Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2003, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2003, Blaðsíða 32
32 Hetlgarhlað 33V LAUGARDAGUR I. FEBRÚAR 2003 Vanefndi stjórnval Árið 2003 er ár fatlaðra. Formaður Sjálfs- bjarqar, Arnór Pétursson, er ekki sáttur við íslensk stjórnvöld sem hafa ekki náð samkomulagi við samtök fatlaðra um að- gerðir á árinu. „Vegna samstarfs samtaka fatlaðra í Evrópu og Evrópu- ráðsins var ákveðið að helga árið 2003 málefnum fatlaðra. Menn ætluðu sér fyrst og fremst að horfa á stöðu og rétt- inda fatlaðra. Staðreyndin er hins vegar sú að í fáum löndum hefur náðst full samstaða milli samtaka fatlaðra og ríkisvalds um hvernig eigi að standa að verkefninu. Þó er staðan hvað verst hér á landi þar sem enn hefur engin samstaða náðst milli íslenskra stjórnvalda og samtaka fatlaðra. Það er mjög einkennilegt vegna þess að þetta fór vel af stað í byrjun síðasta árs. Menn virtust vera sam- stiga og vilja gera árinu hátt undir höfði. Ríkisstjórnin er hins vegar ekki tilbúin að samþykkja þær hugmyndir og tillögur sem Öryrkjabandalagið hefur lagt fram um rétt- arbætur fyrir öryrkja. Við erum þvi enn í ákveðinni bið- stöðu. Á nýlegum fundi hjá Öryrkjabandalaginu var ákveðið að menn skyldu bíða út janúar og sjá hvort á þingi kæmu ekki fram tillögur eða frumvörp sem menn væru sáttir við, áður en farið væri í drastískar aðgerðir. Hins vegar munu félagasamtök fatlaðra, bæði saman og hvert fyrir sig, standa að ýmsum atburðum í tilefni árs- Fólk í fátæktargildru Hvaða hugmyndir hafið þið um úrbœtur? „Við viljum fyrst og fremst að framfærslugrunnurinn hjá öryrkjum verði hækkaður. Það er forgangsverkefni að hann verði leiðréttur. Það er furðulegt að hlusta á mál- flutning sumra i þessum efnum. Pétur Blöndal alþingis- maður hefur margfullyrt, og ítrekaði það enn nýlega í Silfri Egils, að það væri ekki til fátækt á íslandi, nema vegna þess að fólk væri í óreglu eða hefði komið sér í óráðsíu í fjármálum, annaðhvort sjálft eða af því að það hefði skrifað upp á fyrir vini og ættingja. Fyrir nokkrum dögum sagði forsætisráðherra að framfærslustuðullinn á „Á undanförnum árum hafa menn innan oklsar raða sagt að ekkert mvndi raunverulega gerast fyrr en við efndum sjálfir til framboðs. Ég hef alla tíð verið þeirrar skoðunar að menn ættu að vinna inunii stjórnmála- flokkanna og finna málum sínum hljómgrunn þar. En sífellt er það sama uppi á teningnum. Fólk innan okkar raða er sótt og sett á lista scm ein- livers konar skrautfjaðrir svo flokkarnir geti friðað sig og samviskuna og bent á að þeir njóti nú stuðnings þessara einstaklinga." DV-mynd GVA Arnór Pétursson Hann hefur verið forinaður Sjálfsbjargar frá árinu 1998. greiðslum almannatrygginga og lægstu launa hefði aldrei verið hærri. Ég gef lítið fyrir svona reikningskúnstir. Ég gef miklu meira fyrir það sem maður heyrir og finnur hjá fólki. Fólk er ekki að leika sér. Það leitar til hjálparstofn- ana, ekki af því að þar sé allt frítt eins og forsætisráö- herra leyfir sér að segja, heldur vegna þess að það er búið með sinn framfærslueyri upp úr miðjum mánuði. Það eru fjöldamörg dæmi um að fólk haft misst eignir og standi uppi nánast á götunni eftir langvarandi veikindi eða slys. Þegar fólk er komið í þá stöðu bíður þess ekkert nema fá- tæktargildra þar sem það situr fast og kemst hvorki lönd né strönd.“ Helduróu aó það skipti máli hvaða stjórnmálaflokkar eru í ríkisstjórn þegar málefni fatlaöra eru annars vegar? „Því miður virðist það vera svo að þegar Sjálfstæðis- flokkurinn er í ríkisstjórn vega málefni fatlaðra ekki þungt. Mér virðist líka að í samningum við Sjálfstæðis- flokkinn um stjórnarsamstarf séu aðrir flokkar tilbúnir að slaka á kröfum um úrbætur í málefnum fatlaðra sem þeir hafa haldið á lofti í kosningabaráttu.“ Þó er undan- tekning á þessu hvað varðar einstaka þingmenn og þar má meðal annarra nefna Jóhönnu Sigurðardóttur sem stóð upp úr ráðherrastóli vegna þess að ekki var nóg gert eða staðið við það sem hún og Alþýðuflokkurinn „heit- inn“ höfðu lofað.“ Vonir sem verða að engu Nú ert þú fatlaður og hefur veriö lengi. Segðu mér frá slysinu sem þú varðst fyrir. „Það var i ágústmánuði árið 1973; ég var að koma ofan úr Borgarnesi og lenti í lausamöl undir Hafnarfjallinu. Ég var tuttugu og þriggja ára sjómaður, stýrimannsmenntað- ur. Ég lamaðist og hef þurft að vera í hjólastól síðan. Þetta var geysilegt áfall. Það sem hjálpaði mér mikið var að foreldrar mínir höfðu kennt mér það í æsku að maður ætti að takast á við erfiðleika, annað kæmi hreinlega ekki til greina. Á Akranesi, þar sem ég er alinn upp, naut ég lika ómælds stuðnings, bæði félagslega og siðferðilega. Að því leytinu til var þetta mér léttbærara en mörgum öðr- um.“ Hvenœr ákvaðstu svo aó starfa að bœttum kjörum fatl- aðra? „Eftir sjúkrahúslegu á Landspítalanum var ég hálft ár á endurhæfingarstofnun í Danmörku en rétt eftir að ég kom heim fékk ég vinnu hjá Tryggingastofnun. Árið 1974 var stofnað fyrsta íþróttáfélag fatlaðra hér á landi. Ég segi stundum að það sé eitt af því fáa sem fatlaðir hafi fengið án þess að hafa þurft að hafa frumkvæðið en það kom frá Sigurði Magnússyni hjá ÍSÍ. Ég hafði verið mikið í íþrótt- um sem unglingur og því skorti ekki íþróttaáhugann. í Danmörku hafði ég líka kynnst því hvað íþróttir geta ver- ið stór þáttur í endurhæfingu, ekki bara í líkamlegri end- urhæfmgu þeirra sem slasast heldur líka í andlegri end- urhæfingu. íþróttir gera menn sterkari og hæfari til að takast á við lífið. Ég varð fyrsti formaður Iþróttafélags fatlaðra. Síðan hef ég meira og minna starfað fyrir fatlaða á þessum tveimur sviðum; íþróttasviðinu og félagslega sviðinu.“ Fyllistu aldrei vonleysi af þvi það gengur svo hœgt að koma á úrbótum? „Ansi oft gerir maður sér vonir sem verða svo að engu. Ég man þegar öryrkjadómurinn kom á sínum tíma. Mað- ur var í sigurvímu. Loksins, loksins var búið að viður- kenna ákveðin mannréttindi öryrkja. Síðan kom hið hryllilega mannréttindabrot: lögin sem sett voru í kjölfar- ið. Þegar þau lög voru orðin að staðreynd fylltist maður uppgjöf. Viðurkenning hæstaréttar var að engu gerð með tómum skrípaleik stjórnvalda. Maður hugsaði með sér: Getum við nokkurn tíma fengið fjandsamleg stjórnvöld til að gera eitthvað sem virkilega um munar?“ Sérframboð fadaðra? Nú eru alþingiskosningar á nœsta leiti. Bindurðu vonir við að úrslit þeirra breyti einhverju? „Kosningar eru fram undan og það eiga eftir að verða mikil átök. Ég er þegar farinn að sjá vísi að stefnuskrá flestra stjórnmálaflokka. Við höfum búið við það um ára- tugaskeið að stefnuskrárnar lofa geysilega góðu en efnd- irnar eru oftast litlar. Ég ætla rétt að vona að svo verði ekki núna en er samt ekki sérlega bjartsýnn. Á undanförnum árum hafa menn innan okkar raða sagt að ekkert myndi raunverulega gerast fyrr en við efndum sjálfir til framboðs. Ég hef alla tíð verið þeirrar skoðunar að menn ættu að vinna innan stjórnmálaflokkanna og finna málum sínum hljómgrunn þar. En sífellt er það sama uppi á teningnum. Fólk innan okkar raða er sótt og sett á lista sem einhvers konar skrautfjaðrir svo flokkarn- ir geti friðað sig og samviskuna og bent á að þeir njóti nú stuðnings þessara einstaklinga. Það er hvergi þar sem von er á þingsæti eða varaþingsæti. Skoðun mín er sú að veldur hver á heldur og að meðal fatlaðra einstaklinga á þingi fái hagsmunamál þeirra mun meira vægi og skiln- ing. Ég óttast að ekkert breytist fyrr en farið verður í jafn róttækar aðgerðir og sérframboð, þó að ég hafi alla tíð hamast gegn því. Nú er ég hins vegar að verða beggja blands. Kunningi minn, sem hefur haft miklar væntingar til sérframboðs, lagði einfalt reikningsdæmi fyrir mig á dög- unum: Það eru tæplega 10.000 öryrkjar á íslandi. Gefum okkur að hverjum þeirra tengist að minnsta kosti þrír nánir einstaklingar. Það eru 30.000 manns. Gefum okkur það að ekki nema einn þriðji sé tilbúinn að kjósa listann. Þá eru komnir 10.000. Eru þá ekki komin þau 5 prósent sem þarf til að koma manni á þing? Eins og staðan er nú munu menn næstu fjórar til fimm vikurnar skoða alvarlega hugmyndina um sérframboð. Það kæmi mér ekki á óvart þótt þær hugmyndir yrðu að veruleika. Verði ekki af því nú og svipuð staða verður í málefum öryrkja að fjórum árum liðnum er öruggt að til slíks framboðs kemur.“ -KB
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.