Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2003, Síða 54

Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2003, Síða 54
58 HeIqctrhlað DV LAUGARDAGUR 4. JANÚAR 2003 Skákþátturinn Umsjón Sœvar Bjamason Skákárið 2002: Ovenju viðburðaríkt Síðastliðið ár var óvenju við- burðarikt í íslensku skáklífi og mörg mót og 2 einvígi sterkra skák- meistara voru haldin. Fyrir utan hefðbundna starfsemi var haldið al- þjóðlegt Reykjavíkurskákmót og Hrafn Jökulsson og félagar hans í Hróknum héldu alþjóðlegt skákmót í Árborg sem heppnaðist sérlega vel. Taflfélagið Hellir hélt, í sam- vinnu viö skákjöfurinn Guðmund Arason, einvigi á milli Hannesar Hlífars Stefánssonar og Nigels Short í Ráðhúsinu sem heppnaðist sérlega vel þótt Hannes tapaði. Þeir Hróksmenn voru með einvígi á milli Stefáns Kristjánssonar, alþjóð- legs meistara, og Tomasar Oral, tékknesks stórmeistara. Þar fékk Stefán Kristjánsson góða reynslu og hann hefur bætt sig mikið á árinu. Taflfélag Garðabæjar stóð fyrir mörgum uppákomum á árinu og var kvenna- og unglingaskák i fyr- irrúmi. Þar var drifijöðurin Jóhann Ragnarsson á ferðinni, með góðri liðveislu Guðmundar Arasonar, en hann hefur sannarlega sinnt skák- lífinu í landinu og komið mörgu góðu til leiðar. Guðlaug Þorsteins- dóttir hóf taflmennsku aftur eftir mörg ár og varð íslandsmeistari kvenna í samkeppni við þær bestu hér á landi og sýndi að hún hefur litlu gleymt. íslenska Ólympíuskák- sveitin stóð sig vel á Ólympíuskák- mótinu og varð langefst Norður- landaþjóðanna. Það er margt annað sem mætti minnast á en það sem gleður einna mest okkur sem höfum staðið í skákstússi síðustu áratugi er að vakning er að verða hjá æskulýð landsins og þátttaka æskunnar í landinu í skák er að aukast umtals- vert sem er mikið ánægjuefni. Þar kemur margt til en ég held aö ég halli á engan þegar ég nefni nafn Hrafns Jökulssonar sem svo sann- arlega hefur látið að sér kveða í út- breiðslu skáklistarinnar og það er ánægjuleg viðbót við skákflóruna. Það er því blómlegt um að litast í ís- lensku skáklífi um þessar mundir! Konur í skák Mikið hefur verið ritað og rætt um taflmennsku kvenna og sitt sýnist hverjum. Hér áður fyrr voru menn vissir um að konur næðu aldrei sama árangri í skák og karl- menn; þær skorti grimmd og árás- argimi að mati spekinganna og Kasparov benti á að þær hefðu minni heila! Menn hafa gefið út ýmsar yfirlýsingar í gegnum tíðina en sannleikurinn er sá að þegar konum tókst að ráði að komast inn í þetta mikla karlavígi þá hefur ár- angur þeirra batnað hratt. Skák kvenna á sér ekki langa hefð en karlmenn hafa teflt í gegnum ald- imar óáreittir af konum að mestu. Nú má sjá konur að tafli á flestum mótum, þátttaka þeirra eykst og, viti menn, þær tefla ekkert öðru- vísi en karlar, enda þurfa þær víst að leika mannganginum! í Hollandi var þessi skák tefld af tveim konum á síðasta ári og fékk fegurðarverðlaun fyrir. Hér á ís- landi eru uppi ýmsar raddir um taflmennsku kvenna en ég vil benda á að það er aldeilis búið að vinna brautryðjendastarfið fyrir karlana á meðan skákstarfsemi kvenna að einhverju ráði nær ekki 30 árum, með löngum hléum þar á milli. Hvítt: Tea Lanchava Svart: Bas Van der Lijn Kóngs-indversk vörn. Holland 2002 1. d4 Rf6 2. Rf3 g6 3. c4 Bg7 4. Rc3 0-0 5. e4 d6 6. Be2 e5 7. d5 a5 Hvítur beitir gömlu afbrigði í kóngs-indversku vörninni og nú er teflt eftir eigin hugmyndaflugi sem er oftast best þó varlega verði að fara með svoleiðis hugsanir í byrj- uninni! 8. h4 Ra6 9. Rd2 h5 Svart- ur ákveður að andæfa hvíta peða- storminum sem var í uppsiglingu. En hvítur fær nýja hugmynd! 10. Rf3 Rc5 11. Rg5 c6 12. Be3 cxd5 13. exd5?! Hér er 13. - e4 besti leikurinn, fylgt af Bf5, og svartur stendur bet- ur. Baráttan stendur um e4-reitinn til að byrja með en svartur teflir of hefðbundið. 13. - Bd7? 14. f3 Hc8 15. Dd2 He8 16. Rge4 Rcxe4 17. Rxe4 Bf5 18. Rf2 e4 19. f4 Rd7?! Svartur ögrar hvítum til árásar og svona miðað við þessa stöðu er það tvibent. Betri leikir voru hugsan- lega 19. - Dc7 eða 19. - Hc7. Hvítur er „neyddur" til að fara i mikla herferð. 20. g4 hxg4 21. h5 g3 22. Rg4 g2 23. Hh2 Rc5 24. Kf2 Rd3+ Hér virðist svartur vera að kné- setja hvítan en svo er ekki - mikið hugmyndaflug er eftir i hvítu stöð- unni. 25. Kxg2 Rxb2 26. h6 Rxc4. Það verður víst að segjast eins og er að hvíta staðan er ekki góö en engu að síður leynist falleg drottningarfórn hérna - eru þær ekki alltaf fallegar?! 27. hxg7 Rxd2 28. Bd4 f6 Hér er 28. - He5 athyglisverður möguleiki fyrir svartan til að ná betra tafli en hverjum dettur svona leikur í hug? Tölvu! (En þær hugsa reyndar ekki!) 29. Rxf6+ Kf7 30. Rxe8 Dxe8 31. Hh8 Da4. Nú kemur stórkostlegur leikur eða, eins og karlremburnar segja, karlmannlega leikið! 32. Hcl! Svartur má ekki drepa á cl vegna þess að þá kemur 33. g8D+ og mát- ar í nokkrum leikjum. Ekki gengur 32. - Hg8 33. Hc7+ Bd7 34. Bg4 og hvítur vinnur! En ekki eru öll kurl komin til grafar. 32. - Dxd4? Svo sem eölilegur uppgjafarleikur en það lygilega er að svartur getur bjargað sér með tölvuleiknum 32. - Bh3+ og ætti að geta bjargað sér! Eftir 33. Kxh3 kemur Da3+! Annar tölvuleikur! Svo eftir 32. Kh2 Hg8 33. Hc7+ Bg4 34. Bg4 RÍ3+ vinnur svartur. Best er því eftir tölvuleik- inn 32. - Bh3+ að leika 33. Hxh3 Dxd4 34. Hxc8 Kxg7 35. Hc7 Kg8 með jafntefli! 33. Hc7+ 1-0 Það er víst mát í fáum, eða í 6. leik, segir tölvuskrattinn! Sigurskák Davíðs Þeir Davíð Kjartansson og Hall- dór B. Halldórsson eru nú staddir á sterku unglingamóti í Hallsberg í Svíþjóð. Við erum margir sem höf- um teflt þarna gegnum tíðina og svona mót gefa dýrmæta reynslu. Eftir 6. umferðir hefur Davið 4 v. af 6 og er meðal efstu manna. Hall- dór hefur 2,5 v. en hann á eflaust eftir að bæta sig. Hér sjáum við Davíð láta Eistlending finna ræki- lega til tevatnsins. Hvítt: Ruslan Goglin (2109) Svart: Davíð Kjartansson (2224) Nimzo-indversk vörn. Hallsberg 31.12. 2002 1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3 Bb4 4. e3 0-0 5. Bd3 d5 6. Rge2 c5 7. 0-0 Rc6 8. cxd5 exd5. Hér er líka stundum leikið 8. - Rxd5 en staða þessi hefur verið mikið rannsökuö í gegnum tíðina! 9. dxc5 Bxc5 10. a3 a6 Davíð teflir til vinnings en þekkt er að framrásin 10. - d4 gef- ur svörtum jafnt tafl. En auðvitað er teflt upp á vinning! 11. Dc2 Ba7 12. Hdl Bg4 13. h3 Bxe2 14. Rxe2 Hc8 15. Dbl Dd6 16. b4 Bb8. Hvitur fer út í mjög vafasamar flækjur og hefur litið upp úr krafs- inu. Best var að leika 17. Rg3 hér. 17. Bb2 Dh2+ 18. Kfl Dhl+ 19. Rgl Og hér finnur Davíð sterkan leik sem setur hvítan í mikinn vanda. 19. - Bh2 var vafasamur leikur vegna þess að þá leikur hvítur 20. Bxf6 og hefur einhverja smávon í þeim flækjum. Nú rekur svartur kóng hvíts út á vergang! 19. - d4! 20. g3 dxe3 21. Bxf6 exf2 22. Bxh7+ Kh8 23. Bxg7+ Kxg7 Hvít- ur hefur leikið illa af sér og sér nú að hann tapar eftir 24. Kxf2 Ba7+! Hann neyðist til að fórna manni fyrir litið! 24. Db2+ Kxh7 25. Dxf2 De4 26. Rf3 Dg6 27. Rh4 Dg5 28. Df3 Re5 29. De4+ Rg6 30. Hd5 Df6+ 31. Kg2 Auðvitað tekur svartur ekki hrókinn; það er óþarfa áhætta. Davíð velur örugga leið sem rekur kóng hvíts út á borðið og taflið er auöunniö. 31. - Db2+ 32. Kf3 Dc3+ 33. Kg4 Dxg3+ 34. Kh5 Dxh3 35. Hhl Bh2 0-1 Hannes Hlífar að tafli í Stokkliólmi! Hannes teflir á Rilton Cup-mót- inu og margir stórmeistarar eru meðal þátttakenda. Hannes hefur 4 v. af 6 og gæti átt það til að blanda sér í toppbaráttuna eftir slysalegt tap í 6. umferð. Ekki veit ég um fleiri skákmenn á skákmóti nú um áramótin erlendis en Hannes og svo þá Davið Kjartansson og Hall- dór B. Halldórsson. Fjölmörg hrað- skákmót hafa verið tefld um hátíð- irnar að vanda en ekki ætla ég að fjölyrða um þau mót, þau eru ánægjuleg og íslensku stórmeistar- arnir hafa verið duglegir að tefla á þeim. íslandsmót í bamaflokki Barnaflokkur á Skákþingi ís- lands 2003 verður nú haldinn dag- ana 4. og 5. janúar nk. Mótið verð- ur haldið í húsnæöi Taflfélags Reykjavíkur, Faxafeni 12, og hefst kl. 13.00 laugardaginn 4. janúar. Þátttökurétt eiga börn, fædd 1992 og síðar. 3522^ St^——T~-—_ ^iTsölu^ 7 ^arina, ekinn 12ihn’c iíúrbó d'sel> fallegur bíll. Einn eijandi m' Mjög 2?ðg «nn6!Ur auk^ún öur Verðieooþus^jppi , s, 5Q er smáauglýsingablaðið Verð á smáauglýsingu með 200 slögum: v ffti* Smáauglýsingar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.