Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2002, Page 45
LAUGARDAGUR I. JÚNÍ 2002
H&lQorhlaö H>"Vr
45
Leikmyndateiknarar eru mikilvægur liður í
uppsetningu leikverka. Samband þeirra við
leikstjórana er oft mjög náið og í samvinnu
þeirra verður til heildarhugmyndafræði
sýningarinnar. „Ég sá fram á það að einver-
an á vinnustofunni yrði algjör dauði,“ segir Snorri
Freyr. „Hlutverk myndlistar í samfélaginu hefur líka
breyst mikið; ég tek undir með Duchamp sem sagði að
listin væri dauð og menn ættu að snúa sér að ein-
hverju öðru. Ég leitaði því að vettvangi þar sem ég gat
komið list minni á framfæri. Samspilið við aðra sem
koma að sýningum gerir vinnuna spennandi og frjóa.
Leikmyndahönnun er lifandi listform.“
Snorri segir að það séu ýmis verkefni í uppsiglingu.
„Þetta er svona sitt lítið af hverju. Fyrir framan
mig liggur handrit að leikriti sem verður sett
upp í Þjóöleikhúsinu í haust og ég teikna
leikmynd fyrir.“
Snorri Freyr er ekki viss um hvaða
leikmynd hann er stoltastur af.
, „Það er yfirleitt það sem ég var
J að fást við síðast,“ segir Snorri
yr Freyr. „Ég var mjög sáttur við
f Öndvegiskonur. Það er alltaf þannig
X aö þegar allt smellur saman, þá er
/ gaman að vera til.“
Nú eru
OPIÐ
a
'i)
Drifðu þig í dag og fáðu
dágóðan afslátt!
Spring-, iatex-, svamp- og
eggjabakkadýnur
og margt f leira með
15-30% afslaetti!
1.11 til 15_____________________
Mörkin 4*108 Reykjavík
Sími 533 3500 • www.lystadun.is