Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2003, Blaðsíða 67
LAUGARDAGUR i. FEBRÚAR 2003
HelQorbloö I>V
REbiwofiinn
SIMI 551 9000
Gokíie Ha\\T!
Grúppiurnar
Sasan Sarandon
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 12 ára. Sýnd kl. 6,8 og 10. B.l. 16 ára
TRANSPORTER: Sýnd kl. 6. 8. og 10. B.i. 14 ára.
DIE ANOTHER DAY:
Sfnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 12 íra.
HALF PAST DEAD:
Sýnd kl. 6.
8 MILE:
Sýndkl. 10.
THE LORD OF THE RINGS:
Sýnd kl. 2.45. B.i. 12ira
Sýnd kl. 8 og
Mátti sæta heimilis-
ofbeldi á unga aldri
Söngkonan Christina Aguilera
hefur greint frá ofbeldi sem faðir
hennar, Fausto Aguilera, beitti
hana og móður hennar. Hann var
hermaður í bandaríska hemum.
Hún sagði í viðtali við US Weekly
að á meöan flölskyldan bjó saman í
Japan, þar sem hann var starfs síns
vegna, hefðu móðir hennar og hún
gengið í gegnum „hreint helvíti".
Móöir hennar mun hafa á tímabili
verið svo skelkuð að hún svaf með
piparúða undir koddanum til þess
að verja sig með.
í eitt skiptið þegar móðir hennar,
Shelly Keams, kom heim fann hún
Christinu, þá 4 ára gamla, blóðuga í
munnviki en þá mun Jaðir hennar
hafa slegið hana utan undir þar sem
að hann vildi frið og ró á meðan
hann fengi sér blund.
„Ég fór gjörsamlega yfir um,“
Christina Aguilera
Faöir Christinu beitti hana og móöur
hennar ofbeldi.
sagði Shelly. „Hún sagði að pabbi
sinn hefði sagt að hún væri með of
mikil læti og hann vildi frið.“
Shelly ákvað þá að yflrgefa
kallinn og var Christina 5 ára
gömul þegar hún fluttist til
móðurömmu sinnar í Pittsburgh.
Þótt þetta hafi gengið yfir þegar
Christina sjálf var mjög ung segist
hún enn finna fyrir áhrifum þessara
atburða. Hún fyllist oft skelfmgu og
nú nýlega flúði hún heimili sitt í
Hollywood þegar hún varð fyrir
slíku kasti. „Ég hljóp út úr húsinu
og hélt áfram að hlaupa niður
götuna, skelfingu lostin. Ég vildi að
enginn sæi mig í þessu ástandi,"
sagði hún.
Á nýjustu plötunni sinni flallar
Christina um þessa óþægilegu
reynslu sína í einu laganna sem
nefnist OK.
REUTERSMYND
Halle Berry í Japan
Leikkonan Halle Berry, sem fer meö eitt aöalhlutverkiö í nýjustu Bond-
myndinni, Die Another Day, mætir hér á blaöamannafund i Tokyo í Japan þar
sem fram fór kynning á myndinni sem frumsýnd veröur í Japan 8. mars nk.
Madonna segist
heilluð af London
Söng- og leikkonan Madonna
segir það ekki rétt að hún hafl
ákveðið að flytja alfarin til Los
Angeles frá London vegna þess að
henni hafi leiðst þar. „Húsið mitt í
Marble Arch í West End í London
er uppáhaldsheimilið mitt og ég
eyddi miklum tíma og alúð í að
gera það gott og hlýlegt fyrir flöl-
skylduna. Þar að auki er ég heilluð
af London og sakna borgarinnar
þegar ég er annars staðar, þrátt
fyrir misjafnt veðurfar. Ég hef
heldur ekkert á móti enskum skól-
um og ég elska enska sveitasælu,"
sagði Madonna og sagðist þreytt á
þessari eilífu tuggu um að henni
líkaði ekki lifið í Englandi.
„Hvað þarf ég oft að segja ykkur
að mér finnst gott að búa í Eng-
landi,“ sagði Madonna, sem auk
heimila sinna í London og Wilt-
shire, rekur heimili ásamt eigin-
manni sínum, Guy Ritchie, í New
York og Los Angeles.
o
Murdpr
8Y
NUM8ERS
BONUSVIDEO
Leigan í þínu hverfi