Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2003, Blaðsíða 46
50
HelQorbloð JOV LAUGARDAGUR i. FEBRÚAR 2003
m.
!
\
i
l
Góðir aksturseig-
inleikar og full-
komin driflína
Kostir: Aksturseiginleikar, drifiína
Gallar: Hávœr vél
Mitsubishi Pajero hefur fengið lítils háttar andlits-
lyftingu en það sem er meira um vert er að hann hefur
fengið meiri og betri búnað, auk meira úrvals aukabún-
aöar. Utan á bílnum má sjá breytingar á grilli sem er
nýtt, sem og merkið, sem er nú siifurlitt i stað rauða
litarins. Einnig er kominn nýr framstuðari, afturstuð-
ari, aðalljós, upplýst stigbretti, afturljós, léttmálmsfelg-
ur og sóllúga. Það var því ekki úr vegi að endumýja að-
eins kynnin af Pajero sem fyrst var kynntur hérlendis
í þessum búningi árið 2000.
Nýr upplýsingaskjár
Þótt engar veigamiklar breytingar séu á innréttingu
bílsins og lagi hennar hefur nú verið vandað meira til
efnisvals og bólstrunar. í GLS-prófunarbíInum eru leð-
urinnrétting og rafstýrð framsæti nú staðalbúnaður,
auk stöðugleikakerf-
is. Efst í miðjustokki
var búið að koma
fyrir aukabúnaði
sem er fullkominn
upplýsingaskjár í lit
og sýnir hann meðal
annars útihita, loft-
þrýsting í millíbör-
um, hæð yfir sjávar-
máli, áttavita, með-
alhraða og eyðslu.
Einnig er klukka í
skjánum, auk upp-
lýsinga frá miðstöð
og útvarpi. Meðal
annars staðalbúnað-
ar er sex diska
geislaspilari sem er
aðskilinn frá út-
varpi neðar í
stokknum. Gott
pláss er í Pajero í
flesta staði og að-
gengi ágætt þótt hjólahaf sé minna en hjá helstu keppi-
nautum, en þess vegna taka aftari hjólaskálar aðeins
pláss frá aftursæti. í farangursrými eru tvö aukasæti
sem fella má með einfoldum hætti ofan í gólfið, en þau
taka varla við meira en tveimur unglingum. Afturstuð-
ari er stór og djúpur og heftir það aðgengi að farang-
ursrými.
Góð driflína
Með 3,2 lítra vélinni er Pajero þægilegur í akstri og
togið í vélinni tryggir áreynslulausan akstur. Vélin er
reyndar frekar hávær og gangm-inn grófur eins og oft i
dísilvélum, sérstaklega á snúningi, en vegna togsins
ber ekki svo mikið á því. Pajero er svokallaður einrým-
isbíll sem þýöir að hann er ekki byggður á grind eins
og hefðbundinn jeppi. Það þýðir að hann er stöðugur á
vegi og að mestu laus við hreyfingar jeppa, þ.e. vagg og
veltu. Einn af aðalkostum Pajero er þó driflína hans og
má þar til dæmis nefna að í GLS er sjálfskiptingin
fimm þrepa. Fjórhjóladrifið er mjög fullkomið og er
hægt að velja um að setja bílinn í afturhjóladrif ein-
göngu, fjórhjóladrif, fjórhjóladrif með læsingu á milli-
kassa og loks lágt fjórhjóladrif með sams konar læs-
ingu. Einnig er hægt að læsa afturdrifi með takka í
mælaborði. Óhætt er að segja að þessir möguleikar
tryggi bílnum gott grip við hvers konar aðstæður eins
og við reyndum í snjó og drullu.
Sambærilegt verð
Verð á Mitsubishi Pajero er nánast það sama og á
nýjum Toyota Land Cruiser 90 og þá aðeins eftir sam-
anburður á búnaði. Pajero 2,5 GLX kostar það sama og
Land Cruiser LX með stærri vél og Pajero 3,2 GLS, eins
og þessi, kostar 40.000 kr. minna en Land Cruiser 90
VX. VX er reyndar með fullkomnari TEMS-fjöðrunar-
kerfi en driflína Pajero hefur vinninginn og því verða
menn að vega og meta fyrir sig hvort er mikilvægara.
Meðal annarra keppinauta má nefna báða Nissan-jepp-
ana, Terrano og Patrol, og einnig Land Rover
Discovery. -NG
o Vélin er kraftmikil og hefur mikið tog en er
frekar hávær.
© Lítið hefur breyst í mælaborði nema áferðin,
efst í miðjustokki er upplýsingaskjár í lit.
© Meðal nýs búnaðar eru þessi stigbretti sem
eru með innbyggðum ljósum.
© Farangursrými er djúpt og rúmgott en vegna
stórs afturstuðara er aðgengi ekki eins gott.
MITSUBISHI PAJERO GLS 3,2
Vél:_______________________________________3,2 lítra dísilvél
Rúmtak:_______________________________3200 rúmsentimetrar
Þjöppun:______________________________________________17:1
Gírkassi:_____________________________5 þrepa sjálfskiptur
UNDIRVAGN:
Fjöðrun framan:_____________________Tvöföld klafafjöðrun
Fjöðrun aftan:_____________Fjölarma með jafnvæqisstönq
Bremsur:____________________Loftkældir diskar/diskar, ABS
Dekkjastærð:__________________________________265/70 R16
YTRI TOLUR:
Lenqd/breidd/hæð: 4850/1895/1855 mm
Hjólahaf/veqhæð: 2780/235 mm
Beyqjuradíus: 11,4 metrar
INNRI TÖLUR:
Farþeqar m. ökumanni: 7
Fjöldi höfuðpúða/öryqqispúða: 7/6
Faranqursrými: 1293 lítrar
HAGKVÆMNI:
Eyðsla á 100 km: 10,3 lítrar
Eldsneytisqeymir: 90 lítrar
Ábyrqð/ryðvörn: 3/6 ár
Grunnverð: 3.990.000 kr.
Verð prófunarbíls: 5.250.000 kr.
Umboð: Hekla hf.
Staðalbúnaður: Rafdrifnar rúður og speglar, 6 öryggis- púðar, 6 diska geislapilari, skriðstillir í stýri, álfelgur, þoku- Ijós, fjarstýrðar samlæsingar, rafdrifin og upphituð fram- sæti, loftkæling, miðstöð fyrir aftursæti, armpúði með geymsluhólfi, þriðja sætaröðin, leðurinnrétting, stig-
bretti, rafdrifin sóllúqa, læsanleqt afturdrif.
SAMANBURÐARTÖLUR:
Hestöfl/sn.: 161/3800
Snúninqsvæqi/sn.: 373 Nm/2000
Hröðun 0-100 km: 13,8 sek.
Hámarkshraði: 170 km/klst.
Eiqin þynqd: 2170 kq
Heildarþynqd: 2810 kq
4