Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2003, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2003, Blaðsíða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 12. FEBRÚAR 2003 Tilvera DV Þrír ungir leikarar í veigamiklum hlutverkum í Kaldaljósi: Að lifa persónuna og vera karakterinn Tökur á myndinni Kaldaljós eftir sögu Vigdísar Grímsdóttur hófust á Seyðisfirði fyrir jól. Þá rigndi og rigndi þannig að það sló öll met. Sag- an gerist hins vegar um vetur í mikl- um snjó, þar sem öll fjöll eru hvít og Tindurinn, stærsta fjallið, trónir snjóhvítur efst - og það var ekki hægt að ljúka við tökur myndarinnar. En eftir jólin kom snjórinn, frost og mik- ið kóf - ekta seyðfirskur vetur - og hópurinn kom aftur með öll sín tæki og tól til að ljúka upptökum. En enn og aftur fengu þau alveg nóg af veðr- inu. Fréttaritari DV fór út á bakka að fylgjast með þegar tæknimenn og leikarar voru að búa sig undir tökur í þessum langþráða snjó. Þar voru fyrir þrír krakkar - aðal- leikaramir í þessum fyrri hluta sög- unnar sem gerist á Seyðisfirði. Þau voru að kollsteypa sér í snjónum meðan ég var þama. Um kvöldið spurði ég þau hvaða áhrif myndin hefði á þau. Þau sem bám hitann og þungann af þessum myndatökum em Áslákur Ingvarsson, 12 ára, hann leikur aðalpersónuna Grím, Snæfríð- Efnilegir krakkar Þau Snæfríður, Áslákur og Elís svör- uðu vel fyrir sig þegar þau lentu í litlu fréttaviðtali, kannski því fyrsta. ur Ingvarsdóttir, 11 ára, leikur systur hans, Gottínu, og Tuma vin þeirra leikur Elís Philip William Scobie, 12 ára. Þaö var sérstaklega skemmtilegt að tala við krakkana. Þau vom lif- andi og áhugasöm um það sem þau vom að gera og höfðu djúpan skiln- ing á verkinu og háttum þeirra tíma sem verkið segir frá. Ég spyr hvemig þeim liki þær persónur sem þau leika í myndinni. Elís: „Maður þarf að lifa persón- una og vera karakterinn." Áslákur: „Grímur er ailt öðmvísi manngerð en ég; hann er mikill ein- fari og lokaður - lifir oft í öðmm heimi. Það er erfitt að nálgast persón- una en sttmdum er það mjög gaman.“ Snæfríður: „Gottína og Grímur em mjög ólík. Hún er mikil felagsvera og henni þykir mjög vænt um bróður sinn. Það er gaman að leika hana.“ Krökkunum ber saman um að þetta sé mjög krefjandi verkefhi og þau hafi þroskast mikið við að setja sig í spor þessara austfirsku krakka. Þau þekkja til leikhúsa og kvik- myndagerðar og segja aö það sé allt öðruvísi að leika í leikhúsum þar sem allt þarf að vera nákvæmt og til- búið fyrir hverja sýningu. Öll hafa þau áhuga á að koma á einhvem hátt að leiklist og segjast hafa lært mikið fyrir austan. Hlutverk Grims er stærsta hlut- verkið og Áslákur hefur dvalið lengst fyrir austan. Hann segir aö þetta hafi oft verið erfitt vegna skólans, sérstak- lega fyrir jól. „Þá fóru heilu dagamir í upptökur," sagði hann, „og lítill tími fyrir skólann. Það þýddi að ég varð að gera mikið um jólin til þess að verða ekki á eftir.“ „Það er búið að vera gaman héma á Seyðisfirði,“ segja krakkamir. „Við hefðum alveg getað hugsað okkur að vera lengur.“ Sögunni er skipt í tvennt. Fyrri hlutinn gerist á Seyðisfirði en sá síð- ari í Reykjavík. Þá leikur Ingvar E. Sigurðsson Grím, sem orðinn er full- orðinn. Aðrir leikarar í aðalhlutverk- um em Kristbjörg Kjeld, sem leikur Álfrúnu, gamla konu og einræna sem er mjög góð vinkona Gríms. Foreldr- ar systkinanna era leiknir af Valdi- mar Flygenring og Þóra Sigþórsdótt- ur og Önnu, unga konu sem býr rétt hjá fjölskyldunni og er mikil vinkona hennar, leikur Sara Björg Ásgeirs- dóttir. Stjómandi kvikmyndarinnar er Hilmar Oddsson og stefnt er að því að hún verði frumsýnd um miðjan september, bæði á Seyðisfirði og í Reykjavík. Viðtal og myndir: Kar- ólína Þorsteinsdóttir -KÞ Elísa Marín fllmarsdóttir, 100797 SÍmon LogiThasaphong, 130201 Da8i Fannar Sverrisson, 180496 FriSrik PÓII Haraldsson, 050199 flsta Gunnlaugsdóttir, 081096 Einar Darri Þórisson, 041196 Jóhannes B. Gunnarsson, 231091 Kamilla Rut Ragnarsdóttir, 091292 Ólöf Hafdís Einarsdóttir, 261098 Elmar flron Gunnarsson, 091193 Krakkaklubbur DV og Sam-film óska vinningshöfum til hamingju. Vinningshafar, vinsamlegast nólgist vinninginn hjó DV, SkaftahlíS 24, fyrir 12. febrúar. Vinningar verSa sendir tilvinningshafa úti ó landi. Kveðja. TÍgri og Kittý K*AkftJdúbh^ ÞARFASTI ÞJÓNNINN! Ui&w i þém kvtrfi Á tökustaö Austfirsku fjöllin, snævi þakin, skipta mikiu máli í Kaldaljósi. Hér er mynd af tökustað og mikið lið mætt í tökuna. •tULt Una Sveinbjarnardóttir með tónleika í Ými í kvöld: Fiölan jafndýr og jeppi „Áhuginn á fiðlunni kom mjög snemma. Alla vega er mér talin trú um að að ég hafi valið hljóðfærið sjálf,“ segir Una Sveinbjamardóttir fiðluleikari og brosir. Hún heldur tónleika í Ými í kvöld ásamt Önnu Guðnýju Guðmundsdóttur píanóleik- ara. Fyrsta verkið á dagskránni er glænýtt lag eftir Atla Heimi Sveins- son sem Una framflutti í síðustu viku í Berlín þar sem hún var að ljúka fyrri hluta einleikaraprófs við Hochschule der Kúnste. Síðan koma verk eftir Sergei Prokofjev, J. S.Bach, Amold Schönberg og Pablo Sarasate. „Þetta er fjölbreytt prógramm og frekar nýlegt en Bach brýtur þetta upp í miðjunni og ég held að allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi,“ segir Una og bætir við að það sé búið að vera gaman á æfmgunum með Önnu Guðnýju og nýja verkið hans Atla Heimis, Im Volkston, sé flott.“ En hvað þýðir Im Volkston? „Fólks- tónn. Titillinn er fenginn að láni hjá Robert Schumann, sagði Atli mér. Hann byggir þetta á tveimur stefjum í þjóðlagastíl. Þetta er rammíslenskt verk.“ Gott tónlistaruppeldi Una er fædd og uppalin í höfuð- borginni, nánar tiltekið í Hlíðunum, og gekk í Æfmgadeild Kennaraskól- ans sem bam, auk þess að fá gott tón- listarappeldi bæði í skólum og heima DV-MYND HARI Fiöluleikarinn Frumflytur Fóikstón, nýtt lag sem Atli Heimir Sveinsson samdi sérstaklega handa henni. fyrir. „Foreldrar minir hlustuðu mik- ið á tónlist og ég fékk tækifæri til að fara á tónleika sem krakki," segir hún og nú liggur beint við að spyrja hverra manna hún sé. „Móðir mín heitir Helga Guðmundsdóttir og er þýðandi bæöi bóka og sjónvarpsefnis og faðir minn heitir Sveinbjöm Rafiissn og er prófessor í sagnfræði við Háskólann. Þau era semsagt ekki tónlistarfólk að atvinnu en áhuginn er til staðar,“ svarar Una. Eftir hefðbundið tónlistamám hér heima lá leiðin til Þýskalands. „Ég er búin aö vera í Þýskalandi í sjö ár. Það er langur tími.“ segir hún. „Ég byrjaði í tónlistarháskólanum í Köln og í kammertónlist undir leiðsögn Alan Bergs-kvartettsins og var mjög heppin því ég starfaði líka í sextett sem var með tónleika víða. Síðustu fjögur ár hef ég svo verið í Berlín og lært hjá Thomas Brandis sem var konsertmeistari hjá Fílharmóníu- hljómsveit Berlínar á tímum Her- berts von Karajans. En ég sakna íslands alltaf mikið þegar ég er í Þýskalandi og hef reynt að koma heim eins oft og tími hefur gefist til. Hef verið að spila með út- varpshljómsveitinni í Berlin og því verið dálítið bundin en fékk til dæm- is að koma heim og spila fiðlukonsert eftir Philip Glass meö Sinfóníuhljóm- sveitinni síðastliðið haust. Það var skemmtilegt." Fiðla frá átjándu öld Nú er Una á lokasprettinum í námi og byrjuð að vefja verk til flutnings á lokatónleikunum sem verða einleik- ur með hfjómsveit. En skyldi hún eiga fma fiðlu? „Já, ég eignaöist mjög góða fiðlu í fyrra. Hún er ítölsk, frá árinu 1732. Ég fann hana í London.“ Spurð hvort hún hefði ekki verið meiri háttar fjárfesting svarar hún: „Jú, hún var það. Þetta er eins og upphækkaður jeppi með öllum búnaði!" -Gun.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.