Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2003, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2003, Blaðsíða 34
3 Helcjctrbloö E>"Vr LAUGARDAGUR 29. MARS 2003 Sálarstríð að skoskum sið Skoska landsliðið hóf undirbúninginn fyrir landsleikinn gegn íslendingum mun fyrr en það íslenska. Gert var hlé á skosku úrvalsdeildinni yfir síöustu helgi eingöngu í þeim tilgangi að skoska lands- liðið verði eins klárt í slaginn gegn ís- landi og mögulegt er. íslenska liðið kom hins vegar ekki saman fyrr en á miðvikudag. Bæði Berti Vogts, þjálfari Skota, og leikmenn hans eru borubrattir fyrir leik- inn og telja sigur vísan. Atli Eðvaldsson hefur ítrekað haldið því fram að íslenska liðið sé litla liðið, jafnfvel þó aö Skotar séu aftar á styrkleikalista Alþjóða knatt- spyrnusambandsins. Leikmenn skoska liðsins hafa brugðist við þeim ummælum Atla með því að saka hann um beita sömu brögðum og hann hélt að skoskir fjölmiðlar hefðu gert sér, það er að hafa stimplað íslendinga sem mun líklegri sig- urvegara áður en fyrri leikur þjóðanna fór fram. Vongóður Berti Vogts segist skulda stuðnings- manna hópi skoska landsliðsins, „The Tartan Army,“ sigur og góða frammi- stöðu gegn íslendingum eftir vonbrigðin frá því fyrir nokkrum vikum, en þá var Skotland tekið í bakaríið í vináttuleik af einum af erkifjendum sínum, írlandi. Og hinn þýski Vogts lætur ekki þar viö sitja; hann hefur hótað því að setja þá leik- menn sem ekki standi sig gegn íslending- um miskunnarlaust á varamannabekkinn fyrir komandi leiki. Vogts ætlast til að lið hans fari með sigur af hólmi og að ekkert annað komi til greina. „Ég tel mig aldrei hafa haft úr sterkari hópi að velja og ég er jög vongóður um að við náum okkur í þessi þrjú dýrmætu stig,“ segir Vogts sem hefur legið undir mikilli gagnrýni nánast allan þann tima sem hann hefur verið við stjórnar- taumana hjá skoska liðinu. Raunar segja margir að hann megi þakka sigrinum gegn íslendingum það að hann hafi hald- ið starfinu. Eftir hörmulega frammistöðu gegn írum ekki alls fyrir löngu fór aftur að hitna undir Vogts og er jafnvel talið að önnur léleg frammistaða gegn Islandi verði kornið sem þarf til að fylla mælinn hjá skoska knattspyrnusambandinu. Vogts segist þó ekki finna fyrir neinni pressu. „Ég krefst þess af leikmönnum mínum að þeir spili af miklu meiri ástríðu en gegn írum. Eftir þann leik fannst mér að mér þætti vænna um skoska landsliðið en leikmönnum þess. En ég hef rætt við leikmennina. Ég sagði þeim að þeir þyrftu að leggja hart að sér á laugardag- inn, bæði fyrir mig og ekki síður fyrir skoska knattspyrnu. Ég get fullvissað alla um að leikmenn munu spila af mikilli innlifun fyrir þjóð sína á laugardag," sagði Vogts á blaðamannafundi í vik- unni. Skotland að komast á kortið Vogts segir að sigur skoska liðsins Celtic á Liverpool í Evrópukeppni félagsliða fyrir rúmri viku gefi öllum skoskum knattspyrnumönnum aukið sjálfstraust og ætlar Vogts að nýta sér það. „Með því að slá út Liverpool, goð- sögn í evrópskri knattspyrnu, hefur Celt- ic sent skýr skilaboð inn í knattspyrnu- heiminn," segir Vogts. „Ég er hér til þess að byggja upp nýtt lið Skota, sannkallað framtíðarlið, og þessi árangur Celtic er ekki til að eyðileggja það. Ég er mjög, mjög vongóður um að það rætist úr skoska landsliðinu," segir Vogts, hinn kokhraustasti. -vig Skoska landsliöið liefur verið við æfingar í bænuin Dumbarton í rúma viku. Undirbúningur liðsins er mun lengri en sá sein íslenska liðið fær. Reuters Tvöfalt hlutverk Tommy Burns - er bæði aðstoðarþjálfari og tungumálakennari fyrir Berti Vogts Tommy Burns, aðstoðarmaður Þjóðverjans Berti Vogts hjá skoska landsliðinu, hefur í mörgu að snúast þessa dagana. Hann þarf að hjálpa Vogts við æfingar liðsins en hann hefur einnig tekið að sér það verkefni að kenna Vogts skosku. Þjóðverjinn hefur átt í tölu- verðum erfiðleikum með að gera sig skiljanlegan við leikmenn sína og því ætlar Burns að breyta. „Hann (Berti Vogts) þarf að geta gert sig skiljanleg- an á skosku þegar mikið liggur við á vellinum og eitt- hvaö þarf að gerast strax. Hann notar ekki alltaf réttu orðin og ég hef tekið aö mér að kenna honum nokkra góða skoska frasa sem klikka aldrei. Ég hef einfaldað málfar hans sem er það eina sem dugir því flestir leik- manna okkar eru frekar einfaldir," sagði Bums í gær. Hann gerir sér fyllilega grein fyrir mikilvægi leiks- Það er létt yfir þeini Berti V'ogts, þjálfara Skotlands, og leikmönnunum Jumes McFadden og Maurice Ross. Ætli þeir séu að rifja upp fyrri landsleik íslendinga og Skota ú síðusta ári? ins gegn íslandi í dag. „Við munum ekki eiga okkur neinn griðastað ef við töpum þessum leik í dag. Við fáum ekkert fyrir sigur- inn á íslandi síðast og þessi leikur verður prófsteinn á liðið. Það lið sem nær að meðhöndla pressuna betur í leik sem þessum fer með sigur af hólmi. Það er í leik sem þessum sem við komumst að því hvort leikmenn hafa virkilega þaö sem til þarf þegar þess er þörf. Lið- ið okkar er ungt og það tekur tíma fyrir það að komast af stað en þessir leikmenn sem eru að spila núna verða að hafa hungrið til að ná langt og koma Skotlandi á meðal bestu knattspyrnuþjóða í Evrópu á nýjan leik. Leikurinn gegn íslandi er einn af þeim leikjum sem skera úr um hvar liðið er statt og ég get séð margt svipað með undirbúningi þessa leiks og leiksins síðasta haust. Þá höfðum við gert jafntefli gegn Færeyingum en nú töpuðum við gegn Irum. Það eru vangaveltur í gangi um það hvort liðið sé nógu gott og það er leikmannanna að sanna að svo sé. Okk- ar starf er að byggja þá upp fyrir leikinn og vonandi tekst það jafnvel og á íslandi,“ sagði Burns. -ósk Kenny Miller, sóknarmaður skoska liðsins: Vonast til að byrja - hefur skoraði 15 mörk í síðustu 15 leikjum Framherjinn Kenny Miller, sem er 23 ára gamall, gerir sér góðar vonir um að vera í byrjunarliðinu gegn íslendingum í dag. Miller hefur aðeins spilað einn landsleik en hann hefur verið í miklu stuði með enska 1. deildarliðinu Wolves, skorað fimmtán mörk í síðustu fimmtán leikjum liösins og vonast til að það verði til þess að hann hljóti náð fyrir augum Berti Vogts. „Ég vona að ég byrji á laugar- daginn eða í það minnsta komi eitthvað við sögu í leiknum og að þessi leikur verði upphafið að al- mennilegum landsliðsferli hjá mér,“ sagði Miller sem gekk til liðs við Wolves fyrir yfirstandandi tímabil eftir tvö erfið ár hjá Glas- gow Rangers þar sem hann fékk fá tækifæri. „Það hafa allir gott af því aö mæta mótlæti á ferlinum en ég sá að ég myndi aldrei komast neitt sem knattspyrnumaður ef ég yrði áfram hjá Rangers. Ég fór því til Wolves og sé ekki eftir því. Ég vona bara að ég spili og skori á morgun (í dag) og sanni þaö fyrir öllum að þetta var rétt ákvörðun hjá mér,“ sagði Miller. Flestir þeir skosku blaðamenn sem hafa tjáð sig um liösuppstiU- ingu skoska liösins fyrir leikinn i dag telja að Vogts veröi aö láta Kenny Miller spila því aö marka- skorarar, af skosku bergi brotnir, eins og hann séu sjaldséðir hvítir hrafnar í skosku knattspyrnunni. -ósk
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.