Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2003, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2003, Síða 10
10 DV LAUGARDAGUR 4. JANÚAR 2003 Útgáfufélag: Útgáfufélagið DV ehf. Framkvæmdastjóri: Örn Valdimarsson Aöalritstjóri: Óli Björn Kárason Ritstjóri: Sigmundur Ernir Rúnarsson Aóstoóarritstjóri: Jónas Haraldsson Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift: Skaftahlíð 24,105 Rvík, simi: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5749 Ritstjórn: ritstjorn@dv.is - Auglýsingar: auglysingar@dv.is. - Dreifing: dreifing@dv.is Akureyri: Kaupvangsstræti 1, sími: 462 5000, fax: 462 5001 Setning og umbrot: Útgáfufélagið DV ehf. Plötugerö og prentun: Árvakur hf. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni biaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. DV greiðir ekki viðmælendum fyrir viðtöl við þá eða fýrir myndbirtingar af þeim. Vopn og vitfirring Mannkynssagan er meira og minna uppfull af vopnaglöðum vitfirringum. Óútreiknanlegir einræðisherrar hafa risið og fallið i þessari furðulegu sögu mannsins og jafnan drifið áfram nokkra erfiðustu eðlisþætti mannsins á borð við græðgi, ótta og hatur. Þess- ir eigendur valdsins á hverjum tíma hafa einskis svifist i stjórnlausri eigin- girni sinni og yfirleitt náð að klessa sér i sögubækur með striðsletri. Og lýsingamar eru jafnan þannig að orða verð- ur vant, öld fram af öld. Það er enginn skortur á skelfingunni. Það er ekkert lát á lýðskmmurum sem komast til valda og fara með taumana eins og pyntingarólar á píndan almenning. Framboð af fúl- mennum virðist jafnvel heldur fara vaxandi eftir því sem þekkingu og námi fleygir fram. Siðasta öld var svört af skömm og enn er ekki vitað hversu margar milljónir voru drepnar af miskunnarlausustu fjöldamorðingjunum sem komust til valda i Þýskalandi, Rússlandi, Kína og Chile, svo aðeins nokkur lönd séu nefnd. Og enn við upphaf aldar horfa menn inn í byssuhlaupin út um lönd og álfur. Enn húka réttlausir íbúar fjölmargra landa i skugga ótta og örvæntingar. Enn ríkja tímar forn- eskju á nokkrum meginhlutum jarðarinnar. Mörgum rikj- um fer aftur í margvíslegum réttindamálum á meðan sömu mál þykja orðin svo sjálfsögð í sjálfumgleði Vesturlanda að menn eru þar að verða leiðir á lífsgæðum sínum. Bilið eykst á milli fátækra og ríkra i heiminum og sömuleiðis á milli réttlausra og lögvarinna. Þetta ástand sem menn lesa út úr heimssögu síðustu missera getur hæglega alið af sér enn frekari vitfirringu en fylgt hefur mannkyni um aldir. Það virðist vera sífellt auð- veldara fyrir misheppnaða stjórnarherra víða um heim að komast til valda í krafti þess hvað hinir hafa það gott. Nægir þar að minna á Róbert Múgabe í Afríkuríkinu Zimbabwe, sem er búinn að brenna allar brýr að baki sér á alþjóðavettvangi og finnst það vera dæmi um dásamlega stjórnkænsku sína. Múgabe á sér marga líka. Heimurinn er uppfullur af ólánssömum þjóðum sem sitja uppi með ótrúlega vonda stjórnendur. Engu skárri en Múgabe er nágranni hans í Sambiu, Levy Mwanawasa, sem neitar að þiggja matvæla- aðstoð af ótta við að flytja sjúkdóma inn í landið. Á þessu svæði er Kongó þó líklega versta dæmið um land sem spill- ing og valdagræðgi hefur eyðilagt. Enda þótt varla finnist í heiminum meira af eðalsteinum og góðmálmum er almenn- ingur þar að kikna. Valdasukkið í heiminum, sem er að eyðileggja líf millj- ónatuga, er ekki aðeins bundið við Afríku. Því fer fjarri. Nýleg dæmi úr gömlu Evrópu sýna að fjöldamorðingjar skjóta enn þá hvarvetna upp kollinum. Slóbótan Mílósevits var óþokki gærdagsins. í þessum efnum er Saddam Hussein maður dagsins. Og morgundagurinn virðist vera að færa fólki Kim Jong-il. Þessi kuldalegi leiðtogi Norður-Kóreu fylgir fast á hæla föður síns í fátæktarvæðingu þjóðar sinn- ar. Vopnin eru vítamín landsins. Fyrir fimmtiu árum, þegar Kóreu var skipt í tvennt, var hagsæld mest i norðurhlutanum af því þar var að finna iðn- aðarsvæði landsins. í suðurhlutanum bjuggu fátækir bænd- ur. Á hálfri öld hefur þetta snúist við. Á vel innan við mannsaldri hefur vonlausum stjórnendum Norður-Kóreu tekist að búa til samfélag manna sem nýlega hafnaði í efsta sæti yfir ömurlegustu ríki heimsins. Þetta er heljarinnar heimsmet. En vondum stjórnendum virðast engin takmörk sett - fái þeir frið og tíma. Það sem ekki verður keypt Óli Björn Kára- son aöalritstjóri Ritstjórnarbréf í nokkru er það tímanna tákn að um áramót skuli jafnt forsætisráð- herra sem biskup íslands beina at- hyglinni að siðferði - að því trausti sem nauðsynlegt er að ríki í sam- skiptum manna. Nýliðið ár gefur mörg tilefni til þess. Ég hef átt þess kost á síöustu tæpum tveimur áratugum að fylgj- ast ágætlega með íslensku þjóðlífi, lengst af sem blaðamaður en einnig sem þátttakandi í atvinnurekstri. Þannig hef ég fylgst með og skrifað ótal greinar um þær róttæku breyt- ingar sem orðið hafa á íslensku þjóðlífi í kjölfar aukins frelsis á flestum sviðum - frelsi sem nú þyk- ir sjáifsagt og eðlilegt, frelsi sem fá- ir muna eftir að þeir nutu ekki fyr- ir nokkrum árum. 1 flestu hefur þróunin verið ánægjuleg. Stjórnendur íslenskra fyrirtækja hafa öðlast aukið sjálfs- traust eins og best sést á sókn is- lenskra fyrirtækja inn á erlenda markaði, allt frá fjármálum til sjáv- arútvegs, frá lyfjaframleiðslu til hugbúnaðar. Samkeppnishæfni ís- lensks atvinnulífs hefur aldrei ver- ið meiri. Og stjómmálaumræðan hefur færst frá sósíalískri hug- myndafræði yfir í hugmyndabar- áttu um aukið frelsi og samkeppni á sem flestum sviðum. Hugmyndir almennings og stjómmálamanna um ríkisvaldið og hlutverk þess hafa gjörbreyst. Harka og siðleysi Ýmislegt sem gerst hefur hér á landi á síðustu mánuðum og miss- emm hefur hins vegar gefið ástæðu til að hafa áhyggjur af þróuninni á komandi árum. Harkan og á stund- um siðleysið sem ég skynjaði ekki áður hefur brotist upp á yfirborðið líkt og bent var á í leiðara DV 30. desember síðastliðinn: „Nú grípa menn gæsina í hvert skipti sem hún gefst. Hámörkun hagnaðarins skiptir öllu. Siðferðilegar spurning- ar um hvort rétt sé að eiga við- skiptin hafa vikið fyrir stundar- gróðanum. í stundargróðanum ligg- ur ein mesta ógnun sem nú steðjar að íslenskum fjármálamarkaði og raunar að islensku viðskiptalífi í heild. Því miður bendir ýmislegt til þess að hægt en örugglega sé verið að grafa undan eðlilegum hluta- bréfamarkaði hér á landi.“ Auðvitað er það svo að langflest- ir sem stunda viðskipti hér á landi eru heiðarlegir og hið sama má segja um íslenska stjórnmálamenn. Þeir skilja að trúnaður og traust verður seint ofmetið í samskiptum manna - þeir fara því ekki aðeins eftir skráðum lögum og reglum heldur ekki síður eftir hinum óskráðum siðareglum sem eru mik- ilvægar öllum siðmenntuðum þjóð- um. Undantekningarnar eru því miður hrópandi. Útsmognir refir spila á reglurnar - fara á svig við lög og siðferði. Traust skiptir engu, loforð skipta engu - aðeins hámörk- un eigin hagsmuna. Og því miður virðast margir komast upp með refsháttinn og siðleysið, hvort held- ur í viðskiptum eða stjómmálum. Samhljómur Samhljómur í áramótaávarpi Daviðs Oddssonar forsætisráðherra og í nýársávarpi herra Karls Sigur- bjömssonar biskups er í mörgu merkilegur og um leið skiljanlegur. Biskupinn benti á að í viðskipt- um hefðu verið miklar sviptingar: „Spumingar vöknuðu um siðgæði viðskiptalífsins, um traust og heil- indi í viðskiptum og samfélagi. Vandinn er hins vegar sá að hinir fáu útsmognu sem virða í engu almenn- ar leikreglur eða siðferði gera fjöldanum erfiðara fyrir að stunda viðskipti og stjómmál með heiðar- legum hætti. Trú snertir ekki aðeins hið svo- kallaða andlega svið lífsins ... Hún á umfram allt að verka hversdags, þar eiga ávextir hennar að birtast sem trúfesti, heilindi, tryggð og umhyggja sem era grundvallarstoö- ir heilbrigðs samfélags ... Trúleysi ógnar mannlegu samfé- lagi, viðskiptum og stjómmálum ... Valið stendur milli trúeir og trú- leysis á vettvangi hins hversdags- lega, sem og viðskipta og stjóm- mála.“ Forsætisráðherra talaði á sömu nótum: „Gagnkvæmt traust er ... orðið mikilvægasti lykillinn að samfélagi okkar. En þó sýnist stundum aö á sumum sviðum hafi orðið afturför þegar að þessum þætti kemur.“ Davíð benti á að mælingar sýndu að almenningur bæri takmarkað traust til stjómmálamanna og þó ættu fáir meira undir því að njóta trausts fólksins en einmitt þeir: „Furðumargir segja hálfsatt eða ósatt og virðast ekki leiða hugann eina örskotsstund að heiðri sínum og orðstír og það sem lakara er, enginn hermir framkomuna upp á viðkomandi og ótrúlega mörgum virðist standa á sama ... Traust er mikilvægasti þátturinn í því, sem þeir er sýsla með fyrirtæki kalla viðskiptavild. Traust getur maður ekki fengið lánað og heldur ekki keypt. Maður verður að ávinna sér traust með framgöngu sinni og það er ekki hlaupið að því að endur- heimta það, ef það glatast." Hólaræða Hólaræða Guðna Ágústssonar í ágúst á liðnu ári er að nokkru sama marki brennd og áramóta- ræður forsætisráðherra og biskups, þó landbúnaðarráðherra skreyti mál sitt meira og noti sterkari liti. Skilaboðin eru í nokkru þau sömu en með öðrum orðum: „Eru nýjar aðalsstéttir að ná tökum, hafa vaxt- arverkir fylgt góðærinu eða hafa erlendir samningar sem við höfum gert haft áhrif á þessa þróun, eru hlutafélögin öll með fallegu nöfnun- um tæki til að safna auði og ná í fjármagn í nýrri valdabaráttu? Stundum fær maður á tilfinning- una að allt sé þetta leikur stórra stráka i sandkassa. Við horfum á milljarða viðskipti í yfirtöku og sameiningu fyrirtækja, við skynj- um að einyrkinn er homreka og burtrækur úr aldingarði fjársýslu- mannanna. Við heyrum og sjáum stór gjaldþrot þar sem þeir minni eru féflettir ... Hér þarf nýjar og skýrar línur, okkar samfélag þrífst best sé auði og völdum dreift og að eignaraðildin að auðsuppsprett- imni sé margra en ekki fárra.“ Ég skrifaði á sínum tíma rit- stjómarbréf um Hólaræðu landbún- aðarráðherra og varaði við þeirri undirliggjandi hugmyndafræði ráð- herrans: „Með áræðni, dugnaði og eljusemi eru mönnum í atvinnulíf- inu ílestir vegir færir. Það hefur verið gæfa okkar íslendinga að til skuli vera menn - kallaðir athafna- skáld á hátíðarstundum - sem eru reiðubúnir að hætta öllu sínu við að byggja upp fyrirtæki. Og smátt og smátt hefur viðhorf til þeirra sem skara fram úr á sviði atvinnu- lífsins vegna dugnaðar og útsjónar- semi orðið jákvæðara. Að líkindum er það ein mesta og besta breyting sem orðið hefur á íslensku þjóðfé- lagi á síðustu árum.“ Vandinn er hins vegar sá að hin- ir fáu útsmognu sem virða í engu almennar leikreglur eða siðferði gera fjöldanum erfiðara fyrir að stunda viðskipti og stjórnmál með heiðarlegum hætti. Og einmitt þess vegna myndast jarðvegur fyrir hug- myndir sem ganga út frá því að rík- ið geti leyst flestan vanda í mann- legum samskiptum með beinum hætti. Reynslan sýnir að fremur er neikvætt samband milli umsvifa ríkisins og siðferðis. Og ríkið getur ekki keypt traust handa siðleys- ingjum samtímans. Sigmundur Ernir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.