Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2003, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2003, Blaðsíða 6
6 LAUGARDAGUR 1. FEBRÚAR 2003 Fréttir DV Skákfélagið Hrókurinn: Gríðarsterk mót í febrúar og mars Dagana 18. til 27. febrúar nk. fer fram stórmót Hróks- ins og verður teflt á Kjar- valsstöðum. Mótið er líkast til þriðja sterkasta skákmót, á eftir heimsbikarmótunum, sem haldið hefur verið á ís- landi með meðalstigin 2617 skákstig. Alls tefla 10 skák- menn og meðal keppenda eru Micheal Adams, sem er stórstjarna í skákheiminum, fremsti skákmaður Englendinga undanfarin ár og stigahæstur allra meistara Vestur-Evrópu; Alexei Shirov, sem hefur teflt um heims- meistaratitilinn og er einn vinsæl- asti skákmaður heims og dáður fyr- ir gríðarlega fallegan sókn- arstíl; Victor Korchnoj, sem er goðsögn í skákheiminum, enda hefur hann verið í fremstu röð i hálfa öld. Aðr- ir keppendur eru m.a. Etienne Bacrot, Bartomiej Macieja, núverandi Evrópu- meistari í skák, Ivan Sokolov, Luke McShane, Hannes H. Stefánsson, Helgi Áss Grétarsson og Stefán Kristjáns- son. í tengslum við skákveislu Hróksins á Kjarvalsstöðum verður gefið út mjög veglegt litprentað mótstímarit. Alþjóðlegt atskákmót til minning- ar um Guömund J. Guðmundsson verður haldið í Borgarleikhúsinu 3. til 5. mars. Mjög vegleg verðlaun eru í mótinu og hafa margir af sterkustu skákmönnum heims skráð sig til leiks. Mótið er öllum opið svo al- mennum skákáhugamönnum gefst frábært tækifæri til að komast í ná- vígi við meistarana. Stigahæsti skák- maður mótsins er Búlgarinn Veselin Topalov, sem er með 2743 Elo-stig, og Michael Adams með 2734 stig. Alls er gert ráð fyrir að tuttugu og fimm stórmeistarar keppi á mótinu og er vonast til þess að sem flestir af ís- lensku stórmeisturunum verði með. Skákfélagið Hrókurinn stendur fyrir skákmótinu f samvinnu við Eddu út- gáfu. -GG Hrafn Jökulsson. Vestfirðingar bjóða umhverfissinnum til samstarfs: Kalla eftir 700 störfum - þar sem stóriðjuframkvæmdir eru ekki fyrirhugaðar Halldór Hafldórsson, bæjarstjóri á ísafirði, segir að umhverfissinnar hafi treyst sér til að skapa sama fjölda starfa fyrir austan með sínum aðferð- um og skapist við byggingu Kára- hnjúkavirkjunar og álverksmiðju í Reyðarfirði, eða um 700 störf, og hann vilji bjóða þeim til samstarfs á Vest- fjörðum þar sem ekki eru fyrirhugaðar neinar stóriðjuframkvæmdir. „Hér er mikið af óspilltri náttúru. Það er það sem þeir vilja og þeir ætl- uðu að skapa atvinnu með það að leið- arljósi á Austurlandi. Andstæðingar Kárahnjúkavirkjunar nefndu ekki hvaða störf þetta væru en nú hafa þeir tækifæri til að sanna að þeir voru ekki að fara með fleipur. Halldór segir að nú þegar hafi hann fengið meiri viðbrögð en hann hafi órað fyrir og umhverfis- sinnar hafi boðað í samtölum við hann að þeir vilji koma vestur til viðræðna. Dagsetning þess fúndar er þó ekki ákveðin. Bæjarstjóri segir þetta vera m.a. Ósk Vilhelmsdóttur, fram- Halldór Árni Halldórsson. Finnsson. kvæmdastjóra bakvarðasveitar hálend- isbaráttunnar, Guðnýju Valdimarsdótt- ur, framkvæmdastjóra Landvemdar, Guðmund Pál Ólafsson verkfræðing, Áslaugu Jensdóttur og Áma Finnsson, framkvæmdastjóra Náttúruvemdar- samtaka íslands. Möguleikar kannaðir Þetta er tækifæri sem umhverfis- sinnar mega ekki láta sér úr greipum ganga og það verður gaman að sjá eftir sjö ár, þegar Kárahnjúkavirkjun er fullbyggð, hvort þeir hafi náð sama ár- angri í sköpun atvinnutækifæra. Ef þeir geta unnið með okkur að því að byggja sterkara samfélag og stuðla að fjölgun íbúa og starfa með sinni hug- myndafræði hafa þeir sannað að þeir höfðu rétt fyrir sér. Ámi Finnsson, formaður Náttúm- vemdarsamtaka íslands, segir að hann muni fara vestur á firði og kanna alla möguleika og þeir muni í samstarfi við aðila, eins og World Wildlife Fund, kanna hvaða möguleikar séu í stöð- unni. Þrekvirki „Ég veit ekki hvort það mun leiða til fjölgimar starfa en ég vona að það geti styrkt það starf sem þegar hefúr átt sér stað á Vestfjörðum, sérstaklega At- vinnuþróunarfélag Vestfjarða, þar sem unnið hefur verið þrekvirki í því að finna leiðir varðandi vistvæna ferða- mannaþjónustu, og það má halda áfram á þeirri leið og ná töluvert meiri árangri," segir Ámi Finnsson. -GG Skipt um rútu við akstur Foldarskólanemenda: Rútan ekki á slitnum dekkjum Ólöf Bóasdóttir, framkvæmda- stjóri Hópferðamiðstöðvarinnar, segir það rangt að rúta á vegum Hópferðamiðstöðvarinnar hafi verið send óskoðuð norður að Reykjum í Hrútafirði með sex tugi barna og auk þess á lélegum hjólbörðum. Engar rútur eru í eigu Hópferða- miðstöðvarinnar heldur eiga sjálfir hluthafamir þær en fyrirtækið er með samning við Fræðslumiðstöð Reykjavíkur um allan akstur á hennar vegum. Ólöf segist ekkert hafa séð athugavert við þetta í upp- hafi en skipt hafi verið um rútu til að styggja ekki foreldrana. „Þetta var rúta sem er meö skrán- ingamúmer sem endar á tölustafn- um 0 sem þýðir að hún átti að koma í skoðun í október sl. Frestur er síð- an veittur út janúarmánuð. Um- rædd rúta er í fullkomlega tækni- lega góðu standi - ekkert að henni, og hún fór með þessa krakka í Foldaskóla að Reykjum. Við fengum athugasemd frá foreldrum og þá ákváðum við að skipta um rútu svo ekki þyrfti að hafa áhyggjur af þvi og sendum aðra rútu norður til að sækja krakkana. Við sögðum niðri á Fræðslumiðstöð að það hefði auðvit- að verið mjög gott að rútan hefði verið skoðuð í október sl.,“ segir Ólöf Bóasdóttir. - Hvað segir þú um þá fullyrð- ingu Halldórs Theódórssonar, föður eins barnsins, að rútan hafi verið á mjög lélegum hjólbörðum? „Ég tek ekki undir það. Bíllinn var ekki á neinum „Yul Brynner- dekkjum." -GG íbúar á Auðnum á Vatnsleysuströnd einir í húsinu: Vilja ekki vera í sama húsi og byssumaðurinn íbúar og leigjendur á neðri hæð hússins á Auðnum á Vatnsleysuströnd hafa gist heima hjá sér síðustu nætur eftir að hafa hugleitt að leita gistingar annars staðar, t.d. hjá ættingjum eða kunningjum. Davíð Ragnar Bjamason segir að það gefi augaleið að þau búi ekki áffam í sama húsi og maður sem hefur verið að skjóta í allar áttir með sterkum riffli, 223 kalibera, á efri hæð hússins. Leigjandi efri hæðar hússins var á laugardag uppvís að því að skjóta úr sterkum riffli á dauða hluti á efri hæð- inni en kona og bam leituðu skjóls á neðri hæðinni. Hann haíði yfirgefið húsið en var stöðvaður af Keflavíkur- lögreglunni mjög ölvaður og veitti ekki viðnám. Maðurinn er nú laus. Davíð Ragnar hitti manninn á þriðjudag og þá lofaði hann því að dvelja ekki í ibúð- inni meðan þau væm þar. Við það hef- ur hann staðið. Davíð Ragnar segir að þótt hann lofi bót og betrun geti hans fjölskylda ekki treyst á það enda sé enn töluverð hræðsla í þeim eftir þessa skelfilegu reynslu. Auk Davíðs býr í íbúðinni kona hans, Unnur Inga Karlsdóttir, dóttir þeirra og lítið bamabam. „Þetta er mikið óöryggi sem við búum við og svo virðist sem eftirmálin ætli að verða erfið. Við emm vinnandi fjölskylda og okkar krafa er að fá að lifa í friði og við verðum að geta farið til vinnu á morgnana án þess að lifa í ótta við að eitthvað komi fyrir dóttur- ina og bamið hennar en hún er heima í bamseignarfríi. Þess vegna viljum við. koma okkur í annað húsnæði. Við vilj- um alls ekki vera í sama húsi og þessi maður. Húseigandinn hefur sjálfur haft það á orði að segja manninum upp húsaleigunni en ég veit ekki hvað verð- ur úr því,“ segir Davíð Ragnar Bjama- son. Davíð segir að þau leiti að íbúð í Hafharfirði eða Reykjavfk. -GG VOLKSWAGEN TOUAREG - NÝR AUDI A6 QUATTRO SKODA OCTAVIA KOMBI 4X4 VOLKSWAGEN GOLF VARIANT 4MOTION MITSUBISHI PAJERO - NÝR kupptu Crr OG MÁTAÐU BÍLANA í SÍNU NÁTTÚRULEGA UMHVERFI. > : ■■ - ■ ■ ' MITSUBISHi MOTORS BRBHmHhBHHBhHhBHBBHHBHHBHB
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.