Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2002, Page 30
30
Helcjctrblacf JOV LAUGARDAGUR I. JÚNf 2002
—
Upprisa
„Ég átti fleiri andstæðinga inni í flokknum en nienn gerðu sér grein fyr-
ir og þeir voru tilbúnir að fara gegn mér bak við tjöldin þegar flokkur-
inn tapaði í kosningunum. Það er ekkert óeðlilegt og það er engin
kergja í mér gagnvart þeim. Ég er bara að lýsa staðrevndum. Svona er
lífið. Ég er ekki að tala um forystu Sjálfstæðisflokksins því þegar
ákvörðunin um framboð mitt var tekin þá stóð hún heilshugar með
mér,“ segir Árni Sigfússon, verðandi bæjarstjóri í Reykjanesbæ.
DV-mynd Pjetur
á Reykjanesi
Arni Sigfússon er einn af siqurvequrum
sveitarstjórnarkosninqanna en hann
leiddi Sjálfstæðisflokkinn íRegkjanesbæ
yfir 50% markið. Marqir telja að hann hafi
með þessum qlæsta siqri og íIjósi taps
Sjálfstæðisflokksins íReqkjauík risið upp
frá pólitískum dauða.
ÞAÐ ER SOLDIÐ SKEMMTILEGT að fylgjast meö
túlkendum í kjölfar kosninganna. Maður myndi halda
að fátt væri endanlegra og afdráttarlausara en pró-
sentutölur en svo er alls ekki. Menn eru alls ekki á
eitt sáttir um hverjir eru sigurvegarar kosninganna
og þótt ótrúlegt megi virðast fer það nokkuð eftir
flokkslínum hvaða árangur er góður. Menn eru þó all-
ir á eitt sáttir um að Árni Sigfússon sé einn af sigur-
vegurunum en hann leiddi Sjálfstæðisflokkinn yfir
fimmtíu prósenta markið í kosningunum í Reykjanes-
bæ.
Árni, ertu ekki bara afslappaður eftir kosningarn-
ar? spyr ég þar sem við höfum komið okkur fyrir í
herbergi á neðri hæð hússins sem fjölskylda hans
keypti í Reykjanesbæ þegar ákvörðun um framboð
hafði verið tekin. Okkur hafði gengið ágætlega að
finna húsið enda ljósmyndarinn staðkunnugur í
Reykjanesbæ. Fyrir utan tvöfaldan bílskúrinn stóð
Nissan Micra, bifreið Árna. „Hér í Reykjanesbæ þurf-
um við bílskúra til að kæla bílana. Það er óþægilegt
að setjast í heit sætin þegar maður kemur út á morgn-
ana,“ hafði Árni sagt brosandi þegar hann tók á móti
okkur. „Ég átti Micruna i kosningunum 1998 í
Reykjavík og þá var það áhyggjuefni margra að borg-
arstjóraefnið gæti ekki látið sjá sig á svona litlum bíl
- þegar ég stigi út úr honum væri ég mun stærri en
bíllinn. Þetta er kannski dæmi um þrjóskuna í mér.“
Ertu ekki bara afslappaður hafði ég spurt og Ámi
svaraði því játandi - það væri reyndar nóg að gera
við að undirbúa skipulag næstu fjögurra ára. „Verk-
efnaáætlun þessa árs er ákveðin og við munum i meg-
inatriðum fylgja henni þótt ég hafi mikinn áhuga á að
flýta ákveðnum verkefnum sem komu oft upp á
hverfafundum fyrir kosningar. Ég mun fara yfir áætl-
anir sem liggja fyrir um aukið öryggi barna í umferð-
inni og flýta þeim.“
Veðurfarslegir fordómar
„Hér hefur verið Flórídaloftslag frá því við fluttum.
Við höfum verið að gantast með það að eina óánægju-
efnið væri að við þyrftum að kaupa okkur léttari fatn-
að. En í sjálfu sér er þetta ekki mikil breyting; mað-
ur breytist ekki sjálfur. Ég held nándinni við um-
hverfi mitt og einstaklinga. í kosningunum hér hef ég
komist í snertingu við stærri hluta bæjarbúa en hægt
er í Reykjavík.
Það að koma nýr inn í samfélag þýðir að maður er