Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2003, Blaðsíða 61

Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2003, Blaðsíða 61
LAUGARDAGUR i. FEBRÚAR 2003 Helgarblaö X>V 65 Páll Sveinsson fyrrv. starfsmaður Rafmagnsveitu Reykjavíliur Páll Sveinsson, fyrrv. starfsmaður Rafmagnsveitu Reykjavík, til heimilis að Lönguhlíð 3, Reykjavík, varð níutíu og fimm ára í gær. StarfsferiU Páll fæddist í Vik í Mýrdal og ólst þar upp í foreldra- húsum til 1913. Þá fór hann í fóstur aö Ketilsstöðum og Neðradal í Mýrdal til Kristínar Þórarinsdóttur og Þórði í Neðradal. Hann tók barnaskólapróf í Vík 1922 og tók fyrsta vélskólanámið sem haldið var hér á landi 1936. Páll var sjómaður á vertíðum frá 1924, var fjórar vertíðar í Vestmannaeyjum, átta ár á Akranesi og var þá einnig vinnumaður hjá séra Sigurjóni Guðjónssyni í Saurbæ á Hvalfjarðarströnd og fjögur ár á Patreks- firði. Páll starfaði hjá Ullarverksmiðjunni Framtiðinni frá 1944 en hóf störf hjá Rafmagnsveitu Reykjavikur 1953 og starfaði þar til 1980. Fjölskylda Giftingardagur 31. des 1944. Maki Bjarnheiður Sigur- rínsdóttir húsmóðir, f. 14 sept. 1906, d. 2. febr. 1988. Foreldrar: Sigurrín Einarsson, bóndi í Reyðarfirði, og Snjólaug K. Þorsteinsdóttir, vinnukona í Fljótsdal. Dóttir Páls og Bjarnheiðar er Steinunn Pálsdóttir f. 19. okt. 1945, vefnaðarkennari, Valhúsabraut 33, Sel- tjarnarnesi, gift Sturlu Má Jónssyni innanhússarki- tekt, eiga þau tvær dætur. Dóttir Bjarnheiðar er Ásta Ólafsdóttir, f. 25. maí 1934, skrifstofustúlka, búsett á Vopnafirði, gift Guðna Valdimarssyni, fyrrv. verkstjóra, eiga þau fjögur böm. Systkini Páls voru fimmtán talsins en ellefu þeirra náðu fullorðinsaldri. Systkini hans: Þorlákur, f. 2.10. 1899, d. 13.6. 1983, bóndi á Laugabökkum og á Sandhóli í Ölfusi, var kvæntur Ragnheiði Runólfsdóttur og eru börn þeirra sex; Ólafur Jón, f. 2.8. 1904, d. 1991, loft- skeytamaður, lengst af búsettur i Reykjavík, var kvæntur Sigurbjörgu Steindórsdóttur og eru börn þeirra tvö; Anna, f. 9.12. 1905, d. 1991, verkstjóri í kex- verksmiðjunni Frón, búsett í Reykjavík; Guðmundur, f. 6.1. 1907, nú látinn, deildarstjóri hjá SKÝRR, var bú- Rósinkrans Kristjánsson leigubflstjóri í Reykjavík varð 70 ára í gær Rósinkrans Kristjánsson leigubílstjóri, Grýtubakka 26, Reykjavík, varö sjötugur i gær. Starfsferill Rósinkrans fæddist í Reykjavík og ólst þar upp. Auk þess var hann í sveit á sumrin sem barn og á unglingsárum að Syðra-Langholti í Hrunamanna- hreppi. Hann stundaði siðar nám við íþróttaskóla Sigurðar Greipssonar í Haukadal. Rósinkrans stundaði sjómennsku á togurum um skeið og starfaði síðan hjá Vegagerð ríkisins í nokk- ur ár. Hann hóf síðan akstur leigubila og var síðan leigubílistjóri um árabil. Fjölskylda Rósinkrans kvæntist 31.1. 1962 Sigurlín Ester Magnúsdóttur, f. 4.6. 1934, verkakonu. Hún er dóttir Magnúsar Péturssonar leigubílstjóra og Jóhönnu M. Sigurðardóttur verkakonu sem bæði eru látin. Sonur Rósinkrans frá því áður er Örn Sævar, f. 28.11. 1958, raffræðingur, búsettur í Reykjavík, kvæntur Helgu Gunnarsdóttur og eru börn þeirra Huginn og Hugrún. Synir Sigurlínar og fóstursynir Rósinkrans eru Magnús Sverrisson, f. 9.12. 1954, kjötiðnaðarmaður á Sauðákróki, kvæntur Ástu Pálínu Ragnarsdóttur og eru synir þeirra Ragnar tölvufræöingur, Sverrir Bergmann söngvari og Tryggi nemi; Ómar Sverris- son, f. 25.11. 1955, d. 20.1. 1985, verkamaður í Reykja- vík, var kvæntur Aðalbjörgu Ólafsdóttur og eignuð- ust þau tvö börn sem bæði eru látin, Ólaf Bergmann og Söru Dögg; JÓhann Magni Sverrisson, f. 20.5.1957, leigubílstjóri í Reykjavík, kvæntur Karen Steinsdótt- ur og eru börn þeirra Sverrir Jóhann, Svavar Halldór og Kristjana. Börn Rósinkrans og Sigurlinar eru Unnur Rut Rós- inkransdóttir, f. 4.8. 1961, starfsmannastjóri hjá Hag- kaupum, búsett í Reykjavík, en maður hennar er Andrés Guðbjörtsson strætisvagnastjóri og eru börn þeirra Rósinkrans Már, Arna Maria, Sigurlín Edda, Guðbjartur Gestur og Kristján Birgir; Kristján Frið- rik Rósinkransson, f. 17.11. 1963, starfamaður hjá Éssó, búsettur í Kópavogi, en kona hans er Birgitta ’ ey Pétursdóttir og eru synir þeirra Samúel, Dani- ei, Jóel og Axel; Linda Dís Rósinkransdóttir, f. 1.10. 1969, leigubílstjóri, búsett í Reykjavík, en sonur henn- ar er Brynjólfur Örn. Hálfsystur Rósinkrans, sammæðra, eru Guðfinna Lárusdóttir, húsmóðir í Reykjavík; Helga Lárusdótt- ir, húsmóöir í Reykjavík; Unnur Lárusdóttir, hús- móðir í Kópavogi. Alsystkini Rósinkrans eru Birgir Kristjánsson sölumaður, búsettur í Reykjavík; Klara Sjöfn Krist- jánsdóttir, húsmóðir í Reykjavík; Bessý Kristjáns- dóttir, nú látin, húsmóðir í Reykjavík. Foreldrar Rósinkrans voru Kristján Kristjánsson, nú látinn, sölumaður hjá Kristjánsson hf„ búsettur i Reykjavík, og Unnur Helgadóttir, nú látin, húsmóðir. Rósinkrans tekur á móti ættingjum og vinum hjá syni sínum að Fjallalind 29, Kópavogi, laugardaginn 1.2. eftir kl. 15.00. Smáauglýsingar allt fyrir heimilið 550 5000 settur í Reykjavík og kvæntur Kristbjörgu Bjarnadótt- ur og eru börn þeirra tvö; Sigurður, f. 15.6.1909, látinn, bóndi í Ytra-Hrauni í Landbroti, var kvæntur Þórdísi Ágústsdóttur og eru börn þeirra fjögur; Ingigerður, f. 28.8. 1910, d. 1935; Kjartan, f. 22.7. 1912, símaverkstjóri um árabil, búsettur í Kópavogi, var kvæntur Þórhildi Jónsdóttur sem er látin og eru börn þeirra fimm; Sig- ríöur, f. 20.6.1914, látin, húsmóðir í Reykjavík, var gift Jóni Guðjónssyni og eru börn þeirra fjögur; Helga, f. 10.3.1916, búsett í Vík í Mýrdal, fyrrv. símstöðvarstjóri í Vík, var gift Guðna Loftssyni og eiga þau eitt barn; Guðný, f. 28.7. 1920, húsmóðir í Kópavogi, var gift Fel- ix Tryggvasyni sem er látinn og eiga þau fimm börn; Þorbjörg, f. 30.Í0. 1923, húsmóðir í Reykjavík var gift Ara Þorgilssyni sem er látinn og eiga þau fimm börn. Foreldrar Páls voru Sveinn Þorláksson, f. 9.8. 1872, d. 22.12. 1963, símstöðvarstjóri í Vík í Mýrdal, og k.h., Eyrún Guðmundsdóttir, f. 5.3. 1876, d. 25.4. 1964, hús- móðir. Ætt Sveinn fæddist í Þykkvabæ í Landbroti, sonur hjón- anna Þorláks Sveinssonar og Steinunnar Þorsteins- dóttur. Eyrún fæddist í Skurðbæ, dóttir Guðmundar Jóns- sonar og Ingibjargar Einarsdóttur. Höfuöstafir nr. 64 Þátturinn er að þessu sinni tileinkaður Birni heitn- um Þórleifssyni skólastjóra. Björn var afar liðtækur hagyrðingur eins og þetta brot úr kveðskap hans sýnir. Einhvern tíma sem oftar söng Björn í kirkjukór við messu og að líkindum hefur aðsókn verið dræm eins og stundum gerist. Þá orti Björn: Þyljum lof og þökk til hans sem þolir okkur synd og bresti ogfœr til starfa fjórtán manns fyrir átta kirkjugesti. Þegar sá frægi hvalur Keikó settist að í Klettsvik varð það Birni að yrkisefni: Norpandi í sjó viö noröurpól nú fœr hann einn aö sprikla. Komiö er heim á kvíaból kjötbolluefniö mikla. Þegar Björn sótti um inngöngu á póstlista þann sem kenndur er við leir og alloft hefur verið vitnað til hér í þessum þáttum sendi hann inn langt kvæði sem end- ar á þessari vísu: Þó ég sé verktaki og vísnatrúöur veitist mér létt aö sýnast prúöur er biö ég þess bljúgur og meyr aö skáldin vilji vísur mér sýna og veiti mér gegnum tölvuna mína áskrift aö íslenskum leir. Á hagyrðingamótum grípa snjallir menn stundum til þess að syngja kveðskap sinn eða kveða hann undir rímnalögum. Einhverju sinni var Björn á hagyrðinga- móti ásamt Stefáni Vilhjálmssyni, en þeir félagar höfðu marga hildi háö á þessum samkomum. Björn átti að yrkja um Stefán og gerði þá þessa vísu og söng síðustu línuna undir þekktu júróvisjón-lagi: Ég skal kveöa um perra og plebba, presta, róna og glœpamenn, en á ég aöfara að yrkja um Stebba „einu sinni, einu sinni enn“. Eins og margir hagyrðingar hafa gert orti Björn líka um sínar eigin yrkingar: Sögu ég saman má spinna um samningu vísnanna minna. Þessi stööuga glíma viö aö stuöla og ríma er sem hver önnur verktakavinna. Ég vil kveðja Björn með vísu sem barst inn á leirlistann daginn sem útfór hans var gerð. Höf- undur er Björn Ingólfsson á Grenivík: Kallaö úr himnaveldi var, vatt hann sér þangaó hvergi tregur. Þá vantaði einhvern uppi þar aö yrkja og vera skemmtilegur. Umsjón
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.