Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2002, Qupperneq 5
MÁNUDAGUR 16. DESEMBER 2002
23
Snæfellssigur í
miklum spennuleik
- góð barátta og skynsamur leikur færði þeim óvæntan sigur gegn ÍR
Gríðarlega spennandi leikur í
Seljaskóla á föstudagskvöld í
Intersportdeildinni í körfubolta
endaði með sigri Snæfells á
heimamönnum í ÍR, 88-86. Úrslit-
in verða að teljast nokkuð óvænt
miðað við stöðu liðanna í deild-
inni og gengi þeirra í síðustu
leikjum. Sigurinn hefði getað lent
hvorum megin sem var og jafnvel
hægt að rökstyðja að bæði lið
hefðu átt skilið sigur í leiknum.
Snæfell byrjaði leikinn betur en
áður en fyrsti leikhluti var á enda
var orðið jafnræði með liðunum.
Þannig var leikurinn það sem eft-
ir var. Nokkur hraði var í leikn-
um og skapaðist hann meðal ann-
ars vegna pressuvarnar heima-
manna. Liðin skiptust á að vera
með forystuna en náðu aldrei
neinu teljandi forskoti. I hálfleik
leiddi lR með einu stigi.
Síðari hálfleikur var spennu-
þrunginn. Bæði lið voru staðráðin
í að ná sigri. Snæfellingar virtust
um miðjan leik vera í vandræðum
með sóknarleikinn. Pressuvörn
og 3-2 svæðisvörn heimamanna
var kraftmikil á þessum tíma og
voru þeir að vinna boltann oft á
þessum tíma. Þeim tókst hins veg-
ar ekki að slíta sig frá gestunum.
Undir lokin var spennan orðin
gríðarleg. Hlynur Bæringsson
skoraði úr tveimur vítaskotum
þegar innan við mínúta var til
leiksloka og kom Snæfelli í
þriggja stiga forystu og það var of
stór biti fyrir ÍR. Verðskuldaður
sigur þó að hann hefði vel getað
lent hinum megin.
ÍR-ingar ollu vonbrigöum á heimavelli gegn Snæfelli. Hér sækir ÍR-ingurinn Eiríkur Önundarson aö körfu gestanna
en hann gerði 11 stig í leiknum og hefur oft áöur leikiö betur eins og IR-liöiö allt saman.
DV-mynd E.ól.
Hjá ÍR voru það Sigurður Þor-
valdsson og Ómar Örn Sævarsson
sem voru að spila einna best. Lyk-
illeikmaður í liði ÍR, Eiríkur Ön-
undarson, náði sér ekki á strik og
munar um minna. Ungur leik-
maöur, Ólafur Þórisson, kom inn
á í síðari hálfleik með sjálfs-
traustið í hámarki og setti nokkr-
ar góðar körfur.
Hjá Snæfelli átti Clifton Bush
góðan leik. Hlynur Bæringsson
var drjúgur, sérlega í fráköstum
og vörðum skotum, en hann tók
sautján fráköst og varði sjö skot.
Jón Ólafur Jónsson var atkvæða-
mikill í síðari hálfleik og leik-
stjórnandi þeirra, Helgi Guð-
mundsson, stóð einnig fyrir sínu
þrátt fyrir að tapa boltanum
nokkuð oft. Snæfell er þar með
komið með átta stig að loknum
tíu umferðum og í baráttu um
sæti í úrslitakeppninni.
Ef þeir halda áfram að spila
eins og þeir gerðu í þessum leik
koma þeir til með að velgja mörg-
um liðum undir uggum það sem
eftir er vetrar. Þetta var hins veg-
ar blóðugt tap hjá ÍR-ingum því
þeir eru í gríðarlega harðri bar-
áttu í efri hluta deildarinnar og
að tapa fyrir liði sem er neðar i
töflunni á heimavelli er ekki
ásættanlegt.
-MOS
igurinn
Ivægur
Pétur Ingvarsson,
þjálfari Hamars
„Þetta var okkur dýrmætur
sigur og við erum farnir að eygja
úrslitakeppnina með þessu
áframhaldi," sagði Pétur Ingvars-
son, þjálfari Hamars, eftir leikinn
gegn Skallagrími á föstudaginn.
Þrátt fyrir allt er ég ánægöur
„Við byrjuðum vel og náðum
upp óvenjugóðu forskoti. Munur-
inn var orðinn 20 stig og þá slök-
uðum við verulega á. Auðvitað á
það ekki að gerast og menn ætla
sér það ekki en eitthvað er það
samt aftast í hausnum sem gírar
menn niður. Þrátt fyrir þetta er
ég ánægður með leikinn og sigur-
inn var mikilvægur."
Hamarsmenn náðu 10 stiga for-
skoti strax í upphafi sem gestirn-
ir náðu að minnka niður í eitt
stig. Það var síðan drifkraftur
O’Kelleys sem fleytti Hamar fram-
úr aftur og munurinn varð aftur
10 stig og jókst enn frekar í 2.
leikhluta.
í fyrstu tveimur leikhlutunum
höfðu heimamenn algjöra yfir-
burði í leiknum. Á meðan Skall-
arnir, sem virkuðu þungir, voru
að hitta illa og pirra sig skiptust
þeir Svavar Birgisson og Lárus
Jónsson á að skora fyrir gestina. í
hálfleik var staðan 60-44 og fátt í
spilunum sem sýndi að Borgnes-
ingar færu heim meö bros á vör.
Sport
ÍR-Snæfell 86-88
2-0, 4-9, 10-18, 18-20, (22-24), 24-24,
28-31, 37-33, 43-41, (48-47), 50-47, 5549,
58-58, 63-63, (66-68), 69-68, 74-73, 80-81,
84-83, 86-88.
Stig ÍR: Eugene Christopher 26, Ólafur
Þórisson 16, Sigurður Þorvaldsson 12,
Eirikur Önundarson 11, Ómar Öm Sæv-
arsson 8, Hreggviður Magnússon 5,
Benedikt Pálsson 4, Fannar Helgason 4.
Stig Snœfells: Clifton Bush 36, Hlynur
Bæringsson 13, Helgi Guðmundsson 13,
Jón ólafur Jónsson 11, Lýður Vignisson
6, Georgi Bujukliev 5, Sigurbjöm Þórð-
arson 4.
Dómarar (1-10):
Einar Þór
Skarphéðinsson og
Georg Andersen
(8)
Gϗi leiks
(1-10): 8.
Áhorfendur: 200.
Maöur
Hlynur Bæringsson, Snæfelli.
Fráköst: ÍR 31 (13 í sókn, 18 í vöm, Ómar
10, 3 í sókn), Snæfell 44 (18 í sókn, 26 í vöm,
Hlynur 17, 6 i sókn).
Stoðsendingar: ÍR 19 (Ólafur J. 4, Eirík-
ur 4, Snæfell 18 (Helgi 7).
Stolnir boltar: ÍR 13 (Eiríkur 3), Snæfell
6 (Helgi 2).
Tapaðir boltar: ÍR 13, Snæfell 20.
Varin skot: ÍR 4 ( Ómar 4), Snæfell 12
(Hlynur 7.).
3ja stiga: ÍR 23/6 (38%), SnæfeU 28/8
(42%).
Víti: ÍR 14/14 (100%), Snæfell 21/16
(56%).
Hamar-Skallagrímur 104-99
4-0, 12-2, 14-13, 26-15, (28-17), 28-19,
35-22, 44-26, 52-31, 58-38, (6044), 6244,
68-52, 74-62, 80-70, (85-72), 88-72, 92-81,
98-88, 101-91, 104-99.
Stig Hamars: Robert O'KeUey 36, Svav-
ar Birgisson 28, Láras Jónsson 19, Svav-
ar PáU Pálsson 10, Marvin Valdimarsson
4, Hallgrímur Brynjólfsson 3, Hjalti Jón
Pálsson 2, Ægir Gunnarsson 2.
Stig Skallagrims: Valur Ingimundar-
son 29, Hafþór Gunnarsson 23, Pétur
Már Sigurðsson 25, Isaac Hawkins 14,
Ari Gunnarsson 4, Finnur Jónsson 2,
Pálmi Þór Sævarsson 2.
Dómarar (1-10):
Eriingur
Erlingsson og
Sigmundur Már
Herbertsson (6).
Gœði leiks
(1-10): 6.
Áhorfendur: 17
Maöur leiksins:
Robert O'Kelly, Hamri.
Fráköst: Hamar 40 (18 i sókn, 22 í vöm,
Svavar B. 10), SkaUagrimur 39 (11 í sókn, 28
í vöm, Valur 13).
Stoðsendingar: Hamar 17 (Láras 8),
SkaUagrimur 18 (Hafþór 8).
Stolnir boltar: Hamar 13 (Pétur 4),
Skallagrímur 9 (Valur 3).
Tapaðir boltar: Hamar 10, Skallagrímur
14.
Varin skot: Hamar 4 (Pétur 3), Skalla-
grímur 0
3ja stiga: Hamar 22/6 (38%), SkaUagrím-
ur 26/9 (29).
Víti: Hamar 25/16 (62%), Skallagrimur
25/19 (76%).
Það var hins vegar allur annar
bragur á leik gestanna í síðari
hálfleik. Valur Ingimundarson
dró vagninn og skoraði hverja
glæsikörfuna á fætur annarri.
Hann var félögum sínum mikil
hvatning og þeir notuðu hann
mikið uppi á meðan, frekar en
Kanann hávaxna, Isaac Hawkins,
sem var aðeins áhorfandi að
leiknum á köflum enda vel gætt af
Svavari Birgissyni. Hvað sem
Hamarsmenn reyndu gekk þeim
ekkert að hitta og sérstaklega
voru þriggja stiga skotin illa nýtt.
Munurinn minnkaði óðfluga og
þegar tæp mínúta var til stefnu
var forskot Hamars aðeins 4 stig.
Þrátt fyrir mikinn hamagang á
lokamínútunni komust gestirnir
ekki nær og Hamar vann sann-
gjarnan sigur.
Heimamenn högnuðust á
mistökum Skallanna
Hamarsmenn högnuðust mikið
á mistökum Skallanna framan af
leiknum. O’Kelley og Svavar B.
voru bestir í upphafi leiks ásamt
Lárusi og Svavar Páll var sterkur
í vörninni. Þá var Pétur duglegur
við að verja og stela boltum. Hjá
gestunum var Valur bestur ásamt
Hafþóri og Pétur Már átti ágæta
kafla.
-gks