Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2003, Síða 25
25
FÖSTUDAGUR 31. JANÚAR 2003
DV Tilvera
Norman Mailer
80 ára
Einn frægasti samtímarit-
höfundur Bandarikjanna,
Norman Mailer, á stórafínæli í
dag. Hann var 25 ára gamall
þegar hann sendi frá sér stríösádeiluna,
The Naked and the Dead, sem hann byggði
á reynslu sinni i seinni heimsstyrjöldinni.
Er sú skáldsaga enn þann dag í dag talin
ein besta sagan úr seinni heimsstyrjöld-
inni. Mailer starfaði einnig sem blaðamað-
ur og hefúr unnið til margra verðlauna á
þeim vettvangi. Mailer hefur alla tíð látið
pólitik sig miklu máh skipta og sent eitr-
aðar örvar til þeirra sem honum hkar
ekki við. Mailer á aö baki sex hjónabönd
og á níu böm með eiginkonum sínum.
Gildir fyrir laugardaginn 1. febrúar
Vatnsberinn (20. ian.-18. febr.t:
1 k Áhugi þinn á einhverju
” máli eykst og þú tekur
meiri þátt í félagslíii í
dag en undanfarið. Þú
getur kynnst skemmtilegu fólki en
þú verður að stilla eyðslunni í hóf.
Fiskarnir (19. febr.-20. marsl:
Það verður auðvelt að
fá fólk til að taka
þátt í breytingum á
vissum sviðum. Vertu
þolinmóður þó ekki gangi allt
strax upp.
Hrúturinn 121 . mars-19. anrill:
. Vertu á verði gagnvart
'kjaftasögum. Ekki trúa
öllu sem þú heyrir því
fólk þarf ekki endilega
að vera areiðanlegt þó að svo
virðist vera við fyrstu sýn.
Nautið 120. anríl-20. mai>:
Heppnin verður með
þér fyrri hluta dagsins
og þú færð tækifæri
sem þú hefur beðið
eftir lengi. Það verður mikið um
að vera í félagslífinu í kvöld.
Tvíburarnir (21. maí-21. iúní):
V Þú ættir að forðast
smámunasemi í dag.
— / / Ekki gagnrýna fólk að
óþörfu þó að þú sért
ekki sammála því að öllu leyti.
Happatölur þínar eru 7, 29 og 35.
Krabbinn (22. iúní-22. iúiii:
Þú ert í góðu jafnvægi
i í dag. Þér gengur vel
' að vinna úr því sem
þú hefur og ert ftjótur
að vinna verkefni sem þú tekur
þér fyrir hendur.
Liónið (23. iúlí- 22. áeúsú:
. Vinir þinir koma þér á
óvart á einhvem hátt
og þú hefur í nógu að
snúast í sambandi við
félagslíf fyrri hluta dagsins.
Happatölur þínar eru 11, 23 og 24.
Mevian (23. áeúst-22. sept.l:
Dagurinn verður
fremur viðburða-
snauöur og þú eyðir
^ f honum í ró og næði.
Fjölskyldan kemur við sögu
seinni hlutá dags.
Vogjn (23. sept.-23. okt.i:
j/ Þú ættir að sýna aðgát í
samskiptum við aðra.
V f Fullkomin hreinskilni
r f borgar sig ekki aUtaf.
Kvöldið verður ánægjulegt.
Happatölur þínar eru 8,12 og 25.
Spofðdrekinn (24. okt.-2i. nðv.):
|Þú kynnist nýju fólki
sem vekur áhuga þinn.
pHugsaðu þig vel um
| áður en þú tekur
mikUvægar ákvaröanir.
Happatölur þínar eru 1, 3 og 9.
Bogmaðurinn (22. nðv.-?i. des.i:
»Þú þarft að beita sann-
“ ^^færingarkrafti tU að
fá fólk í Uð með þér.
■9V
■I
’ \ Einbeittu þér að
smáatriðum og vertu vandvirkur.
Happatölur þínar em 4, 5 og 31.
Steingeitin (22. des.-19. ian.l:
Þú ættir að hugleiða
breytingu í stárfi þínu.
Vinur þinn á í ein-
hverjum erfiðleikum.
Þú verður að sýna tiUitssemi og
nærgætni ef leitað er tU þín.
Allir íþráttaviáburáir í beinni á risaskjám. Pool. Góáur matseáill.
Tökum aá akkur hápa, starfsmannafélög. Stórt ag gatt dansgálf.
Bæjarlind 4 • 201 Kópavogur • Sími 544 5514
Mikil óreiða á orku-
flæði jarðarinnar
- segir indíáninn Dhyani Ywahoo sem er stödd hér á landi til aö halda dans- og hugleiðslunámskeiö
„Ég var köhuð hingað af litla fólk-
inu,“ segir Cherokee-indíáninn Dhyani
Ywahoo sem er stödd hér á landi til að
halda dans- og hugleiðslunámskeið og
kynna lífsspeki indíána. Dhyani Ywa-
hoo fæddist í New York en býr í
Vermont þar sem hún er höfðingi yflr
þrjú hundruð manna ættbálki indíána
sem heitir Ani Yunwiwa.
Gjöf lífsins
Dhyani segir að nafn sitt þýði gjöf
lífsins á máli nútíma Cherokee-
indíána. „Ywahoo kemur aftur á móti
úr eldra tungumáli sem var sameigin-
legt mörgum ættbálkum skógarindiána
og þýðfr stóri leyndardómur.
Það má segja að starf mitt felist í því
að minna fólk á og hjálpa því að tengj-
ast frumkröftunum, jörð, vindi, eldi,
lofti og vatni. Við erum öll tengd þess-
um öflum og með því að fmna frið í
hjartanu og fyrirgefa sjálfúm okkur og
öðrum mistök í lífmu getum við stuðl-
að að betra mannlifl.“
Dhyani segist hafa verið kölluð til
starfa fyrir rúmlega þrjátíu árum og nú
ferðast hún viða og heldur fyrirlestra
og námskeið. „Skyldur mínar sem
höfðingi eru fyrst og fremst við ætt-
bálkinn en ég reyni að koma til móts
við fólk sem biður mig að halda fyrir-
lestra og námskeið. Til að byija með
kenndi ég bara índíánum en árið 1969
var mér sagt að stækka áheyrendahóp-
inn og kenna öllum sem vildu meðtaka
það sem ég hef að segja.“
Að sögn Dhyani hafa móttökurnar
verið ótrúlega góðar. „Fyrstu árin kom
fólk í stórum hópum að heimili mínu
til að tala við mig og ég þurfti að fela
mig í kjallaranum til að fá frið tU að ala
upp börnin. Þetta gat stundum verið
mjög erfitt en eftir að bömin uxu úr
grasi hef ég haft meiri tíma til að sinna
starfinu."
Baráttan fyrir rétti innfæddra
„Ég hef haldið mörg námskeið í
Bandarikjunum en þó fúrðulegt megi
virðast var Tyrkland fyrsta landið utan
þeirra þar sem ég hélt námskeið og það
kom mér á óvart hvað gömul tyrknesk
menning og menning índíána eiga
margt sameiginlegt. Ég hef einnig hald-
ið mörg námskeið í Evrópu og fyrir
indíána í Mið-Ameríku.“
Dhyani segist hafa komið einu sinni
áður til íslands. „Mig minnir að það
hafi verið árið 1981 en þá var ég í hópi
með frumbyggjum frá Ameríku á leið
til Genfar. Við stoppuðum hér til að
kynna baráttu okkar og leita eftir
stuðningi í baráttunni fyrir rétti inn-
fæddra um allan heim.“
Ójafnvægi í hraunflæði
„Ég var kölluð til íslands af litla fólk-
inu sem býr í landinu," segir Dhyani,
„til að aðstoða það við að koma reglu á
orkustöðvamar. Litla fólkið hafði sam-
band við mig í gegnum orkulínur jarð-
arinnar og bað mig að aðstoða sig
vegna mikillar óreglu í orkuflæði
landsins. Að þess sögn er ójafnvægi á
hraunflæðinu inni í jörðinni vegna
þess að mennimir em að tapa hlýjunni
úr hjarta sínu. Það em sterk tengsl
milli meðvitundarinnar og frumkrafta
jarðar og kraftar eldsins fara úr jafn-
vægi þegar fólk hættir að sýna hvað
öðru hlýju og væntumþykju."
Að sögn Dhyani er tilgangurinn með
komu hennar til landsins að hjálpa litla
fólkinu að koma á jafnvægi í orkuflæði
jarðar með því að kenna fólki jákvæða
hugleiðslu.
„Ég hef ekki hugmynd um hversu
margir mæta á námskeiðið en vona að
það verði sem flestir. Því fleiri sem
mæta og taka þátt í hugleiðslúnni því
betra.“
Orkulínurnar rofnar
Dhyani segist vera skyggn og sjá
litla fólkið víða. „Það þarf enginn að ef-
ast um tilveru þess en það heldur sig
mest þar sem lítið er um vélar og ekki
Gjöf lífsins og stóri leyndardómur
Að sögn Cherokee-indíánans Dhyani Ywahoo eru.aiiir tengdir frumkröftum jarðarinnar og meö því aö finna friö í hjart-
anu og fyrirgefa sjálfum okkur og öörum mistök í lífmu getum viö stuölað aö betra mannlífi.
búið að rjúfa orkulínur jarðarinnar.
Með því að grafa djúp i jörðina er skor-
ið á línumar og orkuflæðið rofið. Jörð-
inni blæðir þá alveg eins og þegar fólk
sker sig og því blæðir."
Að sögn Dhyani fmnur litla fólkið til
þegar linumar rofna og á það til að
hefna sín illilega þegar gert er á þess
hlut (alveg eins og huldufólkið í ís-
lenskri þjóðtrú).
Dhyani segir að í sínum huga sé Is-
land mjög sérstakt. „Hitinn í jörðinni
er góður leiðari þannig að bænir okkur
ná djúpt. Það er einnig athyglisvert
hversu margir íslendingar eru skyggnir
og trúin á huldufólk er almenn. Að
mínu mati þýðar það að fólk á íslandi er
að gera eitthvað rétt og býr yfir andlegri
ábyrgð og viljanum til að breyta rétt.“
Námskeið Dhyani Ywahoo verður
haldið 1. og 2. febrúar í Lífssýnarsaln-
um, Bolholti 4 í Reykjavík. Allar nán-
ari upplýsingar em veittar í símum
487-8527 og 8684500. -Kip