Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2003, Síða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2003, Síða 23
FÖSTUDAGUR 31. JANÚAR 2003 DV _______23 t Tilvera í f iö I ! !í V I N N II •Leikhús Tattú hiá Nemendaleikhúsinu Nemendaleikhúsiö frumsýnir leikritiö Tattú ettir Sigurö Pálsson. Þetta er annað verkefni leikhópsins I vetur en í haust sýndu þau leik- ritiö Skýfall eftir Sergi Belbel. Tattú er nýtt leik- rit sem Sigurður Pálsson samdi sérstaklega fýrir leikhópinn. í verkinu skarast fortíö, nútíð og framtíö í gömlu bakhúsi viö Hlemm. Þar sem áöur var Café Henríetta er nú starfrækt tattústofa. En þótt nýir tímar og nýtt fólk hafi tekið við, virðist sem fýrri íbúar hússins hafi ekki farið langt, jafnvel þótt sumir þeirra seu löngu komnir undir græna torfu. Leikstjóri verksins er Rúnar Guðbrandsson. Aðgangseyrir er 1000 kall. Miðapantanir í síma 5521971, • T ónleikar BÖrkuml og Sta herdeildin á Grand Rokk Hljómsveitirnar Örkuml og 5ta herdeildln leika á tónleikum á Grand Rokk í kvöld. Tónleikarn- ir heflast á miðnætti. •Fundir og fyrirlestrar Tétlunarrannsóknir Milli kl. 12 og 13 flytur Hanna Björg Sigurjóns- dóttlr erindið Sjðnarhorn og reynsla stuön- ingsaöila seinfærra/þroskaheftra foreldra.. Fyrirlesturinn er í stofu 101 í Odda, Háskóla íslands og er öllum opinn. Fyririesturinn fjallar um reynslu og sjónarhorn starfsfólks/fagfólks sem veitir seinfærum/þroskaheftum foreldr- um og börnum þeirra stuðning og þjónustu. Seinfærir foreldrar eru nýr hópur notenda fé- lagslegrar þjónustu og það starfsfólk sem vinnur í félags-, heilbrigðis- og fötlunarþjón- ustu eru brautryðjendur á þessu sviði. Erindið byggist á doktorsrannsókn sem hófst haustið 1999 og er áætlað að Ijúki síðsumars 2004. Markmið rannsóknarinnar er tvíþætt. Annars vegar að kortleggja þann fjölskyldustuðning sem í boði er, hversu vel þjónustan mætir þörfum fólks, skilgreina hvers konar stuðning- ur nýtist best og hvaöa þættir þurfa að vera til staðar til að stuðningur sé árangursríkur. Hitt markmiöið er að skilgreina hvað það er f fari, menntun, reynslu og viðhorfum fagfólks sem hafa áhrif á gæði stuðningsins. Notaðar eru eigindlegar rannsóknaraðferðir og gagna er aflað með viðtölum, þátttökuathugunum og rýnihópaviðtölum. Fyrirlesturinn er hluti af fýrir- lestrarröð um fötlunarrannsóknir sem uppeld- is- og menntunarfræðiskor við Félagsvísinda- deild Háskóla Islands gengst fýrir I vetur f samstarfi við Lanndssamtökin Þroskahjálp og Öryrkjabandalag íslands BSamkvnhneigdir á vinnumarkaði Samtökin 78 og Mannréttindaskrifstofa ís- lands bjóöa til málþings um atvinnumál í Nor- ræna húsinu kl. 15-17 og nefnist það Sam- kynhneigðir á vinnumarkaöi. Frummælendur eru Rannveig Traustadóttir, dósent við Há- skóla íslands; Atli Gislason hæstaréttarlög- maður; Páll Hreinsson, prófessor við Háskóia íslands og formaður stjórnar Persónuverndar; Bergþóra Ingólfsdðttir, fulltrúi á lögmanns- stofu; Árelía E. Guðmundsdóttir, lektor við Há- skólann I Reykjavik, og Halldór Guðmundsson útgefandi. Fundarstjóri er Ragnar Aðalsteins- son hæstaréttarlögmaður. í stuttum framsögu- erindum er fjallað um íslenska löggjöf eins og hún snýr aö samkynhneigðum á vinnumark- aöi. Rætt er um persónuvernd, einkalíf og sið- ferði f starfsmannaráðningum og starfs- mannahaldi og tekin nýleg fslensk dæmi af slíku hvað samkynhneigða varðar. Nauðsyn fjölbreytileika og jafnréttisákvæða í starfs- mannastefnu sem tekur af öll tvfmæli f af- stöðu til samkynhneigðra og annarra minni- hlutahópa og tekin dæmi af viðhorfsbreyting- um á vinnustað. Einnig er greint frá erlendum rannsóknum á reynslu samkynhneigðra af kúgun á vinnustað. Að framsöguerindunum loknum verða almennar umræður og fyrir- spurnum svarað. Málþingið er öllum opið meö- an húsrúm leyfir. Krossgáta Lárétt: 1 skilningarvit, 4 kringla, 7 mastur, 8 vegur, 10 hryðjan, 12 sár, 13 snjór, 14 gauð, 15 svip, 16 eirðarlaus, 18 glápa, 21 skrokkur, 22 kona, 23 tröll. Lóðrétt: 1 ánægð, 2 reyki, 3 eyöilegging, 4 óframfærinn, 5 kostur, 6 land, 9 fuglar, 11 byrstan, 16 mynnis, 17 hjjóðfæri, 19 gruni, 20 gremja. Lausn neðst á síðunni. Hvttur á leik! Mikil spenna er hlaupin í Skák- þing Reykjavíkur nú þegar aðeins tvær umferðir eru eftir. A.m.k. sjö skákmenn eiga möguleika á sigri og loftið er lævi blandið á skákstað. Stef- án Kristjánsson og Sigurbjöm J. Bjömsson eru efstir með sjö vinninga að loknum níu umferðum á Skák- þingi Reykjavíkur. 1 3-7. sæti með 6Q Umsjón: Sævar Bjarnason vinning eru Jón Viktor Gunnarsson, Magnús Örn, Bragi Þorfínnsson, Bergsteinn Einarsson og Sævar Bjamason. Bergsteinn Einarsson er einn þeirra sem eru að heíja tafl- mennsku aftur eftir nokkurra ára hlé. Hann virðist litlu hafa gleymt enda enn ungur að árum þrátt fyrir fjarveruna sem að mestu fór i há- skólanám. Hvítt: Bergsteinn Einarsson Svart: Haraldur Baldursson Skákþing Reykjavikur 2003 (7), 24. 1. 2003 1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3 d5 4. Rf3 Be7 5. Bg5 Rbd7 6.e3 c6 7. Bd3 0-0 8. 0-0 dxc4 9. Bxc4 b5 10. Bd3 Bb7 11. Hcl a6 12. Bxf6 Rxf6 13. Re4 Rd7 14. Dc2 f5 15. Rc5 Rxc5 16. dxc5 Bf6 17. e4 g6 18. Db3 Kh8 19. Hcdl De7 20. e5 Bg7 21. Bbl Had8 22. Hd6 Hfe8 23. Hfdl g5 24. De3 h6 (Stöðumyndin) 25. Rd4 Hxd6 26. cxd6 Df7 27. Rb3 Hd8 28. Db6 Hg8 29. d7 1-0. IIUB 06 'po 61 ‘oqo iT ‘sso 91 ‘irenr 11 ‘Jttua 6 ‘0?I 9 ‘IBA 9 ‘jn3æjpajq \ Jojqjngiu g ‘iso z ‘I®s 1 :j)ajQOl isu ez ‘lous zz ‘Jnioq iz ‘buo3 8i ‘jojjo 91 ‘æjq 8i ‘bjoj n ‘jæus gi ‘pun zi ‘011? 01 ‘Oiai 8 ‘ei§?s í ‘jeAq ý ‘uofs 1 :moj?i DV-MYND: JÚLÍA IMSLAND Sólarupprás í Lóni. Dagfari Jörðin hún hlakk- aði af hófadyn Hestakvæðin rifjuðust upp um helgina sem leið. Ljóðlínur eins og ...“Sá drekkur hvern gleðinnar dropa í grunn sem dansar á fáksspori yfir grund“ og „... knapinn á hestbaki er kóngur um stund, kórónulaus á hann ríki og álfur“. Ég fór nefnilega í útreiðartúr með nokkrum starfsfélögum og fleirum. (Tek samt setning- unni „Maðurinn einn er ei nema hálfur, með öðrum er hann meiri en hann sjálfur“... svo að átt sé við mig og hest- inn en ekki mig og þá - þótt það gæti svo sem líka passað.) Myndasögur Við fórum á vegum íshesta í Hafnarfirði og fengum fínt veður. Lögðum af stað undir kvöld en ekki „í morgunljóm- ann“ en allt logaði þó af dýrð, svo vitt sem varð séð. Ég fékk hryssu til reiðar sem gegndi nafninu Freyja. Okkur samdi ágætlega þótt ekki geti ég sagt að höfuðið hafi lyfst „og hin lifandi vél logað af fjöri undir söðulsins þófum“. Reiðstígarnir í nágrenni ís- hestahallarinnar liggja um hraun og kjarr, yndislegt svæði og ósnortið, þrátt fyrir náiægð álversins. Fyrst var farið fetið en fljótlega á skjögt og hraðinn aukinn lítillega eftir því sem knapar og klárar kynntust. Þó aldrei svo að fylkingin væði „fram í þykk- um moldarmekki, mylsnu hrauns og dökku sandaróti". Fátt bar til tíðinda nema hvað tvær konur týndust. Þær skil- uðu sér þó sem betur fór og hefur ratvísi hestanna eflaust átt sinn þátt í því. Sannaðist þar að „klárnum á þjóðin að launa sitt líf á leikvelli ís- lenskra þrauta“! Gunnarsdóttir Slæmu fréttirnar eru að breytingar kosta aukalega. Góðu fréttirnar eru að þetta bjarnarskinn er á útsölu. Þesei sæapi mun aldrei burfa að hafa áhyggjur af hundaæði! f--- Jæja, þá er Arnaldur kominn til Jýralæknis til að láta sprauta sæapana... Né nokkuð annað! tónlist! Við verðum rennandi, hérna er £ ekkert skjól. ‘35 Jess! Þetta er 6kemmtilegi kaflinn þar 6em mamma ýtir mér alltaf hratt... ... akkúrat framhjá iðnaðarsvasðinul K:

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.