Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2003, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2003, Blaðsíða 12
12 LAUGARDAGUR 1. FEBRÚAR 2003 Helgarblað J Hans Blix, formaður vopnaeftirlitsnefndar SÞ: Lætur Saddam ekki hafa sig að fífli aftur mmsmm Hinn 74 ára gamli Svíi, Hans Blix, hafði það gott í frii á Suðurskauts- landinu þegar Kofi Annan, aðalritari Sameinuðu þjóðanna, hafði samband við hann og bað hann að koma aftur til starfa fyrir vopnaeftirlit SÞ. Blix svaraði kallinu og gegnir nú þeirri stöðu að vera mitt á milli stríðs og ffiðar í íraks og hugsanlegrar afleið- ingar stríðsins. Sjálfur var Blix málamiðlun en Ör- yggisráð SÞ hafði þegar hafnað öðrum manni í starfið, öðrum Svía að nafni Ralf Ekeus, en Bandaríkjamenn og Bretar höfðu upphaflega stungið upp á honum. Rússar, Kínverjar og Frakk- ar, sem hafa neitunarvald í ráðinu ásamt fyrrnefndum löndum, höfnuðu honum og var þvi leitað til Blix. Með doktorsgráðu í lögfræði Hans Blix er fæddur árið 1928 í Uppsala í Svíþjóð. Hann hóf háskóla- göngu sína í Svíþjóð en hélt svo til Bandaríkjanna og Bretlands þar sem hann útskrifaðist með doktorsgráðu í lögfræði frá hinum virta Cambridge- háskóla. Hann hóf störf hjá sænska utanríkisráðuneytinu árið 1963 og varð þar ráðherra 15 árum síðar. Árið 1981 tók hann við starfi for- manns Alþjóða kjarnorkustofnunar- innar og gegndi hann því starfi í 16 ár - og var írak, eins og gefur að skilja, þá eins og nú miðpuntkur athyglinn- ar þegar kemur að kjamorku- og öðr- um gereyðingarvopnum. Sjálfur hefur hann viðurkennt að Saddam Hussein hafi „blekkt" stofnunina en á 9. ára- tugnum tókst Irökum að þróa fjölda gereyðingarvopna án þess að stofnun- in yrði vör við neitt misferli. Blix lýsti því sjálfur yfir að Irakar hefðu ekkert óhreint mjöl í pokahorninu. Það komst ekki upp um kjarnorku- áætlun íraka frá því á 9. áratugnum fyrr en eftir Persaflóastríðið árið 1991 þegar Irakar þurftu að gangast undir víðtækt vopnaeftirlit í landinu. I kjöl- farið sætti Blix mikilli gagnrýni fyrir að hafa látið áætlunina fram hjá sér fara. Það var talið að írakar væru ein- ungis 6 til 18 mánuði frá þvi að full- gera fyrsta kjarnorkuvopn sitt. Blix hlaut þó uppreisn æru þegar hann greindi frá því árið 1992 að N-Kórea væri að koma sér upp búnaði til að endurvinna notað úraníum til að framleiða plúton sem hægt er að nota í framleiðslu kjarnorkuvopna. Gagnrýni Ahlmarks Blix er eftirmaður Ástrala að nafni Richard Butler sem þótti mjög ágeng- ur og óþjáll í viðmóti. Þegar kom að því að velja nýjan mann í starfið stungu Bandaríkjamenn og Bretar upp á fyrrnefhdum Ekeus sem hafði stjórnað vopnaleitinni í írak eftir Persaflóastríðið. En áhrifamiklar þjóðir eins og Rússar beittu neitunar- valdi sínu í Öryggisráðinu til að fá því hnekkt. Af hverju skyldu það hafa verið? Per Ahlmark, fyrrum varaforsætis- ráðherra Svíþjóðar, skrifaði fyrir skömmu opið bréf í The Wall Street Journal þar sem hann heldur því fram að sjálfur Saddam hafi haft þar hönd i bagga. Það sem fer hér eftir í næstu málsgreinum eru hans mein- ingar um málið og hversu óhæfur Blix sé tO að gegna þessari þýðingar- miklu stöðu. Samspil Rússa og íraka Ahlmark heldur fram að á meðan Ekeus hafi fullkomlega skilið ósvífni og þær kerfisbundnu lygar sem Saddam og ríkisstjórn hans láta frá sér sé Blix meira umhugað um að fara diplómatísku leiðina í átt að lausn málsins og að hann sé í raun blindað- ur af þeirri sýn. Hann visar til bókar sem Richard Butler skrifaði um Saddam Hussein og ástandið í írak þar sem fram kemur að Rússar hafi verið í beinu sambandi við Bagdad og Hans Blix Að mörgu er aö hyggja í starfi formanns vopnaeftirlits SÞ oggetur hann í raun úrskuröaö um hvort innrás í írak sé réttlætanleg eöur ei. farið í einu og öllu að vOja Saddams þegar kom að því að velja eftirmann Butlers. Haft er beinlínis eftir rúss- Eiríkur Stefán Ásgeirsson blaðamaður neska sendiherranum, Sergei Lavrov, að Rússar hafi „komið í veg fyrir val Ekeus því írakar vOdu ekkert með hann hafa“. Þegar Blix kom upp í um- ræðunni voru írakar þöglir sem gröf- in og hafi þannig, beint eða óbeint, valið Blix til að gegna starfi formanns vopnaeftirlitsnefnar í sínu eigin landi. „Þýöir þetta að Blix hljóti að mis- takast?" spyr Ahlmark. „Sennilega," svarar hann en þó ekki á sama máta og áður. Blix sjálfur hefur sagt að sú reynsla hafi kennt honum ýmislegt og honum er sjálfsagt mikið í mun aö láta Saddam ekki hafa sig að fifli aft- ur. Komið upp um íraka Og Ahlmark heldur áfram og rekur nú atburðarásina eftir Persaflóastrið- ið þegar haldbær sönnunargögn fund- ust um kjamorkuáætlun íraka. Blbc hafði þrátt fyrir aOt verið falið, ásamt Ekeus, að stjóma vopnaeftirlitinu í írak og heldur Ahlmark því fram að Blix hafi aftur trúað Irökum þegar þeir sögðust ekki hafa nein gereyðing- arvopn í sínum fórum. Það var hins vegar fyrir tOstOli vopnaeftirlits- manns að nafhi David Kays sem, í óþökk Blix en með stuðnhigi Ekeus, skipulagði nokkrar óvæntar eftirlits- heimsóknir og innan árs eftir að stríð- inu lauk hafði hann fundið gereyðing- arvopnin sem írakar sögðust ekki eiga, sem og viðtæk gögn um áætlan- ir þeirra. Hvort samsæriskenningin um sam- starf Rússa og íraka á við rök að styðj- ast skal ósagt látið en það er lítið vafa- mál að öO spjót standa á tittnefndum Blix. Hann hefur sjálfsagt sætt mikl- um þrýstingi Bandaríkjamanna og Breta um að gefa hvergi eftir í eftir- litsstarfinu í Irak og að hafa þann möguleika opinn að beita þurfi her- valdi í Irak. Ahlmark viðurkennir treglega að ef tO vOl endurspegli Blix að miklum hluta þjóðarsál Svía i þess- um efnum enda hefur landið iðulega haldið sér utan aOra stórra alþjóðlega átaka undanfama áratugi, eins og í seinni heimsstyrjöldinni og kalda stríðinu. Hann bætir því við að á með- an á Persaflóastríðinu stóð hafi stefna Svía líklega verið sú „and-banda- rískasta" allra Evrópuþóða. Harðorð skýrsla Blix var harðorður í máli þegar hann flutti skýrslu sína tO Öryggis- ráðs SÞ síðastliðinn mánudag. Hann krafðist þess að írakar sýndu meiri samstarfsvOja en þeir hefðu hingað tO gert og að þeir hefðu klárlega brotið ályktunina hvað varðar innflutning vopna. Hvort það tengist gereyðingar- vopnum hefur ekki tekist að staðfesta en klárt brot átti sér stað engu að síð- ur. Það getur vissulega verið eitthvað tO í því að Blix vOji með öOu leita friðsamlegra leiða tO að afvopna lönd eins og írak en það er ekki auðvelt verk. Hlutverk diplómata er þýðingar- mikið í þeim skOningi en ásamt því að reyna að taka tOlit tO meininga höfuðandstæðinganna, Bandaríkj- anna og íraks, gætir mikOlar sundr- ungar innan Öryggisráðs SÞ og í raun Evrópu áOrar. Almenningur virðist vera á þeirri skoðun að hvers kyns einhliða aðgerðir af hálfu Bandaríkja- manna séu með engu réttlætanlegar og að innrás sé aðeins möguleg með samþykkt Öryggisráðsins - sem virð- ist vera ókleif hindrun eins og málin standa í dag. Byggt m.a. á efni frá BBC, CNN, The Times og The Wall Street Joumal REUTERS Eftlrlltsmennlmir Hans Btix ásamt Mohamed EIBaradei, formanni Alþjóöa kjarnorkumála- stofnunarinnar, á fundi Öryggisráös SÞ á mánudaginn. Lítið nýtt í skýrslu Blix íraks-málið var enn í brennidepli í vik- unni og var beðið með mOúOi eftirvænt- ingu eftir skýrslu Hans Blix um stöðu vopnaeftirlitsins sem hann gaf Öryggisráði SÞ á þriðjudaginn. Þar kom reyndar lítið nýtt fram og sagði Blix að írak- ar hefðu fram að þessu aðeins að hluta tO farið að kröfum vopnaeftir- litsins og ekki þætti fuOsannað að þeir hefðu losað sig við öU ólögleg vopn. Þeir heföu þó í flestum tilfell- um veitt vopnaeftirlitsmönnum skjót- an aðgang að þeim stöðum þar sem þess var óskað. „Það liggur fyrir að írakar hafa ekki enn gengið að þeim kröfum sem þeim voru settar um af- vopnun,“ sagði Blix. Glæsisigur Sharons Sigur Ariels Shar- ons, forsætisráðherra Israels, í kosningun- um á þriðjudaginn varð mun stærri en skoðanakannanir fyr- ir kosningarnar höfðu sýnt og bætti flokkur hans, Likud-bandalagið, við sig átján þingsætum og fékk aUs 37 af 120 á ísraelska þinginu. Verkamannaflokkurinn, undir for- ystu Amrams Mitzna, fyrrum borgar- stjóra í Haifa, tapaði sex þingsætum og galt mesta afhroð i sögu flokksins, en af minni flokkum náði hinn vinstrisinnaði Shinui-flokkur bestum árangri og bætti við sig tíu þingsæt- um. Eftir sigurinn lýsti Sharon því yfir að þjóðstjóm með Verkamanna- flokkum og flokkum á hægri vængn- um væri efst á óskalistanum. Bush lofar sönnunum Á miðvikudaginn flutti Bush Banda- ríkjaforseti stefnu- ræðu sína í þinginu þar sem hann lofaði því að leggja í næstu viku fram sönnunar- gögn í Öryggiráði SÞ fyrir ólöglegri vopnaeign Iraka. „Við munum hafa samráð en það er alveg á hreinu að ef Saddam Hussein fer ekki að öllum kröfum um afvopnum munum við leiða sameiginlega bar- áttu gegn honum,“ sagði Bush. Bush ræddi einnig aðsteðjandi efnahagsvanda heima fyrir og þar á meðal skatta- og heilbrigðismál sem ásamt íraksmálinu hafa verið efst á baugi að undanfórnu. Þá bað Bush bandaríska þingið að samþykkja fjárlög upp á tæpa 1200 milljarða króna til að berjast gegn út- breiðslu alnæmis í Afríku og Haítí. Óvæntur stuðningur Bandarikjamenn fengu á fimmtudaginn óvæntan stuðning við áætlanir sínar um aðgerðir gegn írökum þegar leiðtogar átta Evrópuríkja und- irrituðu, að frum- kvæði Spánverja, yfirlýsingu þar sem þjóðir heims eru hvattar til samstöðu gegn Saddam Hussein íraksforseta verði hann ekki við kröfum Öryggis- ráðs SÞ um afvopnun. Yfirlýsingin var umdeild og í kjöl- farið samþykkti Evrópuþingið ályktun þar sem lýst er yfir andstöðu við einhliða hemaðaraðgerðir gegn írak og varar við því að hugsanlega standist slíkar aðgerðir ekki alþjóða- lög. Ályktunin var samþykkt með 287 atkvæðum gegn 209. Böndin berast að Ba'asyir Indónesíska lögreglan upplýsti í vik- unni að sterkar vísbendingar hefðu komið fram um tengsl milli harðlínu- klerksins Abu Bakar Ba’asyir, andlegs leiðtoga íslömsku Jemaah-öfgahreyfing- arinnar, og þeirra sem stóðu að sprengjuárásinni á Balí sem varð nærri 200 manns að bana. „Flestir þeirra sem hafa verið handteknir vegna aðildar aö ásinni segja að hann hafi verið í vitorði með þeim og lagt blessun sína yfir árás- ina,“ sagði lögreglan. I
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.