morð, fúndinn sekur og liflátinn í rafmagns-
stólnum. Rithöfundurinn Theodore Dreiser fylgdist
með réttarhöldunum og skrifaði eina frægustu
skáldsögu sína, An American Tragedy, sem hann
byggði á málinu.
Delphine Delamare var dóttir vel stæðs landeig-
anda og giftist dauflegum lækni. Hún lét sig dreyma
um viðburðaríkara líf. Hún var ákaflega eyðslusöm
og átti fjölda elskhuga. Hún framdi sjálfsmorð 26 ára
gömul með því að gleypa arsenik. Náinn vinur
Gustavs Flauberts sagði honum sorglega sögu henn-
ar og Flaubert fékk þaðan hugmyndina að sögu
sinni. Frú Bovary.
Leigh Hunt, ritstjóri og útgefandi, var vinur
skáldanna Shelleys og Byrons. Charles Dickens var
einnig kunnugur honum og gerði grimmdarlegt grin
að honum sem sníkjudýrinu Skimpole í skáldsögu
sinni, Bleak House.
Bragi Ólafsson á ekki í nokkrum vandræöum
meö að nefna þær bækur sem eru í mestu upp-
áhaldi þessa stundina og á listanum eru meöal
annars bækur eftir Oscar Wilde, Harold Pinter
og Kazuo Ishiguro.
Pinter, nýjasta leikrit hans. Að lokum nefni ég
eina íslenska bók en það er sú íslenska bók sem
mér verður oftast hugsað til: Rógmálmur og grá-
silfur eftir Dag Sigurðarson.“
ur
áttum
Áhrifamikil
harmsaga
Edith Wharton sendi árið
1911 frá sér bókina um Ethan
Frome sem er ein af hennar
þekktustu verkiun. Ethan
Frome er fátækur bóndi sem
býr með heilsulausri og
síkvartandi eiginkonu. Þegar
hin unga og fáUega Mattie
kemur inn á heimilið vakna
sterkar tilfinningar milli henn-
ar og Ethans. Afleiðingarnar
reynast örlagaríkar. Þótt les-
andinn viti allt frá byrjun að
ekki geti farið vel þá reynist
endirinn óvæntur og gríðarlega
áhrifamikiU.
Kurteisi er eins og loft-
púöi. Þó ekkert sé innan í
deyfir hún högg lífsins.
Arthur Scopenhauer
Allar bækur
1. LEGGÐU RÆKT VIÐ SJÁLFAN ÞIG.
Anna Valdimarsdóttir
2. BÓKIN MED SVÖRIN. Carol Bolt
3. SAGA HEIMSPEKINNAR. Bryan
Maqee
4. HANN VAR KALLAÐUR ÞETTA.
Dave Pelzer
5. LÖGMÁLIN 7 UM VELGENGNI.
Deepak Chopra
6. VEL MÆLT. Sr. Sigurbjörn Einars-
son tók sáman
-------.-----------------------
7. GULLKORN í GREINUM LAXNESS.
Halldór Laxness
8. ÞJÓÐSÖGUR VIÐ ÞJÓÐVEGINN.
Jón R. Hjálmarsson
9. MÝRIN. Arnaldur Indriðason
10. SPAKMÆLI - málshaettir frá
mörqum löndum
Skáldverk
1. MÝRIN. Arnaldur Indriðason
2. UÓÐ TÓMASAR. Tómas Guð-
mundsson
3. DAUÐARÓSIR. Arnaldur Indriða-
son
4. NAPÓLEONS SKJÖLIN. Arnaldur
Indriðason
5. SJÁLFSTÆTT FÓLK l-ll. Halldór
Laxness
6. ALVEG DÝRLEGT LAND. Frank
McCourt
7. HEIMSUÓS l-ll. Halldór Laxness
8. ÆVINTÝRI GÓÐA DÁTANS SVEJK.
Jaroslav Hasek
9. ASKA ANGELU. Frank McCourt
10. STEINN STEINARR UÓÐASAFN.
Steinn Steinarr
Metsölulisti Eymundsson 23.5.-29.5.
Kiljur
1. CHOSEN PREY. John Sandford
2. THE SUMMERHOUSE. Jude
Deveraux
3. ON THE STREET WHERE YOU
LIVE. Mary Hiqqins Clark
4. THE SUM OF ALL FEARS. Tom
Clancy
5. DIVINE SECRETS OF THE YA-YA
SISTERHOOD. Rebecca Wells
Listinn er frá New York Times