Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2003, Blaðsíða 13
13
FÖSTUDAGUR 31. JANÚAR 2003____________________________________________________________________________________________
I>V Útlönd
ísraelsmenn hófu aftur aðgerðir í gær eftir þingkosningar:
Réðust inn í Hebron og
fyrirskipuðu útgöngubann
AP
Rolf Eriksen
Stjórnarformaöur H&M tilkynnir árs-
uppgjör fyrirtækisins.
Methagnaður hjá
Hennes & Mauritz
Hagnaður Hennes & Mauritz,
einnar stærstu fataverslanakeðju í
Evrópu, var 3,4 milljarðar sænskra
króna fyrir skatta á þriggja mán-
aða tímabili til 30. nóvember 2002.
Árshagnaður reyndist 8,6 milljarð-
ar sænskar fyrir skatta og jókst
hann um 50% frá árinu á undan.
Sölutekjur jukust umtalsvert, eöa
um 15%, en um 14% sé miðað við
fast gengi.
Vörulinur fyrirtækisins hafa ver-
ið afar vel heppnaðar síðustu miss-
erin og skýrir það, ásamt hagræð-
ingu í innkaupum og dreifingu,
aukinn hagnað. Þá hefur fram-
leiðsla fyrirtækisins verið löguð í
auknum mæli að árstíðasveiflum
sem minnkað hefur hlutfall vam-
ings sem seldur er á útsölum. Fyr-
irtækið hefur vaxið mikið á síð-
ustu árum og eru H&M-verslanir
nú víðs vegar um heiminn. Á
þessu ári áætlar fyrirtækið að opna
um 110 nýjar verslanir, m.a. í Pól-
landi, Tékklandi og Portúgal, þar
sem það hefur ekki verið með
verslanir áður. Þá munu fimm nýj-
ar verslanir verða opnaðar í
Toronto i Kanada á næsta ári.
Hvattur til að
nota smokkinn
Tveggja mánaða gamall norskur
drengur, Even Andreas, fékk á dög-
unum bréf frá sjúkrahúsi í Finn-
mörku þar sem hann er hvattur til
þess að nota smokkinn við kynmök.
í bréfmu kom einnig fram að hann
hefði ekki reynst sýktur af klamidíu,
eins og óttast var, og hefðu sýnin
sem tekin voru úr honum í fýrri
viku sem betur fer reynst neikvæð.
Foreldrum Evens brá auðvitað í
brún við að lesa bréfið en þau hjónin
höfðu einmitt farið með drenginn á
umrætt sjúkrahús í fyrri viku vegna
sýkingar í augum. Þegar að var gáð
kom í ljós að ungur piltur hafði kom-
ið á sjúkrahúsið sama dag og kvartað
yflr óþægindum á ákveðnum stað og
höfðu niðurstööur þeirrar rannsókn-
ar óvart lent á sjúkraskýrslu Evens.
Að sögn foður Evens sýna kannan-
ir að ungt fólk í Finnmörku byrjar
kynlífið mun fyrr en annars staðar i
Noregi en að byrja tveggja mánaða
sé nokkuð snemmt. „Þetta voru aug-
ljós mistök," sagði faðirinn.
Minnst níu fórust í
lestarslysi í Sydney
Farþegalest fór út af sporinu á há-
annatíma í útjaðri Sydney í Ástral-
íu i nótt. Minnst 9 eru látnir og 15
slösuðust alvarlega i mesta lestar-
slysi landsins í 26 ár.
Þar sem enginn vegur lá að slysa-
svæðinu þurftu björgunarmenn aö
hlaupa 1,5 km á ógreiðfæru landi til
að komast að slysstaðnum. Þegar
þangað var komið blasti við ófogur
sjón en fómarlömb, bæði lífs og lið-
in, lágu víðs vegar um svæðið. 16
voru enn fastir í lestinni og tók það
björgunarmenn 3 tíma að losa þann
síðasta. Notast þurfti við grjót til að
brjóta sér leið inn í tvo vagnanna.
Orsök slyssins er enn ókunn en svo
virðist sem lestin hafi skyndilega
aukið hraðann til muna skömmu fyr-
ir slysið. „Það lítur út fyrir að þá hafi
hún komið að krappri beygju," sagði
einn farþeganna. „Það varð mikill
skellur og við fórum á hliðma."
Lestarslys í Ástralíu
Þaö tók björgunarmenn 3 tíma aö
bjarga öllum úr lestarflakinu.
ísraelskar hersveitir réðust í gær
inn í bæinn Hebron á Vesturbakkan-
um og fyrirskipuðu útgöngubann í
fyrstu stóraðgerðum sínum eftir þing-
kosningarnar á þriðjudaginn.
Hermenn gengu hús úr húsi í leit
að grunuðum hryðjuverkamönnum og
voru að minnsta kosti fimm hand-
teknir á meðan jarðýtur hersins
eyðilögðu fjölda íbúðabygginga, auk
þess sem þær lögðu aðalmarkaðstorg
bæjarins í rúst.
Að sögn talsmanns ísraelska hers-
ins voru þeir handteknu allir liðs-
menn Fatah-hreyfmgar Yassers Ara-
fats. Auk þess hefðu nokkrir lögreglu-
menn verið handteknir en þeim var
sleppt strax aftur.
Palestínskir unglingar köstuðu
grjóti að ísraelsku hermönnunum og
var þeim svarað með gúmmíkúlum en
engar fréttir höfðu borist af mann-
skaða.
Ibúar Hebron í herkví.
ísraelska ríkisútvarpið sagði í gær-
kvöld að frekari aðgerðir í bænum
myndu eflaust standa í nokkra daga
en þær væru svar við sífelldum
hryðjuverkum á svæðinu dagana fyr-
ir kosningar og þar á meðal drápin á
þremur ísraelskum hermönnum í síð-
ustu viku.
Alls átján ísraelskir borgarar hafa
verið drepnir á Hebron-svæðinu síðan
um miðjan nóvember í fyrra, en á
svæðinu búa um 120 þúsund manns,
þar á meðal um 600 ísraelskir land-
nemar.
í gærmorgun var einng ráðist inn
í sjónvarps- og útvarpsstöðvar bæjar-
ins og þeim lokað, auk þess sem
helstu samgönguleiðum var lokað og
einnig skrifstofum palestínskra
stjórnvalda í bænum.
í öðrum aðgerðum ísraelska hers-
ins á Vesturbakkanum og Gaza-svæð-
inu voru að minnsta kosti fimm grun-
aðir hryðjuverkamenn skotnir til
bana, þar á meðal foringi al-Aqsa-
hreyfmgarinnar í bænum Tulkarem,
en auk þess særðust átta aðrir í að-
gerðum í bænum, þar af tvær ung-
lingsstúlkur.
í bænum Tamun, nálægt Jenin,
særðust tuttugu manns og í Jenín og
Nablus voru að minnsta kosti átján
Palestinumenn handteknir.
Bush með rautt trúösnef
Ný tískulína stuttermabola eftir brasiiíska tískuhönnuöinn Vide Bula var kynnt í Sao
Paulo i Brasilíu í gær og vakti bolur meö mynd af Bush Bandaríkjaforseta meö
rautt trúösnef mesta athygli sýningargesta. Taliö er aö bolurinn veröi mjög vinsæll
og vonast framleiðendur til þess aö hann muni slá í gegn í Bandarikjunum.
Þingmaðurinn
spilaði stríðsleik
Norðmaðurinn
Trond Helleland, þing-
maður norska íhalds-
flokksins, var staðinn
að verki i fyrradag þar
sem hann spilaði stríðs-
leik í ferðatölvunni
sinni í miðjum umræð-
um í þingsal norska
Stórþingsins.
Það sem Helleland
vissi ekki var að sjón-
varpsvélum var beint
að honum meðan heitar
umræður um þátttöku
norskra herþotna í loft-
árásum í Afganistan
fóru fram í þinginu.
Að sögn hans sjálfs hafði hann að-
eins ætlað að kíkja í dagbókina sína
í tölvunni en ekki staðist það að taka
eina lotu í stríðsleiknum Metalion,
en sá leikur gerist úti f geimnum og
gengur út á það að skjóta niður
flaugar andstæðingsins með geisla-
byssu.
Þegar upptökumennimir sáu hvað
Helleland aðhafðist stóðust þeir ekki
freistinguna og mynduðu hann við
iðju sína í heilar sjö mínútur, en
upptakan var síðan sýnd i fréttatíma
norska sjónvarpsins.
Marit Nybakk, þing-
maður Verkamanna-
flokksins, hneykslaðist
á Helleland og sagði
það ekki gott til af-
spurnar fyrir þingheim
aö kjörnir fulltrúar
væru að spila tölvu-
stríðsleiki þegar svo al-
varleg umræða sem
stríðsátökin í Afganist-
an væra færi fram í
þinginu.
Á meðan Helleland
var niðursokkinn í
leikinn var deilt um
þátttöku norsku her-
þotnanna í aðgerðum í
suðurhluta Afganistans á mánudag-
inn, en þá skutu þær sprengjuflaug-
um að hellamannvirkjum sem stuðn-
ingsmenn talibana höfðu komið sér
fyrir í og var það í fyrsta skipti sið-
an í seinni heimsstyrjöldinni sem
Norðmenn taka beinan þátt i hernað-
araðgerðum.
Helleland varði sjálfan sig og sagð-
ist hafa fylgst með flestu því sem
fram fór í umræöunum á meðan
hann spilaði. „En auðvitað var þetta
vandræðalegt og hefði aldrei átt að
gerast," sagði hann.
Trond Helleland
Helleland spilaöi tölvu-
stríösleik undir heitum
umræöum í þinginu.
Faröu úr bænum á góðum bíl frá Avis - Helgarbíllinn þinn
Hringdu i Avis simi 5914000
Knarrarvogur i - 104 Reykjavik - www.avis.is
AV/S
Viö gerum betur