Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2003, Side 11
11
FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2003
PV______________________________________________________________________________________ Útlönd
íraksdeilan:
Bush segist nú styðja nýja
ályktun í Öryggisráðinu
Powell að baki Bush
Bush segir tímann aö renna út.
Bush Bandarikjaforseti varaði
Saddam Hussein íraksforseta við
því í gær að tíminn til afvopnunar
væri að renna út og að ef hann
vildi komast hjá stríði yrði hann
að vinna hratt.
Þetta kom fram í ræðu Bush í
gær þar sem hann sagði með Colin
Powell utanrikisráðherra sér við
hlið: „leiknum er lokið“ og hvatti
um leið hikandi bandamenn til
þess að sameinast í baráttunni við
aða afvopna íraka.
Það vakti athygli að Bush sagð-
ist nú styðja nýja ályktun Öryggis-
ráðsins svo framarlega sem hún
gerði ráð fyrir skilyrðislausri af-
vopnun eins og sú fyrri síðan i
nóvember.
En hann gerði það líka ljóst að
ef Öryggisráðið tæki ekki til sinna
ráða myndu Bandaríkjamenn með
auknum stuðningi grípa til hvaða að-
gerða sem væru nauösynlegar til þess
að afvopna Saddam Hussein.
Bush notaði einnig tækifærið til
þess að senda Saddam tóninn og sak-
aði hann um að hafa leyft her sínum
Colln Powell utanríkisráðherra.
Varað við hryðju-
verkaárásum
Utanríkisráðuneyti Bandaríkj-
anna varaði í gær við „aukinni
hættu" á hryðjuverkaárás þar sem
efna- eða sýklavopn yrðu notuð.
Kemur þessi viðvörun aðeins degi
eftir að Powell utanríkisráðherra
sakaði íraka um að vera með slík
vopn í sínum fórum á fundi Örygg-
isráðs Sameinuðu þjóðanna.
Viðvöruninni, sem var beint til
„heimsbyggðarinnar allrar", sagði
að bandarískum ríkisborgurum
stafaði enn hætta af samtökum sem
tengdust al-Qaeda hryðjuverkasam-
tökum Osama bin Ladens sem bar
ábyrgö á árásunum 11. september
2001.,
Ekki var gefin ástæða fyrir því
að ráðuneytið ákvað að gefa út
viðvörun nú en síðast gerðist það
þann 20. nóvember þegar hljóð-
snælda með skOaboðum frá bin
Laden komst í hendur yfirvöldum.
að nota efnavopn. „Einmitt þau vopn
sem harðstjórinn segir heimsbyggð-
inni að hann eigi ekki í vopnabúrum
sínum,“ sagði Bush og tók einnig
undir ásakanir Powells frá því á fundi
Öryggisráðsins um að írakar veiti
hryðjuverkamönnum tengdum al-Qa-
eda-samtökunum skjól og leyfi
þeim að starfa óáreittum innan
íraks.
Að mati stjómmálaskýrenda
þykir ræða Bush sýna að
þolinmæði Bandaríkjamanna sé á
þrotum og að ekkert annað en stríð
bíði hinu megin við homið verði
Saddam ekki strax við kröfum
Öryggisráðsins um frekari
samvinnu við vopnaeftirlitið.
Það sanni stóraukinn herafli á
Persaflóasvæðinu en að sögn
bandarískra embættismanna eru
meira en 200 þúsund bandarískir
hermenn nú komnir á svæðið eða
á leiðinni þangað auk 40 þúsund
breskra hermanna.
Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, sem dyggOega hefur
stutt hernaðarstefnu Bandaríkja-
manna, virðist eitthvað vera farinn að
linast í trúnni eftir stöðuga gagnrýni
heima fyrir en hann sagðist í sjón-
varpsviðtali í gær hafa trú á því að ný
ályktun í Öryggisráðinu myndi breyta
miklu um almenningsálitið. Hann
sagðist þó ekki hafa skipt um skoðun
varðandi nauðsyn þess að afvopna
Saddam Hussein. „Ég er viss um að
meö nýrri ályktun fengi ég aukinn
stuðning þjóðarinnar og þingsins,"
sagði Blair.
Það þykir einnig renna stoðum
undir það að stríð gegn írökum sé á
næsta leiti, með eða án stuðnings
Öryggisráðsins, að Donald Rumsfeld
varnarmálaráðherra er nú farinn tO
Ítalíu og Þýskalands þar sem hann
mun reyna að afla fyrirhuguðum
hernaðaraðgerum stuðnings en Þjóð-
verjar hafa hingað tO verið á móti
þeim en þóttu hafa linast í afstöðu
sinni á fundi Öryggisráðsins á mið-
vikudaginn.
í gær tilkynnti háttsettur íraskur
embættismaður að þarlendur vísinda-
maður, sem unnið hefði að
framleiðslu efnavopna, hefði boðist tO
þess að ræða við vopnaeftirlitsmenn
og þykir það sanna aukinn
samstarfsvOja Iraka.
Þá samþykkti tyrkneska þingið í
gær að leyfa Bandaríkjamönnum end-
urbætur á tyrkneskum herstöðvum tO
undirbúnings væntanlegs stríðs.
JZj£7 i
Leitarmenn í Texas.
Blautviðri hægir
á leitinni
Leit stendur enn yfir víða um
Bandarikin að braki úr geimfarinu
Columbia sem fórst um síðustu
helgi. Enn er leitað að búnaði sem
gæti varpað ljósi á hvað það var
sem varð tO þess að svo fór sem
fór. Rigning gerði leitarmönnum
erfitt fyrir i vesturhluta Texas en í
smábænum Bronson voru saman
komnir hundruð hermanna og lög-
reglumanna tO að leita að háleyni-
legum búnaði sem talið er að hafi
faOið þar tO jarðar.
Eftir þvi sem dagblað í Houston
heldur fram er þar tækið sem um
ræðir talbúnaður sem á að geyma
samtöl geimfaranna sín á mOli og
við stjórnstöðina á jörðu niðri.
Yfirvöld í Bandaríkjunum hafa
lofað öUum þeim sem skOa bráki
úr flauginni sem þeir kunnu hafa
fundið og tekið í eigin vörslu frið-
helgi og mun það hafa borið góðan
árangur. Þó mun það „tOboð"
ganga aftur í kvöld og fer því hver
að vera síðastur því refsingin er
þung. Tveir voru handteknir á mið-
vikudag og þeir kærðir fyrir að
stela braki úr flauginni og gætu
þeir þurft að borga sekt upp á 20
mOljónir og dúsa í fangelsi í 10 ár.
Flugvélar saknað
í Kólumbíu
Óttast er um líf vinnumála- og
heObrigðisráðherra Kólumbíu auk
fjögurra annarra sem voru um
borð í flugvél sem nú er saknað.
Hún hvarf þegar hún flaug yfir
Andes-fjöOin og er óttast að Ola
hafi farið.
Ráðherrann, Juan Luis Londono,
var með tveimur aðstoðarmönnum,
lífverði og flugmanni í tveggja
hreyfla vél og voru þeir á leið tO
suðvesturhluta landsins, tO borgar-
innar Popayan frá Girardot sem er
í miðju landsins, 120 km sunnan
höfuðborgarinnar Bogota. Aðeins
15 mínútum eftir flugtak var flug-
umferðarstjórn búin að missa sjón-
ar af vélinni.
Leit var hætt í gærkvöldi þegar
dimma tók en var svo haldið áfram
í morgun. Svæðið sem vélin er tal-
in hafa farist á er krökkt af
vinstrisinnuðum uppreisnarmönn-
um sem hafa verið í stríði við yfir-
völd í landinu í fjóra áratugi.
Londono er 41 árs og var skipaður
ráðherra í ágúst síðastliðnum.
. SAMSETT MYND / REUTERS
Heilög María I Ástralíu?
Kaþólikkar í Ástralíu flykkjast nú til Coogee-strandarinnar í einu úthverfa Sydney í Ástralíu þar sem þeim viröist sem
heilög María hafi birst mönnum, eins og sést á myndinni til vinstri. Efasemdarmenn vilja þó halda því fram aö
ímyndin af Maríu sé aöeins sjónarspil, samspil sólarljóss og skugga á giröingu, eins og myndin til hægri viröist sýna.
Mikið um sjálfsvígstilraunir í
Guantanamo-fangabúðunum
Að sögn talsmanns bandaríska
vamarmálaráðuneytisins í Pentagon
hafa fjórir fangar í bandarísku Gu-
antanamo-fangabúðunum á Kúbu
reynt sjálfsvíg á undanfömum þrem-
ur vOium.
Þar með eru alvarlegar sjálfsvígstO-
raunir í búðunum orðnar fjórtán á
einu ári en þar eru vistaðir meira en
sex hundruð grunaðir liðsmenn talí-
bana og al-Qaeda sem handteknir
voru í stríðinu í Afganistan.
Alvarlegasta sjálfsvígstilraunin var
gerð þann 16. janúar; þá reyndi fangi
að hengja sig í klefa sinum en var
„bjargað“ á siðustu stundu af fanga-
vörðum. Hann dvelur enn í sjúkra-
skýli fangelsins og er líðan hans slæm
eftir atvikum.
Kúbu-fanganna er vandlega gætt.
„Yfirvöld í heimalandi hans voru
strax látin vita um alvarlegt ástand
hans,“ sagði Barbara Burfeind, tals-
maður bandaríska vamarmálaráðu-
neytisins, en bætti við að hinir þrír
sem síðan hafa reynt sjálfsmorð hafi
náð góðum bata og séu þegar komnir
aftur í klefa sína.
Fangamir í Guantanamo eru af
bandarískum stjórnvöldum skO-
greindir sem „ólöglegir bardaga-
menn“ en ekki stríðsfangar, sem þýð-
ir að þeir njóta ekki réttinda sam-
kvæmt alþjóðlega Genfar-sáttmálan-
um og fá því enga lögfræðiaðstoð eða
að hafa samskipta við ættingja.
Fjölda málaferla sem ætlunin hefur
verið að reka tO þess að bæta réttar-
stöðu fanganna hefur verið visað frá í
bandaríska réttarkerfinu og einnig
hefur kröfum ýmissa mannúðarsam-
taka, eins og Amnesty Intemational,
um að láta fangana annað hvort lausa
eða ákæra þá fyrir glæp heldur ekki
verið sinnt.
,1 borni !.augavegar og Klapparstigs
Síðasti dagur útsölunnar er laugardagur!
2 °70%
afsláttur