Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2003, Side 10
10
Skr. 1/99, ek. 79 þús.
Verð kr. 1170 þús.
Suzuki Baleno GLX, 4 d., bsk.
Skr. 8/99, ek. 39 þús.
Verð kr. 1150 þús.
Suzuki Jimny JLX, bsk.
Skr. 6/02, ek. 15 þús.
Verð kr. 1480 þús.
Suzuki Swifl GLX, 5 d., bsk.
Skr. 3/98, ek. 52 þús.
Verð kr. 650 þús.
Suzuki Grand Vltara 2,0, bsk.
Skr. 6/01, ek. 67 þús.
Verð kr. 1790 þús.
Suzuki Vitara V6 2,0, sjsk.
Skr. 10/97, ek. 85 þús.
Kr. 1290 þús.
Ford Fiesta Flair, bsk.
Skr. 11/96, ek. 85 þús.
Verð kr. 495 þús.
VW Golf 4-motion, bsk.
Skr. 11/00, ek. 34 þús.
Verð kr. 1650 þús.
Alfa Romeo 156, bsk.
Skr. 9/98, ek. 60 þús.
Verð kr. 1180 þús.
Nissan Primera Comf., bsk.
Skr. 7/01, ek. 25 þús.
Verð kr. 1490 þús.
Sjáðu fleiri á suzukibilar.is
$ SUZUKI
---»/»•■■-.'.--------
SUZUKI BÍLAR HF.
Skeifunni 17, síml 568-5100
Útlönd
MIÐVIKUDAGUR 12. FEBRÚAR 2003
DV
íraksdeilan:
Stefnir í uppgjör á
fundi Öryggisráðsins
Enginn árangur náöist í gær á
fundum fulltrúa aðildarríkja
NATO í deilunni um beiðni
Bandaríkjamanna um aðstoð At-
landshafsbandalagsins um varnir
Tyrklands, komi til stríðs í ná-
grannaríkinu írak. Fulltrúafund-
inum var frestað fram eftir degi á
meðan reynt var að ná sáttum í
hliðarherbergjum.
Þjóðverjar, Frakkar og Belgar
standa fast á fyrri ákvörðum um
beitingu neitunarvalds og náðist
enginn sýnilegur árangur á tutt-
ugu mínútna löngum fundi í gær-
kvöld og ólíklegt að það gerist á
framhaldsfundi sem boðaður hef-
ur verið í dag.
Andstaða Frakka, sem harðast
berjast gegn hernaðaraðgerðum
Bandaríkjamanna gegn írökum,
virðist algjör og er sama að segja
um andstöðu þeirra á vettvangi
Sameinuðu þjóðanna.
Þar stefnir í að þeir leggi með
stuðningi Þjóðverja fram ályktun í
George Robertson
Robertson, framkvæmdastjóri NATO,
stendur frammi fyrir algjörum
klofningi innan bandalagsins vegna
ágreiningsins í íraksmálinu.
Öryggiráðinu um aukið vægi
vopnaeftirlitsins. Verður það lík-
lega á fundi þess á fóstudaginn eft-
ir að Hans Blix hefur gefið ráðinu
endurskoðaða skýrslu um stöðu
vopnaeftirlitsins eftir fundi hans
og Mohammeds ElBaradeis með
íröskum embættismönnum um
síðustu helgi.
Að mati þýskra embættismanna
hafa Frakkar líklegan stuðning
ellefu af fimmtán fulltrúum í Ör-
yggisráðinu fyrir umræddri álykt-
un. Hún gengur út á að fjölga
verulega í vopnaeftirlitssveitun-
um og gefa eftirlitinu aukinn
tíma, í því skyni að knýja íraka til
afvopnunar.
Þar á meðal eru Rússar sem lýst
hafa yfir stuðningi og einnig Kin-
verjar sem auk Breta, Bandaríkja-
manna, Rússa og Frakka hafa
neitunarvald í ráðinu. Aðeins
Bandaríkjamenn, Bretar, Spán-
verjar og Búlgarar styðji hernað-
araðgerðir.
REl/TERS
Orninn og hérinn
Taminn gullörn eltist hér viö héra viö snævi þaktar rætur Tien Shan-fjalla í Kasakstan fyrr í vikunni þar sem arnatemj-
arar landsins komu saman til aö láta ernina keppa innbyröis. íþróttin á sér ríka hefö í landinu og þykir þaö mikill
sómi aö örninn manns standi eftir sem sá allra sterkasti og ekki síst snjallasti örn í landinu.
Stjórnvöld í Pyongyang vilja
friðsæla lausn á deilu
Stjómvöld í Pyongyang sögðu í
morgun að þau vildu friðsæla úr-
lausn kjarnorkudeilunnar sem
myndast hefur í kringum landið síð-
an stjómvöld ákváðu að ræsa
kjamaofna þar aftur, þvert á alþjóða-
skuldbindingar sínar. Þau ítrekuðu
vilja sinn að ræða beint við Banda-
ríkin og hvöttu yfirvöld Breta tO
þess að sannfæra bandamenn sína
vestan Atlantshafsins um að setjast
niður með ráðamönnum N-Kóreu.
Hins vegar væri það alveg ljóst að
ráðamenn mundu svara fullum hálsi
öllum árásum á landið.
Hátt settur embættismaður hjá
utanríkisráðuneyti N-Kóreu sagði
að landið hefði engin áform uppi um
að framleiöa kjarnorkuvopn þrátt
fyrir að það hefði dregið sig úr al-
þjóðlegum sáttmála um takmörkun
útbreiðslu kjamorkuvopna. „En her
okkar mun svara fyrir sig ef Banda-
REUTERS
Solana í Seoul
Javier Solana svarar spurningum
fréttamanna í Seoul í S-Kóreu.
ríkin stíga fótum á þumlung af okk-
ar landi,“ bætti hann við. „Og ég
held að við verðum sigursælir í slík-
um aðgerðum."
Javier Solana, utanríkismála-
stjóri ESB, er nú staddur í S-Kóreu
eftir stutta dvöl í Japan og sagði
hann stjórnvöld í báðum löndum
hafa hvatt sig tO að senda hátt setta
fulltrúanefnd til viðræðna í N-
Kóreu um deOuna. „Frekar fyrr en
seinna,“ sagði Solana við þvi hvort
af því yrði.
í dag mun svo Alþjóða kjarnorku-
málastofnunin taka fyrir málefni
landsins á fundi sínum og það sem
er öUu mikUvægara, ákveða hvort
vísa eigi málinu tU Öryggisráðs SÞ.
Ef svo færi gæti ráðið ákveðið að
setja viðskiptaþvinganir á N-Kóreu
í refsiskyni. N-Kórea hefur sagt aU-
ar slíkar aðgerðir jafngUda beinni
striðsyfirlýsingu.
10 ár frá Bulger-moröinu
í dag eru 10 ár
i liðin frá því að lík
| hins tveggja ára
r W James Bulger
A *' Fm\ fannst hjá kanti
M við lestarteina í
Liverpool í
Englandi. Mál hans
1-^—-----------vakti einkar mikla
athygli því að morðingjar Bulgers
voru tveir 11 ára drengir. Þeir
voru á sinum tíma sakfeUdir fyrir
morðið en í fyrra var þeim sleppt
úr haldi og þeim gefm ný nöfn, í
mikiUi óþökk við foreldra Bulgers.
14 múslímar tróðust undir
14 manns tróðust undir fjöldan-
um sem reyndi að „grýta djöful-
inn“ nálægt Mekka í gær. Athöfnin
felst í því að pUagrímamir kasta
smásteinum að súlu sem táknar
djöfulinn og getur myndast mikiU
troðningur þegar íjöldinn reynir að
komast að súlunni.
6 tonn af dópi brennd
TaUendingar efndu tU mikiUar
brennu í morgun þar sem 6 tonn af
eiturlyfjum vom brennd fyrir allra
augum. Er þetta hluti af baráttu yf-
irvalda gegn eiturlyfjanotkun í
landinu sem hefur þegar kostað 90
manns lífið. Mannúðarsamtök ótt-
ast að mannréttindi séu brotin í
þessari baráttu.
Ebólan gæti breiðst út
Upp er kominn ebólu-faraldur í
norðurhluta Kongó, nærri landa-
mærunum við Gabon, en 38 manns
hafa þegar látist eftir að hafa sýkst
af veirunni banvænu. Yfirvöld í
landinu óttast að veiran gæti breiðst
út og valdið mun meiri skaða.
Líkt eftir slysinu
Sjálfstæð rann-
sóknamefnd, sem
var skipuð til að
rannsaka orsakir
þess að geimskutl-
an Columbia fórst,
hefur ákveðið að
útbúa myndband
sem á að reyna
varpa ljósi á hvað gerðist á síðustu
andartökunum áður en skutlan lið-
aðist í sundur. Myndbandið mun
verða byggt á öðru myndefhi, bæði
frá yfirvöldum og almenningi.
Flugvél ráðherra fundin
Brak lítillar flugvél sem fórst í
síðustu viku I fjallagörðum Kól-
umbíu fannst í gær en meðal far-
þega hennar var félagsmálaráð-
herra Kólumbíu og aðstoðarmenn
hans. Er óttast að hann hafi farist í
slysinu.
Grateful Dead styttir nafn
Eftirlifandi meðlimir hljómsveit-
arinnar Grateful Dead eru þreyttir
á að vera kallaðir „hinir mennirn-
ir“ og hafa því ákveðið að breyta
nafni hljómsveitarinnar í The
Dead, nafni sem sveitin er kölluð í
daglegu máli. Söngvari Grateful
Dead, Jerry Garcia, lést árið 1995.
Deilt um Zimbabwe
Ráðamenn Níger-
fu og S-Afríku hafa
farið fram á að við-
skiptaþvingunum
gegn Zimbabwe
verði umsvifalaust
hætt og landið tek-
ið aftur inn í
Breska samveldið.
Löndin tvö, ásamt Ástralíu, mynda
ráð sem hefur yfirumsjón með mál-
efnum Zimbabwe hjá samveldinu
og hafa fyrmefndu löndin sakað
það síðastnefnda um að bregðast
sínu hlutverki, sem eru ekki sam-
stiga þeim í þessu máli.