Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2002, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2002, Qupperneq 6
24 MÁNUDAGUR 16. DESEMBER 2002 DV Sport íJB . I <4 Darrell Flake átti stðr ieik fyrii KR-inga i Ijónagryfjunni. Hann skoraöi 30 stig og tók níu fráköst. ^ Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari KR: Anægður með stigin - KR skellti Njarðvík í Ljónagryfjunni KR skellti sér á toppinn í Inter- sportdeildinni er þeir sigruðu Njarðvíkinga í Ljónagryfjunni á föstudagskvöld. KR leiddi í hálfleik, 43-45, og í síðari hálfleik náðu þeir að halda heimamönnum i hæfilegri fjarlægð og sigruðu að lokum, 86-93. KR lék án Amars Kárasonar og Skarphéðins Ingasonar að þessu sinni og Baldur Ólafsson var því í byrjunarliði KR í fyrsta sinn í vet- ur. Þaö var jafnræði með liðunum i fyrsta leikhluta og staðan að honum loknum 24-24. Hunter var funheit- ur hjá heimamönnum og gerði 4 3ja stiga körfur i fyrri hálfleik. Hann kom sínum mönnum í 34-27 með einni slíkri um miðjan annan leik- hluta en KR náði með mikilli bar- áttu að saxa á forskotið og Flake slapp úr strangri gæslu á síðustu mínútu hálfleiksins. Hann gerði þá 6 af 9 stigum sínum í fyrri hálfleik og kom sínum mönnum í tveggja stiga forskot fyrir hlé. Flake var svo allt í öllu á fyrstu 5 mínútum síðari hálfleiks, gerði þá 9 stig og KR var komið 7 stig yfir. Næst var komið að Magna Haf- steinssyni en hann gerði 8 stig í röð fyrir KR og enn var munurinn 7 stig. Njarðvíkingar náðu að minnka muninn í 4 stig en það var svo Jóel Ingi Sæmundsson sem kom KR í 65-71 áður en þriðja leikhluta lauk. Jóel var aftur á ferðinni í upphafi fjórða leikhluta og fljótlega voru KR-ingar komnir i 13 stiga for- ystu. Þá var komið að Baldri Ólafs- syni. Hann gerði 3 körfur á stuttum tíma og hélt muninum í 13 stigum en á síðustu 2 mínútum leiksins pressuðu heimamenn og freistuðu þess að minnka muninn. Með klaufaskap KR og baráttu Njarðvík- inga í bland náðu þeir muninum niður í 5 stig þegar tæp mínúta var eftir en lengra komust þeir ekki og mikilvægur KR-sigur var staðreynd. G.J. Hunter átti stórleik í sókn- inni hjá UMFN en hann var reynd- ar sá eini sem lék af eðlilegri getu í sókninni. Af þessum leik að dæma er ljóst að hann er sterkari í skot- bakvarðarstöðunni og spurning hvort Njarðvíkingar ná að púsla hlutunum þannig að hann fái að njóta sín í þeirri stöðu. Friðrik Stef- ánsson lék mjög vel í fyrri hálfleik og þá átti Ólafur Aron ágætan leik i leikstjórnandahlutverkinu en hann lék reyndar lítið í síðari hálfleik. Darrell Flake var besti maður KR eins og oftast. Hann átti erfitt upp- dráttar í fyrri hálfleik en reif sig upp í lok hálfleiksins og sýndi mátt sinn í síðari hálfleik. Magnús Helgason og Baldur Ólafsson áttu einnig skinandi leik og Baldur sýndi tilburði undir körfunni í síð- ari hálfleik sem Ingi Þór KR-þjálfari hefur eflaust lengi beðið eftir. Þá er ógetið góðrar frammistöðu Jóels Inga sem skilaði 7 stigum á 12 mín- útum. „Ég er mjög ósáttur við að tapa þessum leik. Við erum hreinlega ekki að fá neitt frá öðrum en Hunt- er í sókninni. Vörnin hefði líka á köflum mátt vera betri. Ég var ánægður með vörnina á Flake í fyrri hálfleik en við réðum illa við hann og Baldur í síðari hálfleik. Það er ljóst að stóru mennirnir þeirra unnu einvígið hér í kvöld. Þeir voru mun stöðugri og kláruðu sin færi vel,“ sagði Friðrik Ragnars- son, þjálfari Njarðvíkinga, eftir leik. „Ég er mjög ánægður með að koma i Njarðvík og sigra, það leika það ekki margir eftir. Ég er samt ekki ánægður með hvemig menn klára leikinn en bakvarðarleysið er að trufla okkur enn og aftur og aðr- ir voru hreinlega að fela sig þegar á þurfti að halda. En við stóðumst áhlaupið og ég er ánægður með það og stigin tvö eru dýrmæt. Þú hlýt- ur að vera ánægður með frammi- stöðu Baldurs í kvöld? Baldur fékk tækifæri í dag, Skarphéðinn var veikur og Baldur nýtti sitt tækifæri vel og var drjúgur á lokakaflanum þegar Njarðvíkingamir voru að saxa á þetta, einnig átti Jóel Ingi fina innkomu af bekknum og bekk- urinn var að skila okkur miklu í þessum leik. Það er fint að vera kominn á toppinn aftur en þar ætl- uðum við að vera, en við eigum hörkuleik gegn Haukum fyrir jóla- frí og verðum að mæta grimmir til leiks þar ef sigur á að vinnast,“ sagði Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari KR, glaður í bragði eftir leik. -EÁJ VlNTERSPWT DEILDIN KR 10 8 2 903-786 16 Grindavík 10 8 2 919-804 16 Keflavík 10 7 3 1014-820 14 Haukar 10 6 4 879-821 12 Njarðvík 10 6 4 809-809 12 Tindastóll 10 6 4 910-884 12 ÍR 10 6 4 874-867 12 Hamar 10 4 6 943-1034 8 SnæfeU 10 4 6 790-801 8 Breiöablik 10 3 7 901-957 6 SkaUagrímur 10 1 9 772-916 2 Valur 10 1 9 750-965 2 Næstu leikir: Miðvikudagurinn 19. desember KR-Haukar..................19.15 TindastóU-lR...............19.15 SnæfeU-Keflavik............19.15 Fimmtudaginn 20. desember SkaUagrímur-Valur..........19.15 GrindavUi-Hamar............19.15 Föstudagurinn 21. desember Breiðablik-Njarðvík .......19.15 Auðveldur sigur Keflvíkinga á Blikum Keflavík vann öruggan sigur á Breiðabliki, 117-90, í Keflavík á föstudagskvöld og eru Keflvíking- ar í þriðja sæti deildarinnar með 14 stig, aðeins tveimur færri en toppliðin KR og Grindavík. Blik- ar eru hins vegar með ósigrinum aðeins einu sæti frá fallsæti og þurfa heldur betur að fara að gyrða sig í brók ef liðið ætlar sér i úrslitakeppnina eins og síðasta vetur. Blikar sterkir í byrjuninni Blikar báru enga virðingu fyrir heimamönnum i upphafi leiks og voru komnir með 13 stiga forskot í fyrsta fjórðungi, 13-26. Þá sögðu heimamenn hingað og ekki lengra og fóru að stela boltanum hvað eftir annað. Þeir skoruðu 14 síðustu stigin í 1. leikhluta og var staðan eftir hann 27-26 fyrir heimamenn. Blikar héldu áfram að tapa boltanum í öðrum leik- hluta og réðu lítið við öfluga pressuvörn Keflvíkinga. Engu að síður náðu Blikar að halda sér inni i leiknum og var það fyrst og fremst fyrir stórleik Kennys Tate sem skoraði 30 stig í fyrri hálfleik og var algjörlega óstöövandi. Keflavík leiddi með fimm stigum í leikhléi, 57-52. Keflavík gerði síðan út um leik- inn í byrjun seinni hálfleiks og skoraði liðið nánast að vild. Stað- an eftir þriðja leikhluta var orðin 86-67 og úrslitin nánast ráðin. Sigurður Ingimundar, þjálfari Keflvíkinga, hafði sett Sverrir Sverrisson til höfuðs Tate og í kjölfarið gekk Blikum illa að finna körfuna. Fjórði og síðasta leikhlutinn var síðan formsatriði og leystist hann út í vitleysu enda úrslitin löngu ráðin. Hjá Keflavík var Damon John- son góður og náði þrefaldri tvennu í stigum, fráköstum og stoðsendingum. Sverrir átti enn einu sinni mjög góðan leik og heldur áfram að blómstra. Keflavík lék án Jóns Hafsteins- sonar og Hjartar Harðarsonar í þessum leik en það kom ekki að sök. Tete yfirburðamaður hjá Blikunum Hjá Breiðabliki var Tate yfir- burðamaður en eftir frábæran fyrri hálfleik dró nokkuð af hon- um í þeim seinni. Jón Arnar Ingvarsson kom honum næstur og var að leika vel á meðan lykil- menn eins og Pálmi Freyr Sigur- geirsson og Mirko Virijevic voru ekki að ná sér almennilega á strik. -Ben Keflíivík-BreiÖíib, 117-90 2-0, 6-11, 8-20, 13-26, (27-26), 36-30, 40-39, 47-39, , 57-45, (57-52), 61-52, 73-56, 81-58, (86-67), 92-69, 99-79,105-79,112-84, 117-90. Stig Keflavikur: Damon Johnson 30, Gunnar Einarsson 18, Falur Harðarson 12, Guðjón Skúlason 12, Magnús Gunn- arsson 12, Kevin Grandberg 11, Sverrir Sverrisson 10, Davið Jónsson 6, Gunnar Stefánsson 3, Amar Freyr Jónsson 3. Stig Breióabliks: Kenny Tate 36, Jón Amar Ingvarsson 16, Pálmi Freyr Sigur- geirsson 15, Mirki Virijevic 8, Isak Ein- arsson 6, Friðrik Hreinsson 4, Ágúst Angantýsson 3, Eggert Baldvinsson 2. Dómarar (1~10): Einar Þór Skarphéðinsson og Georg Andersen (8) Gœði leiks (1-10): 8. Áhorfendur: 200. Maöur leiksins: Damon Johnson, Keflavík. Fráköst: Keflavík 43 (15 í sókn, 28 í vöm, Damon 10), Breiðablik 32 (13 i sókn, 19 í - vöm, Tate 10). Stoósendingar: Keflavík 32 (Damon 10, Breiðablik 18 (Jón Amar 7). Stolnir boltar: Keflavík 19 (Sverrir 7), Breiðablik 12 (Pálmi 7). Tapaðir boltar: Keflavik 19, Breiðablik 27. Varin skot: Keflavík 6 (Gunnar E. 2, Damon 2), Breiðablik 1 (Mirki). 3ja stiga: Keflavik 30/10 (33%), Breiða- blik 20/9 (45%). Víti: Keflavík 33/25, Breiðablik 10/5 Njarðvík-KR 89-93 0-5, 10-11, 19-19, (24-24). 34-27, 38-32, 38-40, (43-45), 52-54, 58-64, 61-69, (65-71), 67-80, 73-86, 79-88, 86-93. Stig Njarðvik: Gary M. Hunter 40, Friðrik Stefánsson 13, Teitur Örlygsson 11. Páll Kristinsson 10, Ólafur H. Ingvarsson 3, Sigurður Einarsson 3, Ragnar Ragnarsson 2, Þorsteinn Húnflörð 2, Halldór Karlsson 2. Stig KR: Darrell Flake 30. Magnús Helgason 14, Baldur Ólafsson 13, Ingvaldur Magni Hafsteinsson 13, Steinar Kaldal 11. Jóel Sæmundsson 7, Óðinn Ásgeirsson 5. Dómarar (1-10): Kristinn Óskarsson og Rögnvaldur Hreiðarsson (8) Gœði leiks (1-10): 7. Áhorfendur: 200. Maöur leiksins: Darrell Flake, KR Fráköst: Njarðvík 29 (9 i sókn, 20 í vöm, Friðrik 11), KR 33 (13 í sókn, 20 í vöm, Flake 9). Stoðsendingar: Njarðvík 12 (Hunter 4, KR 5 (Steinar 2). Stolnir boltar: Njarðvík 13 (Hunter 4), KR 5 (Steinar 2). Tapaðir boltar: Njarðvík 11, KR 20. Varin skot: Njarðvík 1 ( Friðrik), KR 5 (Baldur 2, Steimar 2). 3ja stiga: Njarðvík 21/7 (30%), KR 21/10 (47%). Vlti: Njarðvík 34/21 (62%), KR 16/13 (81%).

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.