Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2003, Blaðsíða 55

Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2003, Blaðsíða 55
LAUG ARDAGU R 29. MARS 2003 Helgarblað I>V 59 Við Hverfisgötuna var starfrækt noklturs konar vændishús á stríðsárunum. í ákveðnu gistihúsi þar leigðu hermenn herbergi til þess að gainna sér við ungar stúlkur. Þeir greiddu stúlkun- um fyrir í snyrtivörum, fötum eða peninguin. „Fjárhagslegt sjálfstæði“ Eins og fram hefur komið er orðalagið „fjárhagslegt sjálfstæði" lykilorð í þessum efnum. Það er eflaust misjafnt hvað menn telja „augljósar vændisauglýsing- ar“ en þegar leitað er á einkamal.is í flokknum skyndikynni og leitarorðið „fjárhagslegt sjálfstæði" látið ráða för koma upp auglýsingar frá 41 karlmanni og 14 konum. Konurnar eru í leit að fjárhagslega sjálf- stæðum körlum og karlarnir leita að konum sem leita að fjárhagslega sjálfstæðum körlum. Lítum á dæmi: Frá 30 ára karlmanni: „Ég vil kynnast konum sem leita eftir fjárhagslega sjálfstæðum karlmönnum. Ég er giftur maður og fjár- hagslega sjálfstæður og traustur. Þið sem hafið áhuga, endilega hafið samband." Frá 40 ára karlmanni: „Ég er giftur og bý úti á landi. Er mjög oft í Rvík, vegna viðskiptaerinda. Ég hef áhuga á að hitta falleg- ar konur með tilbreytingu í huga. Er fjárhagslega sjálfstæður. Endilega hafið samband og kannið hvem- ig landið liggur." Frá 23 ára konu: „Hæ er komin aftur með notendanafnið victoria 22 með mynd. Hafðu samband. Er eingöngu að leita að fjárhagslega sterkum karlmönnum." Frá 25 ára konu: „Fjárhagslega vel stæðir karlmenn í ævintýraleit. Sendið póst á frjalsvidskipti@visir.is“ Frá 41 árs konu sem kallar sig: Selja litla: stúlkur sem voru í bransanum sem svo var kaliaður. Það voru líka flnar frúr. Þær voru aðaflega á Hótel Borg ef þær buðu ekki hreinlega hermönnunum heim til sín meðan mennirnir þeirra voru í vinnu.“ Súlumar rísa Á árunum 1995 til 2000 voru opnaðir samtals sjö skemmtistaðir í Reykjavík og nágrenni þar sem boðið var upp á nektardans eða svokallaðan súludans. Þar skemmtu bæði erlendar og innlendar dansmeyjar gestum. Fljótlega varð Ijóst að bæði skipulegt og óskipulegt vændi var fylgifiskur þessara staða. Rúna Jónsdóttir, starfsmaður Stígamóta, sem átti sinn þátt í að vekja athygli á tengslum þessara staða við vændi, sagöi frá því í viðtali við DV nýlega að á þeim tima hefðu henni borist persónulegar hótanir frá fólki sem átti hagsmuna að gæta af starfsemi súlustaða og það væri í eina skiptið á ferli hennar sem hún hefði orðið hrædd. Vændi leynist \íða í skýrslu, sem ber yfirskriftina Vændi á íslandi eft- ir Bryndísi Björk Ásgeirsdóttur, Hólmfríði Lydíu Egg- ertsdóttur og Ingu Dóru Sigfúsdóttur og var gerö fyr- ir dómsmálaráðuneytið 2001, er þetta staðfest og sagt að á að minnsta kosti þremur súlustaðanna sé skipu- legt vændi en á hinum sé það fremur tilviljanakennt og tengt einkadansi en þá voru dansmeyjarnar einar með viðskiptavini í lokuðu rými. Sagt er í skýrslunni aö náin kynni af dansmeyjum kosti 30 þúsund krónur og af þeirri upphæð fái stúlkan 10 þúsund. í skýrsl- unni kemur einnig fram að enginn munur er á ís- lenskum nektardansstöðum og erlendum sams konar stöðum þar sem stundað er vændi og eigendur ís- lenskra staða sækja fyrirmyndir að rekstri sínum og starfsfólk til slíkra staða. í skýrslunni segir: „Þá staðfestu allir viðmælendur að óskipulagt vændi færi fram á mörgum þessara staða þar sem ein- stakir dansarar seldu viðskiptavinum kynmök ýmist í einkadansklefum eða annars staðar." í Mannlífi birtist árið 1997 grein eftir Þóru Kristínu Ásgeirsdóttur þar sem íslensk stúlka lýsti veru sinni í vændishúsi í Reykjavík, nánar tiltekið viö Túngöt- una. Vorið 2000 voru sýndir á Stöð 2 þættir sem báru yfirskriftina „Sex í Reykjavík" og voru gerðir af Sig- ursteini Mássyni og Ragnheiði Eiríksdóttur. Þar kom fram að hægt væri að kaupa kynmök gegnum auglýs- ingar blaða og svokallaðar erótískar símalínur. Af þessu er auðvelt að draga þá ályktun aö engin sérstök ástæða sé tfl þess að efast um tilvist vændis á íslandi þótt við sjáum það ekki á hverjum degi á leið í vinnuna. Engar dyr, bara tjöld Á síðasta ári var lögreglusamþykkt Reykjavíkur breytt með þeim hætti að nú er ólöglegt að selja einka- dans. í málaferlum klúbbeigenda gegn borginni hefur þessi ákvörðun verið staðfest. Það má í rauninni líta svo á að með þessum breytingum sé staðfestur sá orðrómur að það sé í einkadansinum sem vændi fari raunverulega fram. Nektardansstaðir starfa enn með breyttum for- merkjum og á Goldfinger í Kópavogi er enn boðið upp á einkadans þrátt fyrir bann bæjaryfirvalda. Á Gold- finger hengja menn sig í það orðalag að ekki megi dansa fyrir viðskiptavini „fyrir lokuðum dyrum“ og þess vegna fer einkadans þar fram bak við tjald. í vændisskýrslunni er vitnað tfl sérfræðings lög- reglunnar sem segir líklegt að eigendur nektarstaö- anna „kaupi“ dansarana með ákveðnum formerkjum Við Túngötuna var starfrækt vændishús undir stjórn íslenskrar konu árum sanian og birtust reglulega myndir af útidyrahurðinni þar í blöðum um tíma en aldrei var lögð fram kæra. en umboðsskrifstofur þær erlendis sem útvega stúlk- urnar flokka þær eftir því hvort þær eru til í vændi eða ekki en slíkar stúlkur eru auðkenndar með „XXX“ merkingu í „vörulistum" skrifstofanna. Það kom fram í fréttum árið 2002 að nektardansar- ar sem kæmu til íslands þyrftu að afhenda vinnuveit- endum vegabréf sín við komuna til landsins. Þetta kemur einnig fram í kvikmyndinni Lilya 4 Ever eftir sænska leikstjórann Lukas Moodysson sem nýlega var sýnd á íslandi og er einhver átakanlegasta lýsing á vændi og mansali sem sést hefur. Það virðist því sitt- hvað vera líkt með starfsháttum klúbbeigenda á ís- landi og melludólgsins sem „keypti“ ungu stúlkuna í myndinni. Netið tekur við Það er ekki hægt að fjalla um vændi á íslandi í dag án þess aö minnast á Netið. Það kemur fram í vænd- isskýrslunni að árum saman hefur tíðkast að auglýsa í dagblöðum á íslandi eftir kynnum við aðila af gagn- stæðu kyni og hefur orðalagið „fjárhagslegt sjálf- stæöi“ sérstaka merkingu í þeim efnum. Ung stúlka sem stundaði vændi lýsir fyrir skýrsluhöfundum reynslu sinni af slíkum blaðaauglýsingum sem hún notaði til að komast í samband við karlmenn og undraðist hve margir svöruðu en hún auglýsti eftir að kynnast „fjárhagslega sjálfstæðum" karlmönnum. Þótt enn megi sjá mýmargar auglýsingar í blöðum sem minna á þetta hefur Netið líklega leyst blööin al- gerlega af hólmi á þessu sviöi. Þar ber hæst vefinn einkamal.is sem nýtur gríðarlegra vinsælda. Um þess- ar mundir státar vefurinn af því aö þar séu 40 þúsund skráðir notendur og að heimsóknir á netsvæðið skipti hundruðum þúsunda. í tímaritinu Tölvuheimur í janúar 2003 er fjallað um þaö sem blaðið kaflar skuggahliðar Netsins. Þar er bent á einkamal.is sem vettvang vændisauglýsinga og einnig ýmsar heimasíður þar sem ýmis kynlífsþjón- usta er auglýst mjög opinskátt. í viðtali við Tölvu- heim segir Arnar Ægisson, framkvæmdastjóri einkamal.is, að augljósar vændisauglýsingar séu fjar- lægðar af vefnum því stjórnendur hans kæri sig ekki um að slík starfsemi þrífist þar. „Fjárhagslega vel stæðir karlmenn sem leita eftir skyndikynnum, hafið samband." í sumum tilvikum er gefiö upp símanúmer og DV náöi sambandi viö eina slíka stúlku sem var fús til að hitta viðskiptavin í klukkutíma með náin kynni í huga og kostaði klukkutíminn 30 þúsund krónur. Þetta var ung stúlka sem aflýsti bókuðu stefnumóti á síðustu stundu því: „... pabbi og mamma eru aö koma í bæinn.“ Það er áreiðanlega vel meint þegar framkvæmda- stjórinn segist vilja losna við augljósar vændisauglýs- ingar af Netinu en af þessu dæmi má ráöa að það er greinilega ekki hægt. í skýrslunni um vændi, sem áður er minnst á, verður viðmælendum höfunda tíð- rætt um það hve erfitt sé að sanna að um saknæmt at- hæfi sé að ræða enda eru fréttir af lögregluaögerðum í málum af þessu tagi nær óþekktar. Vændi er sjálfssköðun í skýrslunni kemur glöggt fram að stór hluti vænd- is er svokallað nauðarvændi þar sem þeim sem selur sig finnst hann eða hún ekki eiga annarra kosta völ en eiturlyfjaneysla, kúgun og margháttað ofbeldi kem- ur oft við sögu. Eitt form nauöarvændis, sem minnst er á í skýrslunni, er dæmi um einstæðar mæöur sem selja líkama sinn til þess að framfleyta heimilinu. Greiðsla fyrir vændi er alls ekki alltaf peningar held- ur getur það verið eiturlyf, vemd, húsaskjól, föt, mat- ur eða hvaðeina. Starfsmaður Stígamóta skilgreinir vændi sem form sjálfsskööunar en mjög mörg fórnarlömb kynferðisof- beldis í æsku beita sjálfssköðun eins og aö skera sig. Mjög margar vændiskonur eiga einmitt misnotkun í æsku eða nauðganir að baki og allar rannsóknir benda til þess að vændi sé alltaf kvöl þeim sem það stunda. Það er viö hæfi að láta unga konu, sem vitn- að er til í vændisskýrslunni, eiga lokaorðin en hún leiddist ung út í vændi: „Hatrið á sjálfri mér var alveg óendanlegt, algjör- lega óendanlegt. Ég var svo ógeðsleg að öllu leyti, mér fannst svo ógeöslegt að þurfa að vera þarna inni í lík- amanum, það var bara algjör viðbjóður." -PÁÁ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.