Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2003, Síða 4
4
LAUGARDAGUR 4. JANÚAR 2003
DV
Fréttir
Átök um stjórn Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar hf.:
Fá um 140 þúsund fyrir
hvern setinn fund
- samið við stjórnarmenn um milljónaverkefni
Stjóm Flugstöðvar Leifs Eiríksson-
ar situr nú undir ámæli fyrir að
hygla ,tveim stjórnarmönnum um
milijóna króna verkefni á vegum fyr-
irtækisins - á sama tíma og þeir þiggi
um 140 þúsund krónur fyrir hvern
setinn fund í þessu ríkisfyrirtæki.
MikiR kurr hefúr verið í fólki varð-
andi stjóm Flugstöðvar Leifs Eiríks-
sonar hf. allt frá því núverandi hluta-
félag tók við rekstri Fríhafnarinnar
og Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar 1.
október 2000. Þá hafa samskipti
stjórnar flugstöðvarinnar og verslana
á svæðinu verið afar stirð og er kæra
vegna þess til umfjöllunar hjá Sam-
keppnisstofnun.
Heimildarmaður DV, sem starfaði
hjá FLE í fjölda ára, segist hreinlega
hafa geflst upp eftir að hafa horft upp
á botnlaust braðl með fjármuni fyrir-
tækisins, m.a. óhóflega risnu til
stjómarmanna. Nefnir hann í því
sambandi tiðar utanferðir stjórnenda
stöðvarinnar og m.a. stjómarfundi
sem haldnir hafa verið erlendis, síð-
ast fund sem haldinn var í Amster-
dam í byrjun nóvember. Einnig teng-
ist þetta máli sem kom upp í apríl í
fyrra varðandi starfsmenn í Leifsstöð
sem staðnir vom að því að nota að-
stöðu sína til kaupa á tollfrjálsum
vamingi. Við rannsókn lögreglu kom
í ljós að sumir höfðu stundað slík við-
skipti í fjölda ára og komið vamingn-
um út af flugvellinum með farþegum,
oftast ættingjum eða vinum. Heimild-
armaður DV fuUyrðir að ekki séu öll
kurl komin til grafar í því máli.
Höskuldur Ásgeirsson, fram-
kvæmdastjóri FLE, segir ekkert hæft
í því að illa sé farið með fé flugstöðv-
arinnar. Þá hafi stjórnin aðeins einu
sinni farið í kynningarferð til útlanda
síðan félagið var stofnað. „Farið var
til Amsterdam á síðasta ári til að
skoöa aðstöðuna á Schiphol-flugvelli.
Ekki vom greiddir neinir dagpening-
ar til stjórnarmanna vegna þeirrar
ferðar." Hann vísar því á bug öllum
ásökunum um bruðl við stjórnun fyr-
irtæksins.
Frettaljos
Höröur
Kristjánsson
blaöamaöur
Óheppilegt
Meðal annars hafa tveir stjómar-
menn verið nefndir til sögu varðandi
meinta misnotkun á aðstöðu sinni.
Það em Stefán Þórarinsson, rekstrar-
stjóri ráðgjafarfyrirtækisins Nýsis hf„
og Sigurður Garðarsson verkfræðing-
ur, sem sagðir em hafa nýtt sér
stjómarsetu sína í þessu ríkisfyrir-
tæki til að skapa eigin fyrirtækjum at-
vinnu. Talað er um milljónir króna í
þessu sambandi, auk þess sem við-
komandi þágu laun fyrir stjómarsetu
í FLE. Þeir hafl því í raun setið beggja
vegna borðs sem eftirlitsaðilar fram-
kvæmda og sem verktakar flugstöðv-
arinnar. Sigurður Þórðarson rikisend-
urskoðandi taldi þetta óheppilegt fyr-
_
Rugstöð Leifs Eiríkssonar
Nú eru stjórnarmenn sagöir misnota aöstööu sína til aö skara eld aö eigin köku.
irkomulag í samtali við DV í gær.
Höskuldur Ásgeirsson, fram-
kvæmdastjóri FLE, segir ekkert óeðli-
legt að sérstök verkefni séu falin
stjórnarmönnum fyrirtækisins.
Þarna hafi verið um mikla hagsmuni
félagsins að ræða varöandi uppbygg-
ingu og fjárfestingu upp á um 4 millj-
arða króna. „Með þessu fyrirkomu-
lagi var hægt að koma á virku kostn-
aðareftirliti sem hafi m.a. stuðlað að
því að betur var hægt að standa við
kostnaðaráætlanir en ella hefði ver-
ið.“
Samþykkt af stjórn
í fréttatilkynningu frá FLE í gær
kemur fram að samþykkt hafi verið í
stjóm í ársbyrjun 2001 að fela Sigurði
Garðarssyni (einum Stjórnarmanna)
ýmis verkefni í sambandi viö flug-
stöðina vegna sérþekkingar sinnar.
Þar á meðal hafl hann setið í forvals-
nefnd um val á rekstraraöilum í flug-
stöðina. Um þá nefnd hafa m.a. staðið
harðar deilur eins og greint hefur
verið frá í DV. Ráðgjafarstörf Sigurð-
ar vora reikningsfærðar af fyrirtæk-
inu Hafur ehf. Á árinu 2002 námu
þessar greiðslur 5.185.200 krónum.
Kemur fram í fréttatilkynningunni
að Sigurður hafi látið af stjórnarstörf-
um að eigin ósk á síðasta ári.
Samkvæmt upplýsingum frá Hag-
stofu í gær hefur þó engin ný tilkynn-
ing borist um breytingar á stjórn fyr-
irtækisins. Síðasta tilkynning er eftir
aðalfúndi á síðastliðnu sumri og var
stjórnin þá óbreytt.
Þá er einnig greint frá því að
stjórnin hafi óskað eftir því að Stefán
Þórarinsson (einn stjórnarmanna)
tæki einnig að sér ýmis störf fyrir
FLE. Þar á meðal er seta i hinni um-
deildu forvalsnefnd. Ráðgjafarstörf
Stefáns voru reikningsfærð af Nýsi
hf. og heildargreiðslur á árinu 2002 til
þess fyrirtækis era sagðar vera
592.194 krónur. Á árinu 20°2 hafi FLE
greitt um 87 milljónir króna, fyrir
utan vsk., vegna ýmiss konar ráðgjaf-
arvinnu. Það era um 2,8% af 3.055
milljóna króna heildarrekstrarkostn-
aði félagsins, fyrir utan afskriftir og
fjármagnsgjöld. Þá fagnar stjórnin
umfjöllun Ríkisendurskoðunar um
málefni FLE.
Tilurö Leifsstöðvar
Stjórn Leifsstöðvar var upphaflega
skipuð sem starfsstjórn af Halldóri
Ásgrímssyni utanríkisráðherra 30.
ágúst 1999 og era flestir þáverandi
stjómarmanna enn í stjórn.
Laun stjórnarmanna í Flugstöð
Leifs Eiríkssonar hf. (FLE) á Kefla-
víkurflugvelli hækkuðu úr 2,9 milij-
ónum króna árið 2000 í 11,2 milljónir
króna árið 2001 samkvæmt ársskýrsl-
um félagsins. Rétt er þó að geta þess
að félagið var formlega stofnað 1.
september áriö 2000. Heildarlaun og
þóknanir til stjórnarmanna miðað
við mánaðargreiðslur hækkuðu úr
725.000 í 933.000 á mánuði milli ára.
Bein laun til hvers stjórnarmanns
em því vel á annaö hundrað þúsunda
króna á mánuði. Það lætur nærri að
vera um 140 þúsund krónur fýrir
hvern setinn fund. Er þá miðað við að
fimm stjórnarmönnum hafi verið
greidd laun fyrir aö sitja hvern hinna
16 stjórnarfunda sem haldnir vora á
árinu 2001.
Hlutafélag stofnað árið 2000
Ráðgefandi stjórn flugstöðvarinn-
ar, sem utanríkisráðherra skipaði
30. ágúst 1999 um framtíðarfyrir-
komulag á rekstrinum, gerði það að
tillögu sinni að Fríhöfnin og Flug-
stöð Leifs Eiríkssonar yrðu samein-
uð. Lagði utanríkisráðherra í fram-
haldi af því fram lagafrumvarp sem
samþykkt var í maí 2000. Varð þetta
síðan að veruléika 1. september 2000
er nýtt hlutafélag, Flugstöð Leifs Ei-
ríkssonar hf„ var stofnað og var að
fullu í eigu ríkisins. Tók félagið
formlega við rekstri beggja fyrri fé-
laga 1. október 2000. Þar með varð til
eitt af stærstu fyrirtækjum landsins,
með hlutafé upp á 2,5 milljarða og
eigið fé upp á 3,4 milljarða króna.
í þessari fyrstu stjórn félagsins,
sem undirbjó stofnun fyrirtækisins,
var stjórnarformaður Gísli Guð-
mundsson, fyrrverandi forstjóri
B&L. Varaformaður var Stefán Þór-
arinsson, rekstrarstjóri ráðgjafarfyr-
irtækisins Nýsis hf. Meðstjórnendur
voru Skúli Þ. Skúlason, fram-
kvæmdastjóri Samkaupa hf„ Sigurð-
ur Garðarsson verkfræðingur og
Haraldur Jóhannesson hagfræðing-
ur.
í varastjórn voru síðan Helga Sig-
rún Harðardóttir atvinnuráðgjafi og
Skarphéðinn Berg Steinarsson við-
skiptafræðingur. Flestir þessíu-a
stjórnarmanna sitja enn í stjórn
FLE. Samkvæmt síðasta ársreikn-
ingi er Gísli Guðmundsson enn
stjórnarformaður og með honum
Haraldur Jóhannesson, Helga Sigrún
Harðardóttir, Sigurður Garðarsson
og Stefán Páll Þórarinsson. í vara-
stjórn sitja Eysteinn Jónsson og
Skarphéðinn Berg Steinarsson.
Framkvæmdastjóri frá upphafi hefur
verið Höskuldur Ásgeirsson.
Ekki náðist í Gísla Guðmundsson,
stjórnarformann FLE, vegna
þesssara mála.
„Ibúarnir felmtri slegnir vegna vampírumorðsins"
- segir Björn Ingi Halldórsson, íbúi í Halmstad
Vampíramorðið i Halmstad í Sví-
þjóð um áramótin hefur vakið mik-
inn óhug meðal íbúa bæjarins, en í
ísi lagðri ánni Nissan, sem rennur
gegnum bæinn, fannst fyrst höfuö
manns og síðan búkurinn. Á þess-
um slóðum hefur frostið fariö upp í
15" að undanfomu.
Bjöm Ingi Halldórsson kerfis-
fræöingur býr i Halmstad ásamt
sænskri eiginkonu og bömum, en
hann starfar í Lundi.
„Bróðir konunnar minnar var
besti vinur þessa Marcusar Norén
sem var drepinn. Þeir tóku báðir
þátt í þessu „Rollspel“, sem er hlut-
verkaleikur sem fjallar um vampír-
ur, en þátttakendur era sjálfir leik-
mennimir. Þátttakendur ganga um
og tala hver við annan og eru ýmist
í hlutverkum góðra eða vondra
manna.
Það hefur ekkert komið fram um
það enn þá hver er morðinginn en
lögreglan hefur varpað fram þeirri
kenningu aö samband geti verið
milli „Rollspels“ og morðsins.
Norén fékk símtal í bílasímann sinn
skömmu fyrir morðið og verið er að
rannsaka hvaðan það kom. Áður
hafði hann talaö við mömmu sína.
Nú er rætt um aö einhver hafi ekki
gert greinarmun á leiknum og al-
vörunni og farið yfir mörkin og
drepið strákinn.
Mér er ekki sama því ég er oft að
þvælast seint á kvöldin um þetta
svæöi þar sem talið er að þessi
óhugnanlegi glæpur hafi verið fram-
inn, en tengdaforeldramir búa í 500
metra fjarlægð frá staðnum. Ég
vona að þetta leysist fljótt, ekki síst
ef þetta er einhver fjöldamorðingi,"
segir Bjöm Ingi Halldórsson. -GG
Stórsýning KR-flugelda
Árleg stórsýning KR-flugelda
verður á KR-svæðinu við Frosta-
skjól á sunnudag kl. 18.30. KR-
flugeldar ákváðu fyrir nokkrum
árum að halda sýningar sínar að
loknum áramótum og er litið á
þær sem þakklætisvott til Reyk-
víkinga fyrir góðan stuðning.
Þetta hefur mælst mjög vel fyrir
og er KR-sýningin lokahnykkur
áramótafagnaöar hjá þúsundum
áhorfenda.
Fær sömu laun og Davíð
Laun Þórólfs
Árnasonar sem
borgarstjóra frá
1. febrúar nk.
verða 729.938
krónur ef samið
verður við hann
á grundvelli
ákveðinnar sam-
þykktar borgar-
stjórnar Reykja-
víkur þar sem
segir að borgarstjóri skuli hafa
sömu laun og forsætisráðherra. Eft-
ir þeirri samþykkt hefur verið farið
til langs tíma.
Borgarfulltrúar i Reykjavik hafa
85% af þingfararkaupi alþingis-
manna, sem er samkvæmt nýjustu
ákvöröun Kjaradóms 368.719 krón-
ur. Borgarfulltrúar hafa því nú í
ársbyrjun 2003 alls 313.341 krónu í
laun á mánuði. Margir þeirra sinna
öðrum störfum, s.s. þingmennsku
o.fl. Gunnar Eydal, skrifstofustjóri
Reykjavíkurborgar, segir að forseti
borgarstjórnar fái svo 25% álag á
sín laun, sem eru þá 391.676 krónur
á mánuði. Þeir sem sitja í borgar-
ráði fá einnig 25% álag á sín borg-
arfulltrúalaun. Einnig gefur for-
mennska í nefndum ákveðið álag en
borgarfulltrúar fái ekki greitt fyrir
að sitja í einstaka nefndum og auk
þess eru í gildi skerðingarákvæði ef
borgarfulltrúi situr ekki í a.m.k.
tveimur nefndum.
Ákvörðun Kjaradóms um að
hækka laun æðstu embættismanna
ríkisins um 7% hefur því einnig
áhrif á laun borgarfulltrúa Reykja-
víkur. Forseti íslands bar þó aðeins
3% launahækkun úr býtum.
Til samanburðar má geta þess að
laun bæjarfulltrúa á Akureyri voru
á sl. ári 80.740 krónur og ættu sam-
kvæmt sömu viðmiðun að vera nú
86.392 krónur. Fyrir setu i bæjar-
ráði Akureyrar eru þá greiddar
106.327 krónur og forseta bæjar-
stjórnar 107.990 krónur. Bæjar-
stjóri, Kristján Þór Júlíusson, gerir
hins vegar betur en borgarstjóri,
því hann fær í föst laun 450.000
krónur en 55 fastir yfirvinnutímar,
bilastyrkur, símastyrkur o.fl. kem-
ur launum hans upp í 840.000 krón-
ur. Launahæstur allra bæjarstjóra
er bæjarstjórinn í Garðabæ, Ásdis
Halla Bragadóttir.
Vegleg þrettándagleði
Síðustu ár hafa þúsundir tekið
þátt í veglegri þrettándagleði i Graf-
arvogi sem stofnanir og félagasam-
tök í hverfinu standa að. Þrettánda-
gleðin í Grafarvoginum að þessu
sinni fer fram mánudagskvöldiö 6.
janúar og hefst með blysför frá
Vélamiðstöð Reykjavíkurborgar við
Gylfaflöt kl. 19.30. Því næst verður
gengið að brennusvæðinu ofan við
Gufunesbæinn. Þá verður kveikt í
þrettándabrennunni á Gufunes-
svæðinu kl. 20.00. Skátamir munu
því næst stjóma fjöldasöng þar sem
álfadrottning og álfakóngur koma
fram ásamt bama- og unglingakór
Grafarvogskirkju. Dagskránni lýk-
ur svo með veglegri flugeldasýn-
ingu í boði Egilshallarinnar en hún
mun byrja kl. 20.45. Búist er við
mikilli gleði og stemningu sem eng-
inn Grafarvogsbúi má missa af.