Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2003, Blaðsíða 37
LAUGARDAGUR I. FEBRÚAR 2003
Helgarblctð 3Z>"V”
41
Mannakyn
og meiri
fræði
I dag, klukkan fjöqur, verður opnuð
í Listasafni Reqkjavíkur í Hafnar-
húsi sgningin Lgsir en á þessari
sqninqu qetur að líta mgndir frá
hendi Jóns bónda Bjarnasonar oq
ijmissa annarra mgndskregta. Sgn-
ingarstjóri erÁsrún
Kristjánsdóttir.
Oft hefur verið talað um íslenska
myndlistarsögu þannig að hún hafi
byrjað um aldamótin 1900, þegar Þór-
arinn B. Þorláksson hélt sína fyrstu
málverkasýningu í Reykjavík. Þar
með er gefið í skyn að nær ekkert
verðugt myndeíhi sé að fmna frá
fyrri öldum og óþarfl að fjalla sér-
staklega um það. Þetta er auðvitað al-
rangt því íslensk myndlistarsaga er
jafngömul þjóðinni; myndlýsingar i
miðaldahandritum eru aðeins einn
hluti af þeim arfi sem sýnir fram á
þetta en á því sviði bíður enn mikið
efni frekari rannsókna.
Lýsir er heitið á verkefni sem sett
var á stofn með það að markmiði að
búa til gagnagrunn um myndlist í ís-
lenskum handritum. Að verkefninu
stendur áhugafólk um þessi málefni,
Ámastofnun og Listasafh Reykjavík-
ur. Markmið verkefnisins er að rann-
saka og ljósmynda íslensk handrit í
þeim tilgangi að auðvelda aðgengi
myndlistarfólks, fræðimanna, nem-
enda og almennings að þeim lítt
þekkta þætti myndlistarsögu þjóðar-
innar sem þar er að fínna.
Lýsir hefur frá upphafi haft hug á
að efna til sýninga á völdu myndefni
sem kæmi fram í rannsóknum á
handritum. Sýningin nú er fyrsta
skrefið á þeirri leið og þar er að flnna
örlítið brot af þvi sem komið hefur í
ljós. Ætlunin er að sá gagnagrunnur
sem er tekinn að myndast út ff á þess-
um rannsóknum verði opnaður al-
menningi næsta haust og síðan upp-
færður eftir því sem verkinu -vindur
fram.
Á þessari sýningu getur að lita
myndir frá hendi Jóns bónda Bjama-
sonar og ýmissa annarra mynd-
skreyta og skiptast verkin á sýning-
unni í nokkra efnisflokka sem gerð
er grein fyrir í sýningarsölunum.
Myndir Jóns bónda eru það sem
nú á tímum er kallað „bemskar“, og
í samræmi við það gæti mörgum þótt
þær hafa meira skemmtana- og upp-
lýsingagildi um tíðaranda en list-
rænt gildi. Það er hins vegar einhver
ljthur og listrænn blær yfir öllu
myndefhi Jóns bónda sem líklegt er
að snerti ákveðna strengi í lands-
mönnum við upphaf 21. aldarinnar.
STRAKARNIR OKKAR!
Með einu símtali styrkir þú
strákana okkar til áframhaldandi árangurs.
Eitt símtal = ÁFRAM ÍSLAND
Sýndu stuðning í verki - styrktarsími HSÍ 907-2800
Sfmtalið styrkir strákana okkar um 800 kr.