Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2003, Side 32

Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2003, Side 32
32 H&Iqarblað J3V LAUGARDAGUR 4-. JANÚAR 2003 Skotleyfi Skaupsins „Ég hef líka lieyrt að sá sem klappi Vítisengli á bakið og snerti þannig merki lians fái hnefa samstundis í andlitið," segir Óskar Jónasson, leikstjóri Ára- mótaskaupsins. „Það má ekki snerta rnerkið og hvað þá afrita það og setja Vítisengla á skólabckk í Njarð- víkuin. Vítisenglum er sem betur fer ekki lilevpt inn í landið þannig að ég tel okkur þokkalega örugga. Þeir liljóta líka að skiija að þetta er saklaust grín - eða hvað? Ekki neina Fáfnir f Grindavík fái verkefni." Áramótaskaupið hefur síðustu tvö áramót runnið Ijúfleqa inn íheilabú áhorfenda. Leikstjóri þeirra var Oskar Jónasson. Hann seqir frá þessu mikilvæqa verkefni, einelti oq Sexy Loverboy. Óskar segir að það hafi verið ákveðið í febrúar að hann leikstýrði Áramótaskaupinu 2002 og skrifaði einnig handritið með Hallgrími Helgasyni og Hjálm- ari Hjálmarssyni en það er sama áhöfn og var í skaupskrifum 2001. „Það vafðist svolítið fyrir mér hvort ég ætti að taka þetta verkefni að mér,“ segir Óskar. „Það getur verið erfitt að fylgja þvi eftir sem heppnast vel. Ég hafði mjög gaman af því að gera Skaupið 2001 og við áttum fullt af sketsum og hug- myndum afgangs frá því ári sem gaf til ky.nna að hægt væri að búa til mikið efni þótt árið yrði ekki jafn viðburðaríkt og 2001. Sú varð raunin og marg- ir sketsar voru ekki notaðir: Keikó, víkingaskipið, Þjóðmenningarhúss-skandalinn, Guðni Ágústsson og Ástþór Magnússon sluppu af þeirri einföldu ástæðu að það var ekki pláss.“ Áramótaskaupið er vinsælasti sjónvarpsþáttur á landinu og allir hafa skoðanir á gerð þess. „Og all- ir hafa skoðanir tilbúnar strax!“ segir Óskar. „Höf- undarnir voru í góðu sms-sambandi á gamlárskvöld og við tókum þannig púlsinn - sem var ansi hraður. Fljótlega fór að rigna yfir okkur jákvæðum skila- boðum. En þetta hefur óneitanlega strekkjandi áhrif að sitja og horfa á Skaupið við þessar kringumstæð- ur. Maður getur ekki alveg einbeitt sér að flugelda- sprengingum og hrennum. Þegar komið er út á lifið um nóttina eru allir í miklu stuði og nenna ekki neinu argaþrasi. í fyrra var ég meira að segja á sama balli og Hannes Hólm- steinn Gissurarson og Kjartan Gunnarsson. Þeir virtust vera nokkuð sáttir við sinn hlut. Ég hef að mestu sloppið við aðkast þótt ég hafi núna lent í einni frussandi fyllibyttu sem þótti vanta meira um kvótakerfið. Ég veit svo sem ekki hvernig á að finna fyndinn flöt á því.“ Ýjað að ýmsu Undirritaður er með kenningu um að ef Skaupið sé ekki nægilega gott skapist úlfúð fyrir framan sjónvarpstækin sem brjótist út í auknu ofbeldi á nýársnótt. Síðustu tvær nýársnætur hafa enda verið friðsælar. „Fólki þykir það svikið ef ekki er nýtt tækifærið sem gefst til uppgjörs við ráðamenn þjóð- arinnar," segir Óskar. „Við höfum eitt kvöld þar sem við höfum skotleyfi á ríkisstjórnina og áberandi fígúrur í samtímanum. Ef ekki tekst að nýta það beinist gremjan eitthvað annað. Ég held að Skaupið spili mjög mikilvæga rullu í þjóðarsál íslendinga. Atriðin eru oft byggð á kjaftasögum en ekki staðfest- um fréttum; í Skaupinu er ýjað að ýmsu og menn vændir um hitt og þetta. Þjóðin verður að fá að jafna metin: gera upp sín mál við yfirvöld. Þetta er ekki ósvipað karnivali miðalda: almenn- ingur fær sinn málsvara. í svona verki fær fólk eins og Davíð Oddsson, Ólafur Ragnar, Sólveig Péturs- dóttir, Haraldur Johannessen og Ingibjörg Sólrún mestu sendingarnar þar sem þau eru í ráðandi stöð- um. Ef við réðumst stöðugt á stjórnarandstöðuna skapaðist undarleg slagsíða." Spaugstofan hóf göngu sína að nýju í haust og segir Óskar að það hafi haft nokkur áhrif á gerð DV-mynd Hari Skaupsins. „Það var óþægilegt að því leyti að þeir voru búnir að taka á mörgum málum og voru auk þess í áberandi hlutverkum í Skaupinu. Mér er annt um sjálfstæði Skaupsins. Spaugstofan afgreið- ir bara eina viku í einu en allt árið er undir í Skaupinu. Hættan er þó að Spaugstofunni takist að slökkva ákveðinn þorsta jafnóðum." Er þetta feldskerinn? Er þetta Eggert feldskeri? æpti kona í Kópavogin- um á mann sinn þegar gert var grín að Kastljósinu. Nei, það getur ekki verið, sagði eiginmaðurinn og hafði rangt fyrir sér. Þetta var auðvitað Eggert feld- skeri. Kiddi higfoot var einnig í hlutverki Gísla Ein- arssonar fréttamanns. Það voru því farnar nokkuð ótroðnar slóðir í Skaupinu og gengið langt í að finna tvífara þeirra sem gert var grín að. „Ég var á opnun sýningar í Gerðarsafni,“ segir Óskar, „þegar ég taldi mig sjá Kristján Kristjánsson og ákvað að spjalla við hann. Þegar ég nálgaðist hann kom í ljós að þetta var Eggert feldskeri. Ég var um þær mund- ir að leita að manni sem líktist Kristjáni og einfald- lega spurði Eggert hvort hann vildi leika hann. Hann tók vel í það og það sama gilti um Kidda big- foot - hann vildi ekki einu sinni fá borgað fyrir þetta.“ Hvað má ganga langt? Óskar segir að árið 2002 hafi verið litlausara á fréttasviðinu en 2001. „Það sem við græddum á í Skaupinu 2001 var að við lögðum mann í einelti,“ segir Óskar. „Við gengum mjög langt í umfiöllun okkar um Árna Johnsen. Fólk er bara þannig inn- rætt að það hefur gaman af því - ljótt að segja það

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.