Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2002, Síða 1
Til umræðu hefur komið að vegna
skipafæðar Landshelgisgæslunnar
verði hafrannsóknarskipið Bjarni Sæ-
mundsson RE-30 notað hluta úr árinu
sem varðskip. Landhelgisgæslan hef-
ur aðeins yfir að ráða Tý og Ægi, eft-
ir að Óðni var lagt, og bæði skipin eru
nokkuð komin til ára sinna, smíðuð
1975 og 1968.
Dagmar Sigurðardóttir, upplýsinga-
fulltrúi Landhelgisgæslunnar, segir
að ekki sé enn ákveðið hvemig fyrir-
komulagi á notkun Bjama Sæmunds-
sonar verði háttað en verið sé að
skoða málið af fullri alvöru.
Hafsteinn Hafsteinsson, forstjóri
Landhelgisgæslunnar, segir að til
þessa dags hafi hugsanleg leiga á
Bjarna Sæmundssyni aðallega verið
til umræðu milli dómsmálaráðuneytis
og sjávarútvegsráðuneytis. Upphaf-
lega var klössun á Óðni metin á 40
milljónir króna en nú er talið hugsan-
legt að koma skipinu í haffært stand
fyrir 10 milljónir króna og megi þá
nota skipið næstu 2 til 3 árin.
Fjölnota skip
„Við viljum hafa mjög gott samstarf
við Hafrannsóknastofnun en skip
hennar henta ekki vel til gæslustarfa
og eins henta varðskipin ekki vel til
rannsóknarstarfa. En það væri mögu-
legt að samræma ýmislegt hjá okkur
og kannski tímabært að huga að því
að sameina skipareksturinn, stofna
skiparekstur ríkisins. Okkar hug-
myndir vegna smíði á nýju varðskipi
hafa beinst að því að smíða íjölnota
skip til þess hlutverks sem okkur er
ætlað og til mengunarvama og vis-
indastarfa. Þegar er hafið samstarf
milli Flugmálastjórnar og Landhelgis-
gæslunnar. Smíði nýs varðskips hefur
verið lengi í athugun hjá Rikiskaup-
um og við vonum að útboðsgögn verði
birt fyrir áramót. Smíðin má ekki
verða eitthvert tilraunaverkefni og
við smíðina verður að nýta íslenska
þekkingu," segir Hafsteinn Hafsteins-
son.
Hlaðnir verkefnum
Jóhann Sigurjónsson, forstjóri Haf-
rannsóknastofnunar, segir að spurst
hafi verið fyrir um skipið af hálfu
Landhelgisgæslunnar en engin niður-
staða hafi fengist í málið. Á næsta ári
hefur Hafrannsóknastofnun takmark-
að svigrúm til þess að leigja skipið
þar sem bæði Bjami Sæmundsson og
Árni Friðriksson, sem nú er við síld-
arrannsóknir, verða hlaðnir verkefh-
um vegna hafsbotnsmælinga í aukn-
um mæli fyrir íslensk stjórnvöld. Auk
þess standi til miklar endurbætur á
Bjarna Sæmundssyni á fyrri hluta
næsta árs. -GG
• Hafrannsóknarskipið Bjarni Sæ-
mundsson og varðskipið Óðinn
snúa saman stöfnum í Reykjavíkur-
höfn. Á næstu vikum ræðst hvort
þau hafa hlutverkaskipti við gæslu
á 200 mílna fiskveiðilögsögu ís-
lands sem fékkst 15. október
1975 eftir hart þorskastríð.
Landhelgisgæslan leitar allra ráða eftir að Óðni var lagt og varðskipum fækkaði:
Vill leigja Bjarna Sæmundsson
til að gæta landhelginnar
Einelti í fangelsum:
Tvöföld
refsing
Þeir eru í neðstu tröppunni.
Þeir eru stundum lagðir í einelti.
Þeir eiga ekki möguleika.
Þetta segja viðmælendur DV,
núverandi og fyrrum fangar, um
stöðu kynferðisbrotamanna í sam-
félaginu innan veggja fangelsa. At-
hygli vakti hve allir virtust á einu
máli og svöruðu ákveðið. Kynferð-
isglæpamenn taka í rauninni út
tvöfalda refsingu," sagði fangi.
Viðmælendur DV segja að fáir
kynferðisbrotamenn nái að verða
„jafningjar" annarra í fangasamfé-
laginu. Þeir séu stundum látnir af-
skiptir með þögninni, þeir áreittir
með smáskærum eða jafnvel geng-
ið i skrokk á þeim. -Ótt
■ NÁNARI UMFJÖLLUN
Á BLS. 4 í DAG
NV-kjördæmi:
Vilhjálmur kærir
„Það liggur fyrir að Vilhjálmur
Egilsson mun kæra niðurstöðu
prófkjörsins til stjórnar kjördæm-
isráðsins, þannig að það er sjálf-
gefið að stjómin verður kölluð
saman til að fialla um það,“ segir
Ágúst Þór Bragason, sem situr í
stjórn kjördæmisráðs Sjálfstæðis-
flokksins i Norðvesturkjördæmi.
Ágúst Þór var jafnframt einn
þeirra sem stóðu að því á dögun-
um að óska eftir því, að miðstjórn
flokksins fiallaði efnislega um
próíkjörið. Miðstjómin ákvað í
gær að taka ekki efnislega af-
stöðu til erindisins, þar sem ekki
hefði verið ágreiningur uppi um
prófkjörið í stjóm kjördæmis-
ráðsins.
Ágúst Þór segir að sá misskiln-
ingur virðist vera uppi, að stjóm
ráðsins hafi lagt blessun sína yfir
prófkjörið. „Stjórnin kom saman
í Hrútafirði en hún tók enga af-
stöðu til prófkjörsins og hefur
aldrei gert, það eru alveg hreinar
línur,“ segir Ágúst Þór. Það lítur
þvi út fyrir að ágreiningurinn í
stjórn kjördæmisráðs, sem er for-
senda þess að miðstjóm flokksins
fialli um málið, verði brátt form-
lega til staðar. -ÓTG
■ NÁNARI UMFJÖLLUN
Á BLS. 4 í DAG
JÓLAGETRAUN DV:
Stórglæsi-
legir
vinningar
í boði
18
JÓN ARNÓR AÐ GERA ÞAÐ
GOTT í ÞÝSKALANDI:
Fín atvinna
að leika
körfubolta
PS
otrúlegt
^saft
Nýja Pixel Plus
tæknin frá Philips kallarfram mun
betri myndgæði en áður hefur þekkst.
Heimilistæki
32" Philips Pixel Plus tækið hefur sópað að sér verðlaunum og i umboumhn
fékk nýverið EISA verðlaunin sem besta sjónvarp Evrópu 2002-2003.1 UMUM3/'ur
Köt[uf?úúið?
Piparkökuhúsin verda til sýnis í Kringlunni alla vikuna