Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2002, Side 29
LAUGARDAGUR
. JÚNÍ 2002
HelQorhloö H>"Vr
29
Lokapunktur
°g upphaf
Samfylkingin íHafnarfirði
vann stórsiqur íbæjarstjórnar-
kosningunum á döqunum þegar
hún náði hreinu meirihlutafylqi
og felldi stjórn sjálfstæðis-
manna og framsóknarmanna.
Lúðvík Geirsson er oddviti
Samfglkingarinnar íHafnar-
firði og flestir reikna með að
hann verði næsti bæjarstjóri í
hinu gamla kratavígi.
Lúðvik er af alþýðubandalagsættum en faðir hans
er Geir Gunnarsson sem var þingmaður í þrjá ára-
tugi. Lúðvík ólst því upp á heimili þar sem stjómmál
voru hluti af tilverunni. „Ég varð mjög snemma
áhugasamur um pólitík og fylgdist vel með, Pólitísk-
ur áhugi var svo að segja í fanginu á mér frá því ég
man eftir mér,“ segir hann. „Ég tók þátt í ungliða-
starfi Alþýðubandalagsins og datt svo inn í blaða-
mennsku 18-19 ára gamall.
Lúðvík var formaður Blaðamannfélags íslands í
rúman áratug en starfar nú sem framkvæmdastjóri
þess. í starfi sínu hefur hann notiö mikillar virðing-
ar og trausts kollega sinna. Nú má búast við að póli-
tíkin taki megnið af tima hans.
- Sameiningarferli vinstri manna hefur verið langt
og strangt og margir hafa átt erfitt með að sjá fyrir
sér að það gæti tekist. En nú hefur það að hluta til
tekist með þessum mikla sigri í Hafnarfirði. Hverju
þakkarðu þann árangur?
„Ég lit á þennan sigur sem bæði lokapunkt og upp-
haf. Hann er lokapunktur á ferli sem er búið að vera
í gangi í töluverðan tíma í Hafnarfirði. Við reyndum
fyrir kosningarnar 1998 að ná samstöðu um sameigin-
legt framboð sem tókst ekki og menn buðu fram í
tvennu lagi. Fyrir vikið upplifðum við á kosninganótt
að hafa ekki náð þeim árangri sem hefði getað orðið.
Það var okkar gæfa að við skynjuðum kall timans og
eyddum ekki miklum tíma í að sleikja sárin heldur
ákváðum að ná flokkunum í eina fylkingu. Við stofn-
uðum strax á árinu 1999 fyrsta samfylkingarfélagið á
landinu. Það voru ekki allir tilbúnir að vera með á
þeim vagni en það fólk sem hafði verið í forystu og
leiðandi í félagshyggjuflokkunum kom mjög virkt inn
í starfið. Við settum okkur það markmið að byggja
hreyfmguna upp innan frá og gerðum það mjög mark-
visst.
Þótt ég sé ungur maður hef ég verið þátttakandi í
stjórnmálum í bráðum þrjá áratugi og ég hef aldrei
tekið þátt í jafn vel skipulagðri kosningabaráttu og
jafn markvissum undirbúningi og fyrir þessar kosn-
ingar. Fyrir rúmu ári lögðum við upp mjög skýra
áætlun um það hvernig við ætluðum að standa að
framboðsmálum, áherslum og kosningavinnu. Við
fylgdum þeirri áætlun alla leið og fórum hvergi út af
sporinu.“
- Nú finnst manni að það sé fremur lítill munur á
íslenskum stjórnmálaflokkum, nema kannski Vinstri
grænum. Finnst þér þá að það hafi verið skarpari lín-
ur í kosningabaráttunni í Hafnarfirði en annars stað-
ar á landinu?
„Ég nefndi þaö í aðdraganda kosninganna og eftir
að úrslit lágu fyrir að það sem hefði verið sérstakt við
Hafnarfjörð í þessari kosningabaráttu væri að þar var
verið að takast á um pólitísk grundvallaratriði. Um-
ræðan varð töluvert mikil, ekki bara í bæjarstjórn-
inni heldur meðal bæjarbúa. Það vekur vitaskuld at-
hygli þegar sjálfstæðismenn fara þá leið að bjóða út
kennslu i grunnskólum og þjónustu í leikskólum og
eru tilbúnir að setja í einkaframkvæmdir nánast alla
þjónustubyggingar sem verið er að bjóða út. Það var
ekki bara fólk sem taldi sig í hópi jafnaðar- og félags-
hyggjufólks sem reyndist andvígt þessu, það kom líka
skýrt fram í Gallupkönnun að yfir þriðjungur kjós-
enda Sjálfstæðisflokksins var andvígur þessari einka-
væðingu.“
Ekki kosning um bæjarstjóra
- í Reykjavík fannst manni stundum eins og ekki
væri verið að kjósa um málefni heldur borgarstjóra.
Samfylkingin í Hafnarfirði fór greinilega ekki þá leið.
„Við lögðum upp í kosningabaráttuna á þeim grunni
að hún yrði ekki kosning um bæjarstjóra. Við sáum að
kosninganar í Reykjavík voru orðnar að einvígi milli
Björns og Ingibjargar. t Hafnarfirði var verið að takast
á um það hvernig fólk vill að samfélagið sé byggt upp
og hvort einkahyggja og einkavæðing eigi að ráða á öll-
um sviðum. Hafnarfjörður var nánast orðinn tilrauna-
miðstöð Sjálfstæðisflokksins. Hvergi nokkurs staðar á
landinu fór Sjálfstæðisflokkurinn fram með sínar
áherslur í sama dúr og hann gerði í Hafnarfirði. Það
var auðvitað ákveðin ögrun fyrir okkur að taka ákveð-
ið á málum og gera bæjarbúum grein fyrir því að þeir
ættu val um það að standa vörð um gildi jafnaðar- og
félagshyggju sem Hafnarfjörður hefur haft að leiðar-
ljósi í gegnum tíðina. í okkar kosningabaráttu höfðuð-
um við mjög til þessarar grunnrótar í samfélagsgerð
Hafnarfjarðar. Bæjarbúar tóku undir þessi sjónarmið."
- Er ekki langeðlilegast að þú verðir næsti bæjar-
stjóri í Hafnarfirði?
„Við eigum um tvo kosti að velja, ópólitískan bæjar-
stjóra eða pólitískan. Úrslit kosninganna eru mjög af-
gerandi. Menn treysta Samfylkingunni fyllilega til for-
ystu í Hafnarfirði."
- Nú vekur athygli að Vinstri grænir koma yfirleitt
illa út úr kosningum þar sem þeir buðu fram einir sér.
Hver heldurðu að sé skýringin á þvi?
„Vinstri grænir eru með öflugan forystukjarna í
þingflokki sínum en þeir hafa ekki haft bakland í
sveitastjórnum. Ég held að það hafi verið mikU mistök
hjá Steingrími Sigfússyni og félögum að fara í sveita-
stjómarkosningar víða um land undir nafni Vinstri
grænna án þess að hafa undirbúið jarðveginn. Það var
ljóst að þeir myndu aldrei ná þar sömu mælingu og
flokkurinn hefur fagnað í skoðanakönnunum um þing-
kosningar. Ég held aö það verði þeim erfitt að bera á
bakinu, í aðdraganda þingkosninga, mælingu upp á
sex prósenta fylgi yfir landið á sama tíma og Samfylk-
ingin er að fá mælingu sem er í heUdina um og yfir 30
prósent. Þarna er orðinn töluvert mikiU munur á.“
„Ég held að það hafi verið mikil mistök hjá Steingrími Sigfússyni og félög-
um að fara í sveitarstjórnarkosningar víða um land undir nafni Vinstri
grænna án þess að hafa undirbúið jarðveginn. Það var Ijóst að þeir niyndu
aldrei ná þar sömu mælingu og flokkurinn hefur fagnað í skoðanakönnun-
um um þingkosningar. Ég held að það verði þeim erfitt að bera á bakinu,
í aðdraganda þingkosninga, mælingu upp á sex prósenta fylgi yfir landið á
saina tíma og Samfylkinginin er að fá mælingu sem er í heildina um og
yfir 30 prósent. Þarna er orðinn töluvert mikill munur á.“
DV-mynd Pjetur
Sanivinna við bæjarbúa
- Þú hefur verið I framvarðasveit í íslenskri blaða-
mennsku. Hvernig fannst þér fjölmiðlar standa sig í
þessari kosningabaráttu?
„Framan af fannst mér nokkuð lýjandi að horfa upp
á endalausa umræðu um Reykjavik og borgarmálin.
Ég geri mér grein fyrir því aö höfuðborgin er lykilat-
riði í sveitastjórnarpólitíkinni en það voru líka
áhugaverðir hlutir að gerast í öðrum sveitafélögum.
Það tók fjölmiðla til dæmis tíma að átta sig á þvi að
spennan yrði kannski hvað mest í kosningunum í
Hafnarfirði. Ég hefði alveg þegið að íjölmiðlar hefðu
veitt okkur athygli fyrr.“
- Nú finnst manni nokkuð algengt að stjórnmála-
menn gagnrýni fjölmiðla fyrir fréttaflutning. Á sú
gagnrýni rétt á sér?
„Stundum á hún rétt á sér. í þessari kosningabar-
áttu fannst mér of mikið um að fjölmiðlamenn spyrðu
allir sömu spurninganna og þeir fengu því alltaf sömu
svörin. Stundum er nóg að breyta spurningum og um
leið fá menn töluvert önnur svör.“
- Hver verða forgangsverkefni Samfylkingarinnar í
Hafnarfirði?
„Við munum setja mark okkar á bæjarfélagið frá
fyrsta degi. Strax á fyrsta fundi munum við breyta
hinni pólitisku stjórnskipan, einfalda hana og gera
skilvirkari. Við ætlum að gera bæjarfulltrúana ábyrg-
ari í störfum og auka vinnuskyldu þeirra. Þeir eiga að
vera í forystu hver á sinu málasviði. Forgangsverk-
efni er uppbygging í skóla- og dagvistarmálum. í
kosningabaráttu okkar lögðum við áherslu á að Hafn-
arfjörður yrði ekki áfram dýrasta bæjarfélagiö og
þess vegna munum við lækka fasteignagjöld. En fyrst
og fremst munum við leggja áherslu á að bæjarbúar
finni í allri skipulagsvinnu og uppbyggingu i bæjarfé-
laginu að veriö sé að vinna í samvinnu við þá. Þeim
mun gefast færi á að koma að málum á vinnslustigi
og koma skoðunum sínum á framfæri. Það verður
tekið tillit til sjónarmiöa þeirra."
-KB