Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2003, Side 33

Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2003, Side 33
FÖSTUDAGUR 31. JANÚAR 2003 33 DV HAHDBQLTlJ Mi cam fl Ágúst Jóhannsson metur íslenska liðið - leikurinn gegn Spánverjum og framhaldið „Spánverjarnir breyttu í 6-0 varnarleik í síðari hálfleik og náðu að loka á Ólaf og því miður náðu aðrir lykilmenn sér ekki á strik hjá okk- ur. Það er einfaldlega of dýrt gegn eins sterku liði og Spánverjarnir eru með.“ Ólympíusætið er ekki horfið - varnarleikurinn varð íslenska liðinu að falli gegn Spánverjum Eftir tapið gegn Spánverjum er ljóst að íslendingar koma til með aö mæta Rússum í leik um hvort liðið keppir um fimmta til sjötta sætið. Tapliðið leikur hins vegar um sjö- unda og áttunda sætið en efstu sjö sætin gefa þátttökurétt á næstu Ólympíuleikum og því mikið í húfi fyrir íslenska liðið um heigina. DV- Sport fékk Ágúst Jóhannsson, þjálf- ara Gróttu/KR, til þess að leggja mat á leikinn gegn Spánverjum sem og á leikina sem fram undan eru. 6-0 vörnin gekk ekki „Strax i upphafi leiksins var ljóst að 6-0 vörnin hjá okkur var engan veginn aö ganga upp og Spáverjam- ir fengu að klára skotin sín aUt of fljótt í fyrsta lagi. Við vorum hálf- partinn í vandræðum sóknarlega og sóknimar frekar langar og svo þeg- ar við komum til baka var okkur refsað innan þrjátíu sekúndna. Þannig að við náðum engan veginn að komast í snertingu við þá og brjóta á þeim. Vörnin var allt of flöt og allt of aftarlega þannig að þeir fengu auðveld skotfæri og fyrir vik- ið var markvarslan mjög lítil í fyrri hálfleik. Reyndar lagaðist þetta nokkuð eftir að við fórum í 5-1 vöm og Roland kom í markið. Sama með sóknarleikinn en hann gekk alveg ágætlega. Þrátt fyrir að sóknirnar hafi verið fuUIangar þá vorum við samt að fá færi og Ólafur var virki- lega hættulegur. Sigfús var einnig sterkur á línunni. Einnig nýtti Ein- ar sin færi mjög vel.“ Roland bjargaöi miklu „í seinni hálfleik er vamarleikur- inn engan veginn nægilega góður, því miður, og Spánverjamir héldu áfram að fá auöveld skotfæri en samt var Roland að standa sig vel og hann var að verja virkilega erf- iða bolta. Ef hann hefði ekki verið að verja þessi erfiðu skot þá hefði leikurinn verið tapaður mun fyrr. Strákamir sýndu mikinn karakter þegar við vorum tveimur færri og við unnum þann kafla tvö núll. í stöðunni 25-25 emm við síðan bún- ir að jafna leikinn og erum einum fleiri þá má kannski segja að verði vendipunktur því við töpum þeim kafla tvö núll og í staðinn fyrir að vinna þann kafla með einu marki ef ekki tveimur sem þykir frekar éðli- legt þá vorum við í vandræðum ein- um fleiri og það vó frekar þungt.“ Lykilmenn klikkuðu „Spánverjarnir breyttu í 6-0 varnarleik í síðari hálfleik og náðu að loka á Ólaf og því miður náðu aðrir lykilmenn sér ekki á strik hjá okkur. Það er einfaldlega allt of dýrt gegn eins sterku liði og Spán- verjamir eru með.“ Vörnin fellir okkur „Það sem verður okkur að falli er vamarleikurinn og það verður að segjast eins og er að hann hefur ekki verið nægjanlega sannfærandi í þessari keppni. Þar af leiðandi er- um við ekki að fá nógu mikið af mörkum úr hraðaupphlaupum. Svo erum við ekki heldur að klára nógu vel þá stöðu þegar við erum einum leikmanni fleiri. Mörk utan af velli eru einnig allt of fá og flest mörk þaðan era í gegnum Ólaf og Sigurð. Það vantaði meiri breidd þar.“ Endum í 5. sæti „Leikurinn viö Rússa verður gríðarlega erfitt verkefni því Rúss- ar eru með toppklassalið. Ég hef trú á því að strákamir rifi sig upp. Þeir börðust eins og ljón í dag og ætluðu sér virkilega sigur. Ég held að menn sýni karakter og snúi bökum saman og að við klárum þessa tvo leiki og endum í fimmta sæti á mótinu. Þannig að markmið strákanna að ná ólympíusæti er fjarri því að vera búið þótt vissulega hafi menn ætlað sér lengra í gær. Liðið hefur sýnt það áður að það er mikill karakter í því og ég hef fulla trú á því að við klárum þessa tvo leiki með miklum sóma.“ -HBG < -r Hryllilega erfitt að kyngja þessu - sagði Sigfús Sigurðsson, vonsvikinn eftir leikinn „Það er hryUilega erfiitt að kyngja þessu því ég veit að við get- um mun meira sóknar- og vamar- lega séð allir sem einn. Við verðum að sýna hvað í okkur býr um helg- ina og það er næsta verkefni sem bíður okkar. Ég held að ég segi sem minnst um það hvað fór úrskeiðis í leiknum. Við vomm ekki að leika sem lið, það sáu allir, og því fór sem fór. Við vomm að leika erfiða vöm framan af þar sem reynir mikið á fætuma. Það er ansi súrt í broti að komast ekki í undanúrslitin fyrst við vorum á annað borð komnir þetta langt,“ sagði Sigfús Sigurðs- son. „Við áttum alla möguleika á að vinna leikinn og sérstaklega þegar að við vorum einum fleiri þegar ekki var mikið eftir af leiknum. Það var banabitinn í leiknum að mínu mati. Nú verður hver og einn mað- ur að líta í eigin barm og sjá hvað fór úrsleiðis. Það er líf eftir dauð- ann í handboltanum, það er það góða við hann. Við ætlum okkur ólympíusæti og við sjáum hvað set- ur í þeim efnum,“ sagði Sigfús Sig- urðsson. -JKS Patrekur með tilboð frá Grosswaldstadt Patrekur Jóhannesson hefur und- ir höndum tilboð frá þýska úrvals- deildarliðinu Grosswaldstadt en Patrekur staðfesti það við DV í gær- kvöld. Hann sagðist lítið hafa heyrt af málinu enda væri það alfarið í höndum umboðsmanns síns. Patrekur hefur undanfarin ár verið á mála hjá Essen en samningur hans við félagið rennur út í vor. „Það gæti allt eins farið svo að ég framlengi samning minn við Essen en ég er ekki að hugsa þessi mál núna heldur beini kröftum mínum að landsliðinu hér á heimsmeistara- mótinu. Þetta skýrist eftir mótið hér í Portúgal,“ sagði Patrekur. Hann sagðist enn fremur hafa heyrt af áhuga liða á Spáni en vildi að svo stöddu ekki ræða þessi mál frekar. Eins og áður hefur komið fram mun Snomi Steinn Guðjóns- son, landsliðsmaður úr Val, að öll- um líkindum ganga til liðs við Grosswaldstadt að loknu þessu tímabili. -JKS Sigfús Sigurðsson, sem hefur átt við meiðsli að stríða en samt leikið, segir erfitt að kyngja því að komast ekki í undanúrslit á HM í Portúgal. Hann er hér á harðri baráttu inná línunni gegn Spánverjum í gær. DV-mynd Hilmar Þór

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.