Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2003, Blaðsíða 6
6
LAUGARDAGUR 29. MARS 2003
Fréttir
Guðmundur Gunnarsson.
Rafiðnaðarsambandið
telur fréttir DV
ámælisverðar
- blaöiö stendur viö fréttirnar
Rafiðnaðarsamband íslands
sendi frá sér yfirlýsingu í gær
vegna skrifa í DV um málefni
sambandsins. Þar segir orðrétt:
„Vegna þeirra greina sem birst
hafa í DV undanfarna daga undir
yfirskriftinni „Á könnu RSÍ“, þá
viljum við taka fram eftirfarandi.
Margt í þessum greinum er rangt
auk þess að rangfærslum er
beitt. Á nokkrum stöðum er gerð
tilraun til þess að tengja saman
óskyld atriði og aðila.
Það er ámælisvert að setja
fram svo alvarlegar, jafnvel refsi-
verðar, ásakanir um aðila, starfs-
menn þeirra og einstaklinga án
þess leitað sé eftir upplýsingum
eða staðfestingum á því sem birt
hefur verið í greinaflokknum og
færð fullnægjandi rök fyrir ásök-
unum.
Tilgangur greinanna er óskilj-
anlegur, nema verið sé að reyna
að hafa áhrif á réttarhöld sem
staðið hafa yfir þessa viku vegna
meints tugmilljóna fjárdráttar
fyrrverandi skólastjóra Rafiðnað-
arskólans, væntanlegra sakamála
vegna fjármálamisferlis.
Við ítrekum boð okkar um að
velkomið er að fá upplýsingar
hjá RSÍ um rekstur sambandsins.
Reykjavík, 28. marz 2003.
Fh. Rafiðnaðarsambands ís-
lands
Guðmundur Gunnarsson for-
maður
Helgi Jónsson varaformaður
Rúnar Bachmann gjaldkeri
Haraldur Jónsson, form FÍR og
framkv.stjóm RSÍ
Einar Jón Ólafsson fjármála-
stjóri.“
Athugasemd ritstj.
Blaðamaður DV hringdi í Guð-
mund Gunnarsson í síma 893-
1400 á níunda tímanum í gær-
morgun í ljósi þess að hann hef-
ur ítrekað sent frá sér skrifleg
boð um upplýsingagjöf. Kynnti
blaðamaður sig með nafni og
sagðist vera á vegum DV. Svar
Guðmundar var skýrt: - „Bless-
aður.“ - Síðan var sambandið
rofið.
Fjöldi heimildarmanna hefur
staðfest það sem fram hefur kom-
ið í DV um málefni Rafiðnaðar-
sambands íslands þótt flestir hafi
kosið að koma ekki fram undir
nafni að svo stöddu. Þar er bæði
um að ræða fyrrverandi starfs-
menn og miðstjórnarmenn RSÍ,
auk varaformanns, eins og fram
hefur komið. Þá hefur blaðið
stuðst við fjölda gagna sem sýna
framvindu mála innan sam-
bandsins. Auk þess hafa í það
minnsta þrír fyrrverandi starfs-
menn vitnað eiðsvamir fyrir
dómi um launagreiðslur RSÍ sem
hafa ekki verið gefnar upp til
skatts, jafnvel árum saman. DV
stendur því við allt það sem fram
hefur komið ummálefni RSÍ og
vísar meintum refngfærslum á
bug, sem og ásökunum um að
ætlun blaðsins nfieð skrifunum sé
að hafa áhrif á (jlómsmál. -HKr.
Engir raunverulegir peningar á bak viö vinnudeilusjóð RSÍ:
Aðeins skuldabnéf í stór-
skuldugum menntasjóði
í DV 26. mars hefði verið rétt. „Ég
staðfesti það við þig,“ sagði Helgi.
- Var ástœðan fyrir því aö bréfin
voru seld ekki fiárhagsvandrœði
Sambandsins? Getur þú staðfest þaö?
„Já.“
- Er rétt að eign vinnudeilusjóós-
ins í dag sé skuldabréf vió mennta-
sjóð?
„Já, það átti að útbúa skuldabréf
við menntasjóðinn. Menntasjóður-
inn átti að taka þetta yfir. Svo átti
að útbúa skuldabréf sem borgaði
þetta til baka.“
- Var menntasjóðurinn búinn til
utan um skuldadœmi skólakerfis
RSÍ?
„Já.“
- Hvaóa eignir á þessi menntasjóð-
ur? Hvað stendur á bak við bréfin
sem vinnudeilusjóður á í mennta-
sjóói?
„Það er eftirmenntunargjaldið
sem kemur inn reglulega ffá at-
vinnurekendum. Helmingurinn af
1% gjaldinu, sem greitt er með sam-
komulagi við meistara, átti að fara í
að borga þetta.“
- Þannig að þessar á annaó
hundrað milljónir króna, sem for-
ysta RSÍ heldur fram að vinnudeilu-
sjóðurinn eigi, eru ekki fyrirliggj-
andi hjá þessum sjóði í raun og veru
á annan hátt en í þessu skuldabréfi?
„Þær eru bara í þessu bréfi,“
sagði varaformaður RSÍ. -HKr.
Helstu eignir vinnudeilusjóðs Raf-
iðnaðarsambands íslands (RSÍ) voru
seldar á 129 milljónir króna í fyrra
eins og greint var frá í DV á mið-
vikudag. Eftir stendur aðeins
skuldabréf við nýlega stofnaðan
menntasjóð RSÍ sem ætlað er að
greiða upp skuldabréfið með eftir-
menntunargjaldi sem kemur inn
reglulega frá atvinnurekendum.
Menntasjóðurinn er hins vegar sjóð-
ur sem stofnaður var utan um
skuldapakka menntakerfis RSÍ.
Þetta staðfesti varaformaður RSÍ í
samtali við DV í gær. Fullyrðingar
forsvarsmanna á vefsíðu RSÍ um
sterka stöðu vinnudeilusjóðsins
virðast því vera rangar.
Fjóröl hluti
„Kórréttar" fréttir
Foysta RSÍ sendi frá sér yfirlýs-
ingu í gær um að DV hefði flutt
óstaðfestar fréttir af RSÍ að undan-
fömu. Þar mun vera átt við fréttir
um gjaldþrot RTV-Menntastofnunar
á mánudag, frétt um sölu á eign
vinnudeilusjóðs á miðvikudag og
skrif um greiðslur undir borð hjá
RSÍ á fimmtudag.
í DV í gær staðfesti fyrrverandi
skrifstofustjóri Rafiðnaöarsam-
bands íslands að umfiöllun DV um
greiðslur undir borðið hjá RSÍ væri
ótrúlega nákvæm og rétt. - „Hún er
að öllu leyti kórrétt," sagði skrif-
stofustjórinn fyrrverandi. Hann
greindi líka frá reglubundnum
greiðslum til formanna aðildarfé-
laga árum saman, upp á 40 til 50
þúsund krónur á mánuði, og til
fastra starfsmanna með rúmum
mánaðarlaunum. Einnig „slump-
um“ eða summum ef mikið álag var,
sem greiddar voru „svart“, eins og
hann orðaði það.
Helgi Jónsson, varaformaður RSÍ,
staðfesti í viðtali við blaðamann DV í
vikunni að eignir vinnudeilusjóðs
sem fólust í hlutabréfum í Eignar-
haldsfélagi Alþýðubankans hefðu ver-
ið seldar í fyrra. Á vef RSÍ 26. mars
staðfestir Helgi þetta en segir svo:
„Ég sagði „aldrei“ aö hlutabréfin
hefðu verið seld fyrir skuldum enda
ekki spurður um það.
Það er með ólíkindum hvemig
blaðamenn geta snúið út úr orðum
manna og slitið úr samhengi svo úr
verði tóm þvæla.“
Helgi staðfesti hins vegar við
blaðamann DV síðast fyrir hádegi í
gær að allt sem eftir honum var haft
Sigurður Gröndal í forsvari fyrir unglingastarfi í gangnamannaskála:
Forvarnir í Hólaskógi
Guðni hjálparhella
Guöni Ágústsson landbúnaðarráðherra hefur staðið við bakið á
forvarnarstarfi sem fram fer í gangnamannaskáia í Hótaskógi. Hér sést
Guöni ræða við unglinga sem voru í skáianum á dögunum.
„Hólaskógur er gamall gangna-
mannaskáli sem ég keypti fyrir
nokkrum árum og breytti í gisti-
hús,“ segir Sigurðúr Gröndal, eig-
andi og skálavörður, en hann var
gítarleikari í hljómsveitinni
Rickshaw á sínum tíma.
Á virkum dögum tekur hann á
móti hópum í forvarnarstarfi í
samstarfi við DV, lögregluna, Tó-
baksvarnarráð, Bílaleiguna Hertz
og Hreim, söngvara Lands og
sona.
Hólaskógur er þar sem afrétt
Gnúpverjahrepps byrjar á milli
Búrfellsvirkjunar og Sultartanga.
Sigurður segir að skálinn sé full-
bókaður á sumrin og flestar helg-
ar yfir veturinn.
„Ég er búinn að vinna að þessu
í þrjú ár. Til aö byrja með gekk
það hægt og mér fannst ég alls
staðar koma að lokuðum dyrum.
En svo hitti ég Guðna Ágústsson
landbúnaðarráðherra sem hjálp-
aði mér að koma starfinu af stað.“
Að sögn Sigurðar er Guðni al-
vörumaður en samt finnst honum
að það eigi að fella tvo síðustu
stafina úr nafni Guöna og kalla
hann Guð.
Þegar Sigurður er spurður
hvernig standi á því að gamall
poppari snúi sér af rekstri gisti-
skála og forvarnarstarfi rifiar
hann upp minningu frá því hann
var unglingur.
„Fyrir mörgum áratugum var
mér boðið ásamt nokkrum ung-
lingum í Ölfusborgir til að taka
þátt í forvarnarstarfi. Okkur var
kennt eitt og annað um fikniefni
án hræðsluáróðurs. Námsefnið
var skemmtilegt og fræðandi. Ég
hef hugsað mikið um ferðina og
ákvað og nýta skálann á svipaðan
hátt.“
Sigurður segir verkefnið hafa
undið ótrúlega upp á sig, hann
þurfi nú þegar að skipuleggja
næsta vetur.
Sigurður segir að Gylfi Þór Þor-
steinsson, auglýsingastjóri á DV,
standi hundrað prósent með sér í
verkefninu. „Við tökum á móti
áttunda til tíunda bekk grunn-
skóla. Krakkamir koma með rútu
að morgni og byrja á því að koma
sér fyrir. Síðan segir Eiríkur Pét-
ursson lögreglumaður krökkun-
um allt um dóp og heiminn í
kringum þaö. Eftir það er lífs-
leikni og frjáls tími. Það kemur
hingað maður með hasshundinn
og krakkarnir fá að sjá hvemig
hann vinnur. Um kvöldið heldur
Hreimur úr Landi og sonum
kvöldvöku og daginn eftir talar
Þorgrímur Þráinsson um skað-
semi tóbaks á mjög sérstæðan
hátt.“
Að sögn Siguröar fá foreldrarn-
ir einnig fræðslu því að þeim er
boðið á fræðslufund í skólanum í
tengslum við forvarnarstarfíð.
-Kip
Tillögur forsætisráðherra:
Kanpmánaraukning
DV leitaði viðbragða við tillögum
Davíðs Oddssonar forsætisráðherra
um 22 milljaröa ki’óna skattalækkun
og lækkun tekju-, virðisauka- og
erfðaskatts.
„Tillögur varð-
andi tekjuskatts-
kerfið fela í sér
mikinn kaup-
máttarauka fyrir
almenning.
Lækkun virðis-
aukaskatts á mat-
vælaverði kemur
þeim lægra laun-
uðu einna best.
Tillögumar eru í samræmi við þær
breytingar sem við teljum æskilegar
en það er líka liður í liðkun á álög-
um í skattkerfinu að rýmka mögu-
leika til skattfrestunar vegna lífeyr-
isspamaðar. Við, aðilar vinnumark-
aðarins, hljótum að horfa á okkar
stöðu í málinu á næstu árum. Kaup-
máttaraukning gegnum skattalækk-
anir mun draga úr pressunni á
óraunhæfar launahækkanir," segir
Ari Edwald, framkvæmdastjóri
Samtaka atvinnulífsins
Hvorki svar né andsvar
„Ég sé ekki
neitt í tillögum
forsætisráðherra
sem mætir því
sem við leggjum
til. Þær fara ekki
alveg saman við
aðrar ályktanir á
landsfundinum.
Ég reikna með að
um helgina birt-
ist frekari upplýsingar um hyemig
þessi útfærsla Davíðs verði. Á 4%
lækkun tekjuskatts að vera að
óbreyttum skattleysismörkum eða
eiga þau að hækka? Formaður
Framsóknarflokksins var með til-
lögu um 3% lækkun en skattleysis-
mörkin yrðu hækkuð. Þessar tillög-
ur eru því hvorki svar né andsvar
við okkar útspili í velferðarmálum,"
segir Gylfi Ambjömsson
framkvæmdastjóri ASÍ. -GG
Arnbjörnsson.