Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2003, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2003, Blaðsíða 28
28 HeÍQdrblað H>"Vr LAUGARDAGUR JANÚAR 2003 Hver fer hvert? Sú nýbreytni átti sér stað í enska boltanum í ár að leikmannamarkaðnum var lokað í endaðan ágúst og var hann ekki opnaður á ný fyrr en á nýarsdag og verður fé- lögum á Englandi, sem og annars staðar í Evrópu, leyft að kaupa og selja leikmenn út janúarmánuð. Þá verður markaðnum lokað á ný fram á sumar. Fastlega er búist við að það verði líf í tuskunum þenn- an mánuðinn og við ætlum aðeins að velta vöngum yfir því hér i næstu línum hver gæti veriö að fara hvert á Englandi. Meistarana vantar markvörð Arsene Wenger, stjóri Arsenal, mun væntanlega ekki fara út í nein stórkaup frekar en síðasta sumar þegar Brasilíumaðurinn Gilberto Silva var eini leikmaðurinn sem bættist í leikmannahóp meistaranna. Hann vantar þó tilfinnalega nýjan markvörð enda David Seaman kominn á aldur og er brothættari en áður. Þar að auki veröur RamiShaaban, varamarkvörður liðsins, ekki meira með á þessu tímabili vegna meiðsla. Þeir hafa ver- ið að spá í Paul Robinson, markvörð Leeds og framtíðar- markvörð enska landsliðsins, enLeeds gæti neyðst til þess að selja hann ef gott tilboð berst enda fjárhagsstaða liðsins afar bágborin. Sir Alex Ferguson, stjóri Man. Utd, er talinn hafa um 15 milljónir punda til að kaupa leikmann eða leikmenn og er sóknarmaður forgangsmál hjá honum enda aðeins þrír framherjar í leikmannahópi liðsins. Eiður Smári Guðjohnsen er einn þeirra framherja sem hafa verið þráfaldlega orðaðir við félagið en einnig hafa verið nefndir til sögunnar menn á borð við Andriy Shevchen- ko, Ronaldinho, Claudio Lopez og jafnvel Kevin Phillips. Það verður spennandi að fylgjast með framgangi mála hjá United en þeir hafa eytt miklum fjármunum i nýja leikmenn á undanfórnum árum. Ekki eru margir leik- menn falir hjá félaginu en þó er talið að Ferguson muni ekki setja mönnum eins og David May og Roy Carroll stólinn fyrir dyrnar ef þeir kjósa að leita á önnur mið. Þeir Alan Smith t.v. og Lee Bowyer hafa leikið saman með Leeds undanfarin lengur þar sein Bowyer er á leið frá félaginu. ár en gera það vart mikið Reuter sambandi en þeir hafa fá tækifæri fengið undanfarið. Svo er einnig fastlega búist við því að ítalinn Gabriele Ambrosetti haldi heim á leið á ný. Guðni Bergsson og félagar í Bolton gætu styrkt sig fyr- ir lokaátökin í deildinni og er talið að þeir séu á höttun- um eftir Malcolm Christie hjá Derby sem og Rússanum Vladimir Beschastnykh sem leikur með Spartak Moscow. Framherjinn Michael Ricketts gæti að sama skapi verið á förum frá félaginu ef hagstætt tilboð berst. Hermann orðaður við WBA Stjórn WBA, sem Lárus Orri Sigurðsson leikur með, er ekki með fullar hendur fjár en þeir gætu þó nælt í ein- hverja leikmenn sem eru ekki með háan verömiða á sér. Þeir hafa staðfest það að þeir séu á höttunum eftir Artim Sakiri, sem leikur með CSKA Sofia, og einnig hafa þeir áhuga á Rússanum Beschastnykh rétt eins og Bolton. Hermann Hreiðarsson er einnig á listanum hjá Gary Megson, stjóra liðsins, en hann er hugsanlega of dýr fyr- ir þá og svo er ekki víst að Hermann hafi áhuga á því að ganga til liðs við félag sem stefnir niður í 1. deild á nýj- an leik. Glenn Roeder, stjóri West Ham, þarf að styrkja lið sitt fyrir átökin sem eru fram undan og er hann á höttunum eftir framherjum. Les Ferdinand gæti komið frá Totten- ham en hann fæst án greiðslu. Svo hafa þeir einnig ver- ið orðaðir við Argentínumanninn Gabriel Batistuta sem hefur mikinn áhuga á að leika á Englandi áður en hann leggur skóna á hilluna. Spurs vill Bowyer og Phillips Tottenham hefur verið mikið í umræðunni undanfar- ið og hafa þeir verið orðaðir við nokkrar stórstjörnur sem þeir gætu hugsanlega borið víurnar í. Þar eru helst nefndir franski landsliðsmaðurinn Claude Makelele hjá Real Madrid en hann hefur áhuga á að reyna fyrir sér á nýjum slóðum þar sem hann á ekki lengur fast sæti í stjörnum prýddu liði Real. Spurs hafa einnig mikinn áhuga á Lee Bowyer og Kevin Phillips sem og að þeir hafa verið orðaðir við framherjann Marcelo Salas sem leikur með Lazio á Ítalíu. Les Ferdinand er á förum frá félaginu og Sergei Rebrov fær einnig að fara en hann hefur sama sem ekkert leikið frá því Glenn Hoddle tók við liðinu. Einnig gætu þeir Tim Sherwood og Gary Doherty verið á förum. Southampton, sem hefur komið skemmtilega á óvart i vetur, er á liöttunum eftir Danny Higginbotham, fyrrum leikmanni Man. Utd sem hefur verið á mála hjá Derby undanfarin ár. Þeir hafa einnig áhuga á hinum fingra- langa Khalilou Fadiga, sem leikur með Auxerre, en hann sló eftirminnilega í gegn á HM í sumar, innan sem utan vallar. Newcastle er á höttunum eftir varnarmanni og hafa þeir mikinn áhuga á tveim af efnilegustu varnarmönn- um Englands í dag, þeim John Terry hjá Chelsea og Jon- athan Woodgate hjá Leeds. Fjölmargir aðrir leikmenn hafa einnig veriö nefndir til sögunnar í þessu sambandi en hér hefur einungis ver- ið stiklað á þvi helsta en ljóst má vera aö mikið fjör verður í Englandi þennan mánuðinn ef eitthvað er að marka allar þessar sögusagnir. -HBG Svo gæti farið að Herniann Hrciðarsson fái að etja kappi við Ole Gunnar Solskjær á nýjan leik fljótlega þar sem bæði WBA og Biriningham hafa áhuga á að fá liann í sínar raðir. Reuter Liverpool leitar að miðjumanni Gerard Houllier, stjóri Liverpool, mun að öllum lík- indum láta til sín taka í janúar enda veitir Liverpool ekki af liðsstyrk til þess að hressa upp á dapurt gengi fé- lagsins undanfarnar vikur. Hann er fyrst og fremst tal- inn vera á höttunum eftir miðjumanni eða vængmanni. Þar hafa verið nefndir til sögunnar Marc Overmars, Hakan Yakin, leikmaður Basel sem lék vel gegn Liver- pool í meistaradeildinni fyrr i vetur, sem og hollenska undrabarnið Rafael Van Ðer Vaart sem spilar með Ajax. Houllier gæti einnig losað sig við einhverja leikmenn og Tékkarnir Patrik Berger og Vladimir Smicer gætu verið á förum ef gott tilboð berst sem og Igor Biscan sem hef- ur engan veginn staðið undir væntingum frá því hann kom til félagsins. Leeds United er félag sem á örugglega eftir að koma nokkuö við sögu á næstu vikum og þá væntanlega ekki vegna leikmannakaupa heldur verða þeir að selja leik- menn til þess aö laga bága fjárhagsstööu. Sá leikmaður sem talið er aö fari fyrstur er Frakkinn Olivier Dacourt en hann er sterklega orðaður við Juventus og þar að auki hefur hann ekki átt upp á pallborðiö hjá Terry Venables, stjóra félagsins, sem sagðist vera tilbúinn til þess að keyra Dacourt til ítaliu persónulega ef þess gerö- ist þörf. Lee Bowyer er væntanlega einnig á förum en hann hefur neitað að skrifa undir nýjan samning við fé- lagið sem rennur út næsta sumar og ef Leeds ætlar sér að fá einhvern pening fyrir hann þá verða þeir að selja hann núna. Bowyer hefur verið orðaður við fjölda félaga í úrvalsdeildinni og eru Tottenham og Man. City taldir vera líklegir kaupendur. Fer Eiður frá Chelsea? Chelsea kemur ekki til með að kaupa neina leikmenn að þessu sinni enda mikið aðhald í rekstrinum hjá Ken Bates. Framherjarnir Eiður Smári og Jimmy Floyd Hasselbaink hafa verið eftirsóttir og gætu verið seldir. Eiður er orðaður við Man. Utd á meðan Barcelona geng- ur enn með grasið í skónum á eftir Hasselbaink en litlu munaði að hann gengi til liðs við félagið síðasta sumar. Fleiri leikmenn gætu verið á fórum frá félaginu og eru nöfn Winston Bogarde og Albert Ferrer oftast nefnd i því
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.