Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2002, Qupperneq 53
LAUGARDAGUR I. JÚNÍ 2002
HelQctrblað DV
53
Aðaltrompið hjá Bílabúð Benna verður eflaust Porsche Cayenne-jeppinn sem frumsýndur verður í liaust.
P. Samúelsson kynnti Corollu
Lítið verður um stóra viðburði hjá Toyota-umboðinu
á árinu en það kynnti nýja Corollu í janúar. „í haust
kemur Land Cruiser 100 með nokkrum breytingum,"
sagði Bjöm Víglundsson, markaðsstjóri P. Samúelsson-
ar. „Við eigum svo von á alveg nýjum Land Cruiser 90
en hann kemur nýr á næsta ári.“ Nýlega kom hingað
ný Corolla og Double Cab með nýrri dísOvél en fleira
er ekki á döfinni hjá P. Samúelssyni hf. í bili.
Bernhard meö margt nýtt
Bemhard er um það bil að fara að kynna nýjan CRV-
jeppling sem er mikið breyttur frá fyrri gerð. Að sögn
Gunnars Gunnarssonar, markaðsstjóra Bemhard hf.,
munu þeir svo á haustmánuðum kynna nýjar útfærsl-
ur á 307. „Hann verður boðinn í tveimur útfærslum,
langbaksútgáfan af funm dyra bílnum og svo lúxusút-
gáfa með glerþaki sem höfðar kannski til annars mark-
hóps.“ Bemhard mun síðan kynna langbaksútfærslu af
206 í haust og nýja útfærslu af átta manna fjölnotabíi,
Peugeot 807. „Svo er von á nýjum jeppa frá Honda, sem
heitir Pilot, en ekki er búið að kynna hann enn þá.
Hann er áætlaður í sölu hjá okkur vorið 2003 og er
stærri en CRV, enda átta manna fjórhjóladrifsbíll. Það
er markaður fyrir þennan bíl og við munum alveg ör-
ugglega bjóða hann í okkar línu,“ sagði Gunnar.
Hyundai Clix ier nýjasti smábíllinn frá Kóreu en ekki
er vitað nákvæmlega hvenær liann kemur hingað til
lands.
B&L með stórt og smátt
Að sögn Guðmundar Gíslasonar, markaðsstjóra B&L,
munu þeir liklega ekki koma með nýju bílana frá
Renault, Vel Satis og Avanttime. „Það er verið að skoða
það en ekki hefur verið tekin nein ákvörðun enn þá.“
Hyundai Clix er nýr bíll frá Hyundai og er að vissu
leyti stefnumarkandi bill frá þeim. „Það er ekki alveg
klárt hvenær hann kemur hingað," sagði Guðmundur.
„Við erum að fá nýja Range Rover-jeppann en þessi bUl
er mikil bylting hjá Land Rover og er aðeins þriðja út-
gáfan frá því að þeir komu fyrst á markað.“ Loks er
nýja 7-línan nýkomin til landsins en það er tæknilega
mjög fullkominn bUl.
Suzuki-bílar fá dísilvélar
Þeir hjá Suzuki bUum eru nýbúnir að kynna fimm
dyra útgáfu af Liana en eiga síðan von á fjögurra dyra
bUnum á árinu. Að sögn Úlfars Hinrikssonar, fram-
kvæmdastjóra Suzuki bUa, ætla þeir ekki að koma með
nýjan Alto. „Það verður bara að segjast eins og er að
það er ekki mikUl markaður fyrir minnstu smábUana
héma,“ sagði Úlfar. Þá er von á nýjum dísUvélum í
Grand Vitara í haust frá PSA.
Ingvar Helgason fær öfluga jeppa
Helgi Ingvarsson, framkvæmdastjóri Lngvars Helga-
sonar hf., sagði að þeir hefðu verið duglegir við að
kynna nýja bUa að undanfomu, meðal annars nýjan
Nóg er af bílum á leiðinni frá Peugeot. í Genf voru
sýndir þrír nýir bílar sem allir koma á árinu, Peu-
geot 206 SW, 307 SW og loks 807 fjölnotabíllinn.
Daewoo Kalos er smábíll frá Daewoo sem kemur inn
á milli Matiz og Lanos. Ilann var frumsýndur á bíla-
sýningunni í Genf í mars sl.
Mikiö á döfinni hjá Benna
Benedikt Eyjólfsson, framkvæmdastjóri BUabúðar
Benna, sagði að innan skamms kæmi nýr jeppi frá
SsangYoung, að nafhi Rexton. „Rexton er stærri heldur
en Musso og er meiri lúxusbUl en Musso. Hann verður
á gormum aUan hringinn og er með um 200 mm lengra
hjólahaf en tU dæmis Musso og Land Cruiser 90.“
Rexton kemur svo í haust með 175 hestafla dísUvél en
þá kemur einnig nýr Kalos frá Daewoo og í sumar kem-
ur svo bUl sem heitir Magnus og er stærri en Leganza.
„Það verður ný sex strokka vél í honum, þverstæð 2,5
lítra línuvél sem er hönnuð af Porsche," sagði Benni.
Frá Porsche kemur Cayenne-jeppinn hingað i haust.
„Það verður vonandi einhver flugeldasýning í kringum
hann þegar hann kemur,“ sagði Benni. „Hann verður
með læstu afturdrifi og mUlikassa og það verður hægt
að hækka hann og lækka. Við munum jafhvel smíða i
hann læsingu fyrir framdriflð ef Porsche gerir það
ekki, þannig að þetta verður læstur jeppi í bak og fyr-
ir,“ sagði Benni að lokum.
SÚBARU
Subaru Forester var kynntur í Genf með nýju útliti. Á myndinni eru Júlíus
Vífill Ingvarsson, bróðir Helga, og Kunio Ishigami, framkvæmdastjóri Evr-
ópudeildar Subaru.
Nissan X-TraU og Primera. „Terrano er einnig að koma
með nýrri vél, það er Patrol-vélinni, sem er þriggja
lítra dísUvél. Þeir bUar ættu kannski að koma í júlí,“
sagði Helgi. Nissan Double Cab kemur siðsumars en
hann verður með kraftmestu dísUvélinni á markaðin-
um. „Við munum ekki taka hann í King Cab-útgáfunni
en vélm er um 130 hestöfl. í Subaru erum við að fá nýj-
an Forester einhvem tímann á miðju sumri þannig að
þetta verður aUt á svipuðum tima hjá okkur," sagði
Helgi. Loks er væntanleg ný og gjörbreytt Nissan Micra
að ári.
Mikið er á döfinni hjá Ford á ár-
inu. Von er á nýrri Fiestu og fjöl-
nota útgáfu af henni sem heitir
Fusion.
Með margt í pokahorninu
Að sögn EgUs Jóhannssonar,
forstjóra Brimborgar, er nýr
Citroen C3 næstur í röðinni af nýj-
um bUum frá þeim. „Þetta er að
mörgu leyti sniðugur bUl sem við
munum fá á allra næstu vikum. Þá
fáum við einnig Fiestuna, en við
tökum hana með 1,4 lítra og 1,6
lítra vélum. Svo emm við að setja
sportbUinn Focus ST170 og Mond-
eo ST220 á verðlista en höfum ekki
tekið þá á lager enn þá. Það er
aldrei að vita nema við komum
með RS-bUinn lika,“ sagði EgUl.
Ford Fusion er nýr bíU frá Brim-
Volvo XC90-jepplingurinn kcmur
til íslands í október og er þar
inikill og vel búinn bíll á ferðinni.
borg sem er blanda af jepplingi,
smábU og fjölnotabíl. „Hann er
stærri en Fiesta þó að hann sé
byggður á sama undirvagni og
með stærra skotti,“ sagði EgUl.
„Hann kemur eingöngu með fram-
drifi en við ætlum að taka hann
líka með spólvöm fyrir okkar
markað," sagði EgiU. í Volvo-deUd-
inni kemur svo nýi XC90-jeppling-
urinn í október. „Það verður
spennandi að bjóða upp á þennan
bU i þessum flokki, ekki síst vegna
þess að hann er með sérlega
skemmtUegri dísUvél sem er 163
hestöfl. Svo kemur Volvo Cross
Country með disUvélinni i sum-
ar,“ sagði EgUl að lokum. -NG
Notcaðir
bilar
Alqer gwllmoll Ek. odeíns 38 Þ.
Þokuljós. ÁBS, Loftpú&ar, Ný sko&a&ur,
næsta skoðun 2004, Höruliu þus km
skoðun og olíuslápyi. Asett verð samkv
.Bíló" kr. 835.000. Allt o& föguro ára
Dilafán me& 239700 í útborgun.
Tilboðsverð lcr 799.000
Istraktor
Smiðsbúð 2 - Graðabæ
Simi 5 400 800
Einn eigandi, Reyklaus.
Ek. 78.000 17" álfelgur.
Spoiler á hli&um Þjófavarnarkerfi. Ný
yrirrarinn og í toppstandi.
Asett ver& 1.445.000
■0.000
. _ ilegu
Ek. 77.000. Rauðr. ABS ogloftpuðar.
Ný skoðaður. Dráttarbeisli. Tilbúinn
fyrir tjaldvagnin eða kerruna. Ný
yfirfarinn með 80 þ km skoðun, ný
timareim. Asett verð samkvæmt „Biló"
kr. 880.000
Tilboðsverð kr 699.000