Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2002, Page 36
36
H <3 f g a rh l a ð H>”V‘ LAUGARDAGU R I. JÚNÍ 2002
Pólitískt
í háborg
Chandra Leuy er eins vel þekkt íBandaríkj-
unum og Monica Leiuinskg. I rúmt ár hefur
hvarf hennar og nú síðast fundur líkams-
leifa hennar íalmenningsgarði í Was-
hington verið á forsíðum blaða og fyrstu
fréttir sjónvarpa og sífellt umfjöllunarefni
fréttaskýrenda. Stúlkan hvarf30. apríl 2001
og var ákaft leitað þar til beinagrind henn-
ar fannst 15. maísl. og staðfest var að hún
var myrt. Höfuðkúpan var brotin.
ÞAÐ SEM GERÐI HVARF CHANDRA að spennandi
fréttaefni var ekki síst hve uppruni hennar og ferill
var líkur stúlkunnar sem var nærri búinn að binda
endi á forsetaferil Clintons. Að því undanskildu að
Monica slapp lifandi frá sínu ævintýri. Feður beggja
stúlknanna eru vel látnir og vel efnaðir læknar í Kali-
forníu og eru fjölskyldurnar af húsi Davíðs. Báðar
voru þær i starfsþjálfun i höfuðborginni og áttu vin-
gott við kvensama stjórnmálamenn sem voru helm-
ingi eldri en þær þegar ástarleikir stóðu hvað hæst.
Ferill Kaliforníustúlkunnar i Washington var í
stuttu máli að eftir að hafa lokið háskólaprófi í
heimaríki sínu í septemer árið 2000, hóf hún starfs-
þjálfun hjá Gary Davis ríkisstjóra. En hún stefndi
hærra og eins og margt ungt efnisfólk hélt hún til höf-
uðborgarinnar og fékk ólaunað starf hjá þeirri deild
alríkislögreglunnar sem sér um fangelsismál. Hugur
hennar stóð til að komast að hjá alríkislögreglunni að
starfsnámi loknu.
Þetta er sú leið sem ungt fólk í Bandaríkjunum vel-
ur til að fá vel launuð opinber störf. Um 50 þúsundir
ungra manna og kvenna sækja árlega til Washington
til að fá þar ólaunuð störf hjá stjómsýslustofnunum
eða komast í starfslið stjórnmálamanna. Þeir sem
standa sig vel í starfsnámi og koma sér í mjúkinn hjá
ráðamönnum geta átt von á ágætum stöðum eða æft
sig til frekari frama í stjórnmálum. Yfirleitt eru það
afkvæmi hinna betri borgara sem komast i eftirsótt
starfsnám. Ekki sakar að fjölskyldurnar láti eitthvað
af hendi rakna í kosningasjóði og dýrmætt er að eiga
áhrifamenn við kjötkatla valdsins þegar koma þarf
verðandi embættismönnum að við starfsnám eða
stjórnmálamönnum til aðstoðar.
Chandra Levy var greinilega hreykin af upphefð
sinni í höfuðborginni og gekk vel í sínu illa launaða
starfi. Hún montaði sig af því við vini sina að eiga
vingott við sér eldri mann sem var áhrifamaður i
stjórnmálum í Washingon. Eftir hvarf hennar leiddi
það til þess að grunur vaknaði um að maðurinn sem
hún sagðist halda við væri Gary Condit, sem var
þingmaður fyrir kjördæmi heimabyggðar hennar.
Skömmu fyrir hvarf nemans hjá fangelsismála-
stofnun var stúlkunni hafnað er hún sótti um fasta
stöðu með tilheyrandi réttindum og skyldum. Þá
hafði hún samband heim og sagðist ætla að koma.
Einnig hafði hún samband við frænku sina og sagöist
vera á heimleið, en hefði einhverjar framtíðaráætlan-
ir og bar ekki á öðru en að allt væri í flnasta lagi hjá
stúlkunni. Síðan hvaf hún eins og jörðin hefði gleypt
hana og var hennar leitað í rúmt ár þar til líkið
fannst i garðinum sem reyndar var búið að leita í
áður.
Kjósendavænn pólitíkus
Þegar lýst var eftir stúlkunni vakti hvarf hennar
gríöarlega athygli fyrir þá sök að fylgst var grannt
með framastúlkunum siðan upp komst um starfs-
þjálfunina sem fram fór í ganginum milli sporlaga
skrifstofunnar i Hvíta húsinu og stöðva forsetaritar-
ans í næsta herbergi, þar sem námsmeyjan fékk blett-
inn í kjólinn sinn, sem móðir hennar varðveitti svo
vel að hann var óvéfengjanlegt sönnunargagn þegar
sýna þurfti í hvaða kroppi hann var framleiddur.
Ekki minnkaði áhuginn þegar upp komst að Chandra
hafði átt í nánu ástarsambandi viö Gary Condit þing-
mann.
Við fyrstu yfirheyrslur neitaði hann að hafa átt
vingott við nemann hjá fangelsismálastofnun en ját-
aði síðar að hafa haldið við stúlkuna. Condit er 53 ára
gamall og var lítið þekktur utan kjördæmis síns og í
morðmál
valdsins
Gary Condit þingmaður var sléttur og felldur póli-
tíkus á yfirborðinu en lauslætisgopi í einkalífinu.
þingsölum á Capitol Hill. Hann var dugmikill stjórn-
málamaður sem kaus að starfa fremur að tjaldabaki
en í sviðsljósinu, sem hann forðaðist, andstætt flest-
um öðrum þeim sem taka þátt í stjórnmálastarfi.
Hann virtist hlédrægur en pólitísk þefvísi hans var
næm og skýrir það frama hans. En hann hafði, eða
hefur, líka persónutöfra, sem farið er að kalla kjós-
endavænleik á leikvelli Davíðs og Ingibjargar Sólrún-
ar.
Þessi hlédrægi þingmaður sem sat í fulltrúadeild-
inni fyrir velmegandi kjördæmi í Kaliforníu varð
heimsfrægur á einni nóttu þegar upp komst um sam-
band hans við fóngulegu stúlkuna sem komst í starfs-
þjálfun hjá opinberri stofnun í sjálfri borg valdsins.
Geðþekkt andlit og silfurgrátt hár þingmannsins var
oft á dag á hverjum sjónvarpsskjá sem vildi kalla sig
fréttamiðil ásamt dökku og úfnu hári stúlkunnar sem
ætlaði að helga sig stjómmálum og opinberri um-
sýslu.
Alríkislögreglan, rannsóknardeildir lögreglunnar í
Washington og her rannsóknarfréttamanna fóru ofan
í saumana á öllum lífsháttum þingmannsins. Hann er
kvæntur og á tvö börn. Hann gengur um glerfínn í
tauinu, vel kllpptur og vandlega greiddur. Fyrir utan
konur er Harley Davidson-mótorhjól eftirlætisleik-
fang hans.
Þrátt fyrir hneykslið sem hann átti þátt í reyndi
Condit að komast í framboð í sjöunda sinn fyrir 18.
kjördæmi Kaliforníu í marsmánuði sl. En félagar
hans í Demókrataflokknum höfnuðu honum í próf-
kjöri svo að nú verður hann að leita sér annarra
starfa.
Rannsóknin á hvarfi Chandra Levy leiddi til þess
að ástarlíf þingmanns 18. kjördæmis Kalifomíu var
gaumgæft af kunnáttufólki. í ljós kom að langt var frá
að Chandra væri eina ástkona hans, heldur átti hann
í tygjum við margar konur um dagana og hafði hann
sérstakan smekk fyrir yngri konum.
Forstöðumaður heittrúarsafnaðar hefur kært þing-
manninn fyrir að hafa átt í tveggja ára ástarsambandi
við dóttur sína sem núna er 18 ára og kveður hana
ganga með barni. Flugfreyja, Anne Marie Smith, ber
að hún hafi verið ástmey Condit í nokkur ár þar til í
maí í fyrra, að hann tók upp samband við ungfrú
Levy. Sagði flugfreyjan svo frá að eitt sinn hafi hún
fundið nokkrar kvenmannsnærbuxur undir rúmi
elskhugans og voru þær bundnar saman. Þetta telur
hún gott dæmi um kynlífssmekk hans.
Heima í héraði kom framferði þingmannsins í Was-
hington á óvart. Þar er hann þekktur fyrir að vera
ástkær heimilisfaöir og hvers manns hugljúfi, sem
allir þekka og geta leitað til. Engum datt í hug að
hann stundaði allt annað líferni í höfuðborginni þar
sem hann tekur þátt í löggjafarstarfi.
í Washington eru stjórnmálamenn aftur á móti
hissa á hvernig þingmaðurinn hefur farið á bak við
þá. Þar er hans höfuðsök að neita sakargiftum í
fyrstu og láta síðan koma upp um sig. Þess hefur ver-
ið krafist að hann láti af þingmennsku en kjörtímabil-
inu lýkur í haust. En Condit situr enn sem fastast.
Þeir sem best þekkja til segja að hjúskaparbrotið og
viðhaldið við nema í starfsþjálfun sé ekki hið versta
Chandra Levy hvarf fyrir rúmu ári og fannst beina-
grind hennar með brotna kúpu í næstliðinni viku.
heldur að hafa skrökvað að lögreglunni og tafið rann-
sóknina á hvarfi stúlkunnar. Bent er á að Clinton
bjargaði sér úr sinni klípu með því að játa að
rennilásinn var auðveldur viðureignar þegar Monica
var annars vegar. Það er ekki sjálfur verknaðurinn
sem er athugaverður í Washington heldur hitt að
skrökva að lögreglunni og tefja fyrir rannsókn máls
eins og Condit gerði fyrst í stað.
Leit verður að morðmáli
Garðurinn sem beinagrindin fannst í er víða illur
yfirferðar og ekki er sjálfgefið að lik finnist sem
falið er þar í kjarrgróðri. Fólk skokkar í garðinum
og það gerði Chandra oft þegar hún bjó í Was-
hington. Beinagrindin fannst í um 6,5 km fjarlægð
frá íbúð hennar. Það var hundur sem fólk var að
skokka með sem fann beinagrindina sem í ljós kom
að voru líkamsleifar stúlkunnar sem búið var að
leita að í rúmt ár. Var búið að kemba garðinn aftur
og aftur en án árangurs. Lögreglustjóri borgarinnar
segir að rannsóknin standi enn yfir og því sé ekki
hægt að segja frá öllum atriðum sem lögreglan hef-
ur komist á snoðir um.
Hitt er ljóst að þarna eru leifar týndu stúlkunnar.
Við rannsókn á tönnum sannaðist það. Þá hefur lög-
reglustjórinn upplýst að höfuðkúpan sé brotin og
hafi Chandra augljóslega verið myrt og beinist rann-
sóknin að því hver hafi verið þar að verki. Ekki er
sannað að morðið hafi verið framið í garðinum, en
lögreglustjórinn segir að beinin hafi legið þarna
lengi, en getur ekki um hve lengi.
Vitað er að Chandra var að yfirgefa Washington
daginn sem hún hvarf. En hún hafði farið út og skil-
ið eftir eigur sínar niðurpakkaðar í íbúðinni. Þar
var einnig veski hennar og skilríki. Hún tók ekkert
með sér nema lykla að íbúðinni. Verið er að fín-
kemba svæðið þar sem líkið fannst í þeirri von að
einhverjar vísbendingar komi í ljós.
Engin ákæra hefur verið lögð fram í málinu og
engin sönnunargögn komið fram sem benda til að
Condit hafi framið verknaðinn eða eigi neinn þátt í
hvarfí stúlkunnar. En verið er að athuga hvort hann
eða aðstoðarmenn hans hafi leynt gögnum eða tafið
fyrir að Chandra fyndist.
Langt er frá að það sé óþekkt að ráðist sé á skokk-
ara eða annað fólk í almenningsgörðum eða opnum
svæðum þar sem fáir eru á ferð eða illa sést til árás-
armanna. Því voru menn, sem áður höfðu veist að
fólki í garðinum þar sem Chandra skokkaði, yfir-
heyrðir en árangurslaust.
Fram til þess tíma að kennsl voru borin á líkið
beindist rannsóknin að leit að horfinni manneskju.
En nú er verið að rannsaka morðmál og er byrjað á
upphafsreit á ný. Verða nú öll vitni og grunaðir yf-
irheyrðir aftur í þeirri von að morðingi stúlkunnar
sem leitað var í háborg valdsins finnist.
Mál þetta er fyrir löngu komið á það stig að vera
eitt af frægustu glæpamálum í Bandaríkjunum.
Verður einskis látið ófreistað að finna morðingjann,
því bæði er málið stórpólitískt og óþolandi að ungar
stúlkur geti ekki óhultar starfað og hrært sig um í
borg sem setur heiminum lög og lífsreglur.