Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2003, Blaðsíða 12
12
LAUGARDAGUR 4. JANÚAR 2003
Fréttir
I>V
Kjötframleiðendur landsins í miklum vanda:
Verð til bænda 10
til 15% of lágt
X . • /» /-* / 1 p / 1 •
að mati formanns Svínaræktarfélagsins
Nýr borgarstjóri
Þórólfur Áma-
son tekur við
starfi borgar-
stjóra í Reykja-
vík um næstu
mánaðamót.
Borgarfulltrúar
Reykjavíkurlist-
ans féllust á
þessa lausn sl.
sunnudag en þá sagði Ingibjörg Sól-
rún Gísladóttir af sér í embætti
borgarstjóra.
Vandi kjötframleiðenda hefur síst
rénað eftir jólavertiðina þar sem
verð var mjög lágt á öllum tegund-
um kjöts og margir bændur bera
ekki mikið úr býtum í ljósi þessa
skilaverðs sem þeir fá frá sláturleyf-
ishöfum. Framleiðsla kjúklinga og
svínakjöts jókst verulega á síðasta
ári og Ijóst er að ekki mun draga úr
framleiðslu á allra næstu mánuð-
um, jafnvel lengur. Þess ber að geta
að desembermánuður er alltaf slak-
ur sölumánuður í kjúklingum mið-
að við aðra mánuði ársins.
Kristinn Gylfi Jónsson, formaður
Svínaræktarfélags íslands og stjóm-
arformaður kjúklingabúsins Móa
hf., sem nýlega fékk greiðslustöðv-
un til 16. janúar, segist þokkalega
sáttur við þeirra hlut á markaðin-
um og vertíðin hjá svínabændum
hafi verið ágæt hvað sölu varðar.
Kristinn Gylfl tekur þó fram að
verð til framleiðenda hafi auðvitað
ekki verið viðunandi.
„Verð til framleiðenda er í dag
um 10 til 15% of lágt. Bændur era
ósáttir við það hvað verðið var lágt
á síðasta ári en við geram okkur
vonir um að með styrkingu krón-
unnar á þessu ári muni fóðurverð
lækka sem vegur upp á móti lágu af-
urðaverði. Við erum bjartsýnir á að
þessi markaður muni ná jafnvægi á
þessu ári. Framleiðslukostnaður
getur hins vegar verið mjög breyti-
legur, t.d. eftir stærð búa. Það er því
ekki hægt að segja alfarið að allir
framleiðendur í svínarækt og
kjúklingarækt séu að tapa og slíkar
fullyrðingar ætti að varast,“ segir
Kristinn Gylfi Jónsson.
Geir A.
Guðsteinsson
blaöamaður
Fréttaljós
Of hröð framleiðsluafköst
Bent hefur verið á að ofíjárfest
hafi verið í kjúklinga- og svínabú-
greiniun á undanfömum misseram
en Kristinn Gylfi vill ekki taka svo
djúpt í árinni. Hann bendir þó á
menn hafi farið nokkuð hratt í að
auka afköstin í þessum greinum „og
komið hraðar inn með aukið magn
en gott er fyrir markaðinn, og það
hefur leitt til verðlækkunar". Krist-
inn bendir á að markaður fyrir
þessar kjötvörar hafi verið að
stækka mjög á undanfómum árum
og offramleiðslan sem nú ríki í
greininni muni þvi líklega jafna sig
með enn frekari stækkun. „Það hef-
ur verið stöðug aukning í neyslu
svínakjöts og kjúklinga og ekki
verður séð að það dragi úr vextin-
um. Við búum við þær aðstæður
núna,“ segir Kristinn.
Fer svolítið offari
- Hafa Bændasamtökin verið sof-
andi yfir þessari þróun og vandan-
um sem offramleiðslan skapar?
„Bændasamtökin geta haft skoð-
un á málinu og ber að hafa það en
þau geta ekki gripið fram fyrir
hendur einstakra framleiðenda.
Þau geta hins vegar verið með
ábendingar og ráðleggingar og það
mætti gera meira af því að taka
saman tölur og spá fyrir um kjöt-
framleiðslu næstu 12 til 18 mánaða
svo menn geti í sínum ranni skipu-
lagt sig betur með framleiðsluaukn-
ingu. Bændasamtökin hafa verið að
skoða það að efla upplýsingagjöf og
framleiðsluhorfur. Ari Teitsson,
formaður Bændasamtakanna, fer
svolítið offari þegar hann segir að
Offramleiðsla
Kjötframleiðendur landsins hafa undanfarin misseri staðið frammi fyrir offramleiðslu, ekki síst kjúklingabændur sem
framleiddu um 200 tonn í desember umfram neysluþörf landsmanna.. Mánaðarlega er slátrað um 300 þúsund
kjúklingum, eða rúmlega einnum kjúklingi á hvern iandsmann.
Búnaðarbankinn leggi Móum til
áhættufé. Ætlar hann að meta
hvort bankinn, sem er með ágætar
tryggingar fyrir sínum skuldum í
Móum, hafi sýnt of lengi biðlund og
það eigi að fækka kjúklingabænd-
um þegar gríðarleg offramleiðsla er
á kindakjöti? Menn verða að gæta
sín þegar þeir tala sem forsvars-
menn heildarsamtaka."
Búnaðarbankinn aldrei átt
í Móum
- Það hefur verið fullyrt að Bún-
aðarbankinn hafi verið að dæla inn
peningum í Móa. Fyrirtækið fékk
greiðslustöðvun 27. desember sl. til
16. janúar nk. og mun fara fram á
formlega nauðasamninga vegna
þess að reksturinn hefur verið erf-
iður eins og hjá öðrum kjúklinga-
bændum. Var bankinn að taka
áhættu?
„Það eru fjórir starfandi fram-
leiðendur í dag og t.d. var íslands-
fugl búinn að starfa i nokkra mán-
uði þegar fyrirtækið fór í niður-
skrift skulda eftir greiðslustöðvun
sem leiddi til þess að helmingur
skuldanna var afskrifaður. í stað
þess að fara í greiðslustöðvun eða
gjaldþrot með Reykjagarð ákvað
Búnaðarbankinn að setja 300 millj-
ónir króna inn í fyrirtækið. ísfugl
fór í gjaldþrot fyrir 15 árum. Við
erum að fara í gegnum endurskipu-
lagninu á okkar fjárhag eins og hin
fyrirtækin hafa þurft að gera. Fyr-
irtækið skuldar 1,4 milljarða króna
en bókfærðar eignir þess eru metn-
ar á 1,1 milljarð króna.
Búnaðarbankinn hefur aldrei átt
neitt í Móum hf. og á ekkert í fyrir-
tækjum sem tengjast eigendum
Móa. Búnaðarbankinn er hins veg-
ar okkar viðskiptabanki og hann er
tilbúinn að koma að endurskipu-
lagningu félagsins en telur for-
sendu fyrir því að fyrirtækið fari í
formlega nauðasamninga. Búnað-
arbanki Intemational SA í Lúxem-
borg vistar eingöngu fyrir eigendur
Móa hf. hlutabréf í tveimur eignar-
haldsfélögum, Agro Investment
S.A. í Lúxemborg og SOL Invest-
ment S.A. í Lúxemborg. Þessi eign-
arhaldsfélög eiga allt hlutafé í
Móum hf. og bréfin eru alls ekki í
eigu Búnaðarbankans, aðeins vist-
uð þar, eins og margir gera erlend-
is,“ segir Kristinn Gylfi Jónsson.
200 tonna umfram-
framleiðsla í desember
Rögnvaldur Skíði Friðbjömsson,
framkvæmdastjóri íslandsfugls í
Dalvíkurbyggð, segir það rangt sem
Kristinn Gylfi segi að íslandsfugl
hafi farið í greiðslustöðvun. Hið
rétta sé að tveir aðaleigendumir,
Auðbjörn Kristinsson fram-
kvæmdastjóri og Eiríkur Sigfússon
stjórnarformaður, hafi selt sinn
hlut og það hlutafé hafl Kaldbakur,
sem er í eigu Samherja og KEA, og
Norðlenska, keypt, auk þess sem
Sparisjóður Svarfdæla og Spari-
sjóður Norðlendinga hafi komið að
rekstrinum.
„Hlutafé var fært niður og síðan
aukið af nýjum eigendum. Verðið
er undir framleiðslukostnaði vegna
offramleiðslu í greininni og við það
verður ekki búið lengi í þessari
grein. Eina skynsemin er að stilla
framleiðsluna við neysluna en við
erum að framleiða um 12% af heild-
arframleiðslunni og ísfugl eitthvað
svipað en Móar og Reykjagarður
skipta þessum 75% á milli sín. Það
þyrfti meira til þó að við myndum
hætta alveg framleiðslu. í nóvem-
ber var umframframleiðslan um
100 tonn og fór í 200 tonn í desem-
ber, en Bændasamtökin ættu að
hafa birgðatölur á hraðbergi fljót-
lega. Síðan koma stórir sölumánuð-
ir nú á nýbyrjuðu ári, eftir dapran
desembermánuð. Við erum að fram-
leiða um 60 tonn á mánuði sem
gætu verið um 40.000 fuglar," segir
Rögnvaldur Skíði Friðbjömsson.
Ekki undir
framleiðsluverði
Yngvi Örn Kristinsson, stjórnar-
formaður Reykjagarðs og starfs-
maður Búnaðarbankans, segir að
rætt hafi verið um það að draga úr
framleiðslu á komandi vormánuð-
um en framleiðslan í janúar sé
áætluð um 200 tonn. Yngvi Örn
bendir á að ekki hafi verið rætt um
eða reynt að hafa samráð milli
kjúklingaframleiðenda um að
draga úr framleiöslunni, enda sam-
ræmist slíkt samráð ekki sam-
keppnislögum, þau banni það.
Páskaungar
Hænuungar geta verið ósköp sætir,
enda dáist unga kynslóöin að þeim.
„Ég veit ekki hver er fram-
leiðslukostnaður annarra en
Reykjagarðs, en þar höfum ekki
verið að selja okkar afurðir undir
framleiðsluverði," segir Yngvi Öm
Kristinsson.
Skortur á upplýsingum um
framtíðarhorfur
Sigurgeir Þorgeirsson, fram-
kvæmdastjóri Bændasamtakanna,
segir að færa megi rök að því að
Bændasamtökin hefðu átt með
skipulegum hætti og með lengri
fyrirvara að setja einhverjar fram-
leiðslutölur en það breyti engu um
það ástand sem uppi er nú á kjöt-
markaðinum og framleiðendum
fyllilega ljós staðan um margra
mánaða skeið. Það taki heldur ekki
langan tíma að draga úr kjúklinga-
framleiðslu. Framleiðendur hafa
bent á að gríðarleg framleiðslu-
aukning á nýbyrjuðu ári, miðað við
sl. 12 mánuði, sé innibyggö aukn-
ing.
„Við getum ekki gripið inn í
þetta með beinum hætti en skortur
á upplýsingum um framtíðarhorfur
eru ekki afsökun fyrir því ástandi
sem nú ríkir á kjötmarkaðinum,"
segir Sigurgeir Þorgeirsson.
Milljónir til stjórnarmanna
„Almennt séð er svona fyrirkomu-
lag óheppilegt og menn eiga að reyna
að forðast það i lengstu lög að svona
beinir hagsmunaárekstrar verði,
þannig að sami maður sé bæði í eft-
irlitshlutverki og þiggjandi,“ sagði
Sigurður Þórðarson rikisendurskoð-
andi í samtali við DV í gær. Tilefni
ummælanna er frétt RÚV þess efnis
að tveir stjórnarmanna flugstöðvar
Leifs Eiríkssonar hafl fengið millj-
ónagreiðslur í gegnum fyrirtæki sín
til flugstöðvarinnar.
Deilt um lag í skaupinu
Framkvæmdastjóri Ára-
mótaskaups 2002 vísar á bug ásök-
unum indversku prinsessunnar
Leoncie um að lagi hennar hafi ver-
ið „stolið“ af skaupinu og það eign-
að Vilhjálmi Guðjðnssyni tónlistar-
manni. Leoncie hefur skrifað for-
ráðamönnum skaupsins harðort
bréf þar sem hún sakar þá um laga-
stuld. Sjálfur sagðist Vilhjálmur
ekki hafa vitað af umræddu lagi i
skaupinu.
Söguleg sala
Skrifað var undir stærstu einka-
væðingu í sögu íslenska ríkisins á
gamlársdag en þá var gengið frá
kapum Samsonar-hópsins ehf. á um
45,8% hlut í Landsbanka íslands.
Flugvallarsvæði selt
Landeigendur í Sandvíkurhverfl í
Árborg seldu á gamlársdag 70 ha
svæði þar sem nú er Selfossflugvöll-
ur. Tvö verktakafyrirtæki keyptu
landið og er fyrirhugað að reisa þar
íbúabyggð. Formaður Flugklúbbs
Selfoss sagði í samtali við DV aö sal-
an á landinu væri skelfíleg aðför
peningamanna að þrjátíu ára upp-
byggingarstarfi flugs á Selfossi.
Fulltrúi landeigenda staðfesti í sam-
tali við DV að tilboð flugklúbbsins
hefði veriö hærra en verktakanna.
Sviptir leyfinu
Skráðir eigendur hundanna sem
réðust á kanínurnar í Skerjafirði á
jólanótt hafa verið sviptir leyfi til
hundahalds. Hundamir dvelja nú á
hundahótelinu á Leirum meðan ver-
ið er að taka ákvörðun um ráðstöf-
un á þeim til framtíðar. Eigendur
geta áfrýjað ákvörðun um leyfis-
sviptingu til umhverfls- og heil-
brigðisnefndar.